Morgunblaðið - 21.12.1984, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984
14% hækkun á gjaldskrá Landsvirkjunar:
Skuldir hafa hækkað um 2,5 milljarða
vegna gengissigs og gengisfellingar
GJALDSKRÁ Landsvirkjunar
hækkar um 14% frá og með 1. janú-
ar næstkomandi. Með hækkuninni
er ætlunin að ná hallalausum rekstri
fyrirtækisins, eins og fram kemur í
eftirfarandi fréttatilkynningu, em
barst Mbl. í gær:
„Síðasta gengisfelling og
nýgerðir kjarasamningar hafa
gjörbreytt forsendum rekstrar-
áætlunar Landsvirkjunar fyrir ár-
ið 1985 þannig að óhjákvæmilegt
er að hækka gjaldskrá almenn-
ingsveitna um næstu áramót.
Þannig hafa skuldir Landsvirkj-
unar hækkað um alls 2,5 milljarða
króna vegna gengissigs frá 30.
september sl. og gengisfellingar-
innar hinn 20. nóvember sl.
Hækka vextir og afskriftir af
þessum sökum um 390 m.kr. á ár-
inu 1985. Hér er því um að ræða
verulega hækkun á rekstrargjöld-
um Landsvirkjunar, enda nemur
fjármagnskostnaður um 85% af
rekstrarkostnaði fyrirtækisins.
Miðað við óbreytta kjarasamninga
og gengisforsendur hefði hins veg-
ar verið unnt að ná hallalausum
rekstri árið 1985 þrátt fyrir 10%
verðbólgu á næsta ári og án hækk-
unar á órkuverði til almennings-
veitna.
Við endurskoðun fjárhagsáætl-
unar Landsvirkjunar fyrir 1985
hefur verið stuðst við nýja þjóð-
hagsspá sem gerir m.a. ráð fyrir
20% verðbólgu á næsta ári. Til
þess að ná hallalausum rekstri
miðað við hinar nýju forsendur
hefur stjórn Landsvirkjunar því
samþykkt að hækka gjaldskrá fyr-
irtækisins um 14% hinn 1. janúar
1985.
Til frekari upplýsinga varðandi
umrædda hækkunarþörf er rétt að
taka fram að síðan 1. ágúst 1983
hefur gjaldskrá Landsvirkjunar
aðeins hækkað um 5% og var það
hinn 1. maí sl., án þess þó að sú
hækkun færi út í smásöluverðið.
Verðið til almenningsveitna var
hinn 1. ágúst 1983 111,8 aurar á
kWst (40,1 mill), en er nú 117,4
aurar á kWst (29,2 mill) eða um
93,0 aurar á kWst á verðlagi 1.
ágúst 1983. Gjaldskrárverð Lands-
virkjunar hefur því á þessu tíma-
bili lækkað að raungildi um 20%
miðað við byggingarvísitölu. Mið-
að við gengi dollars er verðhækk-
unin hins vegar mun meiri eða um
27%. Á sama tíma hefur orðið um
82% hækkun á raungildi orku-
verðs til ÍSAL.
. Fjárhagsáætlun Landsvirkjun-
ar fyrir árið 1985 gerir ráð fyrir
HÆKKUN Á RAFMAGNSVERÐI LANDSVIRKJUNAR
Á TÍMABILINU 1. ÁGÚST 1983 TIL 31. DESEMBER 1985
HÆKKUN %
Hækkun á rafmagnsverði Landsvirkjunar á tímabilinu 1. ágúst 1983 til 31.
desember 1985.
samningsbundnu verði til stóriðju
og er áætlað að orkuverð til ÍSÁL
verði að meðaltali 13,8 mill á kWst
miðað við spár sérfræðinga um
þróun álverðs í heiminum.
Orkuverðið til ISAL var 7,5 mill
á kWst (20,6 aurar á kWst) þann
1. ágúst 1983 samkvæmt bráða-
birgðasamningi ríkisstjórnarinn-
ar og Alusuisse. Nú er það hins
vegar um 12,5 mill á kWst (50,2
aurar á kWst) og hefur því hækk-
að um 140% mælt í íslenskum
krónum. Á sama tímabili hefur
hækkunin í krónutölu til almenn-
ingsveitnanna aðeins numið 5%
eins og áður segir.
Ef reiknað er með 14% hækkun
á verði til almenningsveitnanna
frá og með 1. janúar 1985 og síðan
óbreyttu verði til ársloka er áætl-
að að gjaldskrárverð Landsvirkj-
unar til almenningsrafveitna hafi
í árslok 1985 lækkað að raungildi
um 24% frá 1. ágúst 1983 að telja.
