Morgunblaðið - 11.11.1984, Side 33

Morgunblaðið - 11.11.1984, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984 105 Samnorræn unglingavinna á næsta ári Þúsundir norrænna unglinga eiga þess kost á næsta ári að sækja sumarvinnu á hinum Norðuriöndun- um, og er það liður í útvíkkun nor- rænnar efnahagssamvinnu. Hug- rnyndin er komin frá Gyllenhamm- ar-bópnum, sem svo er nefndur, en í þeirri nefnd sitja fulltrúar atvinnu- lífs frá öllum Norðurlöndunum og er Erlendur Einarsson forstjóri SÍS fulltrúi íslands í þeim hópi. Verkefn- ið hefur verið nefnt Nordjobb-85. Á næsta ári munu fyrirtækin Volvo og Asea í Svíþjóð, Norsk Hydro og Kreditkassen í Noregi og finnska stórfyrirtækið Nokia bjóða norrænum unglingum til sumarvinnu, og er búist við að fleiri fyrirtæki bætist í hópinn. Hafa fyrirtækin ákveðið að 20% sumarstarfsmanna næsta ár verði frá hinum Norðurlöndunum, og eiga unglingar á aldrinum 18—25 ára kost á starfi á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst. Filippseyjar: „Agnes“ var hin mann- skæðasta Minila, Pilippseyjum. 8. DÓrember. AP. FELLIBYLURINN Agnes er heldur í rénun á Filippseyjum en hefur drep- ið 425 manns, skilið eftir 204 til viðbótar týnda og 350.000 heimilis- lausa. Veðurhamurinn var ægilegur og þar sem verst lét stendur varla steinn yfir steini. Mikið hjálparstarf er nú hafið hinna nauðstöddu og forsetinn, Ferdinand Marcos, hefur lýst yfir neyðarástandi í sex sýslum og fjórum borgum sem verst urðu úti. Verst var ástandið á Panway-eyju, en þar má heita að hvert hús hafi verið jafnað við jörðu á stórum svæðum er vindhraðinn náði 200 km hraða á klukkustund og jós 10 metra háum flóðbylgjum yfir byggðina. Þetta er í annað skiptið á þessu ári sem neyðarástandi er lýst yfir í kjölfarið á fellibyl, síðast var það lægðin mikla „Ike“, sem varð sú mannskæðasta í sögu Filippseyja. „Ike“ gekk yfir fyrir tveimur mán- uðum og drap 1200 manns, auk þess sem hann svipti 500.000 manns heimilum sínum. Menntamála- ráðherrann sagði af sér embætti Waskinglon, 9. nóvember. AP. T.H. Bell, menntamálaráðherra í ríkisstjórn Ronalds Reagan, hefur sagt af sér embætti og þótti afsögnin hafa komið nokkuð á óvart. Þó sögðu talsmenn stjórnarinnar að ekki væri búist við því að brotthvarf Bells væri byrjunin á „meiri háttar llótta“, eins og komist var að orði. Skömmu fyrir kosningarnar var Reagan spurður hvort einhverjar breytingar væru í vændum í ráð- herraliði hans. Reagan sagði að hann byggist ekki við neinum meiri háttar breytingum, „ég væri ánægður ef breytingar yrðu engar, ég er ánægður með alla ráðherra mína. Þó kæmi mér ekki á óvart þó einhverjir teldu að kominn væri til að snúa sér aftur að einka- lífi. Fyrsta árið að minnsta kosti verða breytingar hverfandi," sagði forsetinn. 25.980.- stgr. eða 29.980 afb. Útborgun kr. 5.000.- Eftirstöðvar á allt að 8 mán. Ennþá fallegri, ennþá betri Gullna Nú er gullna línan árgerð 1985 komln, hlaðin gæöum og ennþá fallegri. GULL-SYSTEM-1 2X40 WÖTT Þetta er samstæða meö öllu: útvarpi, magnara, segul- bandstæki, plötuspilara, tveimur hátölurum og skáp. Um gæðin þarf ekki aö fjölyröa, Marantz-gæöin eru löngu landsþekkt. Ekki spillir veröiö eöa kjörin því viö bjóöum þessa frábæru Marantz-samstæðu á ómótstæðilegu tilboöi: línan 1985 SKIPHOLT119, SÍMI 29800 MERKI UNGA FÓLKSINS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.