Morgunblaðið - 22.12.1984, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1984
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 330 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 25 kr. eintakiö.
Nýjársgjöf mistækrar
„kjarabaráttu“
Frjálst útvarp
í Danmörku
Kravet
omTV 2
skærpes
Þessi fyrirsögn birtist í Berlingske Tidene á sunnudag. í fréttinni er skýrt frá
því, að með æ meiri þunga sé þess nú krafist, að stjórnmálamenn taki
afstöðu til hvort leyfa eigi aðra rás í danska ríkissjónvarpinu. Poul Schliiter,
forsætisráðherra, vill heimila auglýsingar í sjónvarpinu en jafnaðarmenn eru
á móti því. Málið hefur strandað á peningaskorti.
Verðbólga, sem komin var
upp í 130% á fyrsta árs-
fjórðungi 1983, náðist niður
fyrir 20% á rúmlega einu ári.
Þessi árangur byggðist á
ákveðinni launa- og gengis-
þróun, sem brotin var á bak
aftur í BSRB-verkfalli. Niður-
staðan varð ekki einungis sú,
að leiðin niður á sama verð-
þróunarstig og í nágranna-
löndum lengdist um a.m.k. eitt
ár, heldur varð hún kveikja að
nýjum víxlhækkunum launa,
gengis og verðlags. Nýjasta
dæmið er fyrirhuguð hækkun
á raforkuverði.
Nauðsynlegt er að líta á
nokkrar meginstaðreyndir
þessa máls:
• Miðað við óbreyttar launa-
og gengisforsendur var unnt
að ná hallalausum rekstri
Landsvirkjunar á komandi ári,
þrátt fyrir 10% verðbólgu það
ár, sem fyrri þjóðhagsspá stóð
til, án hækkunar á orkuverði
til almenningsveitna.
• Stööugleiki, sem náðst
hafði í íslenzku efnahagslífi,
gerði það kleift að hækka ekki
gjaldskrá Landsvirkjunar
nema um 5% frá 1. ágúst 1983,
sem ekki gekk út í smásölu-
verð til almennings. Gjald-
skrárverð Landsvirkjunar
lækkaði að raungildi á þessum
tíma um 20%, miðað við bygg-
ingarvísitölu.
• Á þessu sama tímabili hef-
ur orkuverð til ÍSAL hækkað
um 140%, mælt í íslenzkum
krónum.
Nýgerðir kjarasamningar
og gengisfelling, sem fylgdi í
kjölfar þeirra til að rétta
nokkuð af stöðu útflutnings-
atvinnuvega, hafa hinsvegar
gjörbreytt rekstrarstöðu
Landsvirkjunar, en fjár-
magnskostnaður er 85% af
rekstrarkostnaði fyrirtækis-
ins. Ein af afleiðingum
breyttrar launa- og gengis-
þróunar verður þvi 14% hækk-
un á verði orku frá Lands-
virkjun til almenningsveitna.
Hækkun heildsöluverðs
veldur síðan 9% hækkun á
gjald Rafmagnsveitna Reykja-
víkur. Þar við bætist hærri
launa- og lánakostnaður
Rafmagnsveitunnar sem ýtir
hækkunarþörfinni upp í 14%.
Þannig bitnar þessi breytta
launa- og gengisþróun endan-
lega á almenningi, sem borgar
brúsann. Þetta hefur reynzlan
kennt okkur æ ofan 1 æ sl.
hálfan annan áratug óðaverð-
bólgu —, án þess að þjóðin
sem heild hafi dregið af rétta
lærdóma.
Eftir sem áður er það íhug-
unarefni, hve raforkuverð er
hætt hér á landi miðað við
orkuverð víða annars staðar,
beggja megin Atlantsála.
