Morgunblaðið - 21.12.1984, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 21.12.1984, Qupperneq 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984 Kveðjuorð: Þorsteinn Pjetursson fv. framkvæmdastjóri Fæddur 6. maí 1906 Dáinn 12. desember 1984 Þeim fækkar nú óðum, sem ólust upp með aldamótakynslóð- inni og því félagslega ölduróti í íslensku þjóðlífi, sem var því sam- fara. Einn þeirra, sem tileinkaði sér hugsjónir aldamótamannanna í þeirri félagslegu vakningu, var tvímælalaust Þorsteinn Pjeturs- son, fyrrv. starfsmaður Fulltrúa- ráðs verkalýðsfélaganna í Reykja- vík, en því starfi gegndi hann um langt árabil. Hann lést á sjúkra- húsi hér í borg þann 12. desember sl. 78 ára að aldri. Allt frá æskuárum til hinstu stundar var Þorsteinn hinn sívak- andi starfsmaður þeirra, sem minna máttu sín. Ávallt reiðubú- inn til að berjast fyrir rétti ein- staklinga og máttlítilla fjárvana félaga fyrir samningsbundnum rétti, enda mun hann hafa numið þau fræði allt frá barnsaldri, en faðir Þorsteins, Pjetur G. Guð- mundsson, bókbindari og kennari, var einn kunnasti kennimaður á þann boðskap á sinni samtíð og sparaði ekki uppfræðsluna til ungu kynslóðarinnar. f einkaviðræðum fór Þorsteinn ekki dult með einlæga virðingu sína á föður sínum fyrir braut- ryðjendastarf og hvatningu í ræðu og riti til að „velta í rústir og byggja á ný“. Eins og háttur er ungra manna, hafði Þorsteinn róttækar skoðanir um þá leið, er fara bæri til að öðl- ast „réttlátt þjóðfélag" og vann ótrauður að þeim æskuhugsjónum sínum. Ferskar og fölskvalausar hugsjónir ungs fólks verða oft fyrir áföllum í ljósi hinna ísköldu staðreynda lifsins og þá vilja oft bregðast og bresta þær stoðir, sem í blindri einlægni var e.t.v. um of treyst á. Slík vonbrigði fóru ekki fram hjá vegi Þorsteins fremur en flestra annarra. Slík vonbrigði bar Þorsteinn með karlmennsku og fór þá ekkert leynt með, hvað það var sem hann taldi hafa brugðist í þjóðmálabaráttunni. Hér er hvorki staður né stund til að rekja efni þeirra fjölmörgu greina, er Þorsteinn ritaði um fé- lagsmál og stjórnmál. Þorsteinn var ekki málskrafsmaður á mannafundum. Ræður hans og athugasemdir voru stuttar en hnitmiðaðar og alltaf málefna- legar, svo engum duldist skoðun hans og vilji í hverju máli, enda var Þorsteinn hafsjór af fróðleik um allt, er skipti máli í hinni fé- lagslegu þjóðmálabaráttu ís- lenskrar alþýðu frá öndverðri öld- inni til þessa dags. Verðugt verkefni væri það ung- um fræðimanni, sem áhuga hefði á þróun þessara mála, að komast í hið viðamikla fróðleikssafn Þor- steins um baráttu frumherjanna og þróun mála síðan. Auk hins ómetanlega fróðleiks gætu kom- andi kynslóðir áreiðanlega dregið nauðsynlega lærdóma. Með sanni má segja, að ekki hafi starf Þorsteins Pjeturssonar í þágu verkalýðsfélganna í Reykja- vík verið öruggt fast starf eins og sagt er. Hvort tveggja var, að hreyfingin sem heild var á starfs- tíma Þorsteins félítil og þó fremur hitt, að fjárhagslega verst stöddu félögin leituðu mest liðveislu hans og fyrirgreiðslu. Sjálfur gekk hann heldur aldrei eftir eða spurði um laun, heldur hvert vandamálið væri, sem úrlausnar biði. Það er oft sagt um okkur Islend- inga, að lífsbaráttan hafi í tímans rás gert okkur lokaða og nánast sérlundaða og einangraða. Vitnisburður erlendra ferða- manna um lundarfar og skaphöfn okkar er sá, að best sé að komast í kynni við íslendinga, er þeir dvelj- ist erlendis á ferðalögum. Hvað sem satt reynist í slíkum vitnis- burði þá er hitt staðreynd, að Is- lendingar sjálfir kynnast oft best, þegar þeir dveljast saman erlend- is. Því minnist ég á þessar fullyrð- ingar nú, að við Þorsteinn höfðum þekkst um nokkurra ára skeið, þegar okkur barst upp í hendur boð bandarísku verkalýðssamtak- anna um 6 vikna kynnisferð um