Til samanburðar skal þess getið að
á sama tímabili er áætlað að
raungildi verðsins til ÍSAL hækki
um 100%.
Til frekari glöggvunar varðandi
þróun rafmagnsverðs Landsvirkj-
unar er rétt að fram komi að í
áætlunum fyrirtækisins er gert
ráð fyrir að verðið til almenn-
ingsrafveitna verði 133,8 aurar á
kWst (31,5 mill) í árslok 1985 að
meðtalinni 14% hækkun hinn 1.
janúar nk., en verðið til ÍSAL og
Áburðarverksmiðjunnar áætlast
þá verða 65,8 aurar á kWst (15,5
mill) og til íslenska járnblendifé-
lagsins 26,3 aurar á kWst (6,2
mill).“
reyfarakaup
W • W m íi^ ’ ■■ "."S'J1'11 --' '• '^WbST
ÞÚ GERIR
a jola
stórútsölu-
markaðnum
Fosshálsi 27
21 fyrírtæki — þúsundir
vörutegunda í 1000 fm húsnæði
Hagstætt verð —
Gífurlegt vöruúrval
ALLT TIL JOLANNA
Jólafatnaður á börn 0—12 ára — Dömu-,
herra-, unglingaselskapsfatnaöur. jólaskreyt-
ingar — jólaseríur — aöventuljós — handunnar
jólaskreytingar og gjafir — jólakerti — jólaskór
— jólaplötur — þurrskreytingar. Sportvðrur —
heimilistœki s.s. ísskápar — handþeytarar —
dósaopnarar — brauöristar — vöfflujárn — út-
vörp — feröatæki — kassettutæki — arm-
bandsúr — hljómflutningstæki — allar raf-
magnssmávörur — tölvuspil — mikiö plötu- og
kassettuúrval. Skartgripir, snyrtivörur, gler, kop-
ar, postulín. Mikiö úrval af efnum — bútum —
vinnufatnaöur. Leikföng fyrir alla aldurshópa.
Jólastjarna.
OPIÐ
frá kl. 13—21 í dag
og frá kl. 10—23
á morgun.
Valgerður Bjarnadóttir, sem verður Hólmfríður Árnadóttir verður for-
forstöðumaður hótelrekstar Flug- stöðumaður hagdeildar Flugleiða.
leiða.
Nýir forstöðumenn
hjá Flugleiðum
UM MIÐJAN janúar verða gerð-
ar skipulagsbreytingar hjá Flug-
leiðum, sem fela í sér að tvær
konur taka við störfum forstöðu-
manna. Önnur þeirra verður for-
stöðumaður nýrrar deildar.
Valgerður Bjarnadóttir, nú-
verandi forstöðumaður hag-
deildar fyrirtækisins, verður
forstöðumaður hótelreksturs.
Við starfi hennar í hagdeild-
inni tekur Hólmfríður Árna-
dóttir, framkvæmdastjóri
Sambands veitinga- og gisti-
húsaeigenda (SVG).
Valgerður Bjarnadóttir hef-
ur starfað hjá Flugleiðum um
árabil og Hólmfríður hefur áð-
ur unnið hjá fyrirtækinu um
nokkurra ára skeið.
Við starfi framkvæmda-
stjóra SVG tekur Erna Hauks-
dóttir, viðskiptafræðingur.
Jólalög í sókn á vin-
sældalista rásar 2
LITLAR stökkbreytingar hafa orð-
ið á vinsældarlista rásar tvö í vik-
unni og trónir lagið Last Christmas
með hljómsveitinni Wham! efst
eins og síðasta föstudag. Fast á
hæla því að vinsældum á rásinni
fylgir síðan annað jólalag, Do They
Know It’s Christmas. En það er
flutt af mörgum helstu stórstirnum
dsgurtónlistarinnar til styrktar
sveltandi börnum Afríku og hefur
á örskömmum tíma öðlast miklar
vinsældir um heimsbyggðina.
En svona lítur listinn út í heild:
1. Last Christmas —
Wham! (1)
2. Do They Know It’s Christmas
— Band Aid (3)
3. Wild Boys —
Duran Duran (2)
4. Love is Love —
Culture Club (8)
5. Heaven’s on Fire — Kiss (4)
6. Heart Beat — Wham! (9)
7. One Night in Bangkok —
Murray Head (—)
8. The Riddle —
Nick Kershaw (5)
9. Power of Love —
Frankie Goes to Hollywood
(6)
10. The Never Ending Story —
Limahl (—)