Morgunblaðið - 22.12.1984, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1984
9
Opiö til kl. 23.00 í kvöld.
PELSINN
Kirkjuhvoli. sími 20160.
Herraskyrtur 100% bómull
Kvenfatnaöur
Töskur mikiö úrval
KRISTJflfl
SIGGEIRSSOn HF.
LAUGAVEG113, REYKJAVIK, SÍMI 25870
Ronald Reagan Þórarínn Þórarinsson
Nýr „friöarhöfðingi“?
„Nú er það von manna að Reagan... megi Ijúka ferli sínum
sem friðarhöfðingi, þótt óneitanlega séu mörg Ijón á vegin-
um.“ Þessi setning er úr grein eftir Þórarin Þórarinsson,
fyrrum Tímaritstjóra, er birtist í NT á miðvikudaginn. Nánar
er litið á þessa grein í Staksteinum í dag. Bendir ýmislegt til
þess að sjálfur Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, sé að
komast í hinn fríöa flokk framsóknarmanna, sem er að finna
í áhrifastöðum um víöa veröld.
Á leið í
Framsóknar-
flokkinn
Nirarinn l>órarínssoii,
fyrrverandi ritstjórí Tím-
ans, sat allsherjarþing
Sameinuöu þjóöanna fyrir
flokk sinn, Framsóknar-
flokkinn. Eftir heimkom-
una stingur Þórarinn niður
penna af og til og birtir
greinar um erlend og inn-
lend málefni í NT, blaöi
Framsóknarflokksins. Á
miövikudaginn sendi l*ór-
arínn frá sér grein meö
þessari fyrirsögn: „Lýkur
Reagan ferli sínum sem
friöarhöföingí?" Þar segir
meöal annars um Konald
Reagans sem ekki hefur
itt upp á pallborðiö hjá
l>órarni fyrr en eftir
Bandaríkjadvölina núna:
„Reagan hefur áöur
sýnt, aö hann er ekki
strangtrúaður kreddumaö-
ur, heldur getur hann veriö
tækifærissinni, þegar þess
er þörf. l>etta sýndi hann,
þegar hann var ríkisstjóri í
Kaliforníu, því að stjórn
hans var um margt skárri
en ætla mátti af þeim
kreddukenningum, sem
hann haföi boöað. Þess
vegna er hægt að vænta
þess, aö viðhorf hans til af-
vopnunarmála geti orðiö
annað á síöara kjörtímabili
hans en hinu fyrra."
f þessari lýsingu kemst
Isirarinn Imrarinsson
óneitanlega nærri því aö
lýsa Konald Keagan bein-
línis sem flokksbundnum
framsóknarmanni. Fram-
sóknarmenn hafa nú setið
viö völd á íslandi svo til
samfleytt síðan sumariö
1971 og oft breytt um
stefnu milli kjörtímabila —
og ekki alltaf þurft svo
an tíma.
utanríkismálum voru
sinnaskiptin skýrust
sumariö 1974 en þá lenti
Einar Ágústsson í þeirri aö-
stööu aö vera utanríkisráö-
herra fvrst í stjórn sem
vildi aö herinn færi og síð-
an í stjórn sem vildi að her-
inn værí. Fór Einar meö
hvort tveggja erindiö til
Washington og liöu aöeins
fáeinir mánuðir á milli
feröanna. í efnahagsmál-
um hafa framsóknarmenn
sveiflast á milli aögeröar-
leysis gegn veröbólgu,
niöurtalningar gegn verö-
bólgu og leiftursóknar
gegn veröbólgu. Og í vaxta-
rnálum sveidast framsókn-
armenn á milli hávaxta,
raunvaxta og engra vaxta.
„Friðsamasti
kaflinnM
Þeir sem grannt fylgjast
meö þróun alþjóðamála og
vígbúnaðarkapphlaupinu
vita, aö í raun hefur engin
stefnubreyting orðiö hjá
Ronald Reagan og stjórn
hans. Forsetinn er jafn
sannfærður um þaö og
hann var í upphafi setu
sinnar í Hvíta húsinu, að
því aðeins er unnt að
semja af viti við Sovét-
menn aö það sé gert í
krafti vestræns styrkleika.
Á fyrra kjörtímabili Re-
agans var l>órarinn l*órar-
insson hallur undir þá
kenningu „friöarhreyf-
inganna“, aö með því aö
koma meðaldrægum
bandarískum kjarnorku-
eldflaugum fyrir í Vestur-
Evrópu væri veriö aö stíga
svo háskalegt skref í al-
þjóöamálum, að heims-
friðnum væri ógnað. Meö
því að grandskoða fullyrö-
ingar „friöarsinna" hér og
erlendis fyrir fáeinum
misserum kæmust menn
liklega að þeirri niðurstööu
aö heimsslitaspádómar
þeirra ættu aö hafa ræst
eöa væru örugglega í þann
mund aö rætasL Ekkert
slíkt cr á döfinni. I»vert á
móti lýsir l*órarinn l>órar-
insson eftirfarandi yfir í
NT á dögunum:
„Ég hefi nokkrum sinn-
um átt þar (á allherjarþingi
SÞ innsk. Staksteina) sæti
síðan 1954 og er þetta friö-
samasti kaflinn þar í sam-
búö risaveldanna, sem ég
man eftir frá þessum
tíma." Hér er ekkert veríö
aö skafa utan af hlutanum
hjá hinum gamalreynda
skilgreinanda á þróun al-
þjóöamála: í 30 ár hefur
aldrei verið eins friðsam-
legt í sambúö risaveldanna
og nú!
Nú eru það
geimvopnin
Fyrir réttu ári slitu Sov-
étmenn samningaviöræð-
um um niöurskurð kjarn-
orkuvopna og hlupu á brott
frá fundunum sem þeir
höföu átt með llandaríkja-
mönnum um afvopnunar-
mál í Genf. I>á hótuöu Sov-
étmenn því, aö þeir myndu
aldrei setjast aftur að sam-
ningum með Bandarikja-
mönnum, aö minnsta kosti
ekki mcöan Reagan værí
við völd og alls ekki nema
Bandaríkjastjórn fjarlægöi
allar meöaldrægar eld-
flaugar frá Vestur-Evrópu.
Sovétmenn hömniöu svo
lengi og svo mikið á skil-
yröinu um brottflutning
ddflauganna að augljóst
var aö þeim var mest í mun
aö öölast kjarnorkueinok-
un á þessu sviöi í Evrópu.
llndan slfkum kröfum
munu NATO-ríkin aldrei
láta. Kremlverjum er oröiö
það Ijóst, aö þeir hafa lok-
ast inni i eigin áróðri að
þessu leyti.
Með för sinni til Bret-
lands hefur Mikhail S.
Gorbachev viljað draga at-
hyglina frá skilyröunum
um brottflutning meöal-
drægu eldflauganna. Nú
lætur hann eins og því aö-
eins náist samkomulag um
afvopnun aö Bandaríkin
haldi einhliða aö sér hönd-
um við vígvæðingu geims-
ins. Sovétmenn hafa lengi
undirbúiö geimhernaö og
gert margar tilraunir meö
vigahnetti í geimnum.
Einnig hér vilja þeir fá aö
einoka. Sovéski áróöurinn
í kringum fyrirhugaðar af-
vopnunarviðra-ður er því
gamalkunnur: Viö skulum
semja um þaö sem ykkur
tilheyrir en látum þaö sem
okkur varöar afskiptalausL
LAPPONIA skartgripir frá Finnlandi
GULL OG DEMANTAR
Kjartan Ásmundgson, gullsmiður, Aðalatræti 7, sími 11290.