Morgunblaðið - 11.11.1984, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984
Er óhugsandi að Arabar
og Gyðingar geti átt
samleið einhverntíma?
LEON Uris er einn af þessum bók-
uðu metsöluhöfundum og væntan-
lega verður sömu sögu að segja af
þessari bók sem hér verður gerð
að umtalsefni, „The Haj“, og ýms-
um öðrum. Flestir þekkja in efa
Exodus, sem einnig var gerð
kvikmynd eftir. Nefna má Mila 18,
QB VII og Topaz, að ógleymdri
Armageddon. Leon Uris skrifar þó
ekki afþreyingarbækur í þeim
skilningi sem við leggjum í orðið,
bækur hans eru unnar að undan-
gengnum miklum rannsóknum og
undirbúningi og það eykur á gildi
bóka hans, sem innihalda hvort-
tveggja í senn sagnfræði og sögu-
þráð með mikilli spennu.
Leon Uris hefur ritað í fyrri
bókum sínum nokkrum um gyð-
inga og sögusviðið í The Haj er
Palestina. En svo bregður við að
aðalpersónur í þessari bók eru
allar af arabískum uppruna, þó
að gyðingurinn Gideon Asch
komi að vísu einnig við sögu og
það með afdrifaríkum hætti.
Haj Ibrahim, ættarhöfðinginn
i Taba i Palestinu þegar bókin
hefst, verður vissulega eftir-
minnileg persóna. Hann kemst i
kynni við Gideon áðurnefndan
og þrátt fyrir að þeir séu óvinir
— vegna þess að hefðin og að-
stæðurnar neyða þá til þess —
tekst vinátta með þeim. Það
verður Ibrahim mikil opinberun
að kynnast Gideon og i rauninni
leiðir til breytinga á lífsviðhorf-
um hans, þótt hann fái ekki
breytt atburðarásinni né harm-
leiknum. Enda er Haj Ibrahim
fastur og rigbundinn i klafa
arabískrar siðfræði — Islam —
sem Leon Uris hefur augsýnilega
kynnt sér til hlítar. Það er með
ólikindum, hversu hann gerir
skil hugsunarhætti araba og
baráttu Palestinumanna, og þá
ekki síst fjölskyldusamfélagi
arabanna, sem er ósveigjanlegt
og fylgir ekki takti timans.
f kynningu útgefenda sem er
Andre Deutsch-forlagið segir að
Uris hafi á eftirminnilegan hátt
sett sig inn i hugsunarhátt og
gert hann skiljanlegri en áður
svo og hversu hann dragi fram
hina jákvæðu hliðar þeirra per-
sóna arabískra sem hann lýsir.
Það má vissulega taka undir, að
Uris hefur þetta allt á valdi sinu,
en á næstum óskilgreinanlegan
hátt gerir hann hinn dæmigerða
araba nánast að fáráði, sem er
staðnaður i löngu liðnum tíma,
tekst ekki að brjóta sér né öðrum
leið til framfara eða bættrar
Þankar um
nýjustu bók
Leon Uris
stöðu í lífinu. Leon Uris gerir
þetta svo meistaralega, að það er
liðið á bókina þegar lesandinn
gerir sér i raun og veru grein
fyrir þvi, hversu gríðarlega mik-
il áróðursbók The Haj er — gegn
aröbum. Og þó, þessu fólki verð-
ur vissulega vorkennt vegna þess
hve fortiðin er þeim nærri en
nútíð og framtíð, vegna fjöl-
skyldusamheldninnar og falla
má í stafi yfir hinu samanneglda
ættarsamfélagi. En virðingin
fyrir hinni arabisku manneskju
— einstaklingnum — hún fer
fyrir lítið að minnsta kosti ekki
fyrr en enn hefur verið lengra
lesið og maður hefur áttað sig á
þessum persónum, sem við
fyrstu sýn virðast svo svartar og
hvítar. En fleiri litbrigði má
skynja, sem betur fer.
Það er Ishmael, sonur Haj
Ibrahims, sem er eins konar
sögumaður lungann úr bókinni.
