Morgunblaðið - 27.10.1984, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1984
Fyrsti sigur á Svíum í 20 ár
Glæsilegur sigur íslands gegn
Svíþjóö á NM í handknattleik
„Það var tyrst og fremst geysi-
lega sterk liösheild sem vann
þennan stórglæsilega sigur gegn
Svíum. Strákarnir léku allir eins
og best verður á kosið og hiö
sterka og létt leikandi landslið
Svía átti aldrei möguleika. Ég get
líka sagt það án þess að roöna að
það var (yrst og fremst stórgóð
markvarsla hjá Mats Olson i
sænska markinu sem kom í veg
fyrir að sigur okkar yrði atærri,"
sagði liösstjórí íslenska liösins í
gærkvöldi er Mbl. spjallaði við
hann um hinn góða árangur ís-
lenska landsliðsins.
íslenska liöiö sigraöi meö 22
mörkum gegn 20. í hálfleik var
staöan 11—6 fyrir island. Þetta er
fyrsti sigur íslenskra handknatt-
leiksmanna á Svíum í tuttugu ár.
Síöast vannst sigur áriö 1964 er
island sigraöi Svía óvænt 12—10 í
heimsmeistarakeppninni í Brati-
slava. íslendingar hafa nú unniö
báöa leiki sína á Noröurlanda-
meistaramótinu í handknattleik og
eiga góöa möguleika á meistara-
titli.
Gekk illa aö skora
til aö byrja meö
Aö sögn Guöjóns gekk íslenska
lióinu frekar illa aö skora framan af
leiknum og þá var jafnræöi meö
liöunum. En er líöa tók á fyrri hálf-
leik komu yfirburöir landans i Ijós.
islenska liöiö seig hægt og bítandi
fram úr því sænska og í hálfleik
skildu fimm mörk.
Þaö var fyrst og fremst sterkur
varnarleikur og góö markvarsla
Einars Þorvaröarsonar sem lagói
ísland - Svíþjód
22—20
grunninn aö forystunni. Þá var
sóknarleikur liösins mjög yfir-
vegaöur og ekki skotiö á markiö
nema í marktækifærum eins og
þau gerast best. Allur leikur liösins
var lika agaöur og leikiö var fyrir
heildina.
Sterkur leikur íslenska iiösins
kom Svíum nokkuö í opna skjöldu
og áttu þeir i hinu mesta basii meö
hina mjög svo frísku íslensku
leikmenn.
Leikflétturnar
gengu vel upp
I sióari hálfleik beitti íslenska
liöiö óspart leikfléttum á Svía og
gengu þær mjög vel upp. Fundu
Sviar ekkert svar viö þeim. Um
tíma í siöari hálfleik var sex marka
munur á liöunum, 17—11. Lengst
af i leiknum haföi island fimm
marka forskot.
Undir lok leiksins fór þó aö
gæta nokkurrar þreytu hjá leik-
mönnum og þá tókst Svíum aö
minnka muninn.
Þegar aöeins tvær mínútur voru
til leiksloka var munurinn oröinn
aöeins eitt mark, 21—20. íslenska
liöiö hóf sókn og aö sögn Guöjóns
• Kristján Arason var alveg óstöðvandi í sókninni og skoraði ellefu
mörk, flest með þrumuskotum langt utan af velli. Hér svífur Kristján
inn af línunni og skorar.
• Einar Þorvaröarson markvörður íslands varöi 20 skot i leiknum aegn Svíþjóö og lokaöi oft markinu
algjörlega. Hér má sjá Einar koma út á móti og verja í landsleik. Páll Olafsson og Þorbjörn Jensson eru til
varnar. Litla innfellda myndin er svo af Einari markverði, hetju íslands í leiknum í gær.
bjóst hann nú viö því aó allt færi í
vaskinn eins og á móti Júgóslövum
á Ólympíuleikunum í Los Angeles.
