Morgunblaðið - 21.12.1984, Side 12

Morgunblaðið - 21.12.1984, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984 „Húsið hefur risið fyrir bæn, það er klárt“ Endurbyggingu 700 m2 einbýlishúss frá 1908 að ljúka í Vestmannaeyjum Grein: ÁRNI JOHNSEN Myndir: SIGURGEIR JÓNASSON BreiAablik eins og það var fyrr á öldinni. að spara kolin sem hún hafði til umráða, en matseljurnar fundu það fljótt, því þá datt niður suða í pottunum þegar tungurnar fóru í eldinn. Gisting fyrir sjómenn Gísla J. Johnsen var í kjallara hússins, Svo og mötuneyti, en gisting fyrir hjú í risi, þannig að stund- um bjuggu yfir 30 manns í hús- inu, þar af 15 sjómenn." Fjölþætt starf í stóru húsi „Iðnaðarmannafélag Vest- mannaeyja keypti Breiðablik 1934 og átti það til 1978, en þá var það komið í algjöra niður- níðslu og hafði staðið autt í nokkur ár. Flestallir eldri borgarar Vest- mannaeyja hafa notið kennslu eða einhverrar þjónustu í húsinu og alls konar fólk hefur gist í húsinu, m.a. margir þjóðhöfð- llandmálaðar postulínsflísar fri fyrsta iratug aldar- Veggþiljur í einu af berbergjum Breiðabliks. innar. ingjar. f Breiðabliki hefur margs konar starfsemi farið fram, Gagnfræðaskólinni í Vest- mannaeyjum starfaði þar um árabil, Iðnskólinn, Stýrimanna- skólinn í Vestmannaeyjum, ljós- myndastofa, myndlistarskóli og tómstundamiðstöð, svo nokkuð sé nefnt. Oft voru haldnar ræður af svöhim Breiðabliks á 17. júní.“ Loftskraut í einni af stofum Breiðabliks. Óli Griinz, t.h., isamt Hjilmari Guðnasyni félaga og bróður í mannlífs- róðrinum. I*au vilja verða mörg handtökin við að endurbyggja gömul hús og nær undantekningarlaust reynist það meiri vinna en menn ætla þegar gengið er að verki með bjartsýni og áræði. En sem betur fer er til margt fólk í okkar landi sem leggur mikið á sig til að endurreisa gömul hús og hafa mörg spennandi viðfangsefni verið tekin fyrir víða um land á undanfornum árum, sérstaklega þó í Keykjavík og á Akureyri. Undanfarin 5 ár hefur eitt hús í gamla stílnum verið í endurbyggingu í Vestmannaeyjum, Breiða- blik, sem Gísli J. Johnsen konsúll, kaupmaður og útvegsbóndi, byggði árið 1908 en þar er talið að fyrsta vatnssalerni hafi verið í íbúðarhúsi á íslandi. Núverandi eigandi Breiðabliks er Ólafur Gránts trésmíðameistari, en hann er þriðji eigandi hússins frá upphafi. Iðnaðarmannafélag Vestmannaeyja átti húsið á eftir Gísla. Eftir mikið endurreisnarstarf í 5 ár er fjölskylda óla að flytja í húsið og þar með verður það ein- býlishús á ný eftir áratugi í ýms- um hlutverkum fyrir mannlífið í Eyjum. Húsfriðunarnefnd fjall- aði fyrir skömmu um Breiðablik og það endurreisnarstarf sem þar hefur verið unnið og þótti nefndarmönnum mikið til koma, að sögn Þórs Magnússonar þjóð- minjavarðar, og eins hve vel hefði verið vandað til verksins á allan hátt. Mbl. ræddi við óla Gránz um Breiðablik og vinnuna við að koma húsinu í samt lag. 10 lóðir undir eitt hús „Élg keypti húsið fyrir 5 árum, árið 1978, af Iðnaðarmannafé- lagi Vestmannaeyja, sem var annar eigandi hússins frá upp- hafi, á eftir Gísla J. Johnsen sem byggði það 1908. Húsið er byggt í Hólslandi og Gísli fékk úthlutað 10 húslóðum fyrir húsið og byggði í kring um lóðina stein- vegg allmikinn og voldugan, en það er talið að mannvirkið um- hverfis húsið hafi kostað meira en húsið sjálft og er það þó engin smásmíði, um 600—700 fermetr- ar. Húsið var forunnið í Dan- mörku árið 1907, þar sem allir máttarstólpar og aðalviðir voru unnir af dönskum handverks- mönnum og númeraðir og merktir saman með rómverskum tölum að sið þess tíma. Burðar- stólpar hússins