Morgunblaðið - 15.01.1985, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1985
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Blaðamaður
Sam-útgáfan óskar eftir aö ráöa blaöamann
til starfa viö tímaritin Hús & Híbýli, Samúel og
Lúxus.
Umsækjendur hafi samband viö ritstjóra í
síma 83122, í dag og á morgun.
CAM ÚTGÁFAW
H*ALEITISBRAUT 1 • 105 REYKJAVlK • SlMI 83122 JL ”
Framkvæmdastjóri
Fiskvinnslustöö á Vestfjörðum vill ráöa fram-
kvæmdastjóra, sem getur hafið störf á næstu
mánuöum.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Morgun-
blaösins merktar: „P — 104“ fyrir 25. jan. nk.
Múrarar atvinna
Óska eftir múrurum í góöa mælingavinnu
strax. Uppl. eftir kl. 19.00 í síma 72654.
Gylfi og Ómar Héöinsson, múrarameistarar.
Danskur 32ja ára
gamall maður
meö háskólagráöu í örverufræöi, leitar eftir
atvinnu. Talar ensku, frönsku, þýsku og skil-
ur sænsku og norsku. Er aö læra íslensku.
Margt annaö kemur til greina, en helst viö
tungumál — t.d. bréfaskriftir.
Hafiö samband viö:
Per Berggreen,
Karlagötu 14, 105 Reykjavik,
sími 13817.
Sjúkraþjálfarar
óskast
Viö óskum að ráöa sjúkraþjálfara til starfa nú
þegar eöa síðar.
Upplýsingar um launakjör, vinnutíma o.fl.
veitir Jónína Guömundsdóttir, forstööukona.
Endurhæfinastöö
Styrktarfélags lamaöra og fatlaöra,
Háaleitisbraut 13. S: 84999.
Þurfum að ráða
eftirtaliö starfsfólk til starfa hjá fyrirtæki, sem
staösett er í Garðabæ:
1. Gjaldkera. Starfssviö hans er varsla sjóös
og umsjón meö innheimtu á reikningum.
2. Lagermann. Starfssviö: almenn lagerstörf.
Umsóknareyöublöð liggja frammi hjá
starfsmannastjóra er veitir nánari upplýs-
ingar. Umsóknarfrestur er til 20. þ. mánaðar.
SAMBANO ÍSL.SAMVINNUFÉIA6A
STARFSMANNAHALO
Lindargötu 9A
Sölustörf
Viö viljum ráöa sölumenn eöa konur í auka-
störf. Hafir þú góöa reynslu, áhuga og vilt
reyna fyrir þér í sölustarfi, bjóöum viö þér
tækifæri til að skapa þér eigin tekjur. Þú
þarft að hafa eigin bíl.
Uppl. um aldur, fyrri störf og reynslu sendist
til augl.deildar Mbl. fyrir 18. janúar merktar:
„Góö laun — 3731“.
Atvinna
Rúmlega fertug kona óskar eftir atvinnu hálf-
an eöa allan daginn. Margt kemur til greina.
Hef unnið viö afgreiöslustörf og uppeldis-
störf.
Allar nánari upplýsingar í síma 46790.
Saumastörf
Óskum eftir aö ráöa saumakonur til starfa
strax. Bónusvinna.
Upplýsingar í verksmiðjunni.
Vinnufatagerö íslands hf.
'Þverholti 17, sími 16666.
Háskóli íslands
óskar að ráöa eftirtalið starfsfólk:
Fulltrúa í hálft starf viö námsbraut í sjúkra-
þjálfun. Þarf aö geta starfað sjálfstætt.
Skrifstofumenn í hálf störf. Góð vélritunar-
og tungumálakunnátta nauösynleg.
Skrifstofumann í rúmlega hálft starf til aö
annast símavörslu, vélritun og færslu
spjaldskrár í tannlæknadeild.
Laun skv. launakerfi opinberra starfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun,
aldur og fyrri störf sendist skrifstofu Háskóla
íslands fyrir 23. janúar nk.
Óska eftir
atvinnu fyrir hádegi.
Áhuga- og reynslusviö: þýöingar, bréfaskrift-
ir og önnur skrifstofustörf, almannatengsl.
