Morgunblaðið - 11.11.1984, Side 36
108
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984
(íamanleikrit eftir Noel Coward sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar
Einkalíf
lengi lifir
í gömlum glœðum
„Hver getur raunverulega sagt að það sé meiri sannleik-
ur fólginn í tárum en hlátri?“ Þessi orð eru eignuð hinum
fjölhæfa Noel Coward, sem fékkst við ýmislegt um dagana,
og hlaut það m.a. að launum að vera sleginn til riddara af
sjálfri Elísabetu Englandsdrottningu árið 1970 fyrir leik-
hússtörf. Nú er eitt leikrita hans á fjölum atvinnuleikhúss
hér á landi, Leikfélag Akureyrar frumsýndi leikritið Einka-
líf 12. október sl. í fjölmiðlaþögninni sem setti svip
á verfall BSRB og bókagerðarmanna.
Noel Coward fæddist í Teddington
Middlesex 16. desember 1899. Hann lést
74 ára að aldri og hafði þá afkastað
miklu, samið 281 sönglag, 27 leikrit, sem
sum hver hafa orðið sígild nútímaleik-
húsverk, 4 kvikmyndahandrit, 5 smá-
sagnasöfn, sjálfsævisögu og skáldsögu.
Hann kom fyrst fram á leiksviði 11 ára
gamall og fyrsta leikrit hans „I’ll leave
it to you“ var sett á svið í London er
hann var rúmlega tvítugur. Þetta var
gamanleikrit og tveim árum síðar var
annað gamanleikrit hans á ferðinni í
London. Það var þó ekki fyrr en þriðja
leikrit hans „The Vortex" var sett á svið
í London árið 1924 að hann sló í gegn.
Coward lék sjálfur aðalhlutverkið og
næstu ár var ekkert lát á vinsældum
hans, hann lék og samdi leikrit og reví-
ur iöfnum höndum.
Arið 1930 lék Coward aðalhlutverkið í
nýjum gamanleik „Private Lives", öðru
nafni Einkalíf, og hefur leikritið verið
þýtt á ótal tungumál og sýnt víða um
heim. Sagt er að höfundurinn hafi feng-
ið hugmyndina að leikritinu eina and-
vökunótt er hann var í sumarleyfi í
Tókýó 1929. Aðalþráður leikritsins mót-
aðist á fjórum klukkustundum, og
nokkrum vikum siðar er Coward lá í
flensu í Shanghai skrifaði hann upp-
runalega handritið að leikritinu. Æf-
ingar hófust svo í júlí 1930 og fyrsta
frumsýningin var 18. ágúst 1930 í King’s
Theatre í Edinborg. I september sama
ár var leikritið frumsýnt í London, I
aðalhlutverkum voru Noel Coward og
Gertrude Lawrence, Laurence Olivier
lék Victor og Adrianne AUen lék Sibyl. f
gegnum árin hafa ýmsir frægir leikarar
spreytt sig á aðalhlutverkunum, Maggie
Smith lék Amöndu árið 1972 í London
og á Broadway. Og Tammy Grimes vann
til Tony-verðlaunanna fyrir leik sinn í
sama hlutverki sem besta leikkona árs-
ins 1970.
Þann 8. maí í fyrra var Einkalíf frum-
sýnt á Broadway með hinum frægu
hjónaleysum Elisabet Taylor og Rich-
ard Burton í aðalhlutverkum, og sögðu
gárungarnir að leikritið væri sem skrif-
að fyrir þau tvö. Einkalíf hefur áður
verið sýnt hér á landi, var sýnt í Þjóð-
leikhúsinu 1953, í þýðingu Sigurðar
Grímssonar. Inga Þórðardóttir lék Am-
öndu, Einar Pálsson Elyot, Róbert
Arnfinnsson Victor og Bryndís Péturs-
dóttir Sibyl.