Lánakostnaður orkukerfisins,
sem gengisþróun hefur mikil
áhrif á, vegur þar sýnilega
mikið, samanber upplýsingar
frá Landsvirkjun um hlutfall
fjármagnskostnaðar af rekstr-
arkostnaði. Flutningskerfi
orkunnar, í stóru og strjálbýlu
landi, er og mikill kostnaður;
byggðalínur og hringtenging
orkukerfisins um landið hefur
kostað mikla fjármuni, sem
segja til sín í orkuverði. Hér
skal ekki lagður dómur á arð-
semi einstakra orkufram-
kvæmda sl. áratugi, en það
skiptir að sjálfsögðu megin-
máli í þessum þætti þjóðar-
búskaparins sem öðrum, að
arðsemi ráði ferð. Það er ekki
út í hött að heyrzt hafa raddir
um faglega úttekt á þeirri
staðreynd, hve orkuverð er
hátt hér á landi. Slík fagleg
úttekt getur orðið hjálpartæki
við stefnumörkun til framtíð-
ar.
Þegar svo er komið að mat-
söluhús í höfuðborginni huga
að gasnotkun og brauðgerð-
arhús að olíunotkun, þ.e. að
hverfa á ný að notkun inn-
fluttrar orku, vegna þess hve
raforka er dýr, þá er vissulega
tími til að staldra við og meta
stöðuna.
Fjórtán prósent hækkun
orkuverðs frá og með næstu
áramótum þýðir að vísu, ef
orkuverð helzt óbreytt út árið,
fjórðungs lækkun á raunvirði
orkunnar frá 1. ágúst 1983. Sá
vinningur verður mestpart
rakinn til 140% hækkunar á
orkuverði til ÍSAL, frá því sem
orðið hefði að óbreyttum
samningum í tíð Hjörleifs
Guttormssonar, fyrrverandi
orkuráðherra. Án þeirrar
hækkunar hefði verðhækkun-
arþörf Landsvirkjunar orðið
mun meiri, eftir orðna koll-
steypu í launa- og gengis-
þróun, og komið enn harkaleg-
ar niður á öllum almenningi.
Það er svo saga út af fyrir sig,
hvers vegna orkuverð til ÍSAL,
í eigu útlendinga, er svo miklu
hærra en til járnblendiverk-
smiðjunnar, sem að meiri-
hluta er eign íslenzka ríkisins.
Vatnsföllin eru þriðja auð-
lindin, til viðbótar fiskistofn-
um og gróðurmold, sem for-
sjónin hefur lagt okkur upp í
hendur til að byggja lífskjör
þjóðarinnar og efnahagslegt
sjálfstæði á. Þessar auðlindir
þarf að nýta bæði með varð-
veizlu- og arðsemissjónarmið í
huga. Efnahagsleg velferð
okkar og lífskjör felast í þess-
um auðlindum, ásamt mennt-
un og þekkingu fólksins í land-
inu, þ.e. framvindu tækni og
vísinda.
Hátt verð raforku veldur
okkur áhyggjum. Það er
óhjákvæmilegt að fara vel
ofan í saumana á því máli.
eftir Ib Björnbak
Dönsk stjórnvöld standa nú
andspænis þeim vanda að þurfa að
taka ákvarðanir um framtíð fjöl-
miðlunar þar í landi. Ákveða þarf
hvort hefja eigi útsendingar á
annarri ríkisrekinni sjónvarpsrás
(TV 2) og hvort heimila eigi aug-
lýsingar í útvarpi og sjónvarpi. Að
undanförnu hafa svæðisstöðvar
hafið útsendingar í tilraunaskyni
og þar með hefur einkaréttur
ríkisins í raun verið afnuminn.
í mörg ár hefur verið rætt um
að hefja rekstur annarrar sjón-
varpsrásar. Upphaflega var þeirri
hugmynd frestað þegar kannað
var hvort unnt væri að hefja sam-
norrænar sjónvarpssendingar.
Þegar það reyndist ómögulegt var
hugmyndinni um aðra sjónvarps-
rás enn ýtt til hliðar. Var það ein-
kum gert vegna kostnaðar við
byggingu nýrra sendistöðva og
vegna þess að ekki lá fyrir hvort
leyfa ætti auglýsingar til að létta
undir reksturinn.
Tilraunasendingar
Nú hefur einstaklingum, hópum
og félögum verið heimilað að hefja
útvarps- og sjónvarpssendingar í
tilraunaskyni fram til 1. apríl
1986. Sendingar eru þegar hafnar
út um allt land og segja má að
útvarpsstöðvar séu á hverju strái.
Útsendingartíminn er mislangur.
