Morgunblaðið - 11.11.1984, Blaðsíða 32
104
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NOVEMBER 1984
Vel klæddir Vandlátir
Allir Allsstaðar AJltaf
SNORRABRAUT 56 SÍMI 1 35 05 GLÆSIBÆ SÍMI 3 43 50
AUSTURSTRÆTI i
SÍMI 27211
ROBERT
LUDLUM
SVIKA
MYLLAN
„Svika-
myllan“
Skáldsaga eftir
Robert Ludlum
SETBERG hefur gefið út bókina
„Svikamyllan" eftir Robert Ludl-
um. „Þetta er bók sem erfitt mun
reynast að leggja frá sér fyrr en
hún hefur verið lesin til enda.
Spennan stígur jafnt og þétt frá
fyrstu síðu til þeirrar öftustu," seg-
ir í fréttatilkynningu frá útgef-
anda.
„Tanner-hjónin höfðu helgarboð
fyrir þrenn hjón, nánasta vinafólk
sitt. Þá fóru óhugnanlegir og
óskiljanlegir atburðir að gerast.
Húsmóðurinni og bðrnunum er
rænt og þau finnast meðvitundar-
laus úti í skógi. Hvað er á seyði?
Er alþjóðlegur glæpahringur hér
að verki? Eða kannski gestirnir,
einn eða allir? Lögreglan er und-
arlega athafnalítil { málinu og
þegar húsið er umkringt og skot-
hríð hefst kastar fyrst tólfunum.
Robert Ludlum er nú orðinn
einhver allra víðlesnasti spennu-
sagnahöfundur í heimi, enda eru
bækur hans jafnharðan þýddar á
fjölda tungumála og koma út i
hverri útgáfunni á fætur annarri,
og hafa selst í tugmilljónum ein-
taka. „Svikamyllan" er önnur bók-
in sem út kemur á íslensku eftir
hann.“
Gissur Ó. Erlingsson þýddi bók-
ina, sem er 190 bls. að stærð.
Tveir af þeim „efnisleikurum" sem
flandra fyrir framan kvikmynda-
tökuvélarnar undir upptöku MY
TUTOR.
hann orðinn jafn fúlbífær í ból-
fimi sem frönsku. Punktur.
Ekki fæ ég nokkurn botn í til
hverra þessi andlausa mynd á að
höfða á markaðnum. Hún er
gjörsamlega dáðlaus i alla staði
og hefði ekki einu sinni talist
djörf fyrir aldarfjórðungi.
Þetta er svo sem ekki ósnoturt
fólk sem vappar hérna fyrir
framan\kvikmyndavélina, svona
einsog óvart, það kann bara ekki
að leika. Sama máli gegnir um
alla höfunda hennar, þeir kunna
harla fátt til verka. Allt þetta lið
hlýtur að vera mikið til náttúru-
laust eða þá öfugt og i felum.
Aumingja Kevin McCarthy,
sem hér á árum áður var virtur
sviðsleikari og brá fyrir í ágæt-
um myndum (m.a. Siegel-útgáfu
Invasion of the Body Snatchers),
selur sig orðið greinilega mjög
ódýrt.
Laugarásbió afsakar reyndar
þessa sýningu sem uppfyllingar-
efni, ætlað að hlaupa i skarðið
uns næsta meistaraverk Hitch-
cocks birtist þar á tjaldinu i
næstu viku. Áhöld eru um hvort
hún dugi til að réttlæta tilveru
þessa hortitts.
Það er leikur
að læra ...
Kvikmyndír
Sæbjörn Valdimarsson
Leikstjórí: Gorge Bowers.
Handrit Joe Robert. Mynda-
taka: Mac Ahlberg. Aðalhlut-
verk: Matt Lattanzi, Caren Kaye,
Kevin McCarthy. Bandarísk frá
Crown International.
Efnisþráðurinn mætti sjálf-
sagt notast við klámmynd. Matt
Lattanzi hefur lokið mennta-
skólanámi utan falleinkunnar f
frönsku. Framagjarn faðir hans,
Kevin McCarthy, sér ekki nema
eitt úrræði i vanda pilts, að út-
vega honum góðan einkakennara
yfir komandi sumarmánuðina
svo piltur komist í Yale að
hausti, einsog pabbinn á sinum
tíma.
Frönskukennarinn reynist
vera hinn æsilegasti kvenmaður
og sækjast þeir feðgar báðir eft-
ir blíðu hennar um tíma. En svo
fer að lambakjötið og rómantik-
in verður ellinni og auraráðun-
um yfirsterkari svo það fellur í
hlut pilts að serða kennslukonu
sína það sem eftir lifir sumars.
Skilst manni að í myndarlok sé