Morgunblaðið - 21.12.1984, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984
57
Kynjaveröld
Bókmenntir
Jenna Jensdóttir
C.S. Lewis
Ljónid, nornin og skápurinn.
Mvndirnar gerði Pauline Baynes.
Kristín R. Thorlacius íslenskaði.
Almenna bókafélagið, Reykjavík
1984.
Clive Staples Lewis var fæddur í
Belfast 1898. Strax á barnsaldri
samdi hann ævintýri og sögur með
bróður sínum og daglegt líf þeirra
bræðra varð einnig undraheimur
kynjaævintýra.
Lewis lauk háskólaprófi 1917 og
varð lektor við Oxford-háskóla
1927. Hann tók þátt í síðari heims-
styrjöldinni og særðist þá alvar-
lega. Síðustu tíu árin var hann
prófessor í bókmenntum við há-
skólann í Cambridge. Hann and-
aðist 1963.
Fyrstu bók sína, sem var ljóða-
bók, gaf hann út undir höfundar-
nafninu Clive Hamilton — og
raunar fleiri bækur.
Hann varð heimsþekktur fyrir
barnabækur sínar um Narníu,
ókunna veröld fyrir utan rúm og
tíma, þar sem hið góða og illa heyr
tvísýna baráttu. Þessar bækur eru
sjö að tölu.
Lewis ritaði margar bækur
byggðar á heimspekilegum og guð-
fræðilegum grundvelli.
Ljónið, nornin og skápurinn er
ein af Narníusögum hans. Höfuð-
persónugerðirnar eru ljónið (Asl-
an) og Hvíta nornin (Jadis).
Systkinin fjögur, Lúsía, Ját-
varður, Súsanna og Pétur eru á
stríðsárunum send frá London
langt út í sveit til gamals prófess-
ors vegna loftárásahættu.
Hjá þessum dularfulla, vin-
gjarnlega manni, í stóru húsi, bíð-
ur þeirra spennandi ævintýri.
Fataskápur í einu herberginu er
fordyri að óþekktri, hrikalegri
kynjaveröld — Narníu. Sá kemst í
kynni við hana er forvitnast inn i
skápinn, sem er fullur af loðkáp-
um, og lokar að baki sér.
Það hendir fyrst yngsta systkin-
ið Lúsíu. í Narníu kynnist hún
skrýtna öðlingnum Tumnus og
fræðist um margt af honum. Hún
kemst inn í fataskápinn aftur og
til systkina sinna, sem hún hvarf
sjónum augnabliki áður, en í
kynjaveröldinni eru það margir
tímar fyrir henni.
Ekkert þeirra trúir frásögn
Lúsíu.
Skyndilega fer hún aftur og
Játvarður líka. Þau fylgjast ekki
að. Hann lendir í umhverfi Hvítu
nornarinnar og ánetjast hugsun-
um hennar og viðhorfi — og hrífst
af.
Þau systkini koma aftur til
mannheima. Sjónarmið þeirra eru
misjöfn og Játvarður bregst
sannsögli Lúsíu.
Brátt eru öll systkinin komin til
Narníu og dragast þar inn í hring-
iðu ógnar átaka milli góðs og ills.
Játvarður leitar nornarinnar. Hin
systkinin komast í kynni við bjór-
ana og seinna ljónið Aslan ...
Rauði þráðurinn í furðusögnum
Lewis er kristin siðfræði og hið
góða sigrar alltaf hið illa hversu
voldugt sem það er.
Þýðingunni er víða ábótavant.
Dæmi: (bls 15) „... Og ekki leið á
löngu uns furðuskrítin vea kom í
Ijós milli trjánna og gekk fram i
birtuna frá ljóskerinu. Hann var
ekki hærri en Lúsía...“ (bls. 32)
„... Hún hefði getað sæst við
systkini sín hvenær sem var, ef
hún hefði getað fengið sig til að
segja að sagan hefði verið tilbún-
ingur og hún hefði sagt þetta að
gamni sínu ...“
Sagan er mjög spennandi og á
margt sameiginlegt með ævintýr-
um eftir H.C. Andersen og Astrid
Lindgren. Svona smáfelldar
myndir þurfa mikillar athygli ef á
að njóta þeirra. Frágangur bókar
er ágætur.
eins og heitar lummur. Flest eru
lögin 14 komin vel til ára sinna
en það er nú bara svo með mörg
góð lög að þau batna með aldr-
inum. Ekki veit ég hver valdi
lögin á plötuna en sá hinn sami
virðist hafa hitt naglann á höf-
uðið.
