Morgunblaðið - 21.12.1984, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984
55
DVERGRÍKI í DEIGLUNNI/Jón óttar Ragnarsson
Grímseyjarsund mistekst
Hannesi Hólmsteini svarað
Góðir lesendur. Ég verð að
biðjast velvirðingar á því að
kvelja ykkur með fleiri pistlum
um „frjálshyggju" Miltons Fried-
man, en nú hefur mér loks tekist
það sem ég stefndi að.
Það var að fá einhvern af tals-
mönnum þessarar kreddudruslu
til þess að afhjúpa hinn raun-
verulega kjarna í því æsiþreyt-
andi trúboði sem hér hefur verið
rekið um skeið.
Og nú er sem sé komið svar.
Það er sjálfur foringinn sem hef-
ur snúist til varnar. Læt ég til
gamans fljóta hér með bitastæð-
ustu glefsuna úr svari hans (sjá
úrklippuna).
Boóskapurinn er einfaldur og
dæmið nærtækt: Lítill minnihluti
sækir Sinfóníutónleika. Ergó: Rík-
ið má ekki reka hana. Það geta
þeir sjálfir gert sem njóta þessara
hlunninda.
Það er akkúrat þessi smá-
smuguiega og ófrjálslynda hugs-
un, sem ég hefi leyft mér að
kalla frækorn fasismans. Hygg ég
að ýmsir muni taka undir það
áður en yfir lýkur.
Þúsundáraríkið skoðað
En látum ekki þar við sitja.
Förum og berjum þúsundárarík-
ið augum þar sem engir ríkis-
reknir spítalar (né Borgarspítal-
ar!), skólar, eftirlit, lista- eða
vísindastofnanir eru lengur við
lýði.
í þessu þjóðfélagi „framtíðar-
innar“ gildir nú einfalda regla að
hver maður er sjálfum sér næstur.
Hafi hann sérvandamál eða sér-
áhugamál getur hann slegist í
stærri hóp ellegar...
Þarf þá ekki að leita lengi til
að sjá í hvílíkum hremmingum
þeir geta lent sem komast í þá
aðstöðu að verða minnihluti í
þessari sérdeilis frumstæðu
þjóðfélagsgerð.
Tökum t.d. manninn sem er svo
ólánssamur að verða öryrki með
fátíðan sjúkdóm sem kallar á dýra
meðferð. Á hvað á hann að
treysta? Bankakerfið? Góðgerð-
arstarfsemi peningafólks?
Eða manninn sem var einn
þeirra örfáu í Bhopal á Indlandi
sem óaði eiturbrasið í verksmiðju
einni í bænum. Á hvað átti hann að
treysta? Eftirlit Union Carbide?
Viðtal við forstjórann?
Eða manninn sem vill vinna að
rándýrum rannsóknum í þágu föð-
urlandsins áður en samkeppnis-
þjóðir fá forskot, en fáir trúa hon-
um. Hvert á hann að snúa sér? Til
Félags frjálshyggjumanna?
Sinfónían og
hafnarverkamaðurinn
Það sem Hannes skilur ekki er
það einfalda grundvallaratriði
að það er til nokkuð sem heitir
samhjálp: Aðstoði samfélagið ör-
yrkjann getur jafnvel hann lagt
eitthvað fram á móti.
Það sem Hannes áttar sig ekki á
Segjum sem svo að Jón Ottar
sé i þeim mikla minnihluta
landsmanna sem sækir reglulega
sinfóniuhljómleika. Hvers vegna
á hafnarverkamaðurinn, sem
aldrei saekir slíka hljómleika, að
greiða þá niður fyrir Jón Óttar
með sköttum sínum? Hvers
vegna á hann ekki að fá að velja
fyrir sig og Jón Öttar fyrir sig?
Eiga sumir að vera jafnari en
aðrir? Þeir, sem vara við fas-
isma i annarri hverri setningu,
ættu að velta þvi fyrir sér, hvort
ekki sé einhver keimur af fas-
isma í þessu — fasisma þeirra,
sem þykjast vita betur en aðrir,
hvað þessum öðrum sé fyrir
bestu.
Hannes Hólmsteinn: Bitastæðasta
glefsan.
er að Sinfóníutónleikar eru að vísu
sóttir af minnihluta þjóðarinnar,
en allir íslendingar eru meira en
velkomnir í þann stóra hóp.
Það sem Hannes gleymir að
taka með í reikninginn er að Sin-
fóníuhljómsveitin spilar líka í út-
varpið og sjónvarpið og auðgar
þannig jafnt og þétt okkar sameig-
inlega menningararf.
Það sem Hannes kemur ekki
auga á er að Sinfóníuhljómsveitin
er um leð uppeldisstofnun fyrir
unga músíkanta sem halda áfram
að brciða út boðskapinn i hvern
krók og kima þjóðfélagsins.
