Morgunblaðið - 22.12.1984, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1984
7
Kennsla í fískeldi
á „sporðbraut"
Heilbrigðisráðuneytið setur nýjar reglur:
Einföldun á greiðsium
Heilbrigðisráöuneytið hefur
ákveöið nýjar reglur um greiðslur
sjúklinga vegna sérfræðilegrar
læknismeðferðar og miða reglurnar
að því að einfalda greiðslufyrir-
komulag. Munu reglurnar taka gildi
fyrir áramót.
Hinn 1. desember síðastliðinn
tóku gildi nýjar reglur fyrir ellilíf-
eyris- og örorkuþega þar sem við-
talsgjald til sérfræðinga var lækk-
að úr 135 krónum í 100 krónur og
greiðslur fyrir lyf samkvæmt
lyfjaskrá 1 úr 120 krónum í 100
krónur. Þessu til viðbótar hefur
verið ákveðið að setja nánari regl-
ur um greiðslur fyrir sérfræði-
þjónustu, sem einfalda fyrirkomu-
lagið þannig, að fólk greiði aðeins
sérfræðingi og þurfi ekki að greiða
aftur og aftur ef það þarf til dæm-
is í framhaldi af komu til sérfræð-
ings að fara á röntgendeild eða
rannsóknardeild.
Veiðimaðurinn kominn út
Bændaskólinn á Hólum:
BÆNDASKÓLINN á Hólum í
Hjaltadal tók upp kennslu í fiskeldi
haustið 1981 og var greinin felld
sem valgrein inn í hið almenna bún-
aðarnám. Siðastliðið haust var síðan
tekin upp sérstök fiskeldisbraut sem
hlotið hefur nafnið sporðbraut. Er
hún ætluð þeim nemendum, sem
hafa áhuga á að mennta sig í fiskeld-
isfræöum. Tekur námið tvo vetur, er
bæði bóklegt og verklegt, og endar
með aðalverkefni, þar sem nemend-
um gefst kostur á að fjalla sérstak-
lega um það efni úr náminu sem
þeim er hugleiknast.
í fréttatilkynningu frá skólan-
um er námi við sporðbrautina lýst
í stuttu máli. Kemur fram að
námið byggist upp á kjarna með
almennum námsgreinum sem
sameiginlegar eru með öllum
nemendum skólans, verknámi í
þrjá mánuði í fiskeldisstöðvum,
valgreinum að eigin ósk þar sem
loðdýrarækt og hrossarækt hafa
notið mestra vinsælda og fiskeld-
isgreinar.
Kennslu í fiskeldisgreinum er
skipt í þrjú svið. Þau eru í fyrsta
lagi eldistækni, þar sem farið er í
þær aðferðir sem notaðar eru við
fiskeldi, og útskýrður sá grund-
völlur, sem þær byggja á. I öðru
lagi er um að ræða líffræðisvið,
þar sem gerð er grein fyrir líf-
fræði eldisdýranna, lífsferlum og
lífsmunstri, og þá hvernig þau
bregðast við misjöfnum aðstæð-
um. Þriðja sviðið sem um er fjall-
að varðar byggingafræði og rekst-
ur fiskeldisstöðva, sem er veiga-
mikill þáttur í fiskeldisnámi. Auk
þessara sviða er svo talsverðu
rúmi eytt í að fjalla um sjúkdóma,
kynbætur og fleira í þeim dúr, auk
þess sem grein er gerð fyrir þeim
skipulagslega og lagalega ramma,
sem fiskeldi starfar innan.
Maigasn stai>gavtlí>i»n*fma - Ní t1*
TÍMARITIÐ „Veiðimaðurinn“ er
komið út, 40. árgangur, blað nr.
116. Er hann að vanda með fjöl-
breyttu efni.
Má þar nefna frásögn af veiði-
ferð til Alaska eftir Garðar H.
Svavarsson, grein um efsta svæði
Stóru-Laxár í Hreppum eftir
Ragnar Georgsson myndskreytt
af Kristínu og Rafni Hrafnfjörð,
grein um Veiðivötn á Land-
mannaafrétti eftir Einar Hann-
esson, greinar um eftirlætisflug-
ur og veiðistaði eftir Gylfa Páls-
son og Orra Vigfússon, veiði-
skýrslur úr Norðurá og Stóru-
Laxá í Hreppum og margt fleira.
Útgefandi er Stangaveiðifélag
Reykjavíkur, ritstjórar eru Víg-
lundur Möller og Magnús Ólafs-
son, uppsetningu og útlit annað-
ist Rafn Hafnfjörð.
1
Framhlaöið tæki á
mjög hagstæöu veröi, og
VC-481
þvi fylgirfjarstýring
sem gerir þér kleift aö
skoöa myndefniö
hratt í báöar áttir,
og frysta myndina (,,pause“).
Tækiö hefur 7 daga upptökuminni, er útbúiö
rakaskynjara, og sjálfvirkri endurspólun.
Þetta úrvalstæki er umfram allt, einfalt í allri
notkun.
»-Vtk»o S—fcÞ--»
□
FRONT LQADtNG
;<?• ip
• | * 2 •3 •6 "6
I I 1 I I
<a~
• 7 «8 «9 «,o »11 •«
tt n i i
□ *
T tnm
□ *
m&zmm ► t-mmm 18eaá»g'r -mstm pi* $am: tauaa r. [
&
Aðeins
39.800
Stg.
HLJOMBÆR
HVERFISGÖTU 103
SÍMI 25999
HlJOM*HEIMIUS*SKBIFSTOFUTÆKI