Morgunblaðið - 27.10.1984, Side 21
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1984
21
Horfur á endurvakn-
ingu bandalags
V-Evrópulanda
Rómaborg,
JTANRÍK
, 26. október. AP.
UTANRlKIS- og varnarmálaráð-
herrar 6 ríkja Atlantshafsbandalags-
ins auk Frakka byrjudu í dag fund-
arhöld í Rómaborg. Þing þeirra mun
standa út morgundaginn. Hér eiga í
hlut auk Frakka Bretland, Vestur-
l>ýskaland, Ítalía, Holland, Belgía
og Lúxemborg. Vilja ráðherrarnir
kanna möguleika á því að auka
stiórnmálalegt hlutverk Evrópuland-
anna í NATO án þess að það verði á
kostnað Bandaríkjanna.
Búist er við því að á fundinum
verði lögð drög að endurvakningu
Bandalags Vestur-Evrópuríkja.
Það mun vera skoðun flestra ráða-
manna innan NATO, að endur-
vakning bandalagsins geti boðið
upp á ýmsa möguleika sem NATO
eitt gerir ekki, til dæmis býður
það upp á virka þátttöku Frakka
sem eru ekki í NATO. Sex NATO-
lönd auk Bandaríkjanna og Kan-
ada koma hér hvergi nærri,
Noregur, ísland, írland, Grikk-
land, Tyrkland og Danmörk.
Skiptar skoðanir eru samt í
sumum krókum um gildi banda-
lagsins, ýmsir embættismenn í
Bandaríkjunum óttast nokkuð að
forystuhlutverkið minnki. Að-
standendur bandalagsins þver-
taka fyrir að nokkuð slíkt sé í
burðarliðnum, þvert á móti sé ætl-
unin að taka fullt tillit til Banda-
ríkjanna sem forystulands NATO.
Hugmyndin sé hins vegar að auka
þátttöku Vestur-Evrópu á hinum
ýmsu sviðum innan starfsemi Atl-
antshafsbandalagsins.
•X2*iSnHí ..V.
AP/Símamynd.
Opinberir starfsmenn mótmæla
Opinberir starfsmenn í Frakklandi mótmæla á Parísargötu þeirri
ákvörðun stjórnvalda að veita þeim 2% launahækkun 1. nóvember
næstkomandi. í vor fengu opinberir starfsmenn 1 % kauphækkun, en
þeim fínnst hækkunin í næstu viku ónóg, þar sem spáð er því að
verðbólgan í Frakklandi á árinu nemi 7,5%. Stjórnvöld hyggjast hins
vegar takmarka launahækkanir til þess að áætlanir um að koma verð-
bólgu í 6% fyrir árslok og 4,5% í lok 1985 geti orðið að veruleika.
Sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ:
Spáir sandinist-
um sömu örlögum
og Somoza hlaut
Minat'ua, Wuhinxton, 26. októbcr. AP.
JOSE Sorzano, sendiherra Bandaríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði
sandinistaleiðtoga í Nicaragua fremja
sömu glæpi og einræðisstjórn Somoza
og spáði sandinistum sömu örlögum
og Somoza.
Sorzano sagði sandinista hafa
svipt þjóðina stjórnmálafrelsi, inn-
leitt ritskoðun fjölmiðla, gripið til
fangelsana, pyntinga og jafnvel
morða á pólitískum andstæðingum,
auk þess sem gerðar væru tilraunir
til að heilaþvo þjóðina.
Bandariska utanríkisráðuneytið
sagði að búlgarskt flutningaskip
losaði nú hergögn frá fylgiríkjum
Sovétríkjanna í hafnarbænum E1
Bluff í Nicaragua. Vopnasendingin
yrði til þess að auka enn frekar á
gífurlega hernaðaryfirburði
Nicaragua í Mið-Ameríku. Tals-
maður ráðuneytisins vildi ekki
segja hvers kyns hergögnin væru,
en þ.ám. væru þó ekki öflugar
flugvélar, eins og ABC-sjón-
varpsstöðin hafði áður gefið til
kynna og borið fyrir sig heimildir
úr utanríkisráðuneytinu.
Varnarmálaráðuneytið í Man-
agua sagði að 240 skæruliðar, er
berðust gegn sandinistastjórninni,
hefðu fallið í bardaga við borgina
Esteli í norðurhluta landsins er
þeir reyndu að ná henni á sitt vald.
Borgin er hernaðarlega mikilvæg.
Sagði ráðuneytið 84 stjórnarher-
menn hafa fallið í átökunum.
Bandaríkin:
Vaxtalækkun
New York, 26. október. AP.
MORGAN Guaranty Trust Co.,
fimmti stærsti viðskiptabanki
í Bandaríkjunum, lækkaði í
dag vexti á skammtímalánum
um hálft prósent, úr 12,5 í 12%.
í byrjun ársins voru vextir um
11% en fóru upp (13% í júní sl.
Síðan hafa þeir heldur verið að
lækka. Hæst hafa vextir í
Bandaríkjunum komist i
21,5%, í desember 1980.
HEKLU
bílmlurinn
er opinn virka daga kl. 9—18, fimmtu-
daga kl. 9—22, laugardaga kl. 13—17.
Glæsilegt úrval
notaðra bíla
Kaupbætir
Nýir Good Year
vetrarhjólbarðar fylgja með
notuðu bílunum frá okkur
IhIHEKIAHF
J Laugavegi 170-172 Sími 21240
EKKERT
AFGREIÐSLUCJALD
FYRIR
ÚTTEKT MATVÖRU
SAMKVÆMT NXIU SAMKOMUIAGI
VIÐ MATVORUKAUPMENN
ATHUGIÐ
ÁÐUR BOÐAÐ AFGREIÐSLUGJALD
KEMUR ALDREITILINNHEIMTU