Morgunblaðið - 11.11.1984, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984
107
íslenskt tónlistarfólk mun i tónlisUrári Evrópu Kka hleypa heimdraganum. T.d. mun Sinfóníuhljómsveit íslands fara
hljómleikaferð til Frakklands, Langholtskórinn fara tónleikaferð til Austurríkis og Ítalíu, Hamrahlíðarkórinn fara á
kórahátíðina í Strassburg. Á myndinni er Sinfóníuhljómsveitin með Pólýfónkórnum
Hugmyndir eru uppi um að stofna á tónlistarárinu til hljómsveitar ungs fólks
með nemum, sem langt eru komnir, og gefa þeim kost á þjálfun á 3—4
þjálfunarnámskeiðum með reyndum stjórnendum og tónleikum í loks hvers
námskeiðs. Mun Paul Zukofsky rlða á vaðið f febrúar—mars.
Norræn tónlistarhátfð með flutningi
á barroktónlist, sem tónlistarfólk frá
Norðurlöndunum fimm flytur með
upprunalegum hljóðfærum, verður í
Skálholtskirkju og skipuleggur
Helga Ingólfsdóttir þá hátíð.
íslenska óperan mun á árinu
1985 frumflytja islenska óperu
eftir Jón Ásgeirsson tónskáld.
Útvarp og hljómplötur
Opinberar stofnanir hafa einnig
veitt undirbúningsnefndinni upp-
lýsingar um sínar hugmyndir um
þátttöku í Tónlistarárinu 1985.
Ríkisútvarpið mun reyna að gera
viðburðum ársins eins góð skil og
hægt er. Margar erlendar dag-
skrár hafa verið boðnar fram í til-
efni Tónlistarársins og hefur út-
varpið í hyggju að nýta sér þær
eins og frekast er kostur. Á föstu-
daginn langa mun til dæmis verða
útvarpað Matteusarpassíunni frá
Leipzig. Þá hefur Ríkisútvarpið
áformað röð Bach-konserta með
íslenskum flytjendum, þ.e. flutn-
ingi á 48 prelúdíum og fúgum með
12 píanóleikurum. Og vonast til að
geta tekið upp stærri verk á þessu
ári en gert er að jafnaði, m.a.
óperur. Þá er í undirbúningi kynn-
ing á verkum frá tónlistarskólun-
um undir heitinu Ungt fólk í upp-
tökusal. Útvarpað verður þætti
með íslenskri tónlist og áformuð
þáttaröð um fslenska tónlistar-
sögu.
Tónverkamiðstöðin áformar að
auka útgáfu á hljómplötum með
íslenskri tónlist á árinu 1985 með
áherslu á upptökum stærri hljóm-
sveitarverka.
Á tónleikum sfnum mun Sin-
fóníuhljómsveitin flytja íslensk
verk, eitthvað af þeim í frumflutn-
ingi og islenskir söngvarar syngja
með hljómsveitinni. Og á fyrstu
tónleikunum í janúar 1985 mun
hljómsveitin flytja Vorblótið eftir
Stravinsky og í október 1985 verð-
ur flutt sinfónía eftir Mahler með
stækkaðri hljómsveit. Þá áformar
Sinfóniuhljómsveit íslands
hljómleikaferð til Frakklands f
júnímánuði 1985.
Hjá Tónlistarfélaginu, sem f
hálfa öld hefur efnt til 10 hljóm-
leika á ári með bestu kröftum inn-
lendum og erlendum, er rætt um
að efna til sönghátiðar 1985 á borð
við þá sem haldin var 1983.
Söngskólinn f Reykjavik hefur i
hyggju að flytja haustið 1985
óperu sem Arne Mellnás semur þá
fyrir þetta tækifæri. Og á árinu
verður þar flutningur á Missa Sol-
emnis eftir Cherubini. Musica
Antiqua mun efna til þriggja tón-
leika. Á tónleikunum í mars verð-
ur flutt renaissance-músik með
upprunalegum hljóðfærum.