eru unnir úr 6V4” bjálkum, geirnegldum og töpp- uðum saman og gólfbitar eru úr 3V4”x9” trjám, allt nótað saman. Húsið var flutt til Íslands með dönsku skipi og síðan borið upp á lóð Breiðabliks, en þá hafði und- irbúningur farið fram og kjallari Breiðablik í dag, en eftir er að ganga frá skrauti yfir gluggum og undir þakskeggi. verið reistur. Húsið var síðan reist á forgrunninum árið 1908 undir stórn Magnúsar ísleifsson- ar byggingarmeistara. Svo mikið þótti til hússins koma að það var eitt af því fyrsta sem ferða- mönnum til Eyja var sýnt á þeim tíma. í húsinu var eitt fyrst a vatnssalerni á íslandi ásamt vatnshitakerfinu. Ágreiningur reis milli eiganda og verktaka sem neitaði að setja það sem hann kallaði kamar inn í íbúð- arhús, en á þeim tíma var helzta salernisaðstaða Eyjamanna undir pöllum eins og sagt var, en það var í fjörunni undir bryggju- skúrum og aðgerðarhúsum sem voru byggð á stólpum fram við sjó.“ Herbergísleigan var umsjón með skyrtum og flibbum „Gömul sögn er um það að þegar Matthías Finnbogason á Litlu-Hólum gekk frá hitalögn í húsið hafi frúin óskað eftir ofni á svalir hússins. Það varð úr en ofninn frostsprakk um veturinn. Á salerni hússins voru og eru ennþá handmálaðar flísar, sem voru sérstaklega gerðar fyrir Gísla J. Johnsen í Danmörku, og í rúðum í svalahurðum var fangamark GJJ sérstaklega teiknað af listamanni. Það sem var m.a. sérstakt við húsið var að vatnslögn og frárennslislögn var inn í hjónaherbergið þannig að hjónin höfðu hvort um sig rennandi vatn við hjónarúmið. Meðan Gísli bjó í húsinu var þar maður sem hafði það starf að kynda húsið með kolum og dæla vatni upp í hæðarbox í risi, 10 metra hæð. Kona ein hélt þarna herbergi um áratuga skeið og leigugjaldið var það að hún sá um skyrtur og flibba GJJ. Hún bjó í vesturkvisti hússins, en það herbergi hefur verið 5 fm og græjurnar sem hún hafði var straubolti með lausum tungum. Hún notaði ýmsa klæki til að læða tungunum inn í eldavélina þegar matseld stóð yfir, til þess Safnaði 10 tonnum af ofnum „Það hafa margir lagt hönd á plóginn við uppbyggingu húss- ins, vinir og vandamenn, og vinnan er ómæld. Ofnar í húsinu eru af gamalli gerð, en þeim var safnað víðs vegar um landið til þess að ná pottofnum með gamla laginu eins og þeir voru í húsinu. Ég náði 10 tonnum af ofnum og það nægði til þess að unnt væri að ná nógu mörgum nothæfum ofnum, sem síðan voru allir hreinsaðir upp og málaðir aftur. Það fóru 100 rúmmetrar af ein- angrun, steinull, í veggi og út- veggi og þök hússins, en það er klætt að utan með bárujárni eins og það var í upphafi. Þá er útflúr og útskurður unnið í tré eins og var á frumbyggingunni, en eftir er að ganga frá hluta af skreyt- ingu fyrir ofan glugga og undir þakskeggi. Eftir 5 ára þrotlaust starf þar sem margir hafa hjálpað til sér nú fyrir endann á ævintýrinu, — hún Kolla mín vonast til þess að geta flutt inn fyrir jól, en vissu- lega hefur þetta verið margfalt meiri vinna en ég reiknaði með og líklega hefði maður aldrei farið út í þetta, ef maður hefði gert sér grein fyrir umfanginu. Konan er búin að vinna á tveim- ur stöðum allan tímann frá því við keyptum húsið og hver eyrir fyrir þá vinnu hefur farið í hús- ið. Það hefur ræst á þessu húsi það orð í Biblíunni, sem segir að ef „Drottinn byggir ekki húsið, þá erfiða smiðirnir til ónýtis", því að fjölskylda okkar er sann- færð um það að húsið hefur risið fyrir bæn, það er klárt. Þegar allt hefur ætlað að stranda, hef- ur vantað bæn, og með bæninni hefur ræst úr öllu.“ — á.j.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.