Morgunblaðið - 21.12.1984, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984
Fri nóttamannabúðunum í Bati fyrir norðan Addis Ababa, sem Alþjóða
Kauði krossinn rekur. I»ar hafa um 100 manns látist á degi hverjum að
undanförnu.
RáðstefnuhöUin í Addis Ababa:
Ákvörðunin kom á
óheppilegum tíma
New York, 20. desember. AP.
PEREZ de Cuellar, aðalfram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
sagði í gær að samþykkt allsherjar-
þingsins í fyrradag, að verja 73,5
milljónum Bandaríkjadala til að
reisa ráðstefnuhöll í Addis Ababa,
höfuðborg Eþíópíu, hefði komið á
óheppilegum tíma.
Du Cuellar, sem nýlega ferðað-
ist um þurrkasvæðin í Eþíópíu þar
sem talið er að allt að 6 milljónir
manna líði hungur, sagðist ekki
leggjast gegn því að ráðstefnuhöll-
in yrði reist í Addis Ababa, en
tímasetningin hefði verið röng.
Ráðstefnuhöllin á að hýsa Efna-
hagsnefnd Afríku, sem starfar á
vegum Sameinuðu þjóðanna.
Jeane Kirkpatrick:
Kynhrokinn geng-
ur ljósum logum
New York, 20. desember. AP.
JEANE Kirkpatrick sagði í dag, að
hún vsri undrandi á öllu því
kynjamisrétti sem hún hefði
kynnst í þau fjögur ár er hún hefði
verið sendiherra Bandaríkjanna
hjá Sameinuðu þjóðunum.
„Kynhrokinn gengur ljósum
logum innan veggja hjá Samein-
uðu þjóðunum, í bandarísku rík-
isstjórninni og í bandarískum
stjórnmálum," sagði hún á fundi
hjá kvennahreyfingunni í New
York.
Kirkpatrick kvaðst hafa búist
við að finna fyrir því í starfi sínu
hjá Sameinuðu þjóðunum að hún
væri fyrsta konan sem gegndi
forystuhlutverki í sendinefnd
stórþjóðar, þar sem starfsbræð-
ur hennar þar væru margir
hverjir frá löndum þar sem jafn-
rétti kynjanna væri ekki til stað-
ar.
Jeane Kirkpatrick
En hún kvaðst hafa orðið agn-
dofa, þegar á reyndi. Fyrstu tvö
árin fann hún ævinlega fyrir
undrun og óánægju karlanna yf-
ir því, að kona skyldi vera nær-
stödd á þessum vettvangi. Og
þegar reynt var að tala niður til
hennar og ráðskast með hana,
sagði hún þrjóskuna hafa gefist
best.
„Ég er alveg sannfærð um að
Alexander Haig (þáverandi
utanríkisráðherra) hélt að hann
mundi geta þurrkað mig út á
fyrstu níu mánuðunum, en það
gat hann nú ekki,“ sagði Kirk-
patrick með augsýnilegri vel-
þóknun.
Hins vegar kom George
Schultz í stað Haigs og tók upp
alúðlegri samstarfshætti við
Kirkpatrtick, sagði hún.
Kirkpatrick ráðgerir að hætta
störfum sem sendiherra Banda-
ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðun-
um í janúar, og kvaðst hún vera
sæl með að snúa aftur til einka-
lífsins.
Fágæt lífsfórn
Verkfallið gæti , .
staðið árum saman einkabamsins
LuBdúnam, 20. desember. AP.
HÁTTSETTUR verkalýðsleiðtogi í
Bretlandi, Norman Willis, sagði í
dag, að verkfall kolanámumanna í
Bretlandi, sem staðið hefur yfir í 9
mánuði, kunni að dragast áfram
árum saman ef ekki náist sam-
komulag milli verkafallsaðila og
stjórnvalda.