Jazz og hljómsveit ungs fólks
Jazzvakning sér um að jazzinn
verði ekki út undan á tónlistarár-
inu 1985. Verða afmælistónleikar f
tilefni 10 ár afmælis félagsins
haldnir í september. Þar verða
flutt ný jazz-tónverk eftir Gunnar
Reyni Sveinsson og Stefán S. Stef-
ánsson. Gert er ráð fyrir sam-
vinnu við útvarpsstöðvar á Norð-
urlöndum. Og haldið verður nám-
skeið í sambandi við tónleikana,
sem þeir Niels Henning örsted
Petersen og Pétur östlund
stjórna.
Þjóðlög og þjóðdansar verða á
dagskrá og hafa kvæðamannafé-
lagið Iðunn og Þjóðdansafélag
Reykjavfkur ákveðið að vera með
ýmsum hætti með.
Ýmislegt fleira en tónleikar
munu setja svip á tónlistarárið á
íslandi. Áformað er að gefa út sér-
stakt frímerki helgað tónlistarár-
inu f Evrópu. Og rætt er um átak
af einhverju tagi á árinu 1985 til
að ýta áfram hugmyndum um nýtt
tónlistarhús og fjáröflun til þess.
Þá er í ráði að stofna til
„hljómsveitar ungs fólks" snemma
á árinu með nemum sem langt eru
komnir í tónlistarnámi í Tónlist-
arskólunum, efna til þjálfunar-
námskeiða 3—4 sinnum á árinu
með reyndum stjórnendum í því
skyni að veita þessu unga fólki
reynslu og þjálfun. Það fyrsta
verður þá í febrúar og mars 1985
undir stjórn Paul Zukofskys. En
hljómleikar verða í lok hvers nám-
skeiðs.
Svo sem áður er fram tekið hef-
ur hér verið getið um þau atriði
sem undirbúningsnefndin hefur
fengið upplýsingar um, en sfðan á
eftir að koma f ljós hvort hægt
verður að koma öllum liðum f
framkvæmd og ræðst um sumt af
því hvort einhverjir styrkir fást,
eins og Árni Kristjánsson tók
fram. En það á eflaust eftir að
koma í ljós á þessu hausti þegar
fjárhagsáætlanir og fjárlög sjá
dagsins ljós. En mikill undirbún-
ingu er þegar í gangi til að gera
tónlistarárið 1985 sem best úr
garði.
- E-Pi.
TJöfðar til
XI fólks í öllum
starfsgreinum!
Inntökupróf
við háskóla á Spáni
islenskir námsmenn sem hafa hug á aö þreyta inn-
tökupróf til undirbúningsnáms viö háskóla á Spáni
skólaáriö ’84—’85 eru beönir aö láta skrá sig sem
fyrst á ræöismannsskrifstofu Spánar, Laugavegi
170—172, Reykjavík, sími 21240. Skilyröi er aö viö-
komandi hafi gott vald á spænskri tungu og hafi lokiö
stúdentsprófi eða stundaö nám við háskóla.
f Allt á sínum staö l
Ef einhver sérstök vörzluvandamál þarf aö leysa biöjum viö
viökomandi góöfúslega aö hafa samband viö okkur sem
allra fyrst og munum víö fúslega sýna fram á hvernig
íhtmnon skjalaskápur hefur „allt á sínum staö".
Útsötustaöir:
ÍSAFJÖROUR, Bókaverslun Jónasar Tómassonar BORGARNES, Kaupfélag Borgfirftinga.
SAUÐArKRÓKUR. Bókaverslun Kr Blöndal, SIGLUFJÖRÐUR, Aftalbúftin. bókaverslun
Hannesar Jónassonar. AKUREYRI, Bókval, bóka* og ritfangaverslun. HÚSAVlK, Bókaverslun
Þórarins Stefánssonar. ESKIFJÓRÐUR, Ells Guftnason, verslun. HÖFN HORNAFIRÐf,
Kaupfélag A-Skaftfellinga VESTMANNAEYJAR, BókabUftin EGILSSTAÐIR, Bókabúftin
Hlðftum REYKJAVlK, Pennlnn Hallarmúla KEFLAVlK, Bókabúft Keflavikur
ÓlAfUR OÍSLASOf'i % CO. HF.
SUNDABORG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800 J)
veldu barða með báða kostina!
ÖLL HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
FYRIR FÓLKSBÍLA OC SENDIBÍLA
•!lH|
HEKIA HF
Laugavegi 170-172 Simi 21240
PRISMA