Sumar stöðvar senda út tvo tíma á
dag en aðrar, t.d. stöð ein í
Odense, allan sólarhringinn sjö
daga vikunnar. Með þessu fæst
góð reynsla af þeim möguleikum
sem fyrir hendi eru og áhuga
hlustenda.
Sendingar flestra stöðvanna
nást í 10 til 40 kílómetra radíus en
styrkleiki stöðvanna ræðst af því
hvar loftnet þeirra eru. Starfsem-
inni er misjafnlega háttað. Sumar
stöðvarnar eru reknar í sjálfboða-
vinnu, aðrar fjármagna rekstur-
inn með „útvarps-bingóum" eða
með því að gefa hlustendum kost á
að senda kveðjur til vina og ætt-
ingja fyrir um 80 ísl. kr. kveðjuna.
Þá hafa sumar stöðvar tekið þann
kost að stofna hlustendafélög sem
greiða ársgjöld.
f fyrstu sýndu dagblöðin tak-
markaðan áhuga, en nokkur
þeirra öfluðu sér tilskilinna heim-
ilda í menningarmálaráðuneytinu
og víða um landið reka blöð einnig
staðbundnar útvarpsstöðvar. Ein
slík hefur tekið til starfa í Kaup-
mannahöfn og eru öll dagblöð
borgarinnar aðilar að þeim
rekstri. Öðru máli gegnir um sjón-
varpsrekstur. Sjónvarp er áhrifa-
meiri miðill og vegna ólíkra
stjórnmálaviðhorfa náðist ekki
svo víðtækt samstarf um rekstur
þess.
Einkaréttur afnuminn
Allt frá upphafi hefur danska
ríkisútvarpið haft einkarétt til út-
varpssendinga en með tilkomu
staðbundinna útvarpsstöðva er
þetta að breytast. Danska ríkis-
útvarpið sendir út á tveimur rás-
um en auk þeirra eru 8 sendistöðv-
ar úti á landsbyggðinni. Hver stöð
hefur eigin fréttastofu og útvarp-
ar fréttum í viðkomandi héraði.
Þessar stöðvar lenda nú í sam-
keppni við frjálsu stöðvarnar. Það
hefur sýnt sig að þrátt fyrir tak-
markaðan fjárhag ná frjálsu
stöðvarnar vel til hlustenda ekki
síst í stórum oæjarfélögum eins og
Árósum, Odense og Herning.
Þó að aðeins sé um tilraun að
ræða er ljóst að margar hinna
staðbundnu útvarpsstöðva munu í
framtíðinni vel geta staðið undir
rekstrinum. Spurningin er hvern-
ig þær eiga að fjármagna starf-
semina þegar tilraunatímabilinu
lýkur í apríl 1986. Þá vaknar aftur
spurningin hvort einhverjum
þeirra eða þeim öllum verði heim-
ilað að hafa auglýsingar inni í
dagskránni.
Ahrifamáttur
sjónvarpsins
Hin pólitísku öfl hafa hafið bar-
áttu um að auka áhrif sín í gegn-
um sjónvarpið. Sú barátta snýst
einkum um hvort hefja eigi rekst-
ur annarra sjónvarpsrásar (TV 2)
og hvernig hafa megi áhrif í gegn-
um svæðissjónvarp.
Þjóðþingið verður að komast að
niðurstöðu í þessu máli og eins og
ævinlega verður um málamiðlun
að ræða, því skoðanir manna eru
skiptar í þessu efni sem öðrum.
Það er einkum tilkoma gervi-
hnatta og kapalkerfa sem þrýstir
á stjórnvöld. Auk þess verður að
ákveða, hver verður framtíð út-
varps- og sjónvarpsstöðva þegar
tilraunatímabilinu lýkur.
Tilkoma gervihnatta er ein
helsta röksemdin fyrir að leyfa
eigin sjónvarpsauglýsingar í
Danmörku. Árið 1986 munu Danir
geta tekið á móti útvarps- og sjón-
varpssendingum frá frönskum og
vestur-þýskum gervihnöttum og
verða auglýsingar í dagskrá
þeirra. Sérútbúin loftnet munu
teka við sendingum og geta þá t.d.
húsfélög sameinast um eitt loftnet
og dreift efninu í gegnum kapal-
kerfi.
