Morgunblaðið - 05.01.1985, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1985
Embætti veiöistjóra:
Tófuvinur og refaskytt-
ur meðal umsækjenda
FIMM menn sóttu um embætti
veiðistjóra sem auglýst var laust til
umsóknar eftir fráfall Sveins R.
Einarssonar veiðistjóra fyrr í vetur.
Meðal umsækjenda eru, auk setts
veiðistjóra, forseti Hins íslenska
tófuvinafélags, refaskyttur og dokt-
or í Oxford.
Eftirtaldir sóttu um embættið:
Sigurður Hjartarson, sagnfræð-
ingur í Reykjavík, sem titlar sig
sem forseta Hins islenska tófu-
vinafélags; Snorri H. Jóhannes-
son bóndi og refaskytta á Auga-
stöðum í Borgarfirði; Reynir
Bergsveinsson bóndi og refa-
skytta í Fremri-Gufudal, Aust-
ur-Barðastrandarsýslu; Páll
Hersteinsson dr. phil. sem bú-
settur er i Oxford í Englandi og
skrifað hefur doktorsritgerð um
rannsóknir á lifnaðarháttum ís-
lenska refsins; og Þorvaldur Þór
Björnsson, settur veiðistjóri,
Reykjavík, en hann leysti veiði-
stjóra af í veikindaforföllum
hans síðustu árin.
Umsóknirnar eru nú til um-
sagnar hjá stjórn Búnaöarfélags
íslands en landbúnaðarráðherra
veitir embættið að fenginni
þeirri umsögn. Meginverkefni
veiðistjóra er, eins og kunnugt
er, að hafa umsjón með eyðingu
refa og minka.
„Ghost-
busters“
í Siglufirði
Sigluflrdi 4. janúar.
KVIKMYNDIN „Ghostbust-
ers“ eða „Draugaveiðar" verður
sýnd í Nýja bíói í Siglufirði i
fyrsta sinn nk. sunnudag, en
þar er um Evrópufrumsýningu
að ræða á sama tíma og mynd-
in er sýnd í Stjörnubíói í
Reykjavík.
Fréttaritari.
Sandnes er systurskip Selness, sem myndin er af.
Sandnes - nýtt skip bæt-
ist í kaupskipaflotann
SANDNES heitir nýtt flutningaskip,
sem í gær bættist i kaupskipaflot-
Kjarnfóðurskattur:
Lækkar til kúa og kinda en
hækkar til svína og fugla
UM ÁRAMÓTIN tók gildi ný reglu-
gerð um kjarnfóðurskatt. Lækkaði
gjaldið úr 89% í 60% af tollverði auk
þess sem gjald til ríkissjóðs, sem
nam 1.300 krónum i hvert tonn, féll
niður. í heild lækkaði gjaldið því um
rúm 40 prósentustig, úr rúmum
100% f 60%. Að sögn Gunnars Guð-
bjartssonar, framkvæmdastjóra
Framleiðsluriðs landbúnaðarins, er
talið að hið hia gjald hafi nú nið
tilgangi sínum með þvf að sli i
mjólkurframleiðsluna, auk þess sem
erfiðleikar væru hji bændum sunn-
anlands og vestan vegna lélegra
heyja.
Fé til ráðstöfunar úr kjarnfóð-
ursjóði lækkar sem þessu munar.
Jafnframt falla úr gildi þær regl-
ur sem gilt hafa um endurgreiðslu
kjarnfóðurgjalds til svína-, kjúkl-
inga- og eggjaframleiðenda. Verða
þeir látnir greiða sama gjald og
aðrir kjötframleiðendur og mjólk-
urframleiðendur. Hækkar gjaldið
við það úr 33% í 60%, en teknar
verða upp endurgreiðslur út á
framleiöslu f staðinn. Fram-
kvæmd reglnanna er þó ekki full-
mótuð enn sem komið er, en að
sögn Gunnars er stefnt að því að
aukabúgreinarnar falli undir
framleiðslustjórnun eins og hinn
hefðbundni búskapur og fengju
menn þá kjarnfóðurgjald endur-
greitt á framleiðslu innan bú-
marks.
ann. Er það gert út af Nesskip hf.,
sem gerir út kaupskip, þ.i m. syst-
urskip Sandness, Selnes. Nesskip
tók í gær við hinu nýja skipi í Rott-
erdam. Það mun fyrst um sinn sigla
undir fina Panama, en i því verður
íslenzk iböfn. Skipið er 3.645
brúttórúmlestir með 265.000 rúm-
feta lestarrými. Burðargeta skipsins
er 5.800 lestir.
