Morgunblaðið - 27.10.1984, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1984
3
LoftpúAabíllinn Kiddi Kraft dregur melingavagninn eftir sandbleytum Skeiðarársands, en melingavagninn er úr áli og á honum hangir sendir
segulmslitækisins og móttakari.
Er „gullskipið“ fundið
með segulmælingum?
Koníaksskipið Auróra og Het Wapen van
Amsterdam í „sigti gullskipsmanna“
„ÞAÐ GRU þrjú útslög í segulmelingum á Skeiðarársandi sem komu í
Ijós og mark er tekið á, þrjú skip í sigtinu, en eitt útslagið er langstærst
og girnilegast, enda verður það kannað fyrst, en í þeim viðamiklu mæl-
ingum sem framkvæmdar hafa verið að undanfórnu undir stjórn Karls
Gunnarssonar hjá Orkustofnun hefur enn þrengst hringurinn um hið
margþráða skip Het Wapen van Amsterdam," sagði Kristinn Guð-
brandsson í Björgun, cinn af forystumönnum „gullskipsmanna**, í sam-
tali við blm. Mbl. í gær.
Gullskipsmenn hafa í liðlega
tvær vikur unnið við segulmæl-
ingar á sandinum með fullkomn-
ustu tækjum sem völ er á og
nýsmíðuðum loftpúðabíl sem
smíðaður var í Björgun af
Kristni Kristinssyni og Jóhanni
Wolfran. Hefur loftpúðabíllinn,
sem kallaður er Kiddi Kraft,
reynzt mjög vel og fer hann
óhindrað yfir vatnasvæði Skeið-
arársands á allt að 80 km hraða.
Segulmælingin sem gefur vonir
um að þar liggi Het Wapen van
Amsterdam er fram við sjó á
Skaftafellsfjöru, um 6 km vestan
við stað þann sem síðast var
grafið á og talið er að togarinn
Friedrich Albert liggi I sandin-
um. Með þessum mælingum að
undanförnu er búið að rekja
verulega staðsetningar á
skipsströndum á þessu svæði, en
vitað er um öll strönd á svæðinu
frá árinu 1000, eða alls um 40
strönd. í gögnum sem fræði-
menn hafa unnið er strandstað-
ur Het Wapen merktur á sömu
slóðum og segulmælingin nú
sýnir mest útslagið eða um 40
metra langt, en Het Wapen var
49 metra langt skip með járn-
ballest. Mælingar voru gerðar í
haust á 8 km löngu svæði og
200—500 m breiðu vestan við
síðasta athafnasvæði leitar-
manna. Talið er að togarinn
Wurtemberg sem strandaði 18.
febrúar 1906 liggi um 1,5 km
austan við staðinn þar sem
Friedrich Albert fannst í fyrra,
en nýju útslögin þrjú eru öll
vestan við þann stað á Skafta-
fellsfjörum. Um 1,5 km vestan
við Friedrich Albert mældist
veikt útslag og er talið að þar
liggi birgöaskip franska flotans,
Aurora, sem strandaði 20. feb.
1912 og hvarf í sandinn óbrotið á
örfáum dögum, en talið er að
miklar birgðir af koníaki hafi
verið í skipinu. Tveimur km
vestar mældist útslag, einnig
veikt, en þar er talið að skipið
Marie Ollin de Granville liggi í
sandinum en það strandaði 21.
apríl 1865 og um 3 km vestar er
stærsta útslagið.
Nýjasta gerð af sjálfritandi
segulmæli og lóranstaðsetn-
ingartæki var notað við mæi-
ingarnar, en segulmælirinn á að
geta sagt til um hvort járn ligg-
ur í sandinum eða ekki. Mælir-
inn vinnur fyrir tölvuvinnslu og
er nú verið að vinna úr tölum og
kúrfum sem komu fram, en þess
er vænst að niðurstöður gefi
vísbendingu um dýpt málmsins í
sandinum.
Kristinn Guðbrandsson sagði í
samtali við blm. Mbl. að stefnt
væri að því að bora I stærsta
útslagið í vor og taka þar sýnis-
horn, en ef annað kemur í ljós en
vonir standa til verður leit hald-
ið áfram á Kidda Kraft.
Olíufélögin:
Sækja um 7
til 20%
hækkun á-
lagningar
NOKKRAR hskkunarbeiðnir liggja
nú fyrir hjá verðlagsráði, en engir
fundir hafa verið haldnir hjá því síðan
verkfall BSRB hófst. Meðal annars
liggur þar fyrir beiðni um hækkun
álagningar um 7 til 20% frá olíufélög-
unum.
Georg ólafsson, verðlagsstjóri,
sagði í samtali við Morgunblaðið, að
verðlagsstofnun væri nú hálflömuð
vegna verkfalls BSRB og líklega
yrðu engir fundir haldnir í verð-
lagsráði fyrr en að því loknu. Fyrir
ráðinu lægju nú nokkrar beiðnir um
hækkanir, meðal annars frá olíufé-
lögunum og leigubílstjórum. Færu
olíufélögin fram á hækkun álagn-
ingar um 7 til 20% eftir því hvort
um væri að ræða bensín, gasoliu
eða svartolíu. Þá væri farið fram á
7% hækkun á taxta leigubíla.
Hugsanlegt væri að einhverjar
breytingar yrðu á þessum hækkun-
arbeiðnum í ljósi þróunar doll rs og
verðlagsþróunar innanlands um
þessar mundir.
Sfldarsöltun í Eyjum
og á Suðurnesjum:
Stöðvuð um
tíma vegna
mikillar átu
Sfldarsaltendur í Grindavík hafa nú
ákveðið að stöðva sfldarsöltun yfir
helgina vegna mikillar átu í sfld
þeirri, sem veiðist um þessar mundir
við Vestmannaeyjar. Saltendur í Eyj-
um og Þorlákshöfn hafa einnig tekið
ákvörðun um stöðvun.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur verið mikið um átu í
síld þeirri, sem að undanförnu hef-
ur veiðzt við Vestmannáeyjar. Hef-
ur Síldarútvegsnefnd varað salt-
endur við því að verka slíka síld,
þar sem það samræmist ekki kröf-
um um gæði og gerða fyrirfram-
samninga um sölu saltsíldar af yf-
irstandandi vertíð.
A sex mánaða fresti er óhreyfð innstæða borin saman við
ávöxtun verðtryggðra reikninga með 6.5% vöxtum og
hagstæðari kjörin látin gilda. Slík trygging er sérstak/ega
mikilvæg í ótryggu ástandi þjóðmála.
Sparisjóðurinn í Keflavík, — Sparisjóður Kópavogs, — Sparisjóður Mýrasýslu, — Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, — Sparisjóður vélstjóra.