Morgunblaðið - 21.12.1984, Side 14

Morgunblaðið - 21.12.1984, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984 íslenska hljómsveitin Tónlist Jón Ásgeirsson Vetrarsólstöður er yfirskrift þriðju tónleika íslensku hljómsveitarinnar, sem haldnir voru í Bústaðakirkju sl. miðviku- dag. Efnisskráin var fjölbreytt og eins og fyrrum enduðu þessir jólatónleikar á því að flytjendur og áheyrendur sungu saman nokkra jólasálma. Tónleikarnir hófust á smá söguþætti eftir Gabriel Faure, sem saminn er yfir sálm, líklega eftir Jean Rac- ine (1639—99), en hann var einn af mestu leikritasnillingum Frakka og sóttu tónskáld eins og Lully, Gluck, Saint-Saens og Honnegger óspart í gullastokk hans. Sálmur Racins er fallegt kórlag og var þokkalega sungið, þó nokkuð vantaði á að karlradd- irnar hefðu nægan styrk og hljómdýpt til að gefa verkinu réttan lit. Annað verkið á efn- isskránni var „Lýrískur þáttur" fyrir lágfiðlu og kammerhljóm- sveit og lék Ásdís Valdimars- dóttir á lágfiðluna. Ásdís sem er í námi hefur fallegan tón og leik- ur „músíkalskt". Verður fróðlegt að heyra hana takast á við stærri verkefni, þegar hennar tími er kominn, þó óhætt sé að fullyrða, að hún er þegar orðin góður lágfiðluleikari. Síðasta verkið fyrir hlé var sellókonsert eftir Tartini og lék ungur sænskur sellisti, Mats Rondin, einleik í verkinu. Rondin Ásdís Valdimarsdóttir er ágætur sellisti og lék konsert- inn af öryggi. Á seinni hluta tónleikanna var flutt Adagio fyrir flautu, hörpu, píanó og strengjasveit eftir Jón Nordal, samið 1966 og oftlega hefur verið flutt enda fallegt og elskulegt verk. Einleikarar voru Martial Nardeu, Anna Guðný Guð- mundsdóttir og Elísabet Waage. Það sem vantaði á í flutningi verksins varðaði öryggi, samspil og tóngæði hjá strengjum sveit- arinnar. Síðasta verkið var svo Flos Campi, eftir Vaughan- Williams, fyrir lágfiðlu, kór og kammersveit. Verkið er óttalegt gums og minnir á kvikmynda- tónlist þegar hún gerist væmn- ust. Trúlega var tónskáldið að feta sömu leið og Debussy með því að nota kór sem tilbrigði við hljómbrigði hljóðfæranna. Ein- leikarinn í verkinu var Ásdís Valdimarsdóttir og lék hún af öryggi. Söngsveitin Fílharmónía söng þokkalega, þó nokkuð sé karla- liðið þunnskipað. Ef til vill er Íað hæpin ráðstöfun af stjórn slensku hljómsveitarinnar að leggja áherslu á margbreytileika í efnisvali, því hætta er á því að verkefni vinni hvert gegn öðru. Ef efnisskrá tónleikanna að þessu sinni eru athuguð kemur í Ijós að tvö tónverk eru hugsuð sem kórverk án þess að vera þó eiginleg kórverk og í stað eins einleiksverks, eru þau þrjú, öll án þess þó að vera eiginleg ein- leiksverk, nema þá helst kon- sertinn eftir Tartini, sem þó er með því minnsta sem gerist af þeirri gerðinni. Þá er það ekki síður bagalegt að verkin eftir Faure, Holst og Vaughan- Williams eru með bragðminni verkum eftir þessa ágætu tón- smiði og í raun ekki tæk, nema til að flétta saman þá hugmynd, að gera eitt úr tvennu, nefnilega að skapa bæði kór og einleikara tækifæri. Slíkt er vægast sagt hæpin ráðstöfun þegar um svo viðkvæmt söluatriði er að ræða, sem einir tónleikar geta verið. Það er tvennt sem huga þarf að við skipulag tónleika og það er ágæti viðfangsefnanna, því eftir gæðum þeirra fer ástand þeirrar íhugunar sem tónleikagestir upplifa og síðast en ekki síst þarf flutningurinn að vera sá hrifningarvaki sem listþyrstri manneskju er lífsnauðsyn til endalausrar eftirsóknar í lífs- þrungna og góða list. Skólaglettur og ferðafjör Bókmenntír Erlendur Jónsson ÚR DAGBÓKUM EINARS MAGG. 411 bls. Eiríkur Hreinn Finnboga- son bjó til pr. Almenna bókafélagið. Reykjavík, 1984. Langt