Morgunblaðið - 21.12.1984, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 21.12.1984, Blaðsíða 74
74 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984 _____________________________« IM3 dtti 'cg ab vitA hAnw inyncií 5Kjókí<- bundurákjeijtum T " Málarinn spurAi hvort hann ma-tti ekki skola úr penslun- um í haAkarinu okkar? Kom inn! Þessir hringdu. . Rás 2 á Vestfjörðum Þorgeir Ástvaldsson, forstöúu- maAur Rásar 2 hringdi: í Velvakanda á miðvikudag var bréf frá 74 unglingum í Bol- ungarvík, þar sem þeir kvarta yfir að geta ekki hlustað á rás 2. Það er mér ljúft að segja þeim, að nú er verið að setja upp senda á Bæjum á Snæfjallaströnd og á Arnarnesi. Þegar þessar línur birtast, heyrist rás 2 líklega um allt Ísafjarðardjúp. Að vísu gæti Bolvíkingum reynst erfitt að ná útsendingum vegna legu bæjar- ins, en þó ættu þeir, sem hafa góð tæki, að geta heyrt til rásar 2. Ef ekkert óvænt kemur upp á, t.d. slæmt veður eða bilanir, ættu því íbúar við Djúp að heyra í rás 2 núna. Senditíðni sendisins á Bæjum er FM 91,5, en sendis- ins á Arnarnesi 96,5 á FM-bylgju. Ég vona að hlustend- ur rásar 2 eigi gleðileg jól. Götumerkingar í Grafarvogi Kona í Grafarvogi hringdi: Mig langar til að benda íbúum í Grafarvogi á að merkja hús sín betur en nú er. Þarna er að rísa mikil byggð, en því miður reyn- ist fólki erfitt að finna hús, sem ekki bera númer. Ég hef hér sér- staklega í huga bréfbera og út- burðarfólk dagblaða. Það gengur oft erfiðlega hjá þessu fólki að skila af sér bréfum og blöðum og það fær kannski bágt fyrir. Ég vil benda íbúum Grafarvogar að sýna útburðarfólki þolinmæði og hefjast þegar handa við merk- ingar húsa. En það eru ekki aðeins merk- ingar á húsum hér sem eru lítt til fyrirmyndar. Hérna er lítið rutt af snjó og ekki gerir það fólki auðveldara fyrir, auk þess sem lýsing er enn lítil. Það hljóta allir að sjá hve erfitt það er að paufast á milli ómerktra húsa í myrkri og kafsjó. Ég skora því á heimafólk í Grafar- vogi og borgaryfirvöld að bæta hið snarasta úr þessu ófremdar- ástandi. Það getur enginn ætlast til þess, eða gert kröfu til bestu þjónustu blaðburðarfólks og póstbera, ef daðstæður eru fyrir neðan allar hellur. Að lokum langar mig til að þakka þessu sama fólki fyrir dugnaðinn í vet- ur, það gefst ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Falskt orgel og Farísear Æ fleiri fara nú að dæmi Far- íseans og biðja bænir sínar i ‘ rg- um. Hallgrímskirkja þarf orgel. Þetta tröllaukna „guðshús", sem er í raun tímaskekkja um a.m.k. 500 ár, skal nú fyllast tónum úr dýrasta hljóðfæri sem völ er á. Andi miðalda svífur að nýju yfir vötnunum, andi þess tíma þegar stærstu og íburðarmestu kirkju heims voru reistar, ekki drottni, heldur prelátum kirkjunnar til dýrðar, meðan almúginn lifði ein- hverja mestu eymd sem sögur fara af. Hallgrímskirkja, sem frá upp- hafi hefur verið öllum hugsandi mönnum á íslandi þyrnir í augum, og sem einhverjir misvitrir menn ætluðu að vera minnismerki um sr. Hallgrím Pétursson, er í raun steingerð ófreskja, varða við þá villigötu, sem kristin trú er komin á. Auk þess er hún næsta auvirði- legt minnismerki hjá Passíusálm- unum, sem gert hafa Sr. Hallgrím ódauðlegan í hugum íslendinga. Þó Hallgrímskirkja sé vissulega ekki eina kirkjan, sem er allt of stór og allt of dýr, er hún þó stærðar sinnar vegna táknræn fyrir yfirborðsmennsku íslensku þjóðkirkjunnar í kirkjubygging- um. Allt skal vera sem stórfengleg- ast, ekkert má til spara. Þó kirkj- ur séu dýrustu og glæstustu hallir landsins, fylltar gulli og silfri, þó Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur les- endur til að skrifa þætt- inum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrit- uð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þátt- arins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Árna Árnasyni, vélstjóra, fínnst söfnun fjár til kaupa i orgeli i Hallgríms- kirkju vera einna líkust afíitsbréfasölu. kirkjuturnarnir rísi sífellt hærra og hærra til hmins, þá fjarlægist kirkjan að sama skapi Guð og kærleika kristinnar trúar. Og nú skal höfuðið bitið af skömminni, milli frétta af hung- ursneyð og annarri óáran, mann- legri eymd í sinni óhugnanlegustu mynd, má lesa um keðjubréf í gíróformi, einskonar nútíma af- látsbréfasölu er standa á undir kaupum á tugmilljóna orgeli, hvers andvirði mundi færa hundr- uðum þúsunda bágstaddra nær og fjær ögn gleðilegri jól. Gleðilegjól, Arni Árnason, vélstjóri. HEILRÆÐI Á heimilunum leynast víða hættur, sem fjölskyldan verður að vera sér meðvitandi um. Gæta verður þess að höldur og sköft ílátanna á eldavélinni snúi til veggjar þannig að stuttir hand- leggir geti ekki teygt sig í þau og steypt yfir sig sjóðandi og brennheitu innihaldinu. Alltof oft hefur það hent að börn hafi stungið sig og hlotið djúp sár á eggjárnum sem skilin hafa verið eftir í hirðuleysi að lokinni notkun. Aldrei er það nógsamlega brýnt fyrir foreldrum að hafa öruggan umbúnað á opnanlegum gluggum og svalahurðum eða áréttuð þau varnarorð að láta ekki lyf eða önnur hættuleg efni liggja á glámbekk. Njótum undirbúnings jólanna með slysa- lausum dögum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.