Morgunblaðið - 11.11.1984, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984
111
Tönn Ginu metm
á 3 milljónir
New York, 9. nóvember. AP.
DÓMSTÓLL í New York kvað í
morgun upp þann úrskurð, að
kvikmyndaleikkonan Gina
Lollobrigida skyldi frá sem
svarar 2,8 millj. ísl. króna í
skaðabætur fyrir tönn sem
brotnaði er hún var að eta á
veitingahúsi í fylgd með tann-
lækni sínum fyrir fjórum árum.
Leikkonan sagði að þau
hefðu verið að borða rækju
þegar þetta gerðist. Sagði
hún tannlækninum, Marc Ben
Huri, hvað gerzt hefði og hún
kveldist mikið. Héldu þau taf-
arlaust til tannlæknastofu
hans til bráðabirgðaaðgerðar.
Lollobrigida sagði að vegna
þess að viðgerð og smíði nýrr-
ar tannar hefði síðan tekið
svo langan tíma, hefði hún
misst af samningum sem
hefðu kostað hana mikið fé.
í úrskurði dómarans var
farið hörðum orðum um út-
búnað matarins á nefndu
veitingahúsi og hvatt til að
þeir bættu ráð sitt snarlega.
Skotinn inna landa-
mæra Austurríkis
Víd. 8. nórenber. AP.
LEOPOLD Gratz utanríkisráð-
herra sagði í dag, að tékkneskir
landamæraverðir hefðu skotið
mann Austurríkismegin landa-
mæranna. Kvaddi hann sendi-
herra Tékkóslóvakíu í Prag á
sinn fund og mótmælti „alvar-
legasta óhappi“ sem orðið hefði
við landamæri landanna um ára-
bil.
Á mánudag fannst 33 ára gam-
all Tékki Austurríkismegin landa-
mæranna, um 90 km norðaustur
af Vín. Hafði hann verið skotinn í
bakið, og við hlið líksins fundust
kúlur, sem talið er að skotið hafi
verið úr tékkneskum vélbyssum.
Fulltrúi Tékka í sameiginlegri
landamæranefnd landanna hélt
því fram, að maðurinn hefði verið
skotinn áður en hann fór yfir
landamærin.
Leopold Gratz utanríkisráð-
herra kvaðst hafa sagt Marek
Venuta sendiherra að þeir hefðu
sannanir fyrir því að atvikið hefði
gerst innan landamæra Austur-
ríkis. „Ég sagði sendiherranum að
við mótmæltum þessum atburði
harðlega og gæti hann orðið til að
stofna jákvæðu sambandi landa
okkar í hættu.
Vestur-Berlín:
Notaði
stiga við
flóttann
Berlín, 9. nóvember. AP.
Austur-þýskum verkamanni tókst
fyrir nokkrum dögum að flýja yfír til
Vestur-Berlínar og þykir það helst í
frásögur færandi við fíóttann, að hann
notaði stiga til að komast yfír múrinn.
Það voru bandarískir hermenn,
sem fyrst urðu á vegi Austur-
Þjóðverjans eftir að hann komst yf-
ir múrinn heill á húfi og án þess að
vekja á sér athygli austur-þýsku
varðmannanna. Notaði hann
tveggja og hálfs metra langan stiga
við flóttann, sem hann hafði skipu-
lagt mjög vel. Er hann sjötti
Austur-Þjóðverjinn, sem flýr til
Vestur-Berlínar á þessu ári. Tveim-
ur dögum áður hafði 17 ára gömlum
ungling tekist að klífa múrinn þrátt
fyrir ákafa skothríð varðmann-
anna. Varð hann ekki fyrir skoti en
tognaði á ökkla þegar hann kom
niður vestan megin.
ian Bonde Nielsen í flugvélinni i
leið heim fri London.
Jan Bonde
Nielsen snýr
til Danmerkur
Kaupmannaböfn, 9. nóvember. AP.
DANSKI iðnrekandinn Jan Bonde
Nielsen, sem eitt sinn var stjórnandi
skipasmíðastöðvarinnar Burmeister
og Wain, er nú kominn aftur til Dan-
merkur af fúsum vilja, eftir að hafa
dvalist í Bretlandi í þrjú ár. Hann
yfírgaf heimaland sitt þegar hann var
sóttur til saka fyrir fjársvik sem
námu rúmlega 146 milljónum
danskra króna.
Nielsen, sem er 46 ára að aldri,
er sakaður um að hafa fengið eitt
af mörgum iðnfyrirtækjum, sem
hann stjórnaði, til að kaupa hluta-
bréf Burmeister og Wain, sem þá
var að verða gjaldþrota. Kaupend-
urnir vissu ekki að gjaldþrot væri
yfirvofandi.
SLGLUFJÖRÐUR
HUSAVIK
'KUR AKUREYRI \
\ ; v yhit/
\ REYÐARFJÖR
VATNAJÖKULL
AVIK
VIÐ FJOLGUM
VIÐKOMUHOFNUM
ÚR FJÓRUM í ÁTTA!
Enn aukum við þjónustu við landsbyggðina og einföldum vörustreymi
milli dreifbýlis og þéttbýlis. Tíðari ferðir, stærri skip og fjórar nýjar
viðkomuhafnir greiða til muna fyrir flutningum milli byggðarlaga og
ekki síður milli landa, því beinn flutningur inn- og útflytjenda á
landsbyggðinni verður nú mun auðveldari. Við hefjum nú fastar
siglingar á REYÐARFJÖRÐ, SAUÐÁRKRÓK og PATREKSFJÖRÐ
auk þess sem við önnumst afgreiðslu Herjólfs til VESTMANNAEYJA
og tengjum strandflutningaþjónustuna alþjóðlegu flutningakerfi okkar
þar sem fullkomin aðstaða í Sundahöfn er miðpunkturinn. Þú getur
treyst þjónustu Eimskips.
TÍÐARI SIGLINGAR-STÆRRI SKIP
BEIN TENGSL VIÐ
ALÞJÓÐLEGAR SIGLINGALEIÐIR
EIMSKIP
*