Morgunblaðið - 11.11.1984, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984
115
Samningar
samþykktir
ATKVÆÐI hafa verið talin í kjöri
hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá
Reykjavíkurborg um nýgerðan
kjarasamning. 289 höfðu rétt til að
greiða atkvæði og tóku 259 þátt í
kosningunni. Já sögðu 160 eða
61,7%. Nei sögðu 32 eða 12,4%. 66
seðlar voru auðir.
í kjöri um kjarasamning þann
er nýlega var gerður við Akureyr-
arbæ tóku þátt 61 hjúkrunarfræð-
ingur af 98 sem höfðu rétt til þess.
56 sögðu já, en 5 sögðu nei.
í atkvæðagreiðslu Starfs-
mannafélags Seltjarnarness um
nýgerðan kjarasamning við kaup-
staðinn var samningurinn sam-
þykktur með miklum mun. 77 voru
á kjörskrá, 55 eða 71,4% greiddu
atkvæði, já sögðu 43 eða 78%, 5
sögðu nei, eða 9% og 7 seðlar voru
auðir eða 13%.
Noregur:
Alfram-
leiðsla
minnkuð
Norskir álframleiðendur hyggjast
draga saman álframleiðslu vegna
minni eftirspurnar og lægra verðs en
fyrri hluta ársins.
Eigendur verksmiðjunnar í
Husnes í Suður-Noregi hafa þegar
tilkynnt 10% framleiðslusamdrátt
af þessum sökum. og búist er við
álíka samdrætti Árdal- og Sunn-
dal-verksmiðjunnar. Spáð er að
bæði Norsk Hydro og Elkem fylgi
í kjölfarið.
Markaðsverð á áli á skyndi-
markaði tók að lækka snemma árs
og hefur það haft áhrif til lækkun-
ar álsölusamninga, sem gerðir eru
til langs tíma.
Spáð er 103 milljóna dollara
hagnaði verksmiðjunnar í Árdal/-
Sunndal og telur Sverre Nafstad
forstjóri verksmiðjunnar að fram-
leiðsluminnkunin muni Iitlu
breyta þar um.
Ver skipað
að finna
ekkju Galmans
Manilla, 10. nóvember. AP.
HÆSTIRÉTTUR Filippseyja kvað í
dag upp þann úrskurð að Fabian
Ver, sem lengi hefur verið yfirmaður
alls herafla Filippseyja, sjái til þess
að ekkja Rolando Galmans verði
fundin og leyft að koma fyrir rétt.
Kins og kunnugt er var Galman í
fyrstu borinn þeim sökum að hafa
skotið Benigno Aquino á flugvellin-
um í Manilla í fyrra. Sagt var að
öryggisverðir hefðu síðan skotið á
Galman.
Samkvæmt fréttum Galmans-
fjölskyldunnar hefur ekkja Gal-
mans verið týnd síðan í janúar í
vetur. Foreldrar hennar segja að
hermenn hafi þá sótt hana til
heimilis þeirra og hafi henni verið
sagt að Ver hershöfðingi hefði
skipað að ná i hana. Síðan hefur
ekki til hennar spurst.
Ver hefur harðneitað að hann
hafi komið nærri Aquino-morð-
inu, en sem kunnugt er komst
meirihluti rannsóknarnefndarinn-
ar að þeirri niðurstöðu á dögun-
um, að hann væri á einhvern hátt
flæktur í atburðinn. Ver hefur
einnig neitað að hafa gefið skipun
um að ekkja Galmans yrði flutt
frá heimili sínu á einhvern ótiltek-
inn ákvörðunarstað.
fMHMf
Nýr söluturn
í Kópavogi
NÝLEGA var opnaður sölu-
turn og myndbandaleiga á
Álfhólsvegi 32 í Kópavogi
þar sem KRON var áður til
húsa.
Á boðstólum verður öl og
gos, sælgæti, tóbak, pylsur,
samlokur, snakk o.fl. ásamt
myndböndum fyrir VHS og
Beta svo og tækjaleiga.
Opnunartími er frá kl. 8 á ^
morgnana til 23.30. Eigendur
söluturnsins Álfhólsvegi 32
eru María H. Sigurjónsdóttir
og Jafet Óskarsson.
Hugmynda-
samkeppni
Iónaðarbankans
XÝtl merki
mll tnkn
Mikil gróska er nú í starfsemi Iönaðarbankans.
Bankinn hefur vaxið ört undanfarin ár, enda lagt
kapp á að mæta kröfum viðskiptavina sinna um sífellt
betri þjónustu. Um þessar mundir stendur yfír víðtæk
endurskipulagning á starfsemi bankans, í því skyni, að
búa hann enn betur undir það markmið,,að vera
nútíma banki, sem veitir góða þjónustu. Liður í þess-
ari endurskipulagningu er hugmyndasamkeppni sem
bankinn efnir nú til. Samkeppnin er í tveimur liðum:
a) Um nýtt merki, skrift og einkennislit, eða liti fyrir
bankann._____
b) Um myndrænt tákn til notkunar í auglýsingum og
kynningargögnum bankans.
Samkeppnin er haldin samkvæmt reglum FÍT, Félags
íslenskra auglýsingateiknara og er öllum opin.
Veitt verða ein verðlaun fyrir bestu tillögurnar.
a) Fyrir merki, skrift og einkennislit kr. 120.000.00
b) Fyrirtáknkr. 40.000.00
Tillögur um merki skulu vera 10-15 cm í þvermál, í
svörtum lit, á pappírsstærð DIN A-4. Einkenna skal
tillögurnar með kjörorði, en nafn höfundar og
heimilisfang fylgi með í lokuðu ógagnsæju umslagi.
Þátttakendum er heimilt að senda fleiri en eina
tillögu. Skal hver tillaga þá hafa sér kjörorð og henni
fylgja sér umslag með nafni höfundar.
Iðnaðaitankinn
-nútímabanki
Dómnefnd skipa: Bragi Ásgeirsson, listmálari, Gísli
B. Björnsson, teiknari FÍT., Rafn Hafnfjörð, prent-
smiðjustjóri, Tryggvi T. Tryggvason, teiknari FÍT. og
Valur Valsson, bankastjóri.
Ritari dómnefndar og jafnframt trúnaðarmaður
keppenda er Jónína Michaelsdóttir, Iðnaðarbankan-
um við Lækjargötu. Pátttakendur geta snúið sér til
hennar og fengið frekari upplýsingar um samkeppn-
ina og um Iðnaðarbankann. Síminn er 91 -20580.
Skilafrestur tillagna er til 15. janúar 1985. Skal skila
tillögunum í póst eða til einhverrar afgreiðslu Iðnaðar-
bankans merktum:
Iðnaðarbankinn
Hugmyndasamkeppni
b/t Jónínu Michaelsdóttur
Lækjargötu 12
101 Reykjavík.
Dómnefnd skal skila niðurstöðum innan eins mánað-
ar frá skiladegi.
Efnt verður til sýningar á tillögunum og þær endur-
sendar. Verðlaunaupphæðin er ekki hluti af þóknun
höfundar. Iðnaðarbankinn áskilur sér einkarétt á
notkun þeirra tillagna sem dómnefnd velur. Jafn-
framt áskilur bankinn sér rétt til að kaupa hvaða
tillögu sem er samkvæmt verðskrá FÍT.