Morgunblaðið - 27.10.1984, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1984
Atli Heimir Sveinsson
Johsnnes Brahms
Ludwig van Beethoven
Sin fóníutónleikar
Fyrstu tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands á þessu
starfsári er halda átti 4. október,
en frestað var vegna verkfalla,
verða haldnir laugardaginn 27.
október, kl. 14 (í dag) og verða
flutt verk eftir Atla Heimi
Sveinsson er hann nefnir „Infin-
itesimal Fragment of Eternity",
þriðji píanókonsertinn eftir
Beethoven og önnur sinfónían
eftir Brahms. Stjórnandi verður
Jean-Pierre Jaquillat og einleik-
ari Nicolas Economo. Ekki eru
tök á að fjalla um verk Atla
vegna ókunnugleika en von er á
því að eitthvað nýtt og skemmti-
legt beri fyrir eyru í þessu
„óendanlega smáa broti úr eilífð-
inni“. Beethoven lauk við þriðja
píanókonsert sinn árið 1800 en
verloið var ekki flutt fyrr en
þremur árum síðar, 5. apríl 1803,
eða fyrir 181 ári. Hvorki mun
áheyrendum né gagnrýnendum
Tonlist
Jón Ásgeirsson
hafa þótt mikið til um verkið,
líklega fyrir ýmsar nýjungar,
bæði er varðar einleikshljóðfær-
ið og hljómsveitarrithátt er var
með sinfónískari hætti en tíð-
kaðist í hefðbundnum konsert-
um. Konsertinn hefst á löngum
inngangi (framsagan) fyrir
hljómsveitina. Fyrsta stefið er
ekta Beethoven stef, kraftmikið
en einfalt (mynd 1) og annað
stefið, sem heyrist ekki fyrr en
eftir 50 takta er sterk andstæða
aðalstefsins, lýriskt að gerð
(mynd 2). Framsögu hljómsveit-
arinnar lýkur með því að unnið
er með brot úr aðalstefinu.
„Innkoma" píanósins hefst
með laghæfum c-moll-skala, sem
er þrítekinn áður en aðalstefið
er leikið.
1 úrvinnslukaflanum er mikið
unnið úr fyrstu fjórum töktum
aðalstefsins. ítrekunin hefst
með aðalstefinu í upprunalegri
gerð, leikið af hljómsveitinni, en
eftir átta takta tekur píanóið
þátt í leiknum, sem lýkur með
„kadensuhljóminum". Eftir smá
kadensu fyrir einleikarann, lýk-
ur fyrsta þætti með kraftmikl-
um niðurlagskafla, er byrjar
mjög veikt en lýkur í fullum
styrk hljómsveitar og einleikara.
Annar þátturinn er hægur og
hefst í píanóinu á viðhafnarlegu
sönglagi og (mynd 3) er kaflinn í
A-B-A formi. Ritháttur kaflans,
sérstaklega píanóparturinn, er
mjög skrautlegur og eftir smá
kadensu fyrir pianóið, endar
þátturinn á veikum samleik ein-
leikara og hljómsveitar, en síð-
asti hljómurinn er eins konar
SYMPHONY N9 2
I
Johannts Brahms,0p.73
(íaaa-iasD
Flantl
Obol
Clarlnettl lii
Cornl
Cornl ln ||^
Trombonl
a Bafltuba
ion tn >ppo ft gdi LO
Jhf. t=3= t
fwr ft &=z
: iTl dntc*
r t-
rimpanl ln
Vlollno I
Vlollno □
Vlola
VloloncoUo
Contrabaaao
ta
atrarTm" tíí u
|lli - - d I— jft
B.A H.S477
PHated ta Kasland
„sjokk-effekt“, eða „hvell“sterk-
ur endahljómur. Síðasti kaflinn
er í rondóformi, það er, að verkið
skiptist niður í þrjá þætti, einn
aðalþátt og tvo aukaþætti, sem
leiknir eru á milli endurtekninga
aðalþáttarins, svo formið verður
A-B-A-C-A-B-A og lýkur þætt-
inum því næst með kandensu og
glæsilegum niðurlagskafla.