er síðan Einar Magnús- son taldist þjóðkunnur maður, svo langt að minni undirritaðs nær ekki til forsögu þess. Dagbækur þær, sem hann sendir nú frá sér, taka til áranna 1914—1922. Forn- öld fyrir sjónum þeirra sem nú eru miðaldra, hvað þá hinna sem yngri eru! Eiríkur Hreinn Finnbogason fylgir bókinni úr hlaði með for- mála. Þar ber hann mikið lof á kennarann og rektorinn Einar Magnússon og segir að fáir eða engir íslenskir kennarar hafi eign- ast svo marga nemendur. Vafa- laust hafa þeir nú nokkra skemmtun af að sjá hér gamlan læriföður í nýju ljósi. En Einar Magnússon var ekki aðeins kenn- ari og rektor. Hann var líka ferða- maður af lífi og sál. Og að hluta til er þessi bók ferðalýsingar hans frá meginlandi Evrópu skömmu eftir fyrra stríð. Eiríkur Hreinn kveður dagbækurnar »segja merkilega sögu — sögu unglings sem verður að manni við erfið skilyrði í heimi sem við, sem van- izt höfum öllum þægindum, telj- um a.m.k. að hafi verið erfiður.« Það er einnig athyglisvert við dagbækur þessar að unglingurinn hefur snemma verið þroskaður til ritstarfa þótt hann væri að öðru leyti hálfgerður æringi. Eins og gefur að skilja segir unglingurinn frá því sem á hugann leitar eða á dagana drífur á líðandi stund. Ekki er það allt merkilegt, enda er Einar Magnússon það ungra að ýkja og stækka fyrir sér eitthvað sem fullorðnum vex ekki í augum en sjást yfir annað sem hinn roskni og ráðsetti telur athugunar og íhugunar virði. Út af fyrir sig kann að vera merkilegt að lesa nú um daglegt líf unglings fyrir sjötíu árum eins og það kom hinum sama unglingi fyrir sjónir þar og þá. En svo bráðger og pennaglaður sem unglingurinn Einar hefur verið sýnist heldur ósennilegt að hann hafi gert dag- bókina að trúnaðarvini. Hann seg- ir hressilega og jafnvel hreinskiln- islega frá daglegum viðburðum. Hitt, sem innst í sefa bjó, giska ég á að hann hafi geymt með sjálfum sér. Þó gaman sé nú að lesa um fyrstu kynni Einars við ýmsa menn sem síðar urðu þekktir eða jafnvel þjóðfrægir þykja mér líf- legri dagbækur hans frá ferðalög- unum erlendis. Þá er hann orðinn þroskaður maður, tekur vel eftir, lifir frjálslega og er þar af leið- andi opinn fyrir því iðandi lífi sem fyrir augu og eyru ber í stórborg- um álfunnar. Lokaspretturinn er hafinn. JÓLAG JAFIR í SÉRFLOKKI SHG Sjálfvirkar kaffikönnur. Verö frá kr. 1.313.- Opið föstudag 9—18, laugardag 9—23 og mánudag 9—12. S.H.G. Sjálfvirkir eggjasjóöarar fyrir 1—7 egg. Verð kr. 1.571,- Stereó útvarp/segulband meö FM, langb., miöb. og stuttb. 5 banda tónjafnari og 2 way losanlegír hátalarar. Verö kr. 13.658.- stgr. Sanyo Rafmagnsrakvélar / Verö frá kr. 1.735.- Blaupunkt VHS Video Verö kr. 39.870,- CSB 650 RLE-sett 13 mm höggborvél, stiglaus hraðastíllir, 0-3400 snún. /min., snýst afturábak og áfram. 650 wött. PST 50 stmgaög Sagardýpt í stál 3 mm, í tré 50 mm. 350 wött. 3000 slög/mín. Verö kr. 3.900.- Husqvarna Saumavélar, meö áratuga reynslu meöal íslenskra hús- mæöra. Verö frá kr. 12.000,- stgr. Husqvarna Vöfflujárn. Verö kr. 2.529,- Huaqvarna Micranett örbylgjuofninn. Verö kr. 19.788 - stgr. (fijHusqvarna BOSCH @SANYO HiFi system 234 er meö á nótunum • stórglæsileg hljómtækjasam- stæöa í vönduðum skáp meö reyklituöum glerhurðum. • 2x40 watta magnari meö inn- byggöum 5 banda tónjafnara. • Þriggja bylgju stereo útvarp meö 5 FM stööva minni. • Segulbandstæki fyrir allar snældugeröir meö „soft touch“ rofum og Dolby suöeyöi. • Hálfsjálfvirkur tveggja hraöa reimdrifinn plötuspilari. Allt þetta fyrir aö- eins kr. 31.760 .- stgr. Gunnar Ásgeirssonihf. Suóurlandsbraut t6 Simi 91 35200

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.