Morgunblaðið - 15.01.1985, Page 14

Morgunblaðið - 15.01.1985, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANtfAR 1985 Fossvogsbrautin og borgarstjóri — eftir Richard Björgvinsson í DV 4. janúar sl. birtist viðtal við Davíð Oddsson, borgarstjóra. Aðspurður um framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar á þessu ári segir borgarstjóri m.a. „Lagn- ing hraðbrautar um Fossvogs- dalinn er ágreiningur á milli sveitarfélaganna sem mér finnst ómaklegt. Reykjavíkurborg var búin að láta Kópavog fá endur- gjaldslaust 30 hektara eða svo fyrir það að brautin yrði lögð þarna. Síðan þegar búið er að byggja á þeim hekturum á að ganga á bak þessa þáttar sam- komulagsins. Slíkt getur auðvitað ekki gengið. Umferðarforsendur okkar sýna að Fossvogsbrautin er óhjákvæmileg. Menn þurfa að horfast í augu við þann veruleika. Það má sameina hraðbrautina, hugsanlega niðurgrafna, og úti- vistarsvæði í Fossvogsdalnum sem mörgum er umhugað um.“ Þarna fer borgarstjóri nokkuð frjálslega með staðreyndir gagn- vart okkur Kópavogsbúum. Þetta eru kannski bara ærsl í honum, en hann þarf þá að fá tiltal fyrir þau. Ég get ekki látið hjá líða að leið- rétta ögn þessi ummæli vinar míns og flokksbróður Davíðs Oddssonar borgarstjóra. Hinsveg- ar harma ég, að ráðamenn Reykjavíkurborgar og Kópavogs skulu þurfa að ræða þessi mál í fjölmiðlum en ekki sín á milli. Samkomulag það, sem borgar- stjóri vitnar til er samningur milli Kópavogs og Reykjavíkur dagsett- ur 9. október 1973 og undirritaður af Birgi ísl. Gunnarssyni, þáver- andi borgarstjóra, og Björgvin heitnum Sæmundssyni, þáverandi bæjarstjóra í Kópavogi. Saming- urinn fjallar fyrst og fremst um makaskipti á löndum og þar af leiðandi breytingar á lögsagnar- umdæmum og einnig um Fossvogsbraut. Til þess að ganga hreint til verks er best að birta hér samn- inginn í heild, þá geta þeir er áhuga hafa lesið hann sjálfir án túlkunar af minni hálfu. Samkomulag milli Reykjavíkurborgar og Kópavogskaupstaðar um breyt- ingu á mörkum kaupstaðanna o.fl. 1. gr. Aðilar eru sammála um að leita lagaheimildar til breytingar á mörkum kaupstaðanna, þannig að mörkin verði í samræmi við hjá- lagðan bráðabirgðauppdrátt, dags. 13.8. 1973, þ.e.a.s. í stórum drátt- um sem hér segir: Meðfram Reykjanesbraut að vestan, suður yfir Breiðholtsbraut, en sunnan við hana verða þau sunnan og austan við Reykjanesbraut. Á Sel- hrygg færast mörkin til vesturs og suðurs. Á mörkum frá Reykja- nesbraut að Markakiett (H) skal vera óbyggt svæði fyrir gönguleið- ir o.fl., 24—50 m breitt Reykjavík- urmegin við mörkin. 2. gr. I framhaldi af þessu samkomu- lagi munu fulltrúar aðila ákveða mörkin skv. hnitakerfi landmæl- inga og færa inn á uppdrátt ná- kvæmlega. Jafnframt munu full- trúar aðila ganga frá lagafrum- varpi í samræmi við samkomulag þetta. 3. gr. Reykjavíkurborg lætur Kópa- vogskaupstað í té kvaðalaust og án endurgjalds land það, er lendir vestan Reykjanesbrautar. 4. gr. Reykjavíkurborg sér sjálf um kaup á landi á Selhrygg, en það tilheyrir Fífuhvammi. 