Bandaríkin ásamt 6 öðrum félög- um okkar fyrir 29 árum. Á þessu ferðalagi fengu fyrri kynni okkar á sig nýja mynd. Kunningsskapur, sem varð að vin- áttu, sem báðum entist síðan. Á þessu ferðalagi kynntist ég í raun hinni sönnu fróðleiksfýsn Þorsteins, sem hvergi sparaði spurningar sínar um allt, er að verkalýðsmálum laut og nauðsyn þess að kryfja hvern þátt þeirra til mergjar. Þrátt fyrir óaðfinn- anlega gestrisni gestgjafa okkar, hafði ég það á tilfinningunni, að þeim þætti á stundum alveg nóg um hinar mörgu spurningar Þorsteins, þótt þeir þreyttust aldrei á því að gefa svör, hvort heldur var í fundarsal eða á sögu- stöðum. Oft, að lokinni strangri dagskrá og ferðalögum á landi og í lofti, gafst næði til að ræða það sem fyrir augu og eyru hafði borið. Þá gafst einnig tækifæri til að meta og vega. Þegar Þorsteinn var spurður um ástæðuna fyrir sínum mörgu spurningum, svaraði hann efnislega á þá leið, að hann væri staðráðinn í því að fá að vita sem flest og gera marktækan saman- burð á því, sem hann sæi nú og því sem hann vissi fyrir um gang verkalýðsmála í Evrópu. Þann veg var Þorsteini farið, hann var sístarfandi, námfús nemandi í skóla alþýðunnar og taldi sig ávallt hafa þörf fyrir að vita meira. Samfelld og einlæg leit hans að öllu, sem að gagni mætti koma í reynslu og starfi annarra, var honum svo hjartfólgið verkefni, að nánast flest annað varð lítilmót- legt í hans augum. Það háði Þorsteini nokkuð í hans þrotlausu fróðleiksleit síðari hluta ævinnar, að sjón og heyrn hrakaði og gekk hann undir marg- ar læknisaðgerðir af þeim ástæð- um, án þess að um verulegan eða sýnilegan bata væri að ræða. Ekki verður svo skilist við þessi fátæklegu minningarorð um Þor- stein Pjetursson að ekki verði minnst á þá baráttu hans að fá frídag verkafólks, 1. maí, lögfest- an sem hátíðisdag þjóðarinnar allrar. Ófáar ferðir gerði Þorsteinn í ráðuneyti og Alþingi til að opna augu manna fyrir þessu hjartans máli sínu. Margir urðu til að meta þau gagnrök gegn þessari skoðun, að þetta væri óþarfi, þar sem dag- urinn væri viðurkenndur í kjara- samningum og yrði vart breytt. Kjarasamningur er ekki lög sagði Þorsteinn, og svo mikið hef- ur verkalýðshreyfingin í yfir 40 ára baráttu lagt á sig til að fá 1. maí viðurkenndan sem hátíðisdag þjóðarinnar allrar, að allt annað en bein löggjöf er til vansæmdar. Með harðfylgi sínu fékk Þor- steinn þessu áorkað og árið 1967 varð 1. maí löggiltur sem einn af hátíðisdögum þjóðarinnar. Þessi sigur fór hljótt og þótti víst ekki tíðindum sæta. Þeir sem muna baráttuna og köpuryrðin, sem verkafólk varð að þola í yfir 40 ára baráttu til viðurkenningar þessum eina degi ársins, sem helgaður væri störfum þess, skilja þessa baráttu Þorsteins Pjeturssonar. I einkalífi sínu var Þorsteinn gæfumaður. Eftirlifandi eigin- kona Þorsteins er Guðmunda L. Ólafsdóttir, sem dyggilega studdi Þorstein til allra starfa, sem hug- ur hans stóð til og reyndist honum trúr förunautur, þegar veikindi og andstreymi lífsins sótti að og hvikaði hvergi, þótt veraldargæði væru á stundum af skornum skammti. Manna á milli, í lífsgæða- kapphlaupi nútíðarinnar, er lítið gefið fyrir starf hugsjónamanna, þar fer matið á manngildi fram á öðrum vogarskálum. Um leið og nú eru færðar þakkir fyrir ómetanlega samfylgd og vin- áttu, þá er mér ljóst að verka- lýðshreyfingin á að baki að sjá enn einum hugsjónamanninum úr sínum röðum. Blessuð sé minning Þorsteins Pjeturssonar. Eggert G. Þorsteinsson í dag, föstudaginn 21. desember, verður til moldar borinn Þor- steinn Pjetursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík. Með þessum fáu línum vil ég f.h. fulltrúaráðsins flytja þakkir til minningar um mann sem helgaði stórum hluta ævi sinnar verka- lýðsmálum og mörg verkalýðsfé- lögin í Reykjavík standa í