Morgunblaðið - 05.01.1985, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.01.1985, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1985 17 hljómplðtufyrirtækjum, ef tónlist- aróskir þeirra og gjaldskrár eru á annað borð við hæfi Sinfóniu- hljómsveitar tslands. Ég get ekki nógsamlega mælt með því, að Sin- fóníuhljómsveitin taki þetta skref, en þá auðvitað að því tilskildu, að áöurnefndum atriðum í starfs- háttum og listrænni stefnu- mörkun hljómsveitarinnar hafi fyrst verið kippt í lag. Leiðir út úr ógöngunum Sem lækningu á meinum Sin- fóníuhljómsveitar íslands myndi ég stinga upp á því, að allt fyrir- komulag varðandi stjórnun á rekstri hljómsveitarinnar verði gert miklu einfaldara og hag- kvæmara. Stjórnarnefnd hljóm- sveitarinnar ætti þegar í stað að setja hljómsveitinni jafnt almenn sem og listræn markmið er stefnt skuli að — þ.e.a.s. að skera úr um þýðingarmikil atriði varðandi auknar skyldur hljómsveitarinnar (fjölda tónleika og uppistöðu þeirra), stærð hljómsveitarinnar, áætlanir um hljómleikaferðalög bæði innanlands og utan, áætlaðar hljóðritanir, gæðamörk í flutningi tónlistar, almenn markmið með verkefnaskrá starfsársins (að leik- in verði þetta mörg íslenzk tón- verk, þetta mörg erlend almenn viðfangsefni, þetta mörg 20. aldar tónverk). Öll þessi atriði ættu að öllu leyti að vera í höndum stjórn- arnefndar hljómsveitarinnar og vera ákveðin af henni en engum öðrum. Þessi nefnd ætti einnig að gegna því hlutverki að miðla mál- um milli hljómsveitarinnar og utanaðkomandi aðila þegar þess gerist þörf. í sem stystu máli sagt ætti stjórnarnefnd hljómsveitar- innar að annast stjórnun á mál- efnum Sinfóníuhljómsveitarinnar, sem bæði felur í sér, að nefndin taki að fullu á sig ábyrgðina og þær skyldur sem henni eru lagðar á herðar. Þessi stjórnarnefnd ætti að veita stjórnanda hljómsveitarinn- ar (hér er orðið stjórnandi notað fyrir það sem nefnt er „music dir- ector“ á ensku og nær í senn yfir starf hljómsveitar- og tónlistar- stjóra), skýrt afmarkað umboð til ákvarðanatöku á sínu verksviði. í þessu starfsumboði ætti að vera tekið fram, hvernig áætlað sé að hljómleikahaldi hljómsveitarinn- ar verði háttað á starfsárinu (þ.e. lengd verkefnaskrár hverju sinni og meginuppistaða) og gera hon- um í grófum dráttum grein fyrir flokkun þeirra verkefna, sem ætl- ast sé til að hljómsveitin flytji á starfsárinu. Þá þarf nefndin að setja fram ákveðin gæðamörk fyrir flutning hljómsveitarinnar á tónverkum. Þegar stjórnandinn svo hefur fallizt á þennan lauslega afmarkaða ramma fyrir tónlistar- flutning hljómsveitarinnar á starfsárinu, ætti hann að vera lát- inn einn um að koma þeim málum í höfn. Ef honum hefur hins vegar, að nokkrum tíma liðnum, greini- lega mistekist framkvæmd þeirra mála, er honum voru falin, þá er ekkert annað að gera en að taka því; það verður þá annar ráðinn í stað hins. Meðan á sjálfum reynslutímanum stendur, ætti í engu að hrófla við kerfinu, heldur láta það starfa áfram, án nokk- urra utanaðkomandi truflana. Að mínu áliti er engin þörf á sérstakri verkefnavalsnefnd. Ég fæ ekki séð, af hverju 65 manna hópur geti ekki gert grein fyrir sínum óskum, þannig að hver sá meðlimur hljómsveitarinnar, er þess æskir komi einfaldlega sjálf- ur að máli við stjórnandann og láti óskir sínar um verkefnaval í ljós við hann. Ef hljóðfæraleikar- arnir hafa ekki uppburð í sér til þess að gera þetta, þá kann það ef til vill að stafa af því, að þeir séu ekki raunverulega að öllu leyti ásáttir við sína eigin skoðun á þessum efnum. Ef þeir hins vegar trúa ekki fyllilega á réttmæti sinnar eigin skoðunar, hvers vegna ætti þá að