Morgunblaðið - 27.10.1984, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1984
Fjöldi skipa hefur verið á ytri höfninni í Reykjavík allt frá því að verkfall BSRB hófsL Myndin var tekin í gter. Morgunblaðií/RAX
Á þriðja tug skipa í verkfallskvínni:
Skipafélögin tapa tugum milljóna
Sements-
skortur er
yfirvofandi
„Við urðum sementslausir í síð-
ustu viku og það kemur sér vis.su
lega illa fyrir byggingariðnaðinn,“
sagði Gyin Þórðarson, forstjóri Sem-
entsverksmiðju ríkisins, í samtali
við Mbl. „Það bætti ekki úr skák að
ofninn sem framleiðir gjallið bilaði
rétt fyrir verkfall BSRB og eins, að
fyrri hluta októbermánaðar seldust
80% af því sementi sem gert var ráð
fyrir að selja allan mánuðinn."
Gylfi sagði að sementsleysið
hefði það í för með sér að vinna
myndi fljótlega stöðvast hjá verk-
tökum og byggingameisturum,
sérstaklega á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu þar sem salan er mest.
Sem dæmi tók hann að fram-
kvæmdir við nýju flugstöðina á
Keflavíkurflugvelli hlytu að leggj-
ast niður alveg á næstunni.
„En við höfum undanþágu fyrir
sjálfan brennsluofninn, þannig að
sement á að vera komið á markað-
inn rúmum sólarhring eftir að
verkfall leysist," sagði forstjóri
sementsverksmiðj unnar.“
Leiðrétting
í FRÉTT Morgunblaðsins í gær
um Bifreiðastöð Steindórs kom
fram að stöðin væri brautryðjandi
í leigubílaakstri hér á landi. Þor-
valdur Þorvaldsson bílstjóri á Bif-
reiðastöð Reykjavíkur hafði sam-
band við blaðið og kom því á fram-
færi að hér væri um misskilning
að ræða. Hann sagði að Bifreiða-
stöð Reykjavíkur hefði verið
stofnuð árið 1913 undir nafninu
Bifreiðafélag Reykjavíkur og hóf
hún akstur leigubifreiða árið 1914.
Bifreiðastöð Steindórs hóf akstur
leigubifreiða árið 1915.
NÚ ERU á þriðja tug flutningaskipa
föst í verkfallskví BSRB og nokkur
til viðbótar á leiðinni til landsins.
Kostnaður skipafélaganna vegna
stöðvunar þeirra skiptir milljónum á
dag og hafa félögin tapað tugum
milljóna það sem af er verkfalli
BSRB.
Morgunblaðið ræddi við for-
svarsmenn nokkurra skipafélaga
um stöðvun skipanna. Páll Bragi
Kristjónsson, framkvæmdastjóri
hjá Hafskip, sagði að 4 skip Haf-
skips sætu föst vegna verkfalls
BSRB en 2 hefðu verið send áleiðis
til Norðurlanda þar sem þau feng-
ust ekki afgreidd hér. Sagði hann
að beinn kostnaður Hafskips
vegna verkfallsaðgerða við skip
þeirra væri hátt á aðra milljón á
dag auk hugsanlegs tekjutaps og
annarrar röskunar á starfsemi
fyrirtækisins. Sagði Páll Bragi að
Hafskip hefði lýst BSRB ábyrgt
fyrir þessum kostnaði vegna ólög-
legra verkfallsaðgerða. Þórður
Sverrisson, viðskiptafræðingur
hjá Eimskip, sagði að 8 skip Eim-
skips væru föst vegna verkfallsins.
Sagði hann að kostnaður fyrir-
tækisins vegna þessa biötíma
hefði ekki verið reiknaður út en
hann væri misjafn eftir skipum.
Sagði hann að BSRB hefði verið
lýst ábyrgt fyrir kostnaði við tvö
skip sem stöðvuð hefðu verið og
hefði kostnaður við þau reynst 72
þúsund og 169 þúsund á dag. Auk
þessa væri margvíslegur annar
kostnaður og tekjutap. Miðað við
þetta og upplýsingar Hafskips hér
að framan er ljóst að tjón Eim-
skips skiptir milljónum á degi
hverjum.
ómar Jóhannsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Skipadeildar
SÍS, sagði að 5 skip á þeirra veg-
um væru stopp vegna verkfallsins
og fleiri á leiðinni til landsins.
Sagði hann að beinn kostnaður
skipadeildarinnar væri 2—5 þús-
und dollarar á dag vegna hvers
skips auk ýmislegs annars kostn-
aðar, tekjutaps og fleira. Rainbow
Hope er enn í Njarðvíkurhöfn, en
það kom til landsins 8. október
með vörur til varnarliðsins. Magn-
ús Ármann hjá skipamiðlun
Gunnars Guðjónssonar hf. sagði
að biöin kostaði útgerðina líklega
um 300 þúsund krónur á dag og
takmörk væru fyrir því hvað hægt
væri að láta skipið bíða lengi.
FULL HÚS BRAUÐA
Já, allar sölubúðir NÝJA KÖKUHÚSSINS
eru troðfullar af nýjum, ilmandi
brauðum og öðru bakkelsi.
P.S. Við eigum nóg hráefni og bökum áfram eftir helgi og á meðan verkfall stendur.
Munið að á virkum dögum stendur söluvagninn okkar á Lækjartorgi.
Laugavegi20
Opl6 i dag og á morgun tll kl. 4.
JL-Húsinu,
Hringbraut
Opið i dag og á morgun tll kl. 4.
SS-Búðinni,
Glæsibæ
Opið til hádegis i dag.
Hamraborg 4,
Kópavogi
Opld I dag og i morgun tll kl. 4.
Reykjavíkurvegi 62,
Hafnarfirði
Oplð i dag og á morgun tll kl. 4.
Að ógleymdu
kaffihúsinu
við Austurvöl!
Opld tll kl. 6.30 alla daga.