5. gr. Ákvörðun um breytingu á mörk- um kaupstaðanna í Fossvogsdal MWBORQs^ Lækjargata 2 (Nýja Bíó-húsinu) 5. hæö. Símar: 25590 — 21682. Ath.: Opið virka daga frá kl. 9—21 Laugardaga og sunnudaga frá kl. 12—18 2ja herb. Dalsel 2ja herb. á 1. hæö. Fremur litil en snotur ib. Verö 1250 þús. Laus strax. Höfum kaupendur aö 2ja og 3ja herb. íb. i miöbænum, vesturbænum og Breiöholti. Mjög góöar greéöslur i boöi. Óskum eftir ibúöum sem þarfnast standsetningar á höfuöborgarsvæöinu. Góöar greiöslur I boöi. 3ja herb. Rofabær Falleg íbúö á 2. haaö. Góöar innréttingar. Akv. sala Verö 1750 þús. Engihjalli Stórglæsileg íbúö á 6. hæö. Sórlega vandaöar innréttingar. íbúö i sérflokki. Verö 1850-1900 þús. Einarsnes - bílskúr Sérhæö, ný standsett, þrjú svefnherb., stór stofa. Verö 1950 þús. Blöndubakki 4ra herb. á 2. hæö. Lagt fyrir þvottavél á baöi Góö ibúö. Verö 2100 þús. Hátún 3ja herb. kj.ib. með sérinng. Ný teppi á góifum. Stór geymsla i Ib. auk kj.geymslu. 50% útb. Verð 1500 þús. Álfhólsvegur Kóp. Ca. 76 tm 2. hæö. Verö 1800 þús. Höfum fjársterka kaupendur aö þriggja herb. ibuöum I vestur- eöa austurbæ Reykjavíkur. 4ra herb. Kambasel 4ra herb. ný íbúö, ekki fullfrágengin. Eldhúsinnr komin. Verö 2,2 millj. Vesturberg 4ra herb. á jaröhaað Sér garöur. Einstaklega rúmgóö og bjðrt ibúö. Stór barnaherb. Keöjuhús Hvammar Glæsilegt keöjuhús meö innbyggöum bilskúr. Sérlega vandaöar innréttingar. Húsiö er ca. 280 fm á 2 hæöum, sem skiptist i stofu og herbergi á efrl hæö og sjónvarpsskala ásamt húsbóndaherb. á neöri hæö. Sérlega vönduö elgn. Verö 5 millj. Möguleiki á skiptum á minni eign. Höfum fjársterka kaup- endur aö 4ra herb. íbúðum í Seljahverfi og Kópavogi. Óvenjugóðar greiöslur í boöi. Fjöldi einbýliahúsa, raö- húsa, sérhæöa auk smærri eigna i skrá. Hringiö og leitið nánari upplýsinga. Utan- bæjarfólk athugið okkar þjónustu. Laskjargata 2, (Nýja Bióhúslnu) 5. hæó. Sfmar: 25590 og 21682. Sverrir Hermannscon. Guömundur Hauksson. BrynjóHur Eyvindeson hdl. verði skotið á frest um 2 ár. Aðilar eru sammála um að nota þennan frest til eftirfarandi: a) Endurskoðunar á umferðar- kerfi höfuðborgarsvæðisins og þá sérstaklega til athugunar á nauðsyn Fossvogsbrautar. Að þeim þætti endurskoðunarinn- ar skulu báðir aðilar standa. b) Með hvaða hætti megi gera Fossvogsbraut, ef nauðsynleg reynist, þannig úr garði, að hún valdi sem minnstri röskun á umhverfi Fossvogsdals. c) Athugunar á samtengingu úti- vistarsvæða kaupstaðanna í dalnum, þar með tengingu skógræktarstöðvar Skógrækt- arfélags Reykjavíkur við fyrir- hugað útivistarsvæði Kópa- vogskaupstaðar í landi Lundar. 6. gr. Leiði endurskoðun á umferðar- kerfi höfuðborgarsvæðisins skv. 5. gr. 1) í ljós að nauðsynlegt reynist að ráðast í gerð Fossvogsbrautar, þ.e., að í ljós komi, að ekki finnist aðrar viðunandi lausnir á umferð- arkerfi höfuðborgarsvæðisins að dómi beggja aðila, skulu eftirfar- andi ákvæði gilda: Suðurbrún Fossvogsbrautar verði mörk kaupstaðanna. Þegar til framkvæmda kemur, þó eigi fyrr en að 4 árum liðnum frá dag- setningu samkomuiags þessa, iæt- ur Kópavogskaupstaður Reykjavík í té kvaðalaust og án endurgjalds land það, er hann á í Fossvogsdal, og lendir innan marka Reykjavík- ur skv. samkomulagi þessu. Um Meltungu skal þó sá háttur hafður, að hvor aðili um sig greiði iand og mannvirki, sem innan marka hans lenda. 