Morgunblaðið - 21.12.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.12.1984, Blaðsíða 36
T'”" 36 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984 Kaupmannahöfn Tveir Brasilíumenn fá 10 ára fangelsisdóma Kaupmannahöfn, 20. desember. Al'. TVEIK Bra.silíumenn voru í dag dæmdir í stærsta kókaínsmyglmáli, sem komist hefur upp um í Dan- mörku, og hlutu þeir tíu ára fang- elsisdóma eða þyngstu refsingu sem um var að ræða. Dómarar Eystri landsréttar tóku sér innan við klukkustund til umhugsunar áður en þeir kváðu upp dóma yfir Ivan Pedro Julio Schiffer, fyrrum farar- stjóra, og Anebal Maia de Al- buquerque Pereira, sem sagður var fyrrum póst- og símamála- stjóri Brasilíu. Þeir Schiffer og Pereira voru handteknir á Kastrupflugvelli fyrir um 11 mánuðum, ásamt átta öðrum Brasilíumönnum, eftir að tollverðir höfðu fundið 34 kíló af kókaíni og 28 kíló af marijuana í farteski þeirra. Sagði lögreglan að eiturlyfin hefðu verið um 100 millj. danskra króna virði (um 360 millj. ísl. kr.) miðað við verðlag á markaðnum. Eiturlyfjasalarnir voru á ferða- lagi frá Rio De Janeiro til Brussel í Beigíu, með viðkomu í Ósló og Kaupmannahöfn. Brasilíumennirnir átta voru iátnir lausir skömmu eftir hand- tökuna, en á meðal þeirra var 12 ára gamall drengur. Olivia Newton-John gengur í hjónaband Símamynd/AP. Leikkonan vinsæla, Olivia Newton-John, gekk í hjónaband á dögunum. Eiginmaður hennar er leikarinn Matt Lattanzi. Hjónavígslan fór fram í Malibu í Kaliforníu og var þessi mynd þá tekin. Veður víða um heim Akureyri 0 skýjaó Amsterdam 8 rigning Aþena 16 skýjaó Barcelona 9 mistur Berltn 6 skýjaó Brussel 8 rigning Chicago +1 rigning Dublin 10 skýjaó Feneyjar 15 skýjaó Frankfurt 4 rtgning Genf 6 heióskírt UoleinLi neisinKi 0 skýjaó Hong Kong 17 skýjaó Kaupmannahöfn 4 rigning Las Palmas 21 skýjaó Lissabon 14 heióskírt London 11 skýjaó Los Angeles 15 skýjaó Luxemborg 5 þoka Malaga 17 léttskýjaó MaHorca 16 léttskýjaó Miami 25 skýjaó Montreal +3 snjókoma Moskva +2 skýjað New York 9 skýjaó Osió 2 skýjaó Paris 9 skýjað Peking 3 heióskfrt Reykjavtk 2 haglél Rio de Janeiro 25 skýjaó Rómaborg 16 skýjaó Frá kosningunum í Pakistan. Myndin sýnir íbúa í þorpi einu, sem safnazt hafa saman á kjörstað og bíða þess að greiða atkvæði. Ríkisútvarpið í Pakistan: Segir kjörsókn hafa verið 64 % Islamabad, 20. desember. AP. RÍKISÚTVARPIÐ í Pakistan greindi frá því í dag, að Mohammad Zia Ul-Haq, hershöfðingi, hefði verið kjörinn forseti landsins í kosningun- um í gær og bentu fyrstu tölur til þess að hann mundi hljóta 98% atkvæða. Útvarpið sagði að 64% kjós- enda, sem samtals eru 35 millj- ónir, hefðu greitt atkvæði. Leið- togar stjórnarandstöðunnar höfðu hvatt kjósendur til að hundsa kosningarnar og segja þeir að um víðtæk kosningasvik hafi verið að ræða. Segjast þeir hafa heimildir fyrir því að sums staðar í landinu hafi kosninga- þátttakan aðeins verið um 5%. Þeir telja að innan við helming- ur kjósenda hafi tekið þátt í kosningunum. Endanlegar tölur frá stjórn- völdum um úrslit kosninganna eru væntanlegar á laugardag. Bhopal: Verksmiðju- hreinsun lokið Ibúar streyma heim í þúsundatali Hhopal, Indlandi. 20. desember. AP. VÍSINDAMENN sem unnið hafa að því að gera óvirkt eiturgasið í geymum Union Carbide verksmiðj- unnar í Bhopal á Indlandi síðustu daganna, luku verki sínu í dag er þeir réðust í „drápsgeyminn“ sem lak úr á dögunum með hinum skelfílegu afleiðingum sem reifað- ar hafa verið. Alls hafa 18 tonn af efninu methyl isocyanite úr „drápsgeyminum“ verið breytt í það skordýraeitur sem það er notað tiL Miklar varúðarráðstafanir hafa verið í verksmiðjunni af ótta við nýjan eiturleka og hefur allt geng- ið að óskum. Indverska útvarpið greindi frá því í dag að síðasti eit- urgeymirinn hefði verið opnaður og innihald hans gert hættulaust. Þúsundir íbúa Bhopal flýðu borg- ina í ofboði er aðgerðirnar í verk- smiðjunni hófust, en þeir hafa verið að streyma til síns heima á ný síðustu dagana, ekki síst i dag er fréttist að verkinu