mikillri þakkarskuld við. Þorsteinn Pjetursson vann í tugi ára mikið og óeigingjarnt starf sem framkvæmdastjóri full- trúaráðsins og í þágu verkalýðs- hreyfingarinnar í heild. Sérstak- lega var Þorsteinn vinnufús fyrir smærri verkalýðsfélögin í Reykja- vík, en þau félög höfðu ekki á þeim tíma neina starfsmenn til að hugsa m.a. um gerð kjarasamn- inga og úthlutun atvinnuleysis- bóta, svo eitthvað sé nefnt. Þau eru mörg handtökin sem hann innti af hendi og oft ekki spurt hve launin væru. Það var ómetan- legt fyrir verkalýðshreyfinguna að eiga menn að eins og Þorsteinn Pjetursson, alltaf boðinn og búinn til starfa og hjálpar, og verður seint fyllt það skarð sem hann skilur eftir. Síðustu árin hefur Þorsteinn verið sjúklingur en alltaf var hann með hugann við fulltrúaráðið og hvað þar væri að gerast. Eftir að hann hætti störfum hjá fulltrúa- ráðinu, starfaði hann við að koma Minning: Jón Askelsson Fæddor 31. október 1915 Dáinn 2. desember 1984 „Dáinn, horfinn!" — Harmafregn! Hvílíkt orð mig dynur yfir! En ég veit, að látinn lifir. Það er huggun harmi gegn. Þannig kvað listaskáldið góða um Tómas Sæmundsson jafnaldra sinn sem hann mat framyfir alla aðra samtíðarmenn sína, fyrir gáfur og þá ekki síður fyrir að vera landi sínu og þjóð trúr og dyggur, en Tómas dó á besta aldri. Mér brá ekkert þegar ljósvakinn hvíslaði því að mér, að Jón Ás- kelsson minn kæri vinur, væri all- ur. Ég vissi eins og svo margir vinir hans, að heilsan hékk á blá- þræði og að hver stundin gat orðið sú síðasta. Hafði svo verið um ára- bil og Jón oft búinn að vera á spít- ala og fyrst í stað fékk hann nokk- urn bata. Hann vann svo mikið og lengi sem hann mátti, því að ekki var sofið á verðinum fremur venju. Ég hafði haft spurnir af Jóni og mér verið sagt, sem ég líka vissi, að hans ágætu félagar hlífðu honum, eins og þeir gátu, við öll- um snöggum átökum, sem honum voru annars svo töm. Hann hafði oft orð á því við mig hve vinnufé- lagar hans voru honum góðir og báru svo gott skyn á hans veikindi. Síðustu árin vann Jón hjá Slátur- félagi Suðurlands. Fyrstu kynni okkar Jóns báru að á spaugiiegan hátt. Það var ár- ið 1929, en ég hafði flutt nokkru áður til Akureyrar. Ég mun hafa verið á leið inn á Torfunefs- bryggju að fá mér fisk í soðið og geng upp Strandgötu. Heyrist þá hávaða rifrildi milli unglings um fermingu, að mér sýndist, og harð- fullorðins jaka. Drengurinn hang- ir utaní sendiferðahjóli og sé ég ekki betur en að maðurinn ætli að ráðast á krakkann. Ég geng þar að svo að hann snýr við. f því er kall- að á drenginn inn í Alaskabúðina, þá labba ég yfir götuna og er kom- inn inn á uppfyllinguna sem svo var kölluð þegar hjólað er upp að hlið mér, stutt á öxl mína og ég spurður um nafn. Þar er þá kom- inn drengurinn sem hafði verið að rífast við manninn. Ég held ferð minni áfram en hann hjólar með og heldur um öxl mína og segir brosandi: „Ætiaðir þú að hjálpa mér ef Ari hefði ráðist á mig?“ „Kannski" segi ég, „en ætli þessi maður hefði ekki bara flengt okkur báða, umferðinni til gam- ans.“ Þá hlær Jón mikið og lengi, og segir: „Þú ert þá svona gaman- samur“. Þvínæst klappar hann mér á bakið og segir: „Eigum við ekki að verða vinir?" Ég tók boð- inu með sannri ánægju, því ég þóttist sjá hvað í snáðanum bjó. Fyrirheitin sem gefin voru á þess- ari stundu rofnuðu aldrei. Tíminn leið. Jón þroskaðist og við unnum saman fjölda ára, bæði á sjó og landi og skemmtum okkur þess á milli og fögnuðum sigrum þegar þeir unnust. Jón var með allra duglegustu mönnum sem ég hefi unnið með. Þar fór saman bæði þrek og þol og segja má um Jón eins og Örn Arnarson skáld kvað um Stjána bláa: „Betri þóttu handtök hans heldur en nokkurs annars manns,“ og betri félaga var ekki hægt að kjósa sér. Hann var svo traustur, sveik aldrei og ekki