Skipið er búið margs konar nýj-
ungum, ganghraði er 15 sjómflur á
klukkustund. Það hefur sérstak-
lega styrktan lestarbotn til þess
að geta annast flutninga á þung-
um efnum og losum með kröbbum.
Það var smfðað hjá Appledore
Shipbuilders í Englandi 1975 und-
ir eftirliti og samkvæmt kröfum
Det Norske Veritas eins og syst-
urskipið, ms. Selnes, sem Nesskip
hf. keypti 1979.
Systurskipin munu annast
flutninga á hráefnum fyrir Járn-
blendiverksmiðjuna á Grundar-
tanga og auk þess sigla með farma
milli hafna erlendis eftir aðstæð-
um og flutningaþörf. Á árinu 1984
flutti félagið tæp 200.000 tonn af
hráefnum erlendis frá fyrir ís-
lenzka járnblendifélagið. Vegna
aukinnar framleiðslu járnblendi-
félagsins er flutningsþörf þeirra
um 20% meiri nú en fyrirhugað
var við byggingu verksmiðjunnar
á sfnum tíma. Auk þess hefur út-
flutningur á vikri aukizt hægt og
sígandi og flutti félagið 65.000
rúmmetra af vikri á síðastliðnu
ári.
Skipstjóri á Sandnesi er Þórar-
inn Olafsson og yfirvélstjóri er
Þorsteinn Sverrisson, en hann
hefur siglt með skipinu undan-
farnar þrjár vikur áður en afhend-
ing fór fram, til að kynna sér allan
vélbúnað skipsins og sjálfvirkni.
Önnur skip, sem Nesskip gera út
eru Suðurland, Vesturland og
Akranes.
Kaffibaunainnflutningurinn:
Rannsókn haf in á kaf f i-
innflutningi í Danmörku
SAMKVÆMT beimildum Morgunblaósins telja þeir, sem rannsaka
kaffibaunainnfhitning Sambands íslenskra samvinnufélaga hugsanlegt
að SÍS hafi lagt fram röng skjöl um innflutninginn fyrir Kaffibrennslu
Akureyrar hf. fri Brazilíu og þannig gerst brotlegt við lög um bókhald,
gjaldeyris- og vióskiptamál og verólagseftirlit Við rannsókn þessa máls,
sem frá var greint í Mbl. í gær, hefur einnig komió fram aó vió innflutn-
ing á skóm á vegum Sambandsins hafði innkaupsveróió hækkaó um 25%
frá raunverulegu kaupverði þegar það var skráð á innflutningsskýrshir
fyrirtækisins. Þetta er samkvæmt áreióanlegum upplýsingum, sem Mbl.
hefur aflað sér.
Eins og fram kom i blaðinu i
gær voru fengnar gjaldeyrisyf-
irfærslur vegna kaffibaunasend-
inga frá Brazilíu með tvöföldu
reikningakerfi — þ.e. fyrir
gjaldeyris- og verðlagsyfirvöld
voru lagðir aðrir reikningar en
þeir, sem raunverulega var borg-
að eftir.
Rannsókn á kaffi-
innflutningi í Danmörku
Garðar Valdimarsson, skatt-
rannsóknarstjóri, staðfesti I
samtali við blaðamann Mbl. í
gær, að í Danmörku væri nú haf-
in rannsókn á kaffiinnflutningi
en þar í landi eru höfuðstöðvar
innkaupasambands samvinnu-
sambanda, NAF, sem SÍS er að-
ili að og umboðsmaður fyrir.
Samkvæmt norrænum samning-
um um skattamál og skattaeft-
irlit hefur embætti skattrann-
sóknarstjóra sent dönskum
skattayfirvöldum upplýsingar og
kynnt þá rannsókn, sem hér hef-
ur farið fram á undanförnum
misserum.
{ framhaldi af frétt blaðsins í
gær um að enn hefði um hálf
milljón Bandaríkjadala ekki
skilað sér til gjaldeyrisyfirvalda
hér, eins og áskilið væri með lög-
um, hafði Mbl. samband við Sig-
urð Jóhannesson, forstöðumann
gjaldeyriseftirlits Seðlabanka
Islands. Hann kvaðst ekki vilja
staðfesta tölur þar að lútandi en
sagði að undanfarna áratugi
hefðu engin ákveðin tímamörk
verið sett um gjaldeyrisskil í al-
þjóðaviðskiptum. „Það er talað
um að þetta gerist ekki án óeðli-
legs dráttar en mat á hvað er
óeðlilegur dráttur hefur vafist
nokkuð fyrir mönnurn. Þrátt
fyrir nokkrar umræður hefur
þessu ekki verið breytt," sagði
hann.