Allt bendir því til að Danir
muni fá auglýsingar inn í stofu
hjá sér sama hvað þingið sam-
þykkir. Auk þess mun framboð á
sjónvarpsefni stóraukast og veitir
það danska sjónvarpinu mikla
samkeppni. Af þessu vilja margir
draga þá ályktun, að Danir geti
ekki verið án TV 2.
Krafan um að heimila eigi aug-
lýsingar í dönsku sjónvarpi hefur
verið studd með þeim rökum að
fráleitt sé að banna dönskum
fyrirtækjum að auglýsa fram-
leiðslu sína, því erlend fyrirtæki
muni dæla auglýsingaflóði yfir
danska sjónvarpsáhorfendur þeg-
ar gervihnattasendingar hefjast.
Raunar getur þriðjungur þjóð-
arinnar nú þegar horft á vestur-
þýska sjónvarpið, sem heimilar
auglýsingar. Annar þriðjungur
getur náð sendingum sænska sjón-
varpsins sem varpar út á tveimur
rásum en heimilar ekki auglýs-
ingar.
Vestur-þýska sjónvarpið sést
einkum á Suður-Jótlandi og Fjóni
og er vinsælla en hið sænska þrátt
fyrir tungumálaerfiðleika. Vin-
sældir þýska sjónvarpsins stafa
einkum af því að það sýnir meira
af afþreyingarefni og íþróttum en
danska og sænska sjónvarpið. Til
þess að standa sig betur í sam-
keppninni sýnir danska sjónvarpið
nú meira af íþróttaefni en áður.
Auglýsingatímar
Poul Schlúter, forsætisráðherra
Dana, telur að danska sjónvarpið
eigi að hefja útsendingar á ann-
arri rás. f viðræðum við sósíal-
demókrata hefur forsætisráðherr-
ann sett fram hugmyndir um að
reksturinn verði að þriðja hluta
fjármagnaður með auglýsingum,
að þriðja hluta með afnotagjöld-
um og að þriðja hluta með sparn-
aði innan danska ríkisútvarpsins.
Sósíaldemókratar hafa hingað
til verið andsnúnir auglýsingum í
útvarpi og sjónvarpi, en afstaða
þeirra virðist nú vera að breytast.
Sífellt fleiri frammámenn innan
flokksins hafa lýst sig fylgjandi
fjármögnun með auglýsingum. Nú
síðast lýsti Knud Christiansen,
formaður danska Alþýðusam-
bandsins (LO), því yfir að hann
væri hlynntur auglýsingum bæði í
TV 2 og svæðisbundnum sjón-
varpsstöðvum. Danskir jafnað-
armenn hafa stofnað eigið sjón-
varpsfélag, DAN-TV, sem ætlað er
að sjá sex sjónvarpsstöðvum á
landsbyggðinni fyrir efni.
Hins vegar hefur formaður
danska útvarpsráðsins, sósíal-
demókratinn Birte Weiss, and-
mælt þessum hugmyndum. Út-
varpsráð er skipað fulltrúum
stjórnmálaflokkanna og fer fjöldi
þeirra í ráðinu eftir þingstyrk
flokkanna.
Hvað sem þessu líður er ljóst að
fyrirkomulag auglýsinganna í
dönsku sjónvarpi verður ekki að
hætti Bandaríkjamanna, sem
rjúfa útsendingar til að koma
auglýsingum að. Verði auglýs-
ingar leyfðar ætla Danir að taka
sér Finna, Vestur-Þjóðverja og ís-
lendinga til fyrirmyndar, sem
hafa auglýsingatíma á milli atriða
í dagskránni. Um þetta efni eru
bæði stjórn og stjórnarandstaða
sammála.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1984
29
Mette Fugl, hefur starfað hjá danska ríkissjónvarpinu, en flytur sig nú til
frjálsrar sjónvarpsstöðvar í Kaupmannahöfn, þar sem hún ætlar að stjórna
viðtalsþætti á sunnudögum. Mette Fugl er sögð þriðja vinsælasta kona í
Danmörku og segist ætla að búa til vinsælasta sjónvarpsþáttinn í landinu.