Aðalstefið er sérkennilegt,
hefst án undirbúnings á fimmta
tónsæti tóntegundarinnar
(mynd 4). Annað stefið (B) er f
Es-dúr og (mynd 5) þriðja stefið
í As-dúr (mynd 6). I þriðju um-
ferð A-stefsins (á eftir C) býr
Beethoven til fúgu framsögu úr
aðalstefnu (mynd 7). Þriðji kon-
sertinn er glæsilegt verk hlaðið
stefjum er syngja f huga manns
eins og spakmæli eða hnyttnir
kviðlingar, sinfónískt skáldverk,
sem aldrei slær fölva á, hversu
Áhrif verkfallsins á starfsemi flugfélaganna:
Farþegum hefur fækkaö
svo þúsundum skiptir
STARFSEMI flugfélaganna hefur
raskast verulega í verkfalli BSRB og
hafa félögin orðið fyrír miklu tjóni
vegna bess. Farþegum bæði í innan-
landsflugi og millilandaflugi hefur
fækkað svo þúsundum skiptir og
ferðir hafa verið felldar niður vegna
þess og af tæknilegum erfiðleikum
vegna þess að aðstoðarmenn flug-
umferðarstjóra eru í verkfalli.
Að sögn Sæmundar Guðvins-
sonar fréttafulltrúa Flugleiða og
Stefáns Halldórssonar forstöðu-
manns kynningardeildar Arnar-
flugs hafa erlendir flugfarþegar
dregið mjög mikið úr ferðum sín-
um hingað. íslendingar hafa einn-
ig dregið mikið úr ferðalögum sín-
um síðan verkfallið skall á en síð-
ustu daga, eftir að verkfallsverðir
hættu aðgerðum sínum á Kefla-
víkurflugvelli, hefur þess orðið
vart að flug íslendinganna er farið
að jafna sig að nokkru aftur. Þá
hefur dregið úr fragtflutningum,
sérstaklega til landsins, enda eru
orðnir erfiðleikar með geymslu
fraktar eins og komið hefur fram.
Ferðalög innanlands hafa einnig
dregist mikið saman.
Talsmenn flugfélaganna segja
að tjón þeirra hvors um sig nemi
milljónum króna vegna verkfalls-
ins, en ekki liggja fyrir nákvæmar
tölur um tjónið. Aðrir ferðaþjón-
ustuaðilar, svo sem hótel, tapa
einnig miklum fjármunum vegna
þessa samdráttar í flutningi er-
lendra ferðamanna. Talsmenn
flugfélaganna létu I Ijósi ótta um
áhrif verkfallsins á ferðamanna-
strauminn hingað og nefndu að
lagt hefði verið í kostnaðarsamar
auglýsingaherferðir að undan-
förnu sem ekki skiluðu sér þar
sem fólk þyrði ekki að koma
hingað. Flugfélögin gera sér þó
vonir um að þessir flutningar séu
þó ekki allir tapaðir, hluti þeirra
hafi frestast og miklir flutningar
verði að loknu verkfalli.
Þegar í byrjun verkfallsins
hættu Flugleiðir millilendingum
hér á landi í fluginu á milli Evr-
ópu og Bandaríkjanna. Síðan hafa
10 til 12 flugáhafnir verið úti til að
sjá um þetta flug. Sæmundur
Guðvinsson sagði að þetta væri
ákaflega kostnaðarsamt auk þess
sem það væri bagalegt fyrir þá
sem þurfa að ferðast á milli Is-
lands og Bandaríkjanna að þurfa
að fara í gegn um Luxemburg. Þá
yrði ferðaþjónustan hér af öllum
áningarfarþegum á þessari leið en
þeir eyddu oft miklum peningum á
fáum dögum. Flugleiðir hafa verið
með I undirbúningi nýtt afslátt-
arkerfi fyrir flugfarþega í innan-
landsflugi sem koma á til viðbótar
þeim afsláttarmöguleikum sem
þegar hafa verið teknir upp, svo
sem hoppfjargjöldum til Akureyr-
ar, en orðið hefur að fresta gildis-
töku þess vegna verkfallsins, að
sögn Sæmundar.
Laugardag frá kl. 10 — 4
Sýndar verða 1985 árgerðirnar af:
Mazda Mazda
929 626 Mazda323
Sérstaklega kynnum við nýjan MAZDA 323, sem nú
kemur á markaðinn með nýju og breyttu útliti.
Ennfremur sýnum við úrval af notuðum MAZDA bílum,
sem allir seljast með 6 mánaða ábyrgð frá söludegi.
Gerið ykkur dagamun og
KOMIÐ OG SKOÐIÐ ÞAÐ NÝJASTA FRÁ MAZDA,
og auðvitað verður heitt á könnunni allan daginn!
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99
Fer inn á lang
flest .
heimili landsins!