man ég eftir að Jón legði manni illt til, sérstaklega ef sá hinn sami var fjærri. Hann reyndi fremur að bæta úr ef með þurfti. Jón var mikill skapmaður og fór ekkert dult með það, ef svo bar við. Hann þoldi mjög illa rætni eða illt umtal. Þegar Jón var með víni var vissara að kasta ekki að honum óverðskulduðum hnútum eða núa sér upp við hann með miklum fyrirgangi, því þá var hann viss með að hrinda frá sér svo um munaði. Jón Áskelsson fæddist í Banda- gerði, Glæsibæjarhreppi, sonur sæmdarhjónanna Áskels Sigurðs- sonar og Sigríðar Jónsdóttur bú- andi í Bandagerði í mörg ár, þar til þau fluttu til Akureyrar og voru þar meðan lifðu. Áskell vann að mestu hjá Kaupfélagi Eyfirð- inga við margvísleg störf. Börn þeirra hjóna voru fimm: Jón, Sig- rún, Ásgerður, Sigurður og Unnur. Árið 1939 verða þáttaskil í lífi Jóns en þá kvænist hann ungri og glæsilegri konu frá Ólafsfirði, Margréti Þorsteinsdóttur Þor- kelssonar útgerðarmanns. Mar- grét var falleg kona og eftir því góð og mikil húsmóðir og eftirlát bónda sínum. Hún varð elskuleg vinkona okkar hjóna eins og bóndi hennar og vorum við oft þeirra gestir og þau okkar. Hjónaband þeirra varð svo sorglega stutt, að- eins tæp tvö ár, en þá dó hún af uppskurði. Okkur var kunnugt á þessu sorgartímabili að Jón vinur okkar þurfti þá oft að taka á hon- um stóra sír.um. Jón og Margrét eignuðust ekki börn. Nokkrum ár- um síðar kvæntist Jón Dorotheu Finnbogadóttur frá Eskifirði. Við kynntumst Dúddu sem svo er köll- uð ágætlegra greindri og dugmik- illi konu. Þau eignuðust einn efni- legan son, Áskel, sem varð við- skiptafræðingur að mennt. Síðar slitu þau Jón og Dorothea sam- vistir. Tíminn líður og i þriðja sinn kvænist Jón eftirlifandi konu sinni Jónínu Sigtryggsdóttur frá Akureyri, myndarlegri og góðri konu sem reyndist honum eins og best varð á kosið. Ekki hvað síst í veikindunum sem hafa að sjálf- sögðu krafist mikils. Mér var líka kunnugt um, eftir hans eigin sögn, að hann elskaði hana og virti að verðleikum. Guð blessi hana og þeirra 18 ára sambúð, sem aldrei bar skugga á. Jón var mjög vel greindur mað- ur, gekk vel í skóla, fljótur að læra og hafði gaman af bókum. Sigurð- ur bróðir hans var lögfræðingur að mennt. Þess vegna spurði ég Áskel föður þeirra, hvers vegna hann hefði ekki látið Jón ganga menntaveginn. Hann svaraði: „Nonna mínum gekk ekki síður í barna- og unglingaskóla en Sigga, og ég bauð honum að fara sömu leið en hann svaraði á þessa leið: „Ég kann betur við mig í neðri stiganum." “ Hugur einn það veit er býr hjarta nær. Svo mætti segja um Jón, því hann var opinn fyrir öllu sem var veikburða, hjálparvana og minnimáttar. Einu sinni vorum við Jón á gangi að kvöldi til í kalsa veðri. Þá hleypur lítil telpa 3ja—4ra ára gömul fram fyrir okkur og dettur á svellharða götuna og fékk sprungu á vörina svo að blóð rann úr sárinu. Þá var Jón fljótur að koma til bjargar. Hann reisti telp- una á fætur, sem var hágrátandi og hrædd, tekur upp vasaklútinn sinn og ætlar að stoppa blóð- rennslið, en þá rífur hún sig frá honum og hleypur grátandi í burt og kallar svo sárt á mömmu sína sem ekki var í sjónmáli. Auðvitað hljóp Jón á eftir henni og nær litlu manneskjunni, en hún snýr sig af honum strax aftur. Þá kemur mamma hennar út úr verslun og tekur við henni. Þegar Jón kom til baka þá var hann sárklökkur. Já sumir jötnar hafa barnshjarta. Eins og áður segir þekkti ég Jón frá öllum hliðum og ég veit að hann var að minnsta kosti þing- mannaleið fyrir ofan alla meðal- mennsku. Að endingu þakka ég Jóni vini mínum ógleymanlega samleið og óska honum velfarnaðar. Börnin mín biðja mig fyrir innilega kveðju og þakkir. Að lokum votta ég ástríkri eiginkonu, syni og systrum dýpstu samúð. Bjarni M. Jónsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.