Morgunblaðið - 11.11.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984
79
FramhliA vönukemmunnar f strfðslok.
í dag lítur framhlióin þannig út MorgunbWMð/öl.K M.
ar vöktu bæði kvíða og sektar-
kennd hjá önnu. Stundum stóð
hún við glugga leyniíbúðarinnar
seint á kvöldin og leit hörmung-
arnar með eigin augum:
„Á kvöldin, þegar dimmt er orð-
ið, sá ég oft hópa af alsaklausu
fólki og i fylgd með því grátandi
börn. Þetta fólk er miskunnar-
laust rekið áfram af vopnuðum
hermönnum, sem hrekja það og
berja áfram, unz það er að hníga
niður og örmagnast. Engum er
þyrmt. Gamalmenni, ungbörn,
óléttar konur og sjúklingar, allir
verða að taka þátt i þessari göngu
dauðans.
Við megum sannarlega hrósa
happi að fá að vera hér í friði og
hafa allt, sem við þörfnumst. Og
þessar hörmungar hefðu ekki
snert okkur eins sárt, ef við vær-
um ekki síhrædd um þá vini, sem
okkur þykir vænzt um, en getum
ekki lengur orðið að neinu liði.
Ég sárskammast mín fyrir að
sofa hér í hlýrri sæng á meðan
vinir mínir eru hraktir og hrjáðir,
og þeim hrint í göturæsið til að
hírast þar i næturkuldanum. Og
mig grípur kvöl og ótti, þegar ég
hugsa um þá nánu vini, sem nú
hafa fallið í hendur grimmustu
siðleysingjum í veröldinni. Og það
eingöngu fyrir að vera Gyðingar."
Streita
og vonleysi
Einhver áhrifaríkasti þáttur
Dagbókar Önnu Frank er lýsing
hennar á sambúðarörðugleikum
huldufólksins, hvernig aðsteðjandi
ógn og kæfandi þrengsli byggja
smám saman upp streitu og von-
leysi, sem aftur birtist í innbyrðis
ósætti og sundurlyndi:
„Samkomulagið hérna versnar .
með hverjum degi. Yfir borðum
þorir enginn að opna munninn
(nema þá til þess að stinga ein-
hverju upp í sig). Hvað, sem sagt
er, verður annaðhvort til leiðinda,
eða það er hártogað og misskilið.
Ég gleypi Valerian-töflur á hverj-
um degi við áhyggjum og sleni, en
líður bara enn verr daginn eftir.
Eitt ærlegt hláturskast væri
áreiðanlega betra en tíu Valer-
ian-töflur. En við kunnum ekki að
hlæja lengur."
Hugrekki
og bjartsýni
En Anna var ekki á því að láta
bugast og í átökum sínum við
sjálfa sig og eymdina finnur hún
lausn, sem léttir henni lífið:
„Þegar einhver er dapur er ráð-
legging mömmu þessi: „Hugsaðu
um þá örðugleika og eymd, sem
aðrir eiga við að búa, og vertu
þakklát fyrir að vera ekki í þeirra
sporum." Mitt ráð er aftur á móti
þetta: „Farðu út á engi og akra og
reyndu að njóta náttúrunnar og
sólskinsins. Farðu út og reyndu að
höndla hamingjuna í sjálfri þér og
hamingjuna í guði. Hugsaðu um
alla þá fegurð, sem ennþá býr
bæði í þér og umhverfis þig og
vertu ekki hnuggin heldur glöð.“
Háskinn
og myrkrið
En þrátt fyrir hugrekki, bjart-
sýni og von, lætur hrár raunveru-
leikinn ekki að sér hæða, óveð-
ursskýin hrannast upp og þótt enn
sé frestur, veit enginn hvenær
hann rennur út:
„Mér finnst við og leyniheimilið
okkar vera eins og örlítill heið-
ríkjublettur umkringdur svörtum
óveðursskýjum á alla vegu. Þessi
litli blettur er að vísu ennþá ör-
uggur, en skýin dragast þéttar
saman í kring um okkur og yfir-
vofandi hættur þokast nær og
nær. Og háskinn og myrkrið eru
komin svo nærri og þrengja svo að
okkur, að við rekumst hvert á ann-
að og hrindumst á í örmagna við-
leitni til að komast eitthvað burt.
Við horfum til jarðar og sjáum
mennina berjast, og við hefjum
augun upp til friðarins og fegurð-
arinnar. En svörtu skýin varna
okkur leiðarinnar þangað, eru sá
ægilegi veggur, sem aldrei verður
yfirstiginn og ætlar að hrynja yfir
okkur, þó enn sé frestur um stund.
Ég get ekki annað en grátið og
beðið: „0, að veggurinn mætti
opnast og hin svörtu ský greiðast í
sundur, svo að okkur opnist ein-
hver leið.“
TOLEDO
VOGIR OG
VOGAKERFI
IMiisí.»s hr
BÍLDSHÖFÐA 10 - SÍMI 82655
BOKHALD
MEÐ SMÁTÖLVUM
MARKMIÐ:
Tilgangur námskeiðsins er að gefa þátttakendum
innsýn í og þjálfun við tölvuvætt fjárhags-, við-
skiptamanna- og birgðabókhald og kynna hvaða
möguleikar skapast með samtengingu þessara
kerfa.
EFNI:
Tölvuvæðing bókhalds og skráningarkerfa.
— Sambyggð tölvukerfi og möguleikar þeirra.
— Æfingar og kennsla á tölvur.
ÞÁTTTAKENDUR:
Námskeiðið er ætlað þeim aðilum er hafa tölvu-
vætt eða ætla að tölvuvæða fjárhags-, viðskipta-
manna- og birgðabókhald sitt og einnig þeim sem
vinna við kerfið á tölvurnar. Gert er ráð fyrir
þekkingu í bókfærslu.
LEIÐBEINENDUR:
Hilmir Hilmisson, viðskiptafræðingur. Lauk prófi
frá Háskóla íslands 1977 og síðan prófi sem lög-
giltur endurskoðandi. Starfar nú sem ráðgjafi og
endurskoðandi hjá Hagvangi h/f, og sem löggiltur
endurskoðandi hjá endurskoðunarskrifstofu Ár-
far h/f.
Jón Sigurðsson, viðskiptafræðingur, lauk prófi frá
viðskiptadeild Háskóla íslands 1979, en starfar nú
sem rekstrarráðgjafi hjá Hagvangi h/f.
TÍMI:
19.—21. nóvember, kl. 9—13.
Síðumúla 23.
Ath. Starfsmenntunarsjóður Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar og Starfsmenntunarsjóður
starfsmanna ríkisstofnana greiða þátttökugjald
fyrir félaga sína á þessu námskeiði. Verslunar-
mannafélag Reykjavíkur greiðir 75% fyrir sína
félagsmenn.
Upplýsingar gefa skrifstofur viðkomandi félaga.
STJÓRNUNARFÉLAG
ISLANDS IKo23