Morgunblaðið - 22.12.1984, Síða 44
44
MORGUNBLADID, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1984
Jólatrés-
skemmtun
hjá
fötluðum
Nú þegar jólin eru svona á
næstu grösum eru jóla-
trésskemmtanir haldnar út um
alla borg. Fyrir nokkrum dögum
var slík skemmtun fyrir fatlaða og
leit ljósmyndari Mbl. inn og
smellti af nokkrum myndum. Þar
voru börn og fullorðnir m.a. að
dansa í kringum jólatréð og að
sjálfsögðu lét jólasveinninn ekki
sitt eftir liggja og lék á als oddi.
Villi rakari búinn að stækka við sig
að eru eflaust margir sem
hafa farið til Villa rakara
á Miklubrautinni um árin. Villi
hefur starfað þar lengstum
einn, en undanfarið hafa þau
unnið þar þrjú. Nýlega opnaði
Wilhelm Ingólfsson, öðru nafni
Villi rakari, nýja rakarastofu
„Aristokrat" og mun hún veita
báðum kynjum þjónustu. Blm.
hitti Villa stundarkorn og
spurði hvað hefði ollið því að
hann fór allt í einu núna að
stækka við sig og opna hár-
snyrtistofu með fjöida starfs-
fólks í vinnu.
„Ætli það sé ekki aldurinn
sem spilar þar inn í. Ég er að
komast á breytingaraldurinn
og þá tekur fólk að sögn upp á
ýmsum uppátækjum. Þetta var
ekki svo mikið fyrirtæki með
aðstoð góðs fólks, og er ég
opnaði hafði ég fjölda fólks til
að velja úr í vinnu hjá mér. í
augnablikinu erum við sex sem
störfum hér, en komum tii með
að verða átta er stundir líða.
Ég er búinn að ætla mér út í
þennan rekstur sl. fimm ár, en
var alltaf að biða eftir húsnæði
hérna í Austurbænum og einn-
ig þar sem nóg bílastæði væru
fyrir hendi.
Það er einnig fleira sem
kemur til. Ég hef verið með
hártoppa á boðstólum í meira
en fjórtán ár og rýmið sem ég
hafði á Miklubrautinni til þess
að sinna því var ekki nógu
stórt eða 1 Vfe sinnum 2 metrar.
Nú bætti ég úr því og hef undir
það 15 fermetra auk þess að
vera með rými sem ég get lok-
að og þarf ekki að eiga það á
hættu að vera truflaður í
miðju kafi.
íslenskur maður ráðinn
til kristnisboðsstarfa af
danska kristniboðsfélaginu
Sjö trúboðar eru nýráðnir af
danska kristniboðsfélaginu
til kristniboðsstarfa. Þrír fara
til Bahrein, fjórir til Bhutan og
Bangladesh. Það sem kann að
vekja athygli ýmissa íslendinga
við þessa ráðningu er að einn
þessara sendiboða er af íslensku
bergi brotinn, Ólafur Ólafsson.
Hann er fæddur í Eþíópíu þar
sem foreldrarnir voru á sinni tíð
trúboðar. Foreldrarnir eru
Kristín og Sr. Felix Ólafsson,
fyrrverandi prestur í Grensás-
söfnuði, núverandi sóknarpestur
í Danmörku. Ólafur hefur stund-
að nám á íslandi, Noregi og í
Danmörku og hefur lokið
margra ára námi við lútherskan
trúboðsskóla og læknanámi við
háskólann í Árósum.