Hins vegar verður smáruglun
hjá Uris þegar fer að líða að
stofnun Ísraelsríkis i bókinni. Þá
tekur „sagnfræðin" hann tökum,
svo að skáldsagan og spennusag-
an hverfa í skuggann og þetta
verður óneitanlega til að brjóta
upp frásögnina.
Haj Ibrahim hrekst til Vestur-
bakkans með fjölskyldu sina
þegar honum er beinlínis ógnað
af aröbum — ekki gyðingum vel
að merkja. Hann hrekst um og á
illa ævi en missir þó ekki reisn
sína sem höfuð fjölskyldunnar
— að því er Leon Uris segir. En
mér þótti Haj Ibrahim i meðför-
um Uris smátt og smátt verða að
þvi óhugnanlega nátttrölli, sem
án efa vakir fyrir höfundi. Son-
urinn Ishmael er þrátt fyrir
menntun sín og fróðleiksþorsta
og þrátt fyrir að hann sé af
kynslóð, að ætla mætti að fyndi
hvötina til að laga hefðina að
nútíðinni — þó ekki verði gerð
uppreisn gegn henni. En Ishmael
ferst eins og aðrir, situr i bókar-
lok geggjaður og mun ekki eiga
sér viðreisnar von. Nada systir
Leon Uris
hans brýst undan okinu á þann
eina hátt sem hún getur — hún
sefur hjá svona næstum þvi
hverjum sem er og er skorin á
háls fyrir vikið að skipan föður
hennar.
Bókin endar í limbó. Striðið
1956 hefur geisað. Eiga arabar
og gyðingar nokkurn tíma eftir
að geta lifað saman í friði? Verð-
ur nokkru sinni hægt að mjaka
hinu arabíska mentaliteti á það
stig, að þessir aðilar geti talast
við eins og jafningjar og umfram
allt — unað saman sem slikir?
Svartsýni Leon Uris er mikil,
Forsiðan i The Haj.
hvort það á að kalla það raunsæi
eða bölsýni veit ég svo sem ekki.
Það er ákaflega erfitt að sætta
sig við afstöðu höfundar til hins
arabíska kynstofns þó svo að
maður sé fylgjandi ísraels-
mönnum og ísraelsriki. Svo
langt er gengið, að óhugnaðurinn
og dapurleikinn situr eftir. Og
maður byrjar strax að lesa bók-
ina aftur. Svo ótrúlegur meistari
Leon Uris.
Margar hugsanir hljóta að
vakna hjá lesanda við það sem
ég vil kalla reynslu, sem hann
gengur í gegnum við lestur The
Haj. Sjálfsagt er að virða óskir
Uris og telja að persónurnar séu
flestar hugarfóstur hans sjálfs.
Atburðarásin er það að nokkru
leyti, þótt stuðst sé við sögulegar
staðreyndir, þó eru þær stað-
reyndir á þann veg, að þær má
túlka á mismunandi vegu eftir
því hver skoðun manns er á
vandamálum Miðausturlanda.
Það er hörmulegur boðskapur,
sem Leon Uris ber fram f þessari
bók: að steinrunnar hefðir ar-
aba, stolt þeirra og mentalitet
einsog það leggur sig, koma i veg
fyrir að arabar geti yfirleitt átt
samleið með einum né neinum.
Það er ekki heldur lúrt á þvi í
bókinni hversu mikil sundur-
þykkja er milli araba innbyrðis,
hversu Palestínumenn bera mik-
ið hatur til íraka vegna grimmd-
ar þeirra, Jórdana vegna þess að
þeir eru eiginlega ekki til —
heldur jórdanska þjóðin búin til
af Bretum — og er út af fyrir sig
nokkuð til í því — Sýrlendinga
fyrir fláræði og svo mætti lengi
telja. Mikill dómur er upp kveð-
inn yfir aröbum í þessari bók,
þrátt fyrir að hún leiði til kynnis
við þá, sem hljóta að verða
áhugasömum lesanda fhugunar-
efni. Og það eru dapurleg sann-
indi ef hin arabíska þjóðarsál er
á þann veg sem Leon Uris lýsir i
magnaðri bók sinni.
Arabar — gyðingar, mnnu þeir aldrei getað nnað saman í friði?