Um hvað fjallar svo leikritið? í stuttu
máli um tvenn nýgift hjón sem hittast í
brúðkaupsferð á litlu sveitahóteli í
Frakklandi. Ekkert athugavert við það,
en þegar nánar er að gáð er annar brúð-
guminn og önnur brúðurin að gifta sig
öðru sinni, áður höfðu þau sem sagt ver-
ið hjón. Þetta skapar auðvitað spennu á
Noel Coward i unga aldri.
venjulegu frönsku sveitahóteli og þar
sem enn lifir í gömlum glæðum gerist
margt óvænt áður en yfir lýkur. Leikrit-
ið hefur talist í hópi sígildra nútíma-
leikverka, ekki síst þar sem það fjallar
um skilnað hjóna, fyrirbæri tuttugustu
aldarinnar, þar sem oft er reynt að
leysa árekstra í einu sambandi með því
að stofna nýtt. En tekur eitthvað betra
við? Leikhúsgestum er látið eftir að
glíma við þá spurningu.
Leikritið Einkalíf er þýtt af Signýju
Pálsdóttur leikhússtjóra og Jill Brooke
Árnason. Una Collins er höfundur
leikmyndar og búninga, leikstjóri er Jill
Brooke Árnason, lýsing og leikhljóð eru
í höndum Alfreðs Alfreðssonar og aðal-
hlutverk leika Sunna Borg, Gestur E.
Jónasson, Guðlaug María Bjarnadóttir
og Theodór JúlíuBson.
Við skulum grípa niður í handritinu
þar sem Amanda og Elyot fyrrum hjón
hittast óvænt á svölunum á franska
sveitahótelinu eftir fimm ára aðskilnað.
Fyrst er lýsing á sviðinu:
„Elyot gengur hægt að handriðinu.
Amanda gengur hægt fram á sínar sval-
ir og ber bakka með tveimur kokteil-
glösum. Hljómsveitin niðri tekur að
spila. Bæði Elyot og Amöndu bregður
lítið eitt við það. Síðan fer Elyot í þönk-
um að raula lagið sem hljómsveitin er
að leika. Amanda heyrir raulið í Elyot
oggrípur um kverkar sér eins og hún sé
Útvegsmenn Snæfellsnesi
Aðalfundur
þriöjudaginn 13. nóvember kl. 17.00.
Dagskrá:
I. Venjuleg aðalfundarstörf.
II. Ávarp: Krístján Ragnarsson.
III. önnur mál.
Stjórnin.
Sarasota, Florida, U.S.A.
Tvö lúxusherbergi og tvö baöherb. í
íbúöablokk til leigu. Hægt er aö synda í
Mexíkóflóa eöa í okkar fallegu sundlaug
og fara í tennis. Frábærir veitingastaöir og
öll önnur þjónusta fyrir feröamenn. Skrifiö
eöa hringiö eftir upplýsingabæklingi.
Sarasota Surf & Racquet Club,
5900 Midnight Pass Road,
Sarasota, Fl. 33581. Sími 1-813-349-2200.
Lukkudagar Vinningsnúmer 1.—30. september 1984.
1 30057 11 3039 21 9381
2 35119 12 22809 22 48055
3 4010 13 37904 23 36079
4 1175 14 47611 24 49482
5 26777 15 33439 25 25894
6 58510 16 3835 26 36118
7 47352 17 36294 27 11336
8 53090 18 26716 28 3279
9 40255 19 216 29 29309
10 11851 20 48375 30 59528
Vinningsnúmer 1.- —31. október 1984
1 23923 11 1494 21 35110
2 48617 12 54668 22 732
3 101 13 58971 23 6
4 33836 14 16772 24 43365
5 21314 15 13886 25 26674
6 5781 16 29729 26 377
7 33582 17 46305 27 38465
8 53877 18 35176 28 45760
9 984 19 3786 29 4925
10 31899 20 26310 30 18212
Vinningshafar hringi í síma 20068. 31 7905
Svíþjóð:
Má skipta
einu sinni
um nafn
Htokkbólmi. AP.
ÞAÐ ER í lagi ad skipta um
nafn einu sinni; en svo ekki
meir.
Áttræður maður frá Gauta-
borg vildi skipta um nafn og
fékk það f samræmi við nýju
nafnalögin f Svíþjóð.
Ein af afleiðingum breyt-
ingarinnar var sú, að maður-
inn varð að fá nýtt ökuskfr-
teini. Og það kostar sitt.
Þegar þetta varð ljóst sá
gamli maðurinn eftir öllu
saman. Hann sneri sér til
kirkjuráðsins, sem synjaði um
aðra breytingu. Það er nefni-
lega aðeins leyft að breyta
nafni sinu einu sinni. Þegar
maður hefur skipt um nafn þá
hefur maður skipt um nafn.