Morgunblaðið - 21.12.1984, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984
65
Ármann Péturs- I 1^1 IJ^
son — Minning ^91 1^1 E
Ég vil í örfáum orðum minnast
vinar okkar hjóna, Ármanns Pét-
urssonar aðalbókara, Eyvindar-
holti, Bessastaðahreppi. Ég ætla
því aðeins að minnast starfa hans
fyrir ungmennafélagshreyfing-
una. Ég fann það strax þegar
Ármann kom til starfa í stjórn
Ungmennasambands Kjalarnes-
þings að þar var áhugasamur og
traustur félagi. Ármann tók við
formennsku af mér eftir nokkur
ár, sem hann gegndi síðan í þrjú
ár með mikilli prýði. Hann tók
einnig við af mér, sem stjórnar-
maður í Ungmennafélagi fslands,
sem hann gegndi í 10 ár einnig
með miklum sóma.
Ármann var sannur ungmenna-
félagi, sem öll störf hans að þeim
málum sanna, hann var forustu-
maður um stofnun Ungmennafé-
lags Bessastaðahrepps og fyrsti
heiðursfélagi þess. Margt kemur
upp í hugann þegar starfa þessa
góða drengs skal minnst, ég ætla
þó aðeins að geta þáttar UMSK og
þess mikla starfs sem sambandið
vann með miklum sóma undir
traustri forustu hans þegar við
héldum landsmótið á Þingvöllum
1957, en Ungmennafélag íslands
var stofnað á Þingvöllum 1907 og
því þótti tilhlýðilegt að halda sér-
stakt afmælismót sambandsins
þar þá. Landsmót UMFl höfðu þá
í gegnum árin verið glæsilegustu
samkomur íslenskrar æsku og
hafa síðan ávallt aukið hróður
sinn sem slík. Það er trú mín að
fáir geri sér grein fyrir hvaða
óhemju starf liggur að baki undir-
búnings þessara móta og að ann-
ast framkvæmd þeirra, en á þess-
um vettvangi hafa ungmennafé-
lagar um land allt sýnt hvers
hreyfingin er megnug.
Á stofnþingi UMFÍ 1907 var
rætt um áskorun sem barst frá
Ungmennafélagi Akureyrar en
það félag var stofnað 1905, um að
„íþróttamót verði haldið fyrir ís-
land“. Þannig var hugmyndin að
landsmótunum þegar vakin.
Fyrsta mótið var svo haldið á Ak-
ureyri 1909. 1911 var mótið haldið
í Reykjavík og aftur í Reykjavík
1914. Síðan falla þessi mót niður
allt til þess að hinn merki félags-
málafrömuður og afreksmaður í
íþróttum, Sigurður Greipsson að
Haukadal vekur máls á því á þingi
UMFÍ 1938 að endurvekja íþrótta-
mót UMFÍ og það varð að veru-
leika mest fyrir ötult starf hans
að mót er haldið í Haukadal 1940
og hafa þau síðan verið haldin 14
sinnum. Umfang þeirra hefur auk-
ist stórum, sem er afrakstur mik-
ils starfs ungmennafélaga um
land allt. Það er mín skoðun að
UMFÍ væri allt annað og máske
ekki til ef mótin hefði ekki verið
endurvakin 1940.
Ármann Pétursson var í undir-
búningsnefnd mótsins á Þingvöll-
um 1957 en aðstæður þar eru á
margan hátt erfiðar til slíkra
móta. Eftir á fullyrði ég að við
gerðum okkur ekki að fullu grein
fyrir því fyrirfram hvað við vær-
um að ráðast í.
Ármann var nokkrum sinnum i
undirbúningsnefndum landsmót-
anna og vísa ég frekar til umsagn-
ar um mótið 1957 svo og önnur
landsmót UMFÍ í hinni merku bók
„Ræktun lands og lýðs“ sem gefin
var út í tilefni 75 ára afmælis
sambandsins 1983 undir ritstjórn
Gunnars Kristjánssonar.
Ármann Pétursson var ávallt
reiðubúinn til að leggja fram sína
krafta til eflingar ungmennafélag-
anna. Ungur að aldri hreifst hann
af hugsjón ungmennafélaganna og
var henni trúr alla tíð. Það hefur
verið gæfa hreyfingarinnar að
hafa átt á að skipa mörgum ágæt-
is hugsjónarmönnum, körlum og
konum, þeim eigum við mikið að
þakka.