Tilboð merkt „Sjálfstæö — 1967“ sendist
blaöinu fyrir 19. janúar.
BORGARSPÍTALINN
LAUSAR STÚÐUR
Sjúkraliðar
Lausar eru stööur sjúkraliða á öldrunardeild
B-5 og B-6, Hafnarbúöum og Hvítabandi í
fullt starf og hlutastarf.
Uppl. eru veittar á skrifstofu hjúkrunarfor-
stjóra í síma 81200 milli kl. 11 og 12.
BORGARSPniUJNN
0 81-200
Mötuneyti
Ráöskona óskast til starfa sem fyrst.
Starfssvið: Dagleg umsjón með mötuneyti
fyrirtækisins.
Skriflegar umsóknir með uppl. um fyrri störf
sendist til skrifstofu fyrirtækisins fyrir 18.
janúar nk.
OSIA-OG
SMIÖRSALAN SE
Bitruhálsi 2 — Reykjavík — Síml 82511
Sölustarf
Óskum eftir að ráöa sölumann, karl eöa
konu, til sölu á almennum skrifstofuvélum og
tækjum.
Viö leitum aö röskum samviskusömum
manni, er hefur prúöa en ákveöna framkomu
og á auðvelt meö aö starfa sjálfstætt.
Nánari upplýsingar hjá sölustjóra Pétri Aðal-
steinssyni. Ekki í síma.
^*'c»e.
I SKRIFSTOFUVÉLAR hT
cA 4- =
+
Hverfisgolt' 33
Simi 20560 Pósthólf 377
Sendisveinn óskast
Óskum aö ráöa sendisvein til starfa hluta úr
degi. Æskilegt er aö viökomandi hafi vélhjól
og geti hafið störf nú þegar eöa sem fyrst.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartuni 7. simi 26844
Skrifstofustarf
Vantar starfskraft í heilsdagsstarf á skrif-
stofu. Almenn skrifstofustörf.
Eiginhandarumsóknir er greini frá aldri,
menntun og fyrri störfum óskast send til
augl.deildar Mbl. fyrir 20. þ.m. merktar:
„PÁ — 2060“.
Byggingavörur
Kona eöa karlmaöur óskast til starfa í bygg-
ingavöruverslun. Æskilegur aldur 20—35 ár.
Reynsla æskileg en lipurö og áreiðanleiki
skilyröi. Góð laun í boöi fyrir góöan starfs-
kraft.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
sendist Morgunbiaöinu fyrir 18. janúar
merktar: „B — 0435“.
Prentari —
Bókbindari
Ríkisprentsmiðjan Gutenberg getur bætt við
sig starfsfólki í neöangreind störf:
1. Offsetprentara.
2. Aöstoöarmann í prentsal.
3. Bókbindara eöa mann sem vill læra bók-
band.
Upplýsingar veita verkstjórar viökomandi
deiida (ekki í síma).
Ríkisprentsmiöjan Gutenberg,
Síðumúla 16—18.
Vélstjórar
Vélstjóri óskast á togarann Apríl.
Upplýsingar í síma 53366.
Bæjarútgerö Hafnarfjaröar.
Atvinna
Starfsfólk óskast í eftirtalin störf:
1. Aöstoöarmann á sníöastofu.
2. Stúlkur á bræðsluvélar, í regnfatadeild.
3. Vanar saumakonur í sportfatadeild.
Uppl. í síma 12200 eöa á vinnustaö.
CKD
SEXTÍU OG SEX NORÐÚR
Sjóklæöageröin hf.,
Skúlagata 51, Reykjavík. S. 12200—11520.
„Hreinleg kona“
óskast til þrifa 1—2 sinnum í viku.
Tilboð er tilgreinir nafn, símanúmer og kaup
sendist afgreiöslu blaösins fyrir 27. janúar
merkt: „Garðabær — 369“.
Starfskraftur
óskast í snyrti- og gjafavöruverslun í miö-
bænum strax. Æskilegur aldur 24—40 ár.
Vinnutími fyrir hádegi frá kl. 9—14.
Umsóknir er greini aldur og fyrri störf sendist
augl.deild Mbl. fyrir 17. janúar merktar:
„HE — 2592“.