Morgunblaðið - 11.11.1984, Side 53

Morgunblaðið - 11.11.1984, Side 53
MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984 125 ^L^AKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS ny utt' Kammertónleikar í Bústaðakirkju Stefán Jónsson frá Grænumýri skrifar: Það er ekið sem leið liggur Sogaveginn inn í Bústaðasókn að Bústaðakirkju. Einn fagur og kyrrlátur vetrardagur er að kveðja borgina og í húmi kvölds- ins hraða prúðbúnir borgarbúar sér á kammertómleika, sem eru haldnir þar í kirkjunni. Það eru félagar úr Sinfóníuhljómsveit ís- lands, sem þar ætla að leika f kvöld undir stjórn okkar ágæta hljómsveitarstjóra, Páls P. Páls- sonar. Þarna er um að ræða mjög fjölbreytta og skemmtilega efnis- skrá, ekki síst að því leyti að þarna er fléttað saman tónlist allt frá aldamótum sautján hundruð til þriðja áratugar tuttugustu ald- ar. Þessir tónleikar eru vel sóttir, hvert sæti skipað, að heita má, í þessu glæsilega guðshúsi, Bú- staðakirkju. Það ríkir mikil og góð efnilegur píanóleikari og óskum við Guðríði góðs gengis á lista- brautinni. Að loknu góðu hléi, þar sem kirkjugestir gátu rétt úr sér í hinni rúmgóðu forkirkju, spjallað saman og skipst á skoðunum um tónleikana, hóf hljómsveitin að leika hina dásamlega fallegu sin- fóníu Mozarts, Linz-sinfóníuna K425. Þarna mátti glöggt sjá og heyra, eins og svo oft áður, hve frábær stjórnandi Páll P. Pálsson er. Þarna fengum við svo sannar- lega að heyra Mozart rétt túlkað- an, hugljúfan grátklökkvann í fiðlunum í Adagio, sem siðan breyttist í svo mikla glaðværð í Allegro spirituoso í fyrsta kafla. Það má til gamans geta þess, að Mozart samdi þessa sinfóniu á að- eins fjórum dögum. Hann átti að stjórna tónleikum í Linz, en þá vantaði á efnisskrána, svo hann stemmning hjá kirkjugestum, eins og oft þar sem haldnir eru tón- leikar í kirkjum. Fyrst á efnisskránni er virðu- legt og hlýlegt barokk-verk eftir Johann Pachelbel, sem var sam- tíðarmaður J.S. Bachs, meistarans mikla. Þetta tónverk hljómaði fagurlega í hvelfingum kirkjunnar og er flutt með miklum ágætum af strengjaleikurum úr Sinfóníu- hljómsveit íslands og mildir tónar sembalsins berast áheyrendum til eyrna og gera tónverkið enn meira hrifandi. Þá er næst á efnisskrá konsert- músik fyrir píanó, málmblásara og hörpu op. 49 eftir Paul Hinde- mith. Á píanóið leikur ung lista- kona, Guðríður St. Sigurðardóttir, og skilar hún þarna hlutverki sinu af mikilli prýði. Eftir að hafa heyrt Guðriði leika í þessu verki dylst engum að þarna er mjög Þessir hringdu . . . Bendum börnum á betra leiksvæði 8384-6909 hringdi: Mig langar til að gera athuga- semd við ummæli íbúa i Kamba- seli í Velvakanda á föstudag. íbúi þessi biður um hraðahindrun i götuna og ég tek undir það. En um leið og við beinum slíkri beiðni til borgaryfirvalda, þá finnst mér að við ættum að beina þeim tilmæl- um til foreldra þar að benda börn- um á betra leiksvæði en götuna. Kambaselið er í algjörum sér- flokki hvað það varðar, að alltaf eru börn að leik úti á götunni. 1 næstú götum er ástandið ólikt, en inn Kambaselið keyrir enginn án þess að þurfa að gæta sin einstak- lega vel fyrir barni eða börnum og leikföngum þeirra. Fólk sem heimsækir kunningja í Kambasel- inu hefur oft haft orð á þvi hvað þetta væri áberandi. Bendum bðrnunum á betra leiksvæði! Ekki viröingar- leysi við Golden Gate Stefán Jökulsson hringdi: Mig langar til að svara lesanda, sem spurðist fyrir um ummæli þau, sem viðhöfð voru um Golden Gate-kvartettinn I morgunþætti mínum. Sá sem þessi orð lét falla var einn dagskrárgerðarmanna, Sigurður Einarsson. Hann tók það fram í kynningu, að Golden Gate- kvartettinn hefði stundum verið kallaður Watergate-kvartettinn af gárungum. Sigurður lét þessi orð falla án þess að ætla á nokkurn hátt að vanvirða þennan kvartett, enda erum við báðir miklir að- dáendur Golden Gate. Við viljum að siðustu senda bestu kveðjur til þess sem hringdi. gerði sér lítið fyrir og samdi þetta fallega tónverk á aðeins fjórum dögum, eins og áður segir. Það var mikið klappað að tónleikunum loknum og hljómsveitarstjóra og hljoðfæraleikurum þakkað eins og vera ber. Þessi kvöldstund í Bústaða- kirkju 8. nóvember sl. var sannar- lega ánægjuleg og skilur eftir góö- ar minningar um góða og vel flutta tónlist og sannar okkur enn einu sinni hvað mikið við eigum að eiga Sinfóniuhljómsveitina. Það er hörmulegt til þess að hugsa, að uppi skuli vera raddir sem jafnvel vilja þessa hljómsveit feiga. Ég tel aftur á móti að sem best þurfi að búa að Sinfóníuhljómsveit ís- lands, t.d. með nýju og góðu hljómleikahúsi. Sem betur fer eru margir sðmu skoðunar, því hljóm- sveitin er og verður einn traust- asti máttarstólpi íslenskrar menningar. Hef opnað læknastofu í Austurstræti 6, 5. hæö. Viötalsbeiöni í síma 621776 kl. 15—17 alla virka daga. Oddur Bjarnason læknir. Sérgrein: Geölækningar. Málverkauppboö veröur aö Hótel Sögu sunnudaginn 18. nóvember nk. kl. 20.30. Myndirnar veröa til sýnis sunnudaginn 18. nóvember kl. 14.00—18.00 aö Hótel Sögu. Látið húða fyrstu barnaskóna C(úta MEÐ EKTA ItOpat HÚDUN vinsamlegast hringid i síma 77535 milli 4-8 •ZXSXLít Dr«gl6 21 ’ 3511 kr. 75 000,00 kr. 50 000.00 Kr 30 000.00 Vlnnlng«r: , fwoavtnnlnflur eftir v«H IZl'ÍSSS **** H#!Kjerveiömeeti Kr. 325000.00 1 „m. »r« 00 365,0 GIGTARFÉLAG ÍSLANDS þarfnast stuðnings ykkar 5 \filakvefifo Flestir landsmenn þurfa einhverntímann að leita læknis vegna gigtar. Styðjið Gigtarfélag íslands í baráttu þess við gigtina. Gigtarfélag íslands Ármúla 5, Reykjavík. Símar 30760 & 35310

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.