Það sem Hannes getur ekki sætt
sig við er að áður en yfir lýkur mun
ekki aðeins minnihlutinn njóta
þessa makalausa framtaks, heldur
þjóðin öll, jafnvel „hafnarverka-
menn“.
Því góð Sinfónía, eins og góð
Ópera og gott Þjóðleikhús er
ásjóna íslands inn á við sem út á
við og því aðdráttarafl fyrir alla,
fjær og nær, íslendinga sem út-
lcndinga, sem meta íslenska
menningu að verðleikum.
Þannig er öll þessi umræða
hlægileg. En hlægilegust er hún
fyrir þá sök að Hannesi Hólm-
steini er fyrir munað að skilja að
íslenskt þjóðfélag er ein samofin
heild þar sem saman fer samhjálp
og einkaframtak. í samanburði við
okkar litla þjóðfélag er það „fram-
tíðarland" sem Friedman, og
Hannes, dreymir um sem eitt
steinaldarríki frá forsögulegum
tíma.
Og að lokum: Ekki veit ég
hvort mikill munur er á íslensk-
um og breskum hafnarverka-
mönnum, en ósköp er það dap-
urlegt að heyra íslenskan
menntamann gefa í skyn að
hafnarverkamenn hljóti að vera
frábitnari sinfónium en annað
fólk.
Annað var það ekki... í bili.
Með jólakveðjum til ríkisháskól-
ans í Öxnafurðu.
Sudurland
Jólablað Suður-
lands komið út
SelfoHsi, 18. dettember.
ÞESSA dagana eykst blaðaútgáfa
mjög hjá landsmálapressunni, hvert
jólablaðið af öðru kemur út, misjöfn
að þykkt, en öll í stærra lagi.
Héraðsblaðið Suðurland, það
stærsta á Suðurlandi, kom út í dag,
56 síður að stærð. Suðuriand hefur
skipað sér ákveðinn sess meðal
landsmálablaða og hefur forystu í
fréttaflutningi á Suðurlandi. Blaðið
kemur út hálfsmánaðarlega og flyt-
ur fréttir úr Suðurlandskjördæmi.
Meðal efnis í blaðinu eru viðtöl
við nýliða í bændastétt, fólk sem
flutt hefur úr Reykjavík og austur í
sveit. Meðal viðmælenda blaðsins
eru verkstjóri og starfsmannastjóri
Bæjarútgerðar Reykjavíkur, sem
búa nú fétagsbúi að Ármóti f Rang-
árvallahreppi.
Á forsíðu blaðsins er litprentuð
mynd af Þingvallakirkju sem varð
125 ára á þessu ári og í blaðinu er
grein eftir sr. Eirík J. Eiríksson um
kirkjuna.
Suðurland er prentað í Eyja-
prenti í Vestmannaeyjum, aðsetur
blaðsins er að Austurvegi 24 á Sel-
fossi.
Ritstjóri blaðsins er Sigurður
Jónsson. Sig. Jóns.
Bridgo
Arnór Ragnarsson
Bridgefélag
Hafnarfjarðar
Jóiamót
Laugardaginn 29. des. hefur
félagið ákveðið að halda jólamót
með Mitchell-fyrirkomulagi.
Veitt verða vegleg verðlaun, en
upphæðin ræðst nánar af þátt-
töku. Spilamennskan hefst kl. 13
og er spilað í hinum ágæta fund-
arsal íþróttahússins við
Strandgötu. Skráning fer fram á
staðnum.
Síðasta mánudag var spilaður
eins kvölds tvímenningur í til-
efni jólanna. Sú nýbreytni var
tekin upp að veita ekki eingöngu
verðlaun fyrir efstu sæti heldur
voru veitt verðlaun fyrir 8. og 9.
sæti auk skammarverðlauna.
Mæltist þessi breyting vel fyrir.
Hefðbundnum verðlaunasætum
náðu hins vegar eftirtalin pör:
Guðbrandur Sigurbergsson —
Kristófer Magnússon 263 Böðvar Magnússon —
ölafur Gíslason 234
Ólafur Ingimundarson —
Sverrir Jónsson 224
Bridgefélag Hvols-
vallar og nágrennis
Nýlokið er hrað-sveitakeppni
félagsins. Úrslit urðu eftirfar-
andi:
Sveit Eyþórs Gunnþórssonar 177
SVeit Brynjólfs Jónssonar 169
Sveit Helga Hermannssonar 165
Sunnudaginn 30. des. nk. held-
ur félagið tvímenningsmót fyrir
Rangæinga, svonefndan baró-
meter. Spilað verður í Héraðs-
bókasafni Rangæinga Hvolsvelli
og hefst keppnin kl. 12.00
stundvíslega. Kaupfélag Rang-
æinga hefur gefið vegleg verð-
laun, sem veitt verða fyrir þrjú
efstu sætin. Þátttöku þarf að til-
kynna í sima 8222 í siðasta lagi
26. des.