En leikur islands síöustu mínútur
leiksins var mjög góöur og yfir-
vegaöur. Tekiö var leikkerfi sem
endaöi á því aö Kristján Arason
lyfti sér og skoraöi meö glæsilegu
þrumuskoti 10 sek. fyrir leikslok
og innsiglaöi sigurinn. Og mikill
fögnuöur braust út í herbúöum is-
lands. Fyrsti sigur á Svium í hand-
knattteik í 20 ár var í höfn.
Kristján, Einar og
Steinar meö toppleik
Guöjón sagöi aö mjög erfitt væri
aö gera upp á milli leikmanna is-
lenska liösins. En Kristján Arason
hefði veriö hreint út sagt stórkost-
lega góöur. Hann skoraöi 11 mörk
í leiknum og flest þeirra meö
þrumuskotum utan af velli. Svo til
óverjandi, svo föst voru þau.
Einar Þorvaröarson markvörður
varöi 20 skot í leiknum, og lokaöi
íslenska markinu um tíma. Tók öll
skot Svía hvar sem þau komu. Þá
lék Steinar Birgisson sinn besta
landsleik til þessa, vann allan tím-
ann geysilega vel bæöi í vörn og
sókn og skoraöi tvö falleg mörk.
Mörk íslenska liösins skoruóu
þessir leikmenn: Kristján Arason
11, Hans Guömundsson 3, Þor-
björn Jensson 2, Steinar Birgisson
2, Páll Ólafsson 1, Siguröur Gunn-
arsson 2 og Jakob Sigurösson 1.
ÞR
Góðir möguleikar
á meistaratitii
íslenska landsliðið { hand-
knattleik á nú góða möguleika á
því að hreppa Norðurlandameist-
aratitílinn í handknattleik í fyrsta
skipti í karlaflokki. Landsliðiö
hefur sigraö í tveimur fyrstu leikj-
um sínum á mótinu gegn Finnum
og Svíum. í dag fyrir hádegi mæt-
ir svo íslenska landaliöiö liði Dan-
Stórsigur
UMFN
Einn leikur fór fram í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í gær-
kvöldi. UMFN sigraði liö IS í
Njarövík með 114 stigum gegn 68.
í hálfleik var staðan 66—29. Eins
og tölurnar gefa til kynna voru
yfirburðir UMFN algjörir þrátt
fyrir að varaliö þeirra léki lengi í
síðari hálfleik. Valur Ingimund-
arson var stigahæsti leikmaöur
UMFN með 38 stig. Nánar veröur
greint frá leiknum í blaðinu á
þriðjudag.
merkur og takist íslendingum aö
ná jafntefli og síðan sigra Norö-
• Steinar Birgisson lék sinn
besta landsleik til þessa í gær
gegn Svíum að sögn Guðjóns
liðsstjóra. Var sterkur {vörn sem
sókn.
menn í síðasta leiknum á sunnu-
dag er titillinn í höfn.
En þaö er ekki gott aö vera of
bjartsýnn því aö Danirnir hafa
oftast sigraö okkur og veriö okkur
afar erfiöir mótherjar enda meö
sterkt landsliö í handknattleik í
fjölda ára. Viö munum greina frá
landsleiknum viö Dani i biaóinu á
morgun.
Danir lentu í hinu mesta basli
meö Finna í gærkveldi en tókst þó
aö knýja fram sigur 27—23 eftir
hörkuleik. Að sögn liösstjóra ís-
lenska liðsins, Guöjóns Guö-
mundssonar, er mjög jákvæöur og
góöur andi innan hópsins og mikill
hugur er í leikmónnum.
Meiösl hafa þó tekiö sig upp í
hópnum og óvíst er hvort Þorberg-
ur Aöalsteinsson getur leikið meö í
dag gegn Dönum vegna meiösla í
hné. Þá er Siguröur Gunnarsson
ekki búinn aö ná sér aó fullu.
Brynjar Kvaran er líka meiddur.
Guöjón sagöist búast viö hörku-
leik gegn Dönum og víst væri aö
íslensku leikmennirnir myndu ekk-
ert gefa eftir.
— ÞR.
— ÞR.