7. gr. Aðilar eru sammála um, að stærð þess lands, sem um ræðir í samkomulagi þessu, sé sem hér segir: Skv. 3. gr. ca. 30,6 ha. Skv. 4 gr. ca. 33,7 ha. 8. gr. Nú rís ágreiningur um fram- kvæmd á samningi þessum, og skal hann þá lagður fyrir gerðar- dóm, skipaðan einum fulltrúa frá hvorum aðila. Ef þeir verða sammála, gildir niðurstaða þeirra, en að öðrum 43466 Vantar - 2ja herb. Vantar - 3ja herb. Þverbrekka - 2ja herb. 60 fm á 7. hæð. Vestursvalir. Hamraborg - 3ja herb. 87 fm á 3. hæð. Parket á gólfum Suðursvalir. Laus strax. Álfhólsv. - 3ja herb. 80 fm á 1. hæð f fjórbýli. Aukaherb í kj. Engihjallí - 4ra herb. 115 fm á 2. hæð. Suðursvalir. Mikið útsýni. Bólstaóarhl. - 4ra herb. 113 fm á 3. hæð. Suðursvalir. Nýtt gler. Nýbýlav. - sérhæö 140 fm á 2. hæð í tvibýli. 4 svefn- herb. Suðursvalir. Bilskúr. Einkasala. Dalaland - 5-6 herb. 130 fm á 2. hæð. Suöursvalir. Bilskúr. Einkasala. Álfatún - einbýli 400 fm alls. Fokhelt. Til afh. strax. Mögul. að hafa tvær ib. Stór bilskúr. Kirkjulundur - einbýli Einbýli á tveimur hæðum. Efri hæð 160 fm með 5 svefnherb., stofu og boröstofu. Möguleiki á litilli ibúð á neöri hæð. Tvöf. bílskúr með gryfju. Keflavík - verslun Stórmarkaöur til sölu. Uppl. aöeins á skrifst. Fasfeignasalan EIGNABORG sf. Hamraborg 5 - 200 Kópavogur Sólum. Jóhann Hátfdánaraon, hs. 72057. Vilhjálmur Einarsson, hs. 41190. Þórólfur Kristján Beck hrl. Richard Björgvinsson „Eins og sjá má í samningnum fjallar hann fyrst um maka- skipti á löndum. Reykjavíkurborg lét Kópavogskaupstað fá kvaðalaust og án endur- gjalds 30,6 hektara lands vestan Reykja- nesbrautar. Reykja- víkurborg átti þetta land, sem stór hluti Smiðjuhverfisins var byggður á. Hinsvegar samþykkti Kópavogskaupstaður einnig þá breytingu á lögsagnarumdæmum kaupstaðanna, að til Reykjavíkurborgar féllu 33,7 hektarar lands úr landi Fífuhvamms á Selhrygg, þar sem stór hluti Seljahverfis var byggður.“ kosti skal dómkvaddur oddamaður af Hæstarétti og ræður þá meiri- hluti. Úrskurði gerðardóms verður ekki áfrýjað. Reykjavík, 9. október 1973. F.h. Revkjavíkurborgar, Birgir ísl. Gunnarsson. F.h. Kópavogskaupstaðar, Björgvin Sæmundsson. Eins og sjá má í samningnum fjallar hann fyrst um makaskipti á löndum. Reykjavíkurborg lét Kópavogskaupstað fá kvaðalaust og án endurgjalds 30,6 hektara lands vestan Reykjanesbrautar. Reykjavíkurborg átti þetta land, sem stór hluti Smiðjuhverfisins var byggður á. Hinsvegar samþykkti Kópa- vogskaupstaður einnig þá breyt- ingu á lögsagnarumdæmum kaup- staðanna, að til Reykjavíkurborg- ar féllu 33,7 hektarar lands úr landi Fífuhvamms á Selhrygg, þar sem stór hluti Seljahverfis var byggður. Þetta land var þá í einkaeign, tilheyrði jörðinni Fífu- hvammi í Kópavogi og Reykjavík keypti landið af eigendunum skv. mati dómkvaddra manna. Á þetta seinna atriði minntist borgar- stjóri hinsvegar ekkert í viðtali sínu við DV. Nú kann einhver að segja, að þarna sé ójafnt skipt, annars veg- ar land látið kvaðalaust og hins vegar komi matsverð fyrir