I dag stendur UMFÍ traustum
fótum til að vinna að „ræktun
lands og lýðs“. Traustir áhuga-
SAUMAVEL A
KR.10.944,-
Vegna hagstæðra samninga við SINGER verksmiðjurnar bjóðum við nú
SINGER SAUMAVÉLAR gerð 7146 á kr. 10.944-
• FRÍARMUR + SJÁLFVIRKUR HNAPPAGATASAUMUR
• STYRKTUR TEYGJUSAUMUR (OVERLOCK)
• EINFÖLD í NOTKUN + SPÓLA SETT í OFANFRÁ
• SKIPTING Á SAUMAFÓTUM AUÐVELD (SMELLTIR)
• ALLUR HELSTI NYTJASAUMUR
menn eru í forustu, studdir þús-
undum áhugafólks eldri og sem
mest er vert einnig yngri félag-
anna um land allt.
Nú þegar Ármann Pétursson er
horfinn úr hópi okkar þakka ég af
heilum hug ánægjulegt samstarf
við hann og ber fram þá ósk, sem
ég veit að er minningu hans beat
samboðin varðandi þennan þátt i
lífsstarfi hans, sem ég hef hér get-
ið að ungmennafélögin megi bera
gæfu til að eignast innan sinna
vébanda sem flesta honum líka.
Við hjónin vottum ekkju hans
og fjölskyldu okkar dýpstu samúð,
ég veit að hann var ástríkur heim-
ilisfaðir og þau hafa mikils misst
við fráfall hans. Hjá okkur öllum,
sem honum kynntumst, mun
minningin um góðan dreng vara.
Axel Jónsson
SINGER ER ALLTAF
SPORI FRAMAR.
nmqnfin
nniuáa
^ SAMBANDSINS
ÁRMÚLA 3 SÍMI 687910
SINGER 7146 ER MEST SELDA SAUMAVÉLIN í EVRÓPU í DAG.
• -V~
UGLUR
398.- NYJUNG I ISLENSKRI BOKAUTGAFl
ýTT ÍSLENSVa
ugIu-veRO-
350.-
NÝ ÞÝDD
SKÁLSDAGA
UGLU-VERf
448.-
ská !SleHsk
Kaupið hefur farið lækkandi. bókarverð hækkandi, æ fleiri verða að
hugsa sig um fvisvar áður en þeir kaupa bók hvort sem er til gjafa eða
handa sjálfum sér. Bókin er orðin munaðarvara og við svo búið má
ekki standa. Mál og menning hefur ákveðið að bregðast við þessu
með þvi að geta út vandaöar kiljur, UGLUR, á veröi sem er helmingi
lægra en meðalverð innbundinna bóka.
Á þessu hausti koma út 6 UGLUR. Tvær nýjar skáldsögur, Með
kveðju frá Dublin eftir Árna Bergmann og Jólaóratórían eftir Göran
Tunström, verða jafnframt gefnar út innbundnar, en 4 bækur fást ein-
muR
göngu sem UGLUR. Þetta eru hin vinsæla bók Astrid Lindgren, Bróð-
ir minn Ljónshjarta (BARNA UGLA), sem flestir þekkja eftir þættina i
sjónvarpinu, Snorra-Edda, sem Heimir Pálsson hefur búið til prent-
unar eftir handriti Konungsbókar (SÍGILD UGLA), nýtt leikrit Ólafs
Hauks Simonarsonar, Milli skinnsog hörunds (LEIKUGLA), sem sýnt
hefur verið i Þjóðleikhúsinu i haust og hlotið mikla athygli og aðsókn,
og loks reyfari fyrir kröfuharða lesendur, Ógnarráðuneytiö eftir
Graham Greene (NÁTTUGLA), i þýðingu Magnúsar Kjartanssonar.
UGLURNAR verða i stóru broti og frágangur ekki siður vandaður
en gerist með innbundnar bækur. Og verðið er viðráðanlegt fyrir
hvern þann sem — hvað sem liður nýju afþreyingarefni — ekki vill
vera bóklaus maður.
UGLA — BÓK FYRIR ÞIG
qcfurn góðgr hakur
og menning
Mál