Morgunblaðið - 21.12.1984, Page 31
31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984
bæði í miðtaugakerfir.u og utan
þess. Enn er þó allsendis óljóst,
hvort eða hvernig hin vímugefandi
verkun lýsergíðs tengist serótón-
íni í miðtaugakerfinu. Þess skal
getið, að meskalín má skoða sem
afbrigði af boðefninu dópamíni.
Dauðsföll beinlínis af völdum
lýsergíðs virðast ekki vera þekkt
fremur en dauðsföll af völdum
tetrahýdrókannabínóls. Dauðsföll
af völdum lýsergíðs óbeint eru
hins vegar vel þekkt (t.d. vegna
brenglaðs fjarlægðarskyns í lýs-
ergíðvímu). Þá eru morð í lýserg-
íðvímu þekkt (sbr. að framan).
Óvíst er, hvort lýsergíð getur
valdið langvarandi geðveikikennd-
um viðbrigðum hjá þeim, sem
heilir voru fyrir, eða aðeins „flett
ofan af“ dulinni geðveiki. Allt er í
óvissu um áhrif langvarandi töku
lýsergíðs á getu manna til hug-
vinnu, þegar neyslu er hætt eða á
milli, eða á önnur líffærakerfi en
miðtaugakerfið. Að líkindum veld-
ur lýsergíð ekki fósturskemmdum
hjá mönnum, né skaðar erfðaeig-
indir.
Því hefur verið haldið fram, að
menn gætu fengið í sig lítið magn
af lýsergíði með því að neyta
korntegunda, sem sýktar hafa ver-
ið af korndrjóla. Höfundur er hall-
ur undir þá skoðun, að sum furðu-
leg hópfyrirbæri mannkynssög-
unnar megi að einhverju leyti
skýra í þessu ljósi (galdraofsóknir,
krossferðir, ofsatrúarhreyfingar
o.s.frv.). Sennilega notuðu menn
korndrjóla í Grikklandi til forna
til þess að komast í annarlegt hug-
arástand við trúarathafnir og
fleiri athafnir.
B. Önnur efni með lýsergíð-
líka verkun
Lýsergsýruamíð. í Mexíkó
þekktist meðal innfæddra indíána
(Aztekar, Mayar) að tyggja fræ
villtra plantna, sem á ensku nefn-
ist „morning glory“ (Ipomoea viol-
acea og Rivea corymbosa), til þess
að komast í snertingu við goð-
mögn við trúarlegar athafnir. Hið
virka efni í fræjum þessum er lýs-
ergsýruamíð. Það verkar að flestu
leyti eins og lýsergíð en tíu sinn-
um veikar (venjulegur skammtur
ca. 1 mg).
Psílócín (psílócýbín). Psílócín og
psílócýbín eru náskyld efni. Psíl-
ócýbín breytist í líkamanum í psíl-
ócín. Efni þessi finnast í sveppum
af tegundunum Psilocybe og Con-
ocybe, einkum Psilocybe mexic-
ana. Neysla þessa svepps var
þekkt í Mexíkó og víðar í Mið-
Ameríku fyrir meira en 3000 árum
að talið er. Þessi vímugjafi var
notaður við ýmsar félagslegar og
trúarlegar athafnir og enn fremur
af læknum til þess að auðvelda
þeim greiningu sjúkdóma og segja
fyrir um meðferð sjúklinga (!).
Psílócín verkar að flestu eða öllu
leyti eins og lýsergíð, en 100—200
sinnum veikar í millígrömmum
talið. Psílócín og psílócýbín eru
lítt notuð nú á dögum. Indíánar í
Mexíkó nota þó sveppi þessa að
einhverju leyti enn.
Meskalín. í peyote-kaktusi
(Lophophora williamsii), sem vex í
Mexíkó og í Bandaríkjunum suð-
vestanverðum, svo og í annarri
kaktustegund, er vex í Perú og
Ekvador, er vímugefandi efni, sem
fengið hefur nafnið meskalín eftir
indíánaþjóðflokki nokkrum. Mesk-
alín finnst einnig í berserkja-
sveppi (Amanita muscaria). Mesk-
alín hefur í aldaraðir verið notað
sem vímugjafi við trúarathafnir í
Mexíkó. Þaðan breiddist neysla
þess út meðal indíána í Bandaríkj-
unum. Það er nú löglegur vímu-
gjafi í einu trúarsamfélagi í
Bandaríkjunum (nefnt Native
American Church of North Amer-
ica). Meskalín verkar i stórum
dráttum eins og lýsergíð, en um
það bil 4000 sinnum veikar í millí-
grömmum talið.
Berserkjasveppir eru notaðir
sem vímugjafi í norðaustanverðri
Síberíu. Vímugefandi verkun þess-
ara sveppa er margþætt, enda eru
í þeim mörg vímugefandi efni.
Víman minnir þó að sumu leyti á
lýsergíð.
Dímeltýltrýptamín (DMT) er
efni með lýsergíðlíka verkun. Það
er náskylt psílócíni að gerð. Það
finnst í ýmsum plöntum (m.a.
Piptadina peregrina), er vaxa f
Mið- og Suður-Ameríku. Indiánar
á þessum slóðum hafa í aldaraðir
tekið í nefið duft, unnið úr plönt-
um, er inniheldur dímetýltrýpt-
amín.
DOM (einnig nefnt STP) er
samtengt efni (tilbúið í rannsókn-
arstofum), sem leitt er af metýl-
amfetamíni, en verkar að verulegu
leyti sem lýsergíð.
Stundum hafa borist til Rann-
sóknastofu í lyfjafræði sýni með
beiðni um að leita að sumum
fyrrgreindra efna. Ekkert þessara
efna hefur þó fundist í aðsendum
sýnum til þessa.
Fencýklídín (PCP; sbr. kafla
VB) er stundum talið til lýsergíð-
líkra efna. Verkanir fencýklídíns
eru þó miklu margbreytilegri en
svo, að slíkt geti talist réttlætan-
legt.
Dr. med. Imrkell Jóhannesson er
prófessor í lyíjafræði í læknadcild
Háskóla íslands. forstöðumadur
Rannsóknastofu Háskóla íslands í
lyfjafræði og formaður eiturefna-
nefndar.
ÞESSISTORGLÆSILEGI
DODGE RAMCHARGER ÁRG. 1982 ER TIL SÖLU.
Ekinn 24 þús km. Glæsileg innrétting. 4 tonna spil.
Bíltölva — scanner — útvarp — segulband — 318
cub. — sjálfskiptur — litaö gler — radial-dekk.
Bíllinn er sem nýr. Góö kjör. Uppl. í síma 92-2871.
Spyrjið um barnaskóna meö kanínumerkínu.
Skóverslun Kópavogs,
Hamraborg 3,
sími 41754.
Dönsku barnaskórnir frá
Uundpanl
eru í hæsta gæöaflokki.