Morgunblaðið - 27.10.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.10.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1984 Grunnskólinn í Ólafsvík teng- ist kapalkerfi Formaður Blaðamannafélags fslands, Ómar Valdimarsson (t.h.), og Örn Jóhannsson, varaformaóur Félags íslenzka prentiðnadarins, takast í hendur að lokinni undirskrift samninganna í g«r. Milli þeirra er Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari, og Elísabet Ólafsdóttir, skrifstofustjóri sáttasemjaraembættisins. Morgunbiaðtó/RAX. Samningar tókust við blaðamenn SAMKOMULAG tókst í gær í kjara- deilu Blaðamannafélags íslands og Félags íslenzka prentiðnaðarins. Samkomulagið er mjög í anda sam- komulagsins, sem tókst fyrir tæpri viku við Féiag bókagerðarmanna. Upphafshækkun samninganna með nokkrum f1okkatilf«rslum vegur um 10%. Samningar gilda frá undir- skrift til ársloka 1985. Ómar Valdimarsson, formaður Blaðamannafélags fslands, sagði að aflokinni undirskrift samning- anna í gær, að hann væri tiltölu- lega ánægður með samninginn, og ekki sízt fyrir það að samkomulag hafi náðst án þess að koma þyrfti til vinnustöðvunar. Samningar hafi tekizt með góðri samvinnu og því að allir stefndu að sama Fjölda reið- hjóla stolið í Hafnarfirði ÁBERANDI hefur verið að reiðhjól- um hafi verið stolið í Hafnarfirði að undanförnu, svo að hreinlega er talað um faraldur. Kveður svo rammt að, að vart hefur mátt skilja reiðhjól eftir ólæst utandyra. Fólk hefur verið kærulaust um eigur sínar og skilið þær eftir á glámbekk. Það scm af er árinu hefur lögreglunni í Hafnarfirði verið tilkynnt um 157 reiðhjól, sem hafa horfið, og leikur grunur á að flestum hafi verið stolið. Lögreglan í Hafnarfirði beinir þeim tilmælum til foreldra að þeir gangi úr skugga um að börn þeirra séu ekki með reiðhjól, sem ef til vill séu illa fengin, og jafnframt að hjól séu ekki skilin eftir í reiðileysi. marki. Ómar kvaðst vilja minna félagsmenn Blaðamannafélagsins á félagsfund um samningana í ráðstefnusal Hótels Loftleiða í dag klukkan 15 og hvatti hann blaðamenn til þess að fjölmenna á fundinn. Örn Jóhannsson varaformaður Félags íslenzka prentiðnaðarins sagði samningana vera sambæri- lega við þá samninga, sem FÍP hafi gert við FBM: Síðan sagði Örn: „Eftir reynslu 6 vikna verk- falls gefst blöðunum væntanlega tækifæri til að koma út óhindrað í framtíðinni." ÍJTTEKT Morgunblaðsins á starfsemi útvarpsstöðva og kap- alkerfa víða um land síðustu vik- ur leiddi í Ijós, að fyrir utan þær þrjár útvarpsstöðvar, sem störf- uðu í Reykjavík, voru a.m.k. sjö til viðbótar starfræktar um lengri eða skemmri tíma. Kapalkerfi myndbanda eru víða í bæjum á landsbyggðinni, m.a. á Olafsfirði, í Stykkis- hólmi og á Borgarnesi. í Ólafs- vík er starfsemi slíks kerfis blómleg, að sögn Vilhelms Árnasonar, sem rekur Villa- vídeó. Hann sagði, að þegar hann hefði byrjað starfsemina fyrir þremur árum, hefði um þriðjungur íbúanna látið tengja hús sín við kerfið, en nú væru það um 95% íbúanna, sem hefðu þessa þjónustu. „Við erum alltaf að færa út kvíarn- ar og það nýjasta er, að bráð- lega leggjum við kapal í grunn- skólann," sagði Vilhelm. „Að- staða þar til upptöku er góð og opnar mikla möguleika á vinnslu eigin efnis, t.d. hefur komið til tals að fundir bæjar- stjórnar verði færðir þangað og þeim sjónvarpað beint til bæjarbúa. Ef veður eru sér- staklega slæm væri jafnvel hægt að leyfa börnunum að vera heima og kenna þeim með aðstoð sjónvarpsins." Vilhelm Árnason sagði, að engin tilraun hefði verið gerð til að stöðva starfsemina frá því að hún hófst fyrir þremur árum. Maður rændur UNGUR maður utan af landi kom til höfuðborgarinnar, meðal annars til þess að skemmta sér. Hann fór á eitt veitingahús höf- uðborgarinnar á fimmtudags- kvöldið