Fréttaritari Morgunblaðsins
í Danmörku hefur tekið sam-
an yfirlit um byltinguna í
dönskum sjónvarps- og út-
varpsmálum sem nú er að
verða
Svæðissjónvarp í
Kaupmannahöfn
Þó að um hríð hafi verið starf-
ræktar svæðisbundnar sjón-
varpsstöðvar á landsbyggðinni er
nú fyrst verið að hefja útsend-
ingar á Stór-Kaupmannahafn-
arsvæðinu.
Komið hefur verið upp tveimur
sterkum sendum og var „kristilegt
sjónvarp“ fyrst til að hefja út-
sendingar. Þar á bæ höfðu menn
undirbúið sig vel og fjárfest í
tækjabúnaði, með stuðningi frá
Svíþjóð, fyrir margar milljónir
danskra króna.
Stöðvar, sem nefnast Kanal 2 og
Kanal Plus, ætla að veita danska
sjónvarpinu harða samkeppni.
Stöðvarnar hafa fengið til liðs við
sig reynda blaðamenn frá TV-
Avisen í fréttadeild ríkissjón-
varpsins. Nokkrir þekktir blaða-
menn hafa ráðið sig í þjónustu
stöðvanna, sem hefja útsendingar
fyrir alvöru nú um jólahátíðina og
2. janúar.
Stöðvarnar á Kaupmannahafn-
arsvæðinu hafa komist að sam-
komulagi um að deila útsend-
ingartímanum á milli sfn. Kristi-
lega sjónvarpið varpar út á
morgnana fram til kl. 7 á kvöldin.
Kanal 2 mun senda út á kvöldin á
virkum dögum og Kanal Plus um
helgar.
Otto Retz-Thott, barón, stjórnar
Kanal 2, en þekktur kaupsýslu-
maður, Klaus Riskær Pedersen,
fjármagnar reksturinn. Að baki
Kanal Plus standa þrjú fjársterk
fyrirtæki: Gutenbergshus og All-
er, sem bæði gefa út vikublöð, og
Nordisk film sem er stærsta
kvikmyndafyrirtæki Danmerkur
og raunar hið elsta í heiminum.
Dagblöðin í
sjónvarpsrekstur
Nú hafa stóru dagblöðin Politik-
en, Berlingske Tidende ásamt
Kristeligt Dagblad og dagblaðinu
Börsen ákveðið að gerast aðilar að
Kanal Plus.
Hins vegar hafa dagblöðin In-
formation, Land og Folk, sem er
kommúnískt blað, og Aktuelt,
málgagn verkalýðshreyfingarinn-
ar, sósialdemókrata, ákveðið að
ganga ekki til samstarfs við hin
blöðin um sjónvarp, þó svo öll eigi
þessi blöð hlutdeild í útvarpsstöð
blaðanna í Kaupmannahöfn.
Blaðið Information er vinstri-
sinnað dagblað, sem er hliðhollt
Sósíalíska þjóðarflokknum og
Vinstri sósíalistum. Það ákvað að
ganga ekki til samstarfs um sjón-
varpsrekstur við borgaralegu öfl-
in.
Aktuelt kærði sig ekki um sam-
starf m.a. vegna þess að sósíal-
demókratar stefna að sjálfstæðum
útvarps- og sjónvarpsrekstri.
Verkalýðsfélögin hafa lagt fram
miklar fjárhæðir til fjölmiðlunar
og reka nú sex svæðisbundnar
sjónvarpsstöðvar auk útvarps-
stöðva. Nú síðast gerðust þau aðil-
ar að sjónvarpsstöð í Árósum og
lögðu fram 2 milljónir danskra
króna.
Vegna þess að sósíaldemókratar
geta ekki keppt við stóru dagblöð-
in, sem gefin eru út í Kaupmanna-
höfn, stefna þeir nú að því að auka
áhrif sín með útvarps- og sjón-
varpsrekstri.
Samkcppni
Ríkisstjórnin hefur lýst yfir að
hún telji meiri samkeppni æski-
lega í útvarps- og sjónvarpsmál-
um Dana. Aukin samkeppni muni
virka hvetjandi á hið ríkisrekna
útvarp og sjónvarp. Þá eru
starfsmenn þessara ríkisstofnana
hlynntir því að einkaréttur ríkis-
ins verði afnuminn, þó að það leiði
óhjákvæmilega til þess að margir
starfsmenn þessara fyrirtækja
gangi til liðs við svæðisbundnu
stöðvarnar, sem geta boðið hærri
laun.
