Morgunblaðið - 21.12.1984, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984
37
The Times/Brian Harris.
FlótUfólk frá Tigre-héradi í norðurhluta Eþíópíu á leið til Súdan.
Herþotur Eþíópíustjómar:
Vörpuðu sprengj-
um á flóttafólk
HERÞOTUR Eþíópíustjórnar vörpuðu hinn 3. desember sl. sprengjum á
flóttafólk frá hungursvæðunum í Tigre í norðurhluta Eþíópíu, sem var
að reyna að komast til Súdan. Þar eru fyrir hundruð þúsunda flótU-
manna frá Eþíópíu og Chad. Fréttir um þennan óhuganlega atburð
bárust ekki til Vesturlanda fyrr en nú í vikunni.
í árásinni létust 18 manns, þar
af mörg börn. Fleiri en 50 særð-
ust.
Embættismenn marxista-
stjórnarinnar í Addis Ababa
hafa vísað fréttinni um
sprengjuárásina á bug, en sendi-
fulltrúar vestrænna ríkja og
talsmenn hjálparstofnana hafa
staðfest hana.
Mengistu Haile Mariam, leið-
togi Eþíópíustjórnar, kom til
Austur-Berlínar i dag, en hann
er í tveggja daga opinberri heim-
sókn í Austur-Þýskalandi. Til
Berlínar kom hann frá Moskvu
þar sem hann ræddi horfur í al-
þjóðamálum og aðstoð við
hungraða í Eþíópíu við sovéska
ráðamenn.
Borgundarhólmur:
Tímasprengja und-
ir eyjarskeggjum
Borgundarhólmi, 19. desember. AP.
EMBÆTTISMENN Borgundarhólms, dönsku klettaeyjunnar í Eystrasalti,
veltu fyrir sér í dag, hvort þeir ættu að taka málin í eigin hendur, eftir að
yfirvöld varnarmála og umhverfismála höfðu tjáð þeim, að þeir sætu á þýskri
sinnepsgas-tímasprengju frá síðari heimsstyrjöldinni.
Var þar átt við neðanjarðar-
byrgi, þar sem geymd eru tvö tonn
af sinnepsgassprengjum, sem sjó-
menn hafa losað sig við á síðasta
ári einu.
í næstum 40 ár hafa þeir verið
að draga sprengjur þessar upp í
netunum, en Sovétmenn hentu yf-
ir 100.000 tonnum af þeim í
Eystrasalt i stríðslok í því skyni
að lama getu Þjóðverja til að hefja
stríð á nyjan leik.
Nokkrir sjómenn hafa brennst
illa, og tveir þeirra liggja enn á
sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn með
slæm brunasár og áverka í lung-
um eftir slys sem varð 1983.
Ýtti þetta slys undir umhverfis-
yfirvöld að fyrirskipa að sprengj-
unum skyldi safnað saman og þær
geymdar í neðanjarðarbyrgi á
Borgundarhólmi, þar sem þær
yrðu gerðar óvirkar, í stað þess að
henda þeim útbyrðis jafnóðum,
eins og gert hafði verið fram að
því.
En nú segja embættismenn, að
sprengjurnar séu orðnar hættu-
legar vegna sprengihættu, eftir að
þær þornuðu upp, auk þess sem
efnasamband í þeim geti valdið
krabbameini.
Jens K. Brandt, einn af ráða-
mönnum Borgundarhólms, kvaðst
þess atbúinn að láta henda
sprengjunum í sjóinn aftur, ef þær
væru eins hættulegar og af væri
látið.
Chile:
Ritstjóra
rænt
Santiaito, ('hile. 20. desember. AP.
TALSMAÐUR stjórnvalda í Chile
greindi frá því í dag, að „vinstri
sinnaðir skæruliðar" hefðu rænt
ritstjóra dagblaðsins La Nacion og
væri ekkert vitað um afdrif hans.
Það gerðist í morgun, er rit-
stjórinn Sebastiano Bertolone
var á leið til vinnu, að fjórir
grímuklæddir og vel vopnum
búnir menn svifu á hann og
höfðu á brott með sér. Þeir
rændu einnig eiginkonu hans og
ungu barni, en slepptu þeim
skömmu síðar. Talsmaðurinn,
Francisco Cuadra, sagði að engar
kröfur hefðu borist frá mann-
ræningjunum og því ekkert vitað
um afdrif Bertolone. Neyðar-
ástandinu í landinu hefur verið
framlengt til þriggja mánaða.
ítölsk rúmteppi frá QMvC8MB)
sérstæð, efnismikil, fislétt - draumateppi -.
Mikið úrval af teppum á hjónarúm og barnarúm
Þú gengur að gæðunum vísum.
Sérverslun með listræna húsmuni
Borgartúni 29 Simi 20640
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
City of Perth 2. jan.
Laxfoss 18. jan.
Bakkafoss 24. jan.
City of Perth 1. febr.
NEW YORK
City ot Perth 28. des.
Laxfoss 16. des.
Bakkafoss 22. des.
City of Perth 30. jan.
HALIFAX
Laxfoss 21. des.
Laxfoss 21. jan.
BRETLAND/MEGINLAND
IMMINGHAM
Alafoss 6. jan.
Álafoss 13. des.
FEUXSTOWE
Eyrartoss 31. des.
Álafoss 7. jan.
Eyrarfoss 14.jan.
ANTWERPEN
Eyrarfoss 2. jan.
Álafoss 8. jan
Eyrarfoss 15. jan.
ROTTERDAM
Eyrarfoss 2. jan.
Álafoss 9. jan.
Eyrarfoss 16. jan.
HAMBORG
Eyrarfoss 3. jan
Álafoss 10. jan.
Eyrarfoss 17. jan.
GARSTON
Helgey 28. des.
LISSABON
Skeiðsfoss 28. jan.
LEIXOES
Skeiðsfoss 29. jan.
BILBAO
Skeiösfoss 30. jan.
NORDURLOND/-
EYSTRASALT
BERGEN
Reykjafoss 28. des.
Skógafoss 4. jan.
Reykjafoss 11. jan.
Skógafoss 18. jan.
KRISTIANSAND
Reykjafoss . 31. des.
Skógafoss 7. jan.
Reykjafoss 14. jan.
Skógafoss 21. jan.
MOSS
Reykjafoss 2. jan.
Reykjafoss 15. jan.
HORSENS
Skógafoss 9. jan.
Skógafoss 23. jan.
GAUTABORG
Reykjafoss 3. jan
Skógafoss 9. jan.
Reykjafoss 16. jan.
Skógafoss 23. jan.
KAUPMANNAHÖEN
Reykjafoss 4. jan.
Skógafoss 10.jan.
Reykjafoss 17. jan.
Skógafoss 24. jan.
HELSINGJABORG
Reykjafoss 4. jan.
Skógafoss 11. jan.
Reykjafoss 18. jan.
Skógafoss 25. jan.
HELSINKI
írafoss 27. des.
GDYNIA
irafoss 31. des.
ÞÓRSHÖFN
Reykjafoss 7. jan.
NORRKÓPING
Irafoss 31. des.
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-fram ogtil baka
frá REYKJAVÍK
alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriöjudaga
fra AKUREYRI
alla fimmtudaga
EIMSKIP