hvetja þá sér- staklega til þess að láta hana í ljós — er það eingöngu af því að slík ósk um verkefnaval er borin fram af ónafngreindum aðila hljóm- sveitarinnar? Verði þessi verkefnavals-nefnd Sinfóníuhljómsveitarinnar látin víkja, myndi sjálf ábyrgðin á vali tónverka til flutnings líka færast ótvírætt yfir á einn aðila, en með þvi fyrirkomulagi fengist aftur á móti viðhlítandi stoð við að meta á réttan hátt frammistöðu hljóm- sveitarinnar á tónleikum. Starfsmannastjórn Sinfóníu- hljómsveitarinnar ætti eingöngu að starfa sem kvörtunarnefd; fjöldi þeirra funda, sem hún held- ur og lengd þeirra er bein vísbend- ing um sálarástand það, sem ríkj- andi er með hljómsveitinni — það gefur því auga leið, að því færri sem fundir starfsmannastjórnar- innar eru, þeim mun heilbrigðari er stofnunin. Framkvæmdastjóri Sinfóníu- hljómsveitarinnar ætti að sjá um daglegan rekstur hljómsveitarinn- ar og hafa öll atriði nákvæmlega skipulögð að minnsta kosti 9 mán- uðum áður en starfsár hljómsveit- arinnar hefst — það er að segja áður en hljómsveitin heldur sína fyrstu tónleika á starfsárinu. Framkvæmdastjórinn ætti ekki að skipta sér af ákvörðunum er varða listræna stefnumörkun hljóm- sveitarinnar eða verkefnaval hennar. Hann á að annast fram- kvæmdastjórnina. ★ Svo að aftur séu tekin saman í sem stystu máli þau atriði, sem ég hefi hér viljað koma á framfæri: Stjórnarnefnd farkostsins tekur ákvarðanir varðandi ýmsa fasta þætti í rekstrinum (ákveður stærð skipsins, hvers konar farmur skuli lestaður, almennar siglingaleiðir — frá A til B með viðkomu í Q), og hún velur skipstjórann. Skipstjór- inn gefur svo beinar fyrirskipanir eða stjórnar sem sagt, og störf hans eru metin út frá því, hversu vel eða illa menn álíta að honum hafi tekizt til á starfsferli sínum, sem enginn annar hefur þó gert tilraun til að skipta sér af eða trufla á annan hátt gang mála fyrir honum. Forstjóri fyrirtækis- ins sér um, að skipunum sé hlýtt og þær framkvæmdar. Fyrir hendi er visst kvörtunarkerfi, þannig að áhöfnin geti sem heild komið áhyggjum sínum og aðfinnslum áleiðis til skipstjórans (sé þörf á) og síðar til stjórnarnefndarinnar, ef ekkert hefur gerzt í þeim mál- um, sem kvartað var undan. Það eru nægilega mörg vel rekin fyrir- tæki starfandi hér á landi, til þess að menn ættu að kannast við af eigin raun, hvernig réttu og virku rekstrarfyrirkomulagi er háttað í reynd. Það getur naumast talizt sér- lega arðvænlegt, fjárhagslega séð, að hafa hljóðfæraleik að ævi- starfi. En að þurfa að þola bæði þröngan fjárhag og finna ekki einu sinni fyrir eðlilegri andlegri fullnægingu í starfi sínu á lista- sviðinu eins og mjög margir af hljóðfæraleikurum Sinfóníu- hljómsveitarinnar mega þola, er einfaldlega ómögulegt ástand og óverjandi. Það má því ekki láta það lengur viðgangast að þetta ástand haldist. Starfstilhögun á borð við þá, sem ég hefi rætt lítil- lega hér að framan myndi reynast jafn vel á listasviðinu eins og hún gerir á sviði viðskipta. Það verða að kallast góð býti að láta það sýndarlýðræði, sem núna ríkir innan Sinfóníuhljómsveitar íslands, fyrir róða en fá í staðinn fram skýrt markaða hlutlæga stefnu í rekstri og listsköpun hljómsveitarinnar. Það myndi leiða til þess, að með hljómsveit- inni skapaðist eðlilegur metnaður í starfi og menn hefðu fulla vitn- eskju fyrir því, að þeir væru i starfi sínu að vinna að því að ná veigamiklum áföngum. Paul Zukoísky er fíðluleikari, hljómsyeitarsljórí og kennari í Bandaríkjunum. Hann hefur lagt verulegan skerf til íslensks tónlist- arlífs sem leiðbeinandi og stjórn- andi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.