Morgunblaðið - 15.01.1985, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1985
Sterkari sjálfsmynd
í tilefni bókar Waynes W. Dyer, „Elskaðu sjálfan þig“
Eftir Hannes
HUmarsson
Sé minnst á sálfræði dettur víst
flestum í hug Freud og sálkönnun.
En fleiri stefnur eru til innan
sálfræðinnar. Ein slík nefnist
raunveruleikastefna (reality ther-
apy). Helstu einkenni þessarar
stefnu eru:
— Að einstaklingurinn taki
ábyrgð á sér.
— Að orsaka togstreitu sé ekki að
leita í dulvitundinni.
— Ekki er tekið tillit til fortíðar-
innar og afneitað er að hún hafi
áhrif á nútíðina.
— Að einstaklingurinn uppfylli
sínar þarfir. Fyrir um ári síðan
kom út bók sem nefnist „Elskaðu
sjálfan þig;“ eftir sálfræðinginn
Wayne W. Dyer. Þessi bók byggir
að miklu leyti á raunveruleika-
stefnunni. Bókin er í 12 köflum og
segir höfundurinn að hver kafli sé
eins og tími í sálfræðilegri ráð-
gjöf, til að auðvelda sjálfsnám.
Það sem gengur í gegn um bók-
ina eins og rauður þráður eru
einkum 4 þemu:
— Elskaðu sjálfan þig fyrst.
— Fortíðin er liðin og verður ekki
breytt.
— Þú berð ábyrgð á sjálfum þér.
— Þú hefur val.
Öll framsetning bókarinnar er
skýr og aðgengileg, en bókin er
ágeng og stendur lesandann víða
að verki og krefst oft sjálfskönn-
unar. Mikill fjöldi dæma er í bók-
inni, bæði úr daglegu lífi og úr
meðferðarstarfi. Dæmi um viður-
kenningarleit