væri lokið og allt væri í stakasta lagi. Er vonast til að brátt geti líf í Bhopal færst í eins eðlilegt horf og atvik leyfa, en hún hefur verið sem draugaborg síðustu daga. Talið er að alls hafi um 200.000 hinna 900.000 íbúa flú- ið, en tugþúsundir eru enn undir læknishendi. Stefnir í að Rússar setji upp 450—500 SS-20 eldflaugar Brusael, 20. desember. AP. KICHARD Burt aðstoðarutanrík- isráðherra Bandaríkjanna sagði að Sovétmenn stefndu að því að koma fyrir á skotpöllum milli 450 og 500 meðaldrægum SS-20 eldflaugum, sem beint væri að skotmörkum í Evrópu. Burt sagði að a.m.k. 387 SS-20 flaugum væri nú beint að Evr- ópu, en útilokað væri að spá fyrir um hvenær Rússar lykju upp- setningu flauga af þessari gerð. Miðað við þær upplýsingar, sem Bandaríkjamenn hefðu milli handanna um byggingu skot- palla, benti allt til þess að flaug- arnar yrðu milli 450 og 500. Hver flaug af gerðinni SS-20 ber þrjá kjarnaodda. Burt talaði við fréttamenn eft- ir að hafa setið skraf og ráða- gerðir í höfuðstöðvum NATO með háttsettum embættis- mönnum frá ríkjum Atlants- hafsbandalagsins vegna við- ræðna stórveidanna í Genf 7.—8. janúar nk. um að draga úr víg- búnaði. Chernenko og Mintoff: Vilja kjarnavopn úr Miðjarðarhafi Moskvu, 19. desembrr. AP. Konstanin ('hernenko, leiðtogi sovézka kommúnistaflokksins, og Dominic Mintoff, forsætisráðherra Möltu, hvöttu til þess að Miðjarðar- hafið yrði lýst kjarnorkuvopnalaust svæði, að sögn TASS-fréttastofunn- ar. Sagði TASS að Chernenko og Mintoff hefðu orðið sammála um að banna ætti siglingar skipa með kjarnorkuvopn um Miðjarðarhaf og að ríki, sem land eiga að haf- inu, skyldu lýsa yfir því að þau myndu aldrei grípa til kjarnorku- Flugvélabók Jane’s: Sovétmenn sverfa af for- skoti NATO í loftvörnum London, 20. denember. AP. Sovétmenn sverfa af tækniforskoti NATO-ríkjanna í loftvörnum með nýrri kynslóð orrustuflugvéla, sem þeir eru að smíða, en áætlanir Bandaríkjamanna um næstu aldar bardagaflugvélar, sem búnar verða vopnum er hlýða munnlegum fyrir- skipunum, verða til þess að vestur- veldin ná yfirburðum sínum í lofti á ný, samkvæmt nýrri árbók Jane’s, sem út kom í dag. Segir ritstjóri Jane’s að yfir- menn loftherafla Nato hljóti að hafa áhyggjur af sókn Sovét- manna á þessu sviði. Þrjár nýjar og fullkomnar orrustuflugvélar, MiG-29 Fulcrum, SU-27 Flanker og MiG-31 Foxhound, sem ýmist eru nýtilkomnar eða væntanleg- ar í þjónustu á næstunni, stofna langvarandi yfirburðum NATO í lofti í hættu. Þá segir í árbókinni að MX-flaugar Bandaríkjamanna, sem ætlað er að granda stöðugt fullkomnari sovézkum stýri- flaugum í skotbyrgjum þeirra, sé líklega 1 engu líklegri en forver- ar þeirra til að granda sovézku flaugunum. í bókinni segir að enda þótt öllum langdrægu Min- uteman- og Titan-flaugum Bandaríkjamanna yrði beitt þá myndi það ekki duga til að granda langdrægum kjarnorku- flaugum Sovétmanna, sem geymd eru í styrktum skotbyrgj- um, og ólíklegt sé að MX-flaugar dygðu betur. vopna. Moskvuför Mintoffs kemur á sama tíma og vangaveltur aukast um að hann hyggist draga sig i hlé og láta af starfi forsætisráðherra og formennsku sósíalistaflokksins. Svo virðist sem stjórnvöld á Möltu séu að breyta áherslu í utanrík- isstefnu sinni með því að vingast við Líbýu og styrkja samband sitt við Sovétríkin en snúa smám sam- an baki við Ítalíu, sem er í næsta nágrenni. Blað, sem styður stjórn Mint- offs, sagði frá því á mánudag að búist væri við því að Mintoff mundi undirrita samninga á fund- inum með Chernenko um smíði átta skipa á Möltu fyrir Sovét- menn, en TASS gat þess ekki að slíkt hefði átt sér stað. Talið var að samningarnir féllu undir við- skiptasamkomulag, sem undirrit- að var fyrr á árinu, og hljóðar upp á 256 milljóna dollara viðskipti. Möltubúar hafa samþykkt að kaupa bíla, kol, olíuvörur og sem- ent frá Rússum í stað skipavið- gerða og skipasmíða. Einnig segj- ast Rússar munu reisa verksmiðju á Möltu til framleiðslu á skurð- tækjum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.