land og Reykjavíkurborg hafi samið af sér eða verið óvenju lipur við Kópa- vog. Ég átti ekki sæti í bæjar- stjórn Kópavogs þegar þessi samningur var gerður, en mér er kunnugt um, að Kópavogskaup- staður hafði mjög góða samn- ingsaðstöðu, Reykjavík hafði mikla þörf yrir landið á Selhrygg og sagt hefur mér verið, að Reykjavíkurborg hafði áður en til samninga kom milli bæjanna ver- ið búin að láta skipuleggja þetta land, sem þá var í Kópavogi, og jafnvel úthluta a.m.k. einhverjum lóðum, og hafði því mikla þörf fyrir landið, varð að fá það. Það er hinsvegar öruggt, að þessi skipti voru líka hagkvæm fyrir Reykja- vík. Það var hagkvæmara að stækka Seljahverfið með þessu iandi heldur en að þurfa að fara að taka nýtt land á öðrum stað til bygginga. Um iagningu Fossvogsbrautar var tii annað eldra samkomulag, frá árinu 1967 að því er ég best veit, samkvæmt því voru „skyld- ur“ Kópavogs ríkari til að láta land undir brautina. Með sam- komulaginu frá 1973 minnkuðu þessar „skyldur" til muna, en ekki öfugt. Bins og menn sjá af sam- komulaginu frá 1973 var breyting- um af mörkum kaupstaðanna í Fossvogsdal skotið á frest um 2 ár og þar með ákvörðun um Foss- vogsbraut. Síðan eru hinsvegar liðin rúm 11 ár og því eðlilegt að almenningur spyrji hvað hefur í raun gerst á þessum árum. Svarið er reyndar að næsta lítið hefur gerst. Það er alveg rétt hjá borgar- stjóra, að ágreiningur er uppi á milli sveitarfélaganna um lagn- ingu Fossvogsbrautar. Sá ágrein- ingur var líka til staðar 1973 þeg- ar samkomulagið síðasta var gert. Bæjarstjórn Kópavogs er andvig lagningu brautarinnar, aliir 11 bæjarfulltrúarnir frá öllum flokk- um, sem þar eiga fulltrúa. Á kjörtímabilinu 1974—78 var haldinn einn fundur fulltrúa sveit- arfélaganna um þetta mál. Þar lögðu fuiltrúar Reykjavíkurborgar fram sínar niðurstöður um iagn- ingu brautarinnar, sem þeir vildu ákveða að leggja. Sá galli var hinsvegar á, að engar forsendur, sem snertu aðstöðu og hagsmuni Kópavogs, voru með inni í dæm- inu. Samkvæmt samkomulaginu skal sú niðurstaða, að nauðsynlegt verði að ráðast í gerð Fossvogs- brautar, ef hún fæst, vera að dómi beggja aðila, þ.e. Reykjavíkurborg- ar og Kópavogskaupstaðar. Náist ekki samkomulag skv. þessum samningi skal ágreiningurinn lagður fyrir gerðardóm. Svo báðir aðiiar eru að sjálfsögðu bundnir af samkomulaginu og þessari deilu verður að ljúka á einn eða annan veg á lögformlegan hátt. Áð dómi okkar Kópavogsbúa hefur mörgum forsendum fyrir lagningu Fossvogsbrautar verið breytt af hálfu Reykjavíkurborg- ar, en út í það ætla ég ekki að fara, það yrði of langt mál, en ein af þeim helstu er friðun Elliðaár- dalsins og þar með lokun fyrir vegagerð þar. Borgarstjóri segir líka í viðtali sínu við DV, að umferðarforsendur okkar, þ.e. Reykjavíkurborgar, sýna nauðsyn Fossvogsbrautar. Hinn 12. apríl 1983 gerði bæj- arráð Kópavogs samþykkt um að óska eftir viðræðum við skipulags- yfirvöld í Reykjavíkurborg um Fossvogsbraut. Þessari málaleitan hefur borgin ekki svarað til þessa. Richard Björgrinsson er bæjar- fulltrúi Sjálfstædisflokksins í Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.