Temað á plötunni er ástin í
hinum ýmsu myndum og jafn-
ólík og lögin nú eru koma þau
skemmtilega út á einni og sömu
plötunni. A meðal laganna 14
eru 3 íslensk, Angelía með
Dúmbó og Steina, Sönn ást með
Björgvin Halldórssyni og Sail
On með Jóhanni Helgasyni. Þau
eru þarna í félagsskap ýmissa
laga, sem náð hafa frægð um
heim allan. Frægast þeirra allra
er líklegast House of The Rising
Sun í útgáfu Peter Hofman.
Reyndar hefur hún sætt nokk-
urri gagnrýni en í mínum eyrum
— ógjörningur er að dæma fyrir
hönd annarra sem fyrr — lætur
þetta prýðilega. Þá er þarna að
finna lagið Feelings með Andy
Williams og Silence Is Golden
með Tremeloes. Önnur lög eru
yngri í hettunni.
Það er gaman að finna á þess-
ari plötu lög eins og það síðast-
nefnda, að ekki sé nú talað um
Me And Mrs Jones með Billy
Paul og Love Will Keep Us To-
gether með Captain and Tenille.
Islensku lögin þrjú gera það gott
þótt aldrei hafi ég verið tiltak-
anlega hrifinn af Angelíu. Sönn
ást Magnúsar Eiríkssonar hins
vegar gullfallegt og sömuleiðis
Sail On þótt gerólík séu.
Sennilega höfðar þetta safn
ekki til þeirra allra yngstu og
kannski heldur ekki unglinganna
í dag en vafalítið munu flestir,
sem komnir eru á þriðja áratug-
inn, kætast við það að heyra
mörg af „gömlu, góðu, lögunum“.
Mögnuð
Moyet
Alison Moyet
Alf“
(TBS/ Steinar
Þegar dúettinn Yazoo sló í
gegn fyrir fáeinum árum var það
ekki aðeins Vince Clark, fyrrum
höfuðpaur Depeche Mode, sem
komst í sviðsljósið heldur félagi
hans, Alison Moyet, einnig. Moy-
et þótti strax hafa afburða
söngrödd og þótt hún væri afar
ólík hinum dæmigerðum „ný-
rómans“-röddum féll hún vel að
tónlist Yazoo. Úr varð enda fá-
dæma vinsæll dúett, sem því
miður lagði upp laupana eftir
tvær frábærar plötur.
Alison Moyet hefur nú sent
frá sér fyrstu breiðskífu sfna og
óhætt er að segja að hún hitti í
mark, a.m.k. hjá mér. Söngur
Moyet nýtur sín e.t.v. enn betur
hér en á plötum Yazoo þótt und-
irleikurinn sé af svipuðum toga,
þ.e. mestmegnis hljómborð og
trommur (þó ekki raftrommur).
Hér eru hljómborðin hins vegar
notuð mun mildilegar en hjá
Yazoo, þ.e. yfirbragðið er rólegra
og ekki alveg eins kalt.
Þegar hafa tvö lög af þessari
plötu náð þó nokkrum vinsæld-
um, fyrst Love Resurrection og
þá All Cried Out. Reyndar á ég
ekki von á að fleiri lög af plöt-
unni „slái í gegn“ því þau eru
einfaldlega ekki þess eðlis. Þau
eru af þeim toga er vinna stöð-
ugt á við hverja hlustun. Það á
reyndar við um alla plötuna,
þetta er framlag, sem á eftir að
lyfta Alison Moyet í hærri hæð-
ir.
£-/ / j sy I */■ ' v
af£ f f ■/
J*- f -ff' y’ r-,W- /Jt /
Skartgripir
Einstök
fegurö
og enginn
gripur
eins
Sjaldan hefur dönsk listhönnun risiö hærra en með Flora Danica skargripunum. Þú færö meistara-
verk náttúrunnar steypt 24 karata gullhúöun og þriggja ára ábyrgö á ótrúlega lágu veröi. Og þaö sem
er mest um vert. Það eru engir tveir gripir eins.
Einkasöluumboð í Reykjavík.
FRANCH MICHELSEN
URSMIÐAMEISTARI
LAUGAVEGI 39, SÍMI 28355
REYKJAVÍK
llringdu í 33272 og fyrr en varir ertu kominn í sælkerabeim
Veitingahallarinnar og Hallagarðsins fyrir hreint almúgaverð.
Veitinga-
MiKBBBjm
veislatt-|
ummestu
verslunar-
helgi xððS
ársins fllA
Komið í
tilokkar
eðafáið fÆmá.
veisluna senda
tHykkar
Stórglæsilegur og girnilegur mat-
seöill afgreiddur allan daginn í dag
og á morgun.
• Sérstakur útsendingarmatseö-
ill og ókeypis
• wnding með 5 mata eöa ftetá
• Jófaglöggiö okkar rennur Ijúf-
leganiður.
t Hjá okkur þarftu aldrei að teita
aö bílastæðum.
Húsi verslunarinnar
Sími 33272 — 30400.
í Húsi verslunarinnar
við Krinulumýrarbraut