Morgunblaðið - 27.10.1984, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1984
23
Ársskýrsla Amnesty Intemational 1984:
Mannréttindi fótum troðin
í flestum ríkjum heimsins
Lýsingar Amnesty Ingernational á ástandi f mörgum ríkjum heims eru
sannarlega frábrugðnar því sem getur að Ifta í bæklingum ferðaskrifstofa.
SAMTÖKIN Amnesty Inter-
national, sem berjast fyrir sak-
aruppgjöf pólitískra fanga og
gegn dauðarefsingum, hafa sent
frá sér ársskýrslu sína 1984. Þar
er greint frá ástandi mannrétt-
indamála í heiminum og starf-
semi samtakanna á árinu sem
leid. Félagar í samtökunum, sem
eru um 500 þúsund í meira en
160 iöndum, hafa einkum reynt
að vekja athygli á mannréttinda-
brotum og þrýsta á stjórnvöld í
því skyni, að fá þá menn látna
lausa, sem handteknir hafa ver-
ið vegna skoðana sinna, trúar-
bragða, litarháttar eða kynþátt-
ar. Þá hafa samtökin beitt sér
fyrir því, að dauðarefsingar
verði afnumdar, og telja sig hafa
átt hlut að því, að þær voru felld-
ar úr refsilöggjöf Kýpur í fyrra
og gilda nú aðeins í El Salvador
þegar ríkið á í ófriði við önnur
lönd.
Skýrsla Amnesty, sem er 382
bls. að stærö og sannarlega ekki
uppörvandi lesning, fjallar um
mannréttindabrot í 118 ríkjum
heims. Norðurlöndin eru ekki í
þeim hópi og flestar aðfinnslurnar
við réttarfar á Vesturlöndum
varða dauðarefsingar yfir glæpa-
mönnum, sem samtökin telja að
séu óverjandi frá siðferðilegu
sjónarmiði. Dauðarefsing er í gildi
í Sviss, einu grónasta lýðræðis- og
réttarríki veraldar, og það er
ástæðan fyrir því, að Sviss kemst
á blað. í því sambandi er þess að
geta, að í febrúar sl. voru laga-
ákvæði um dauðarefsingu staðfest
í þjóðaratkvæðagreiðslu þar í
landi.
öll kommúnistaríkin eru í bók-
inni og flest ríki Afríku og Asíu og
Suður-Ameríku. Ákærur samtak-
anna á hendur stjórnvöldum í
þessum ríkjum eru af ýmsu tagi;
þau eru sökuð um ólögmæta fang-
elsun manna, pyntingar, morð,
mannshvörf, óréttmæta vist á
geðveikrahælum og þrælkunar-
vinnubúðum, svo nokkuð sé nefnt.
Dæmin, sem nefnd eru í ársskýrsl-
unni, skipta hundruðum og eru þó
aðeins lítill hluti þeirra mannrétt-
indabrota, sem framin eru í heim-
inum á hverju ári.
Eitt dæmið er af lögfræðingn-
um América Yolanda Urizar í
Guatemala, sem vopnaðir menn í
jeppabifreið rændu í mars í fyrra.
Hún hefur ekki sést síðan. Urizar
hafði verið hótað lífláti vegna
starfa sinna fyrir verkalýðshreyf-
inguna í landinu. Annað dæmi er
af rafvirkjanum Wei Jingsheng í
Peking í Kína, sem dæmdur var í
15 ára fangelsi í október 1979 fyrir
að hafa starfað með svonefndri
„lýðræðishreyfingu" árið 1978.
Vitað er að honum var haldið í
algerri einangrun í fjögur ár og
hann hefur þurft að fá læknis-
þjónustu tvívegis á þeim tíma.
Dæmi af þessu tagi er nánast
endalaust hægt að nefna og þó
óhugnanleg séu eru þau sem sól-
argeisli miðað við það myrkur
mannlegrar grimmdar og níð-
ingsskapar, sem önnur dæmi eru
af í skýrslunni.
íslandsdeild Amnesty Internat-
ional, sem aðsetur hefur í Hafnar-
stræti 15, tekur þátt í hinni al-
þjóðlegu mannréttindabaráttu
samtakanna. Felst starfsemin
einkum í því, að vekja athygli á
mannréttindabrotum og fá íslend-
inga til að skrifa bréf til stjórn-
valda I viðkomandi löndum og
krefjast þess, að þeir sem brotið
hefur verið á fái uppreisn æru.
Geraldine Ferraro
Ferraro
hótað
San Franciseo, 28. október. AP.
LARRY nokkur Charon, starfs-
maður í tölvufyrirtæki í San
Francisco, var handtekinn í
morgun eftir að hafa hótað að
skjóta Geraldine Ferraro, vara-
forsetaefni demókrata við for-
setakosningarnar þann 6.
nóvember. Ferraro var á kosn-
ingaferðalagi og hugðist koma
við í fyrirtækinu þar sem Charon
starfði. Dómari úrskurðaði hann
í gæzluvarðhald þar til tíu þús-
und dollara tryggingarfé hefði
verið lagt fram.
Ungar mæður
Belnrad, 26. október. AP.
12 ARA stúlkubarn fæddi mey-
barn í borginni Subotica í Júgósla-
víu, skammt frá landamærum
Ungverjalands. Barnið vó 2,2 kíló-
grömm. Að sögn blaösins Vecernje
Novosti í Belgrad, heilsast móður
og barni prýðilega. Bætti blaðið
við, að 11 ára gömul tatarastúlka
hefði alið hraust sveinbam fyrr í
mánuðinum í Serbíu.
ÓDÝR LINA
I BARNA- OG UNGLINGAHÚSGÖGNUM
HUSGAGNA'
SÝNING
IIM HELGINA
Opið laugardag kl. 10—16.
Opið sunnudag kl. 14—16.
Svefnbekkir meö 3 púðum frá kr. 5.980.-
Skrifborð meö hillum frá kr. 3.980.-
ATHUGIÐ
Skapiö börnunum skemmtilegt og þægilegt umhverfi og góða
vinnuaöstööu viö námiö meö húsgögnum frá TRÉBORG.
ATHUGIÐ
Vönduö íslensk fram-