Morgunblaðið - 11.11.1984, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.11.1984, Blaðsíða 28
100 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984 Sinfónískir valsar Sígildar Konráö S. Konráðsson Sinfonische Waizer: R. Strauss: Der Rosenkavalier — Walzerfolgen, C. Gounod: Walzer aus „Faust“, C.M. von Weber: Aufforderung zum Tanz og P. Tschaikovsky: Waltzer aus Dorn- röschen und Nussknacker. Wiener Symphoniker stjórnandi: Willi Boskovsky EMI lc 067-43172 T útgáfuár: 1983 Flestum. mun enn í fersku minni nýárstónleikar Vínar Fílharmóníunnar undir stjórn Willi Boskovsky, sem sjónvarpað var frá Musikverein í Vín. Þess- um árlegu tónleikum stjórnaði Boskovsky í tæpan aldarfjórð- ung, eða allt til ársins 1979. Ein af fyrstu „digital" útgáfum DECCA er raunar hljóðritun þessara síðustu tónleika hans 1979. Hefir sú útgáfa hlotið mik- ið lof fyrir einstök hljómgæði (DECCA D147 D2). Boskovsky á langan starfsferil að baki með Vínar Fílharmóní- unni, en hann varð konsert- meistari hljómsveitarinnar 1936. Hafði hann þó á síðari árum sín- um með hljómsveitinni sífellt í auknum mæli tekið að sér hljómsveitarstjórn og þá aðal- lega við flutning verka þeirra Strauss-feðga. Hafði hann þá sama hátt á og „Valsakóngur- inn“ sjálfur, Jóhann yngri Strauss, að hann stjórnaði með WIUJ Bdack-’SKY fiðluboganum eða þá leiddi hljómsveitina með eigin fiðlu- leik. Á þeirri skífu sem hér skal vikið að er þó hvergi að finna tónlist þeirra Strauss-feðga, sem svo vel féll að græskulausri létt- úð Vínarlífsins á 19. öld. Svo vinsæll sem valsinn varð á skömmum tíma í danssölum Evrópu þá var þess skammt að bíða að hann næði vinsældum meöal tónlistaraðdáenda, sem ekki vildu endilega stunda fóta- mennt meðan hlýtt var á. Það verk sem upphaflega varð til þess að valsinn náði þar vinsæld- um og viðurkenningu sem tón- listarform var verk Carl Maria von Weber: „Boðið upp í dans“, sem hann skrifaði upphaflega fyrir píanó 1819. Varð m.a. Hect- or Berlioz til að umskrifa verkið síðar fyrir hljómsveit og er það í tónskrift hans sem það er flutt hér. Þess var heldur ekki langt að bíða að valsinn héldi innreið sína í óperuna. Er hér valinn kafli úr óperunni „Faust", sem Willi Boskovsky Charles Gounod skrifaði um miðja 19. öld. Aldrei munu þó að fullu hafa þagnað til fulls raddir þær, sem vefengt hafa höfund- arrétt Gounod á óperu þessari, en allt um það. Kunnuglega hljóma svo valsarnir úr ballet um Peter Tschaikovsky. Einhverju sinni var haft eftir Johannes Brahms er hann Var spurður álits á nýlegu verki Richard Strauss: „Ef það er Strauss, kýs ég heldur Johann og sé það Richard, má ég þá frekar biðja um Wagner." Vissulega er tónlist R. Strauss glæsileg og kostulegur flutning- ur hljómsveitarinnar í góðu samræmi, en samt finnst mér valsasvíta R. Strauss, sem hann setur saman á meðan veröldin stendur á báli umhverfis, minna á útbrunnið skar á glæstum, gullslegnum stjaka. Hljómsveit sú sem Boskovsky stjórnar hér, Vínar Symfónían, hefir staðið í skugga Fílharm- óníunnar, en sýnir hér ágætan leik. Hvað varðar túlkun og stjórn Boskovsky þá er hér ekki að finna kæti þá og leikgleði, sem svo einkenndi Straussvalsa hans hér áður með Vínar Fíl- harmóniunni. Allt er hér í föst- um skorðum, en glæsileiki tón- listar þeirrar sem hér er flutt fær þó að njóta sín til fulls. Upptakan er „digital" og fag- urlega tær og hljómmikil, en há- vært plötusnarkið spillir í lág- værum köflum og hefði pressun- in að ósekju mátt vera vandaðri. Að öllu samanlögðu hin áheyrilegasta skífa með auðtek- inni tónlist. sparífjáreigenda • • Oryggislykill 1: Besta ávöxtun bankans. Nú 26,75% ársávöxtun. Sé Kaskó-reikningurinn án úttektar heilt vaxtatimabil, reiknast uppbót á vaxtainneign, sem samsvarar bestu ávöxtun sparifjár hjá bankanum á því tímabili. Ef lagt er inn á Kaskó-reikning eftir að vaxtatímabil er hafið og reikningurinn er síðan án úttektar næsta tímabil á eftir, reiknast vaxtauppbót allan spamaðartímann. ÖryggislykiU 2: Vörn gegn verðbólgu. Samanburður á kjörum verðtryggðra og óverðtryggðra reikninga er framkvæmdur mánaðarlega. Ef verðbólga eykst og verðtryggðir reikningar gefa bestu ávöxtun, þá fær Kaskó-reikningurinn sjálfkrafa þá ávöxtun. Engin fyrirhöfn eða flutningar á milli reikningsforma. öryggislykill 3: Engin binding. Innstæða Kaskó-reiknings er alltaf laus til útborgunar án uppsagnar á reikningi. Ef tekið er út á vaxtatímabili fellur vaxtauppbót niður það tímabil en innstæðan heldur sparisjóðsvöxtum eftir sem áður. Kaskó-reikning má stofna og leggja inn á hvenær sem er. Bankastræti 5 Húsi verslunarinnar, nýja miðbænum Umferðarmiðstöðinni v/Hringbraut Laugavegi 172 Grensásvegi 13 Arnarbakka 2 Varnsnesvegi 14. Keflavík Þverholti, Mosfellssveit
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.