Stöðvarnar á Stór-Kaupmanna-
hafnarsvæðinu verða í framtíð-
inni reknar með þeim hætti að
notendur greiða 295 d.kr., um
1.500 ísl.kr., sem tryggingu fyrir
lykilbúnað sem útrýmir truflun-
um í sendigeisla sjónvarpsstöðv-
anna auk þess sem þeir munu
mánaðarlega reiða fram 100 d.kr.,
360 ísl. kr., sem afnotagjald. Þar
við bætist kostnaður vegna loft-
nets.
Hvort sem auglýsingar verða
leyfðar eða ekki þá er ljóst að
danskir sjónvarps- og útvarpsnot-
endur eiga að hafa úr nógu að
velja. Þar við bætist að sendingar
frá gervihnöttum eru á næsta
leiti.
Send oss friðinn
— bréf biskups íslands til presta vegna jólahátfðarinnar
Herra Pétur Sigurgeirsson,
biskup Islands, hefur sent prest-
um landsins eftirfarandi bréf í til-
efni jólahátíðarinnar:
Senn kemur „Nóttin hljóða,
helgust allra nótta“. Freysteinn
Gunnarsson, guðfræðingurinn og
skáldið biður í ljóði sínu:
„Jólabarn í jötu reifum vafið
Jesúbarn til æðstu dýrar hafið
send oss friðinn, jólafrið á jörð.“
í þessari bæn sameinumst við á
jólum sem endranær. — Jörðin
hrópar, og börn jarðarinnar biðja
Guð bænarinnar: Send oss friðinn.
Aðventuljósin hafa lýst okkur að
þeim stað og stund, er við tendrum
sjálft jólaljósið. Þá eru helgustu
og hljóðustu augnabiikin ársins.
Kirkjan okkar hefir á umliðnum
árum átt þátt í ljósatendrun jól-
anna samtímis með þeim hætti, að
kl. 9 á aðfangadagskvöld er kveikt
á jólakerti og það síðan borið út í
glugga, dyr, út á svalir eða hvar
sem Ijósið nær að lýsa út til ná-
granna í næsta húsi eða húsum
með óskina um gleðileg jól. Með
þessu móti tengjast nágrannar
sérstökum vináttu og kærleiks-
böndum á hátíðinni. Við sem biðj-
um um bræðralag á jörð höfum
tækifæri til þess að sýna þann
vilja og biðja þá bæn í jólakveðju
lifandi ljóss og friðelskandi
hjarta. — Friður á jörðu á ekki
aðra leið til þess að verða að veru-
leika en þá sem Guð hefir stofnað
til í „gegnum Jesú helgast hjarta",
í jólaljósinu og þeim ljósum sem
tendrast af fórnandi kærleika
Krists í hjörtum mannanna.
Veröldin er stöðugt í sömu þörf
fyrir friðarbænina, sem jólin hafa
skapað sterkasta samstöðu um. Á
þessum jólum horfir uggvænlega í
heimi okkar. Milljónir saklausra
manna búa við hungur og örvænt-
ingu, sem í flestum tilfellum má
rekja til valdníðslu og styrjaldar-
átaka. — Á þriðja í jólum eru
fimm ár síðan styrjöldin í Afgan-
istan hófst með þeim afleiðingum,
Pétur Sigurgeirsson
að rösklega ein milljón Afgana
hefir fallið. Á fimmtu milljón
manna hefir flúið til nágranna-
ríkjanna. Paul Hartling fram-
kvæmdastjóri Flóttamannahjálp-
ar Sameinuðu þjóðanna hefir ka.ll-
að þetta mesta flóttamannavanda-
mál vorra daga, enda þjáningar
fólksins ólýsanlegar. Hungurvof-
una í Eþíópíu þekkja landsmenn
af upplýsingum, er þaðan koma.