„Kolanámurekendur gera sér
vonir um að nógu margir verk-
fallsmenn muni snúa aftur til
vinnu til þess að þvinga verka-
lýðsfélagið til að ganga til at-
kvæðagreiðslu um hvort verk-
fallinu skuli haldið áfram. Þetta
er hættulegt verkalýðsfélaginu
og verkfallsmenn ættu að vara
sig á þessu," sagði Willis meðal
annars. „Tugir þúsunda verk-
fallsmanna munu ekki snúa aft-
ur til vinnu nema að það verði
samið og því gæti verkfallið
staðið árum saman, en ekki bara
í nokkrar vikur eða mánuði,"
bætti hann við.
í Bretlandi er um 189.000
námuverkamenn að ræða og
50.000 þeirra hafa unnið sleitu-
laust í gegn um verkfallið. Um
16.000 til viðbótar hafa snúið
aftur til vinnu eftir að hafa ver-
ið í verkfalli. Það er því enn
nokkuð í land að meiri hluti
námuverkamanna sé hættur í
verkfalli. Þó hafa fjölmargir
verið að snúa aftur til vinnu síð-
ustu vikurnar og gæti því allt
gerst.
Dallaa Texas, 20. desember. AP.
16 ÁRA Pólverji lék aðalhlutverkið í hjartnæmum mannlegum harmleik sem er
nýlega lokið í Texas. Pilturinn, Padwel Sitarz, var einkabarn miðaldra pólskra
hjóna sem fluttust nauðug til Bandaríkjanna fyrir tveimur árum. Faðir Padwels
var Samstöðuleiðtogi og þau hjónin töluðu ekki stakt orð í ensku. Fengu þau
landvistarleyfi til reynslu og treystu þau mjög á Padwel að fleyta sér yfir
erfiðustu hjallanna. Padwel lést úr krabbameini í gær og það vissi ekki nokkur
maður að honum sjálfum undanskildum að hann gekk ekki heill til skógar.
Padwel vissi nefnilega að foreldr- Samhliða þessu öllu saman stund-
ar hans höfðu ekki efni á læknis-
meðferð fyrir sig og því ákvað hann
að halda hrakandi heilsu sinni
leyndri og fórna sér fyrir foreldra
sína. Hann sá um bankaviðskiptin
fyrir fjölskylduna, tryggingarmál
og innkaup, auk þess sem hann
fylgdi móður sinni til vinnu á lúx-
usgistihúsi til þess að hjálpa henni
við tungumálaörðugleikana, Padwel
talaði nefniiega dálítið í ensku.
aði hann skóla og var þar vinsæll.
Gekk hann undir nafninu „Paul“.
Þegar Padwel varð þess áskynja
að hann gat ekki lengur falið sjúk-
dóm sinn var hann það langt lei-
ddur að hann átti aðeins fáa daga
eftir ólifaða. Var líkami hans þá
fullur af krabbameini, sérstaklega
maginn og lungun. Kennarar og
bekkjarfélagar Padwels urðu því
þrumulostnir er sjálfsögunin bilaði
og hann fór að hósta upp blóði í
miðri kennsiustund. Var hann
færöur þaðan til skólalæknisins og
loks á sjúkrahús þar sem hann and-
aðist fáeinum dögum síðar. „Hann
bað afsökunar á því að vera veikur,
afsökunar á því að sóða út vaskinn
hjá mér, afsökunar á því að eyða
tíma mínum og yfirleitt afsökunar
á öllu sem nafni er gefandi. Þegar
hann fór frá mér hafði hann mestar
áhyggjur af því að sjúkrahúsvistin
myndi ríða foreldrum sinum að
fullu," sagði skólalæknirinn.
Padwel hafði vakið hrifningu og
aðdáun flestra ef ekki allra þeirra
sem kynntust honum, festa hans,
frjálsmannleg og glaöleg fram-
koma, hógværð og kurteisi.
Klementínurnar
feikivinsælu frá Marokkó
©
ve rö\
Sláturfélag Suðuriands
Austurveri.
tra
K\-
13
20-