og hitti tvo menn, sem kváðust vita um „greiðvikna konu“ í Hafnarfirði. Fóru þeir til Hafnarfjarðar en í stað þess að efna loforð sitt, leiddu menn- irnir unga manninn á afvikinn stað þar sem þeir gengu I skrokk á honum og höfðu af honum um 6 þúsund krónur. Maðurinn kærði atburðinn til lögreglunnar, en ekki hefur tekist að hafa hendur í hári misindismannanna. Meiðsli mannsins reyndust sem betur fer ekki alvarleg. Morgunbladið/RAX. Gidlinbrú Framkvæmdir við Gullinbrú, nýju brúna yfír Grafarvoginn, hafa gengið vel í sumar og haust. Ekki mun líða á löngu þar til brúin verður akfær. Kjaradeilunefnd: Fleiri svæði njóti almennrar símaþjónustu KJARADEILUNEFND hefur ákveð- ið að símnotendur sem búa við handvirka símaþjónustu um Fosshól í Suður-Þingeyjarsýslu, Síðumúla í Borgarfirði auk nokkurra af- skekktra bæja á Vestfjörðum njóti almennrar símaþjónustu þrjá tíma á dag eins og áður hafði verið ákveðið fyrír fjóra hreppa við ísafjarðardjúp. Eins og kunnugt er virðir BSRB ekki þetta fyrirkomulag og bann- aði fólki sínu á ísafirði að afgreiða annað en símtöl vegna öryggis- og neyðarþjónustu. Jón Skúlason póst- og símamálastjóri hafði samband við blaðið í gær og vildi láta það koma fram að þó síma- menn virtu ekki þessa ákvörðun Kjaradeilunefndar um almenna simaþjónustu, þá gæti það fólk sem býr á þeim nokkur hundruð sveitabæjum á landinu sem væru með handvirka síma alltaf hringt í símstöðvarnar sem væru með sól- arhringsvakt þó ekki væru af- greidd nema neyðarsímtöl. Stykkishóimur: Mikið um rjúpu StyUishólmi í okt MIKIÐ hefur verið um rjúpu hér í nágrenninu og hefir hún komið nið- ur í byggð og flögrað hér um kaup- túnið, sest á húsmæni og tínt í sarp- inn í kringum húsin. Hún er mjög gæf og hænd að fólki. Eg man ekki til að jafn margar rjúpur hafi sést hér um þetta leyti, enda einkenni- legt þar sem enginn teljandi snjór er kominn í fjöll, en það eru vana- legust merki þess að rjúpan sé væntanleg í byggð. Veit þetta ef til vill á harðan vetur. Fréttaritari Vextir af verðtryggðum lánum lækkaðir um SEÐLABANKINN hefur í samráði við innlánsstofnanir og viðskipta- ráðuneytið ákveðið að samræma vexti innlánsstofnana. Samkvæmt þvi verða vextir af verðtryggðum útlánum lækkaðir og samræmdir, jafnframt því að breytilegir vextir af eldri lánum, þ.e. veittum fyrir 11. ágúst sl., verði færðir til sama horfs. Lækkun vaxta á nýjum verð- tryggðum útlánum mun nema 1—2% eftir mismunandi hæð þeirra hjá einstökum stofnunum fyrir breytinguna. Innlánsstofn- anir munu hver fyrir sig til- kynna gildistöku þessara vaxta af lánum með verðtryggingu miðað við lánskjaravísitölu, en þeir verða sem hér segir: 1) Lánstími allt að 2V4 ári 7%. 2) Lánstími minnst 2% ár 8%. Hækkun á vöxtum eldri lána að þessu marki nemur 1%. Tek- ur hún ekki gildi fyrr en unnt verður að tiikynna hana með lögformlegum hætti í Lögbirt- ingablaðinu. I fréttatilkynningu frá Seðla- bankanum í gær segir m.a.: „Þegar innlánsstofnunum var veitt heimild til þess að ákvarða eigin vaxtakjör frá 11. ágúst sl., að áskildu samþykki Seðlabank- ans, sem hefur með höndum vaxtaákvörðunarvaldið skv. gild- andi lögum, leiddi það til þess, að vextir hinna einstöku inn- lánsstofnana urðu verulega mis- munandi. Ætla má, að vaxtakjör á sambærilegum inn- og útláns- formum jafnist fljótlega fyrir áhrif samkeppni á lánamarkaði, enda þótt ótryggar verðlagshorf- ur og mismunandi aðstaða bankastofnana tefji þá aðlögun um sinn. Misræmis ætti þó sízt að gæta í vöxtum verðtryggðra lána, jafnframt því að vextir þeirra eru nú með hæsta móti með tilliti til þess öryggis, sem verðtryggingin veitir, en þeir eru nú 8—9% af lánum til allt að 2% árs og 9 10% af lengri lánum."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.