Morgunblaðið - 21.12.1984, Síða 50

Morgunblaðið - 21.12.1984, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984 Flug Gunnar Þorsteinsson Ferskir vindar blása hjá Fokker I’egar það spurðist út, seint á sl. ári, að Fokker- ilugvéiaverksmiðjurnar væru að hanna tvær nýjar flugvéla- gerðir, fannst mörgum að það væri kominn tími til. Nýju vélarnar eru Fokker 50-skrúfuþota og lítil far- þegaþota sem kemur til með að hieta Fokker 100. Með því að ráðast í smíði þessara flugvéla taka ferskir vindar að blása að nýju hjá Fokker, einmitt á þeim tíma þegar Ijóst er að fyrirtækið var að dragast hægt og rólega niður í öldudalinn og í leiðinni aft- ur úr keppinautum sínum í smíði farþegaflugvéla. Þrátt fyrir að hinar þaul- reyndu, og traustu F 27 og F 28 voru — og eru enn — að seljast og samsetning á hinni banda- rísk-hönnuðu F 16-orustuþotu hefur gengið mjög vel, er ljóst að á næsta áratug verður stór markaður fyrir nýjar og full- komnar farþegaflugvélar í þess- um stærðarflokki. Báðar nýju Fokker-vélarnar verða nú hann- aðar með það í huga að þær geti verið í framleiðslu eitthvað fram yfir næstu aldamót. Fokker-verksmiðjurnar hafa eftir sem áður mikinn áhuga á að halda áfram framleiðslu ýmiss konar geimbúnaðar, og þá gjarn- an í samvinnu við önnur háþróuð hollensk fyrirtæki. En Hollend- ingar leggja mikið upp úr því að vera virtir þáttakendur í þróun gervihnattabúnaðar og geimbún- aðar yfirleitt. í þessu sambandi má geta þess að hollenskir vís- indamenn verða í áhöfn Spacelab 3, snemma á næsta ári, og einnig í áhöfn bandarísku geimferjunn- ar Columbiu, síðla árs 1985. Hingað til hefur ekkert flugfé- lag pantað F 50-skrúfuþotuna, en reiknað er með að úr rætist fyrir árslok. Hinsvegar hefur svissn- eska flugfélagið Swissair pantað átta þotur af gerðinni F 100, og lét skrá sig á óskuldbundinn pöntunarlista fyrir öðrum sex. Hljóðaði kaupsamningurinn upp á andvirði tæpra fimm milljarða íkr. Swissair varð fyrst til að panta nýju þotuna, og er Fokker mikill hagur að því, vegna þess að flug- félagið er mjög virt, og hefur þann orðstír að þykja áreiðan- legt, stundvíst, og síðast en ekki síst er það þekkt fyrir framúr- skarandi þjónustu. Flugfélög eins og KLM i Hol- landi, SAS, og hið bandaríska US Air hafa látið í ljós áhuga sinn á F 100-þotunni. T.d. hafa Swiss- air, SAS og KLM mikið samstarf í viðhalds- og tæknimálum, en það gæti hugsanlega skipt miklu máli við endurnýjun flugflota fé- laganna. Þá hafa japönsk flugfé- lög líka litið þotuna hýru auga, og í því sambandi kann að skipta máli að japönsk iðnfyrirtæki eru undirverktakar hjá Fokker, og munu framleiða hluti í vélina. F 100 ætti að geta farið í reynsluflug um mitt ár 1986, og verða tilbúin til farþegaflugs ári síðar. Hún á að geta borið allt að 107 farþega, og hafa 2200 km flugdrægi. Vængflatarmálið verður um 18% meira en á nú- verandi F 28-þotum, og fræðilega séð verður vængurinn um 30% öflugri. MorgunblaÖiÖ/Hergeir Kristgeirsson Hreyflarnir, sem verða tveir, verða staðsettir aftast á skrokknum. Þeir verða af Rolls Royce-gerð, svonefndir Tay- hreyflar, og eru sagðir koma til með að verða 15% hagkvæmari í rekstri en fyrirrennarar þeirra, og auðvitað hljóðlátari. Undanfarin ár hafa Fokker- verksmiðjunar unnið að 'þróun samtrefjaefna, og verða þau nú notuð í ríkum mæli við flugvéla- smíðina. Það mun þýða sterkari byggingu og minni þyngd. Flugmælitæki, vökvakerfi, lendingarbúnaður og loftræst- ingarkerfi verður allt af nýjustu gerð. Væntanlegir kaupendur geta svo