Um þessi jól er hjálparstarfi
kirkjunnar sérstaklega beint
þangað. Þar torveldar grimmileg
borgarastyrjöld hjálpina og eykur
stórum neyðina. Mannréttindi
svartra manna í Suður-Afríku eru
fótum troðin. Enginn endir virðist
vera á styrjaldarátökum í Líban-
on. í löndum Mið- og Suður-
Ameríku er stöðugt styrjaldar-
ástand og hryðjuverkastarfsemi. I
Kampútseu og Nicaragua grúfir
ógn og skelfing yfir borgurunum.
Hér er aðeins minnst á nokkur
dæmi af þeim mörgu, sem minnir
okkur á, hvernig heimurinn lítur
út í dag. Yfir heimi blóðs og tára
ríkja svo kjarnorkuvopnin með
ógn sinni um endalok alls lífs á
jörðinni.
í friðarljósinu á helgri jólanótt
vakir bænin: „Lýs milda ljós í
gegnum þennan geim.“ ísland get-
ur lýst með þeim ljóma og verið
bænarákall um frið. — Til þess
þarf samstöðu. „Nóttin hljóða"
gefur tilefnið og tækifærið.
Á það skal minnst, að þessar fáu
mínútur, sem gegnið er þangað
með jólaljósið, sem það lýsir til
næstu nágranna, má eigi skilja
það eftir mannlaust hvar sem
nokkur minnsta hætta er á elds-
voða. Varfærni og aðgæslu er þörf
við óbyrgt Ijós hvar og hvenær
sem er.
„Frið læt ég yður eftir, minn
frið gef ég yður,“ sagði Jesús (Jóh.
14:27). Jólin eru bæn um þann frið,
er við biðjum hátt og í hljóði. Með
þeirri friðarbæn er það Guð, sem
gefur okkur gleðileg jól. — Megi
þau jól gefast ykkur kæru bræður
og systur og við öll verða verkfæri
Ijóss og friðar í Guðs hendi. —
Með þeirri bæn óskum við hjónin
þér og fjölskyldu þinni gleðilegra
jóla.
Megi hið nýja ár verða þér og
ástvinum þínum farsælt og bless-
unarríkt.
Gleðileg jól.
Hjálparstofnun kirkjunnar:
11 milljónir króna
hafa þegar safnazt
— Lokaátak söfnunar-
innar er um helgina
NÚ HAFA safnast 11 milljónir króna
í landssöfnun Hjálparstofnunar kirkj-
unnar „Brauð handa hungruðum
heimi“. llndirbúningur á hjálpar-
sendingum til Eþíópíu gengur einnig
vel. Hjálparliðar hafa þegar verið
sendir til hjálparstarfa í Eþíópíu og
fleiri munu fara utan á næstunni til
starfa við hjúkrun og dreifingu ís-
lcnskra hjálpargagna. Áætlað er að
senda eina til tvær flugvélar héðan
fullfermdar hjálpargögnum f janú-
armánuði. Hjálpargögn munu sam-
anstanda af mjólkurdufti, næringar-
ríku kexi og teppum, segir í frétt frá
Hjálparstofnuninni.
Nú um helgina verður áhersla
lögð á lokaátak söfnunarinnar
fyrir jól. í dag, laugardag, munu
söfnunarbílar verða staðsettir á
Laugavegi og Lækjartorgi í
Reykjavík og í miðbæjum Keflavík-
ur, Akureyrar og Akraness. I söfn-
unarbílunum verður söfnunar-
baukum og framlögum veitt mót-
taka frá klukkan 13.00 og þar til
verslunum lokar.
Á Þorláksmessu munu flestar
kirkjur landsins verða opnar þar
sem tekið verður á móti framlögum
og söfnunarbaukum. Einnig munu
sóknarprestar taka á móti fram-
lögum.
Það er von Hjálparstofnunar
kirkjunnar að landsmenn taki
höndum saman siðustu daga fyrir
jól með þátttöku í söfnuninni. Það
er fagnaðarefni hversu neyðarkall-
inu nú á jólaföstu hefur verið vel
tekið og gerir það Hjálparstofnun-
inni kleift að standa við heit sín um
áframhald hjálparstarfs á þurrka-
svæðunum í Eþíópíu. Þaö skal enn
ítrekað að öllum hjálparsendingum
héðan verður fylgt eftir og dreifing
þeirra á vettvangi verður undir eft-
irliti hjálparliða á vegum Hjálpar-
stofnunarinnar.