Morgunblaðið - 11.11.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984
93
Það kemur fram í spjalli okkar
um náttúrulegar breytingar í
Þjórsárverum, hve mikill munur
getur verið milli ára á jarð-
vatnsstöðu, sífrera og grósku.
Nauðsynlegt er að vita hvað hefur
þar afdrifaríkust áhrif. „Því verð-
ur að mæla úrkomu, fylgjast með
veðri og fleiru þess háttar," segir
Þóra Ellen. „Því lengur sem mað-
ur stundar slíkar athuganir þeim
mun betri mynd fæst af þessu.
Sem dæmi um það hve breytilegt
þetta er má nefna að í ágústmán-
uði 1982 mældist rigningin 9,3
mm, í ágústmánuði 1983 160-170
mm og í sama mánuði 1984 71,9
mm. Meðalhitinn i júlí í sumar var
yfir 9 stig, í fyrra 6,7 stig og 1982
7,7 stig. Nokkrar mælingar voru
gerðar á árunum 1966—67 og
1972—74 og var meðalhiti júlí-
mánaðar þá áætlaður 7,3 stig.
Ég er alltaf að gera mér betur
grein fyrir því að einhvern tíma
hefur þetta land verið miklu betur
gróið,“ segir Þóra Ellen ennfrem-
ur. „Nú í sumar hannaði Snorri
Zóphoníasson jarðfræðingur á
Orkustofnun fyrir mig kjarnabor
til að bora í rústinar. Það hefur
ekki verið gert fyrr hér á landi. 1
einni rústinni var isinn 3,3 m á
þykkt. Hún flaut á ófrosnum
vatnssósa jarðlögum. Það var öll-
um rústunum þremur sem við bor-
uðum í sameiginlegt að sendið
áfok var þar efst í jarðveginum
niður á sífrerann. En þegar niður
var komið var jarðvegurinn orðinn
nokkuð hreinn mór. Við boruðum
niður á fjögurra metra dýpi og
mólögin voru hátt í 2 metrar á
þykkt.
I Þjórsárverum bendir margt til
þess að frosin jarðlög bráðni
meira neðan frá en ofan og að það
sé fyrst og fremst jarðvatn en ekki
lofthiti sem bræði ísinn. Því má
búast við að hækkuð jarðvatns-
staða með lónsmyndun geti haft
umtalsverð áhrif á sífrerann.
Sumarið 1982 lækkaði jarðvatns-
staða nokkuð jafnt í júlí, en nær
ekkert eftir 5. ágúst. Ferlið var
mjög ólíkt 1983, en þá var vatns-
staðan lág í byrjun sumars en
hækkaði eftir því sem leið á
sumarið. Þetta er greinilega mjög
breytilegt eftir árum. Við verðum
því að fá upplýsingar um þetta í
nokkuð mörg ár.“
Þjórsárverin
einstök
Að lokum er Þóra Ellen Þór-
hallsdóttir spurð hvers virði
Þjórsárverin séu og hún svarar að
bragði:
„Þjórsárverin eru alveg einstök.
Ekki aðeins vegna tilvistar heiða-
gæsastofnsins heldur engu síður
vegna þess gróðurfars sem þar er.
Hvergi annars staðar er svona
gróður á íslandi. Hvergi eru eins
margar rústir sem í Þjórsárverum
og hvergi annars staðar á hálend-
inu þessir miklu stararflóar. Þetta
svæði er ákaflega fjölbreytt og
sérstætt landsvæði, og ég segi
hiklaust einn mikilvægasti staður-
inn þar sem áform eru um að
virkja. Spurningin er hve langt
upp eftir óhætt er að fara með
efstu stífluna í Þjórsá til að verin
séu óhult. Og það erum við nú að
reyna að kanna."
fslendingar eru, sem kunnugt
er, aðilar að svokallaðri Ramsar-
samþykkt um votlendi sem hefur
alþjóðlegt gildi, einkum fyrir
fuglalíf. Hún var undirrituð i
Ramsar í íran 1971 og fullgilt á
alþingi Islendinga vorið 1977. Með
henni hafa þjóðir heims gert sér
grein fyrir órjúfanlegum gagn-
kvæmum tengslum manns og um-
hverfis, að votlendisfuglar eigi sér
oftlega för yfir landamæri og
verða því að teljast alþjóðlegt
verðmæti og verndast sameigin-
lega. Hefur verið unnið að skrán-
ingu á mikilvægustu svæðunum í
heiminum hvað það snertir. Eitt
svæði á íslandi, Mývatnssvæðið,
er þegar á þeirri skrá og þar eiga
Þjórsárverin undir Hofsjökli ekki
síður heima. íslendingar bera
ábyrgð á tilvist heiðagæsarinnar i
heiminum og varplandi hennar i
friðlandinu í Þjórsárverum.
AÐ FORSTJÓRINN ER ALDREI VIÐ!
Hrelnarlínur erauglýsingastofaog hérer
enginn forstjóri.
Við erum ekki útibú frá gömlu þreyttu stofunum.
Við eigum okkur sjálf.
Það hefur ýmsa kosti að teiknaramir eiga og
rekafyrirtækið. Héreru nokkriróborganlegir:
IMIIIIIIðalaust sambandwb þann sem
. vinnurverkið. Ekkertóljóstkrotámiðafrá
náunganum á skrifstofunni sem þurfti því miður að
skreppa til tannlæknis. Við vitum upp á hár hvað
þú vilt.
2Vönduð vlnna. Þaðskiptirþannsem
. vinnur verkið miklu að útkoman sé góð.
Framtíð hans veltur á því. Hér eru engin
rútlnuverk, engar ódýrar lausnir.
3Góður starfsandl, betrl hugmyndlr. Hér
. vinna jafningjar að sameiginlegu markmiði.
Engir mislyndir húsbændur, engin kúguppgefin hjú.
4Hlægllegt irerð. Við getum boðið lægra verð
. vegna þess að við þurfum ekki að borga
stórum hópi fólks sem ekki vinnur skapandi vinnu.
Hér eru engar silkihúfur. Þú missir auðvitað af
vindlinum, spjallinu og klappinu á bakið. En það er
margfalt ódýrara að kaupa sína vindla sjálfur.
Af þessu fyrirkomulagi leiðir að það eru takmörk
fyrir því hvað við getum orðið stór. Það er í góðu lagi.
Við ætlum ekki að vera stærst. Heldur best.
Við önnumst alla auglýsingagerð.
Fyrir útvarp, sjónvarp, blöð og tímarit. Ráðgjöf,
almenningstengsl og gerð auglýsinga-
áætlana. Myndskreytingarog alhliða
útlitshönnun hvers konar prentgripa.
Ef tími þinn er naumurgetum við unnið bæði
hratt og vel. Fyrir fyrirf ram umsamið verð. Verð
sem stenst samanburð við hvaðeina sem fyrir er á
íslenskum auglýsingamarkaði.
Auk hefðbundinnar auglýsingagerðar bjóða
Hrelnar línurný\a þjónustu: hönnun og útlits-
teiknun blaða og tímarita.
Ef marka má þá þróun sem orðið hefur erlendis
mun umfang íslenskrartímaritaútgáfu enn aukast
á næstu árum. Og samkeppnin harðna.
Auk innbyrðis samkeppni þurfa íslensk tímarit
að keppa við aragrúa erlendra blaða sem hingað
erufluttivikuhverri.
í Jjessari samkeppni er gott útlit lykilorð.
_ Utlit blaðs mótar viðhorf lesandans til þess.
Útlitiö ertæki til aðvekjaáhugaog haldaathygli.
„ Andlit" blaðsins ræðst ekki síður af útliti þess en
hinu eiginlega innihaldi. Góðurtexti másín lítilsef
engin augu beinast að honum.
Illa útlftandi blað er léleg vara. Slæm fjárfesting
fyrirútgefendur, auglýsendurog neytendur.
Hrelnar línur bjóða nú sérhæfða þjónustu við
hönnun og/eða útlitsteikningu blaða og tímarita
Við höfum langa reynslu og vfðtæka þekkingu á
þessu sviði fjölmiðlunar.
Við leggjum línur um heildarútlit nýrrar útgáfu
og endurhönnum þegar útgefin blöð. Sjáum um
myndskreytingar, Ijósmyndun og tækniteiknun.
Leiðbeinum um heppilega samstillingu þeirra
þátta sem blöð eru ofin úr. Ráðleggjum um val og
framsetningu mynda.
Útlitsteiknum blöð og fylgjum þeim eftir í gegnum
prentun. Allt eftir óskum hvers og eins.
Góð fagleg vinnubrögð við útlitsteikningu blaðs
koma öllum aðilum til góða:
Lesandlnn fær aðgengilegt blað og glæsilegt,
skipulegt og spennandi. Hann fær meira fyrir
peningana sína.
Auglýsandlnn hefur fjárfest f blaði sem nær
meiri athygli og lifir lengur.
Prentarlnn fær í hendur nákvæmar og skýrar
teikningar. Minni hætta er á mistökum í prent-
smiðju og þar sparast bæði tími og snúningar.
Rltstjórlnn fær aukna útbreiðslu, meiri lestur.
Blaðið hrífur betur og vinnsluferlið verður einfaldara.
Útgefandlnn fær betri vöru.
Þaðeru Hrelnar línur.
Þaðeru Hrelnar línur.
SÍÐUMÚLA
6 »68 69 61