valið um margar mis- munandi innréttingar. Hollensku ríkisstjórninni er mjög í mun að halda uppi at- Þannig kemur nýja Fokker-100- þotan til með að líta út Swissair varð fyrsta flugfélagið til að kaupa vélina, samtals átta vélar, og jafnvel aðrar sex síðar. Fokker-100-vélarnar leysa 14 gamlar Douglas DC 9 Swissair-þotur af hólmi. vinnu hjá Fokker-verksmiðjun- um, sem eru leiðandi fyrirtæki í flug- og geimiðnaði Hollands, og er ríkisstjórnin jafnframt stað- ráðin í að gera allt sem í hennar valdi stendur til að stór verkefni tengd þessum málaflokkum verði leyst innanlands. Vegna þessarar stefnu hefur stjórnin þurft að leggja fram bróðurpartinn af fjármagninu sem þarf til að þróa og smíða nýju flugvélarnar. Reyndar hefur hún nú þegar út- vegað 8 milljarða íkr. lán. Fokker-fyrirtækið skilaði 177 milljón íkr. hagnaði á sl. ári eftir undanfarandi margra ára tap. Talsmenn fyrirtækisins búast við að hagnaður verði einnig á rekstrinum á þessu ári. (Heimildir: Flight, Air Tran.sport World, Financial Times og Fokker.) Saudia-flugfélagið kaupir glænýjar breiðþotur f tugatali um þessar mundir. Fyrir hálfum mánuði var gengið frá kaupum á 10 Boeing 747/300 risaþotum. A myndinni sést ein af ellefu nýjum Airbus 300/600 breiðþotum sem Saudia hefur fest kaup á. Fyrsta þotan af þessari gerð var tekin í notkun fyrir flmm mánuðum og hafa þær reynst vel í rekstri. Farþegarými Fokker-100 verður bjart og býður uppá mikil þægindi. Vélin getur rúmað 107 farþega mest, en Swissair verður með þrjú farrými og með því fyrirkomulagi rúmar hún 87 farþega. 10 risaþotur fyrir olíu Andvirðið greitt á 7 dögum Einn sérstæðasti samningur sem gerður hefur verið um flugvélakaup var undirritaður fyrir skömmu. Flugfélagið Saudi Arabian Airlines, sem er ríkis- flugfélag konungsdæmisins Saudi-Arabíu, gekk frá kaupum á 10 Boeing 747/300 risaþotum er verða knúnar Kolls Royce KB 211 — 524D4 hreyflum. Það merkilega við þessi við- skipti er að þau fara fram með vöruskiptum, og þess eru engin dæmi að svona stór vöruskipta- samningur hafi verið gerður á flugvélamarkaðinum. Auðvitað hafa flugvélaframleiðendur oft þurft að taka eldri vélar upp í and- virði nýrra. En vöruskipti á flug- vélum og annari vöru eru fremur sjaldgæf. Þess eru þó dæmi, að fyrir nokkrum árum skipti McDonnell Douglas á DC 9-þotum og júgóslavnesku svínakjöti, og Rolls Royce hefur skipt þotu- hreyflum fyrir tölvubúnað. Saudia-flugfélagið greiðir vél- arnar, 10, og hreyflana, 50, með hráolíu. Boeing og Rolls Royce fá samtals 34 milljón tunnur af olíu, sem samkv. markaðsverði í dag er jafnvirði einnar billjón banda- ríkjadala. Fyrirtækin ætla síðan að endurselja olíuna til vissra olíufélaga, en talið er víst að ara- barnir ráði miklu um endursölu- verðið til að reyna að forðast hugsanlegt offramboð, og röskun á heimsmarkaðinum. Samkv. upplýsingum sem blm. Mbl. fékk hjá íslensku olíufélög- unum má ganga út frá því sem vísu, að meðal dagsframleiðsla Saudi-Arabíu á olíu, núna, sé um 4,7 milljónir tunnur. Og þá greiða þeir flugvélarnar upp á sjö dögum og nokkrum klukkustundum. Tveimur spurningum er þó enn ósvarað: Hvað fá milliliðirnir greitt fyrir þessi viðskipti, og hvað ætlar Saudia að gera við risaþot- urnar, því efasemdir eru um að flugfélagið þurfi nauðsynlega á þeim að halda næstu árin. Sam- tals verða vélarnar með 3830 sæti, en það er mjög mikil sætaaukning. Fyrsta flugvélin, af þessum tíu, verður tekin í notkun í júní á næsta ári.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.