Óedlilegur dráttur á
gjaldeyrisskilum
Sigurður sagði aðspurður það
vera sitt mat, að þrjú ár væru
óeðlilegur dráttur á gjaldeyr-
isskilum og jafnvel eitt ár; það
gæti þó farið eftir hvernig málið
væri vaxið. Samkvæmt lögum
um gjaldeyris og viðskiptamál
eru þung viðurlög við brotum á
skilaskyldu, þungar sektir og
jafnvel varðhald auk hugsan-
legrar sviptingar atvinnurétt-
inda og eignaupptöku. Mál af þvi
tagi er farið með að hætti opin-
berra mála.
Rannsókn málsins hefur stað-
ið síðan haustið 1983 og ætti að
Ijúka á næstu vikum, að sögn
Sigurðar Jóhannessonar. „Þetta
er nokkuð mikið mál — mikið
talnaflóð og skjalafjöldi — en ég
giska á að þessu ljúki hér á
næstunni," sagði hann.
Eins og fram hefur komið
hófst rannsóknin með því að af
hálfu skattrannsóknarstjóra
voru dregin af handahófi tíu
fyrirtæki út úr 100 stærstu
fyrirtækjum landsins, þar með
talin Sambandið og Kaffi-
brennsla Akureyrar hf., og farið
nákvæmlega i bókhaldsgögn
fyrirtækjanna. Fljótlega beind-
ist grunur að kaffiviðskiptunum
enda kom snemma I ljós, að
Kaffibrennsla Akureyrar hf.
hafði borgað 16 milljónir dala
fyrir sömu kaffibaunir og Sam-
bandið hafði keypt á 10,5 millj-
ónir.
Svipað innfiutningsverd
hjá Kaaber
Við ákvörðun kaffiverðs, sem
til skamms tima var háð verð-
lagsákvæðum, var um langt ára-
bil stuðst við innflutningsskjöl
frá Kaffibrennslu O. Johnson &
Kaaber, sem lengi hafði verið
leiðandi á þeim markaði hér-
lendis. Þau gögn, sem Kaffi-
brennsla Akureyrar hf. lagði
fyrir verðlagsyfirvöld, höfðu
ekki nema óbein áhrif á verð-
lagningu á kaffi, að þvi er Georg
ólafsson, verðlagsstjóri, sagði i
samtali við blm. Morgunblaðsins
í gær. Innkaupsverð fyrirtækj-
anna beggja var svipað á árun-
um 1979—1981, jafnvel heldur
hærra hjá Kaaber.
En hefði þá ekki afsláttur
kaffiútflutningsráðs Brazilfu til
kaffikaupenda hérlendis átt að
skila sér í smásöluverði til neyt-
enda bæði neytenda Bragakaffis
frá Akureyri og Kaaber-kaffis?
Erlendur Einarsson, forstjóri
Sambandsins, sagði i gær að
kaffiverð hefði verið 30—40%
lægra hér en t.d. á Norðurlönd-
um á þessum árum en visaði að
öðru leyti til fréttatilkynningar
Sambandsins, sem birt er á bls.
12 í blaðinu i dag. Ólafur ó.
Johnson, forstjóri O. Johnson &
Kaaber, sagðist i samtali við
blaðamann Mbl. telja að afslátt-
ur Brazilíumanna hefði lækkað
kaffiverð hér. Hann kvaðst ekki
vilja svara fyrir Sambandið,
engar athugasemdir hefðu verið
gerðar við útreikninga Kaaber,
sem hefðu farið rétta boðleið til
verðlagsyfirvalda.
Önnur rannsókn?
En var þá ekki afsláttur Braz-
ilfumanna til Kaaber verulegur
ekki siður en Sambandsins? „Ég
get ekki svarað fyrir Sambandið.
Eg veit ekki hvaða afslátt þeir
hafa fengið í gegnum NAF, sem
er með stærri kaffikaupendum í
heiminum. Bónusar hafa verið f
ýmsu formi, misháir eftir magni.
Mér er ókunnugt um hvaða kjör-
um aðrir hafa verið á, en það er
réttast að spyrja verðlagsstjóra
um hvort afslátturinn hefur
skilað sér í verði til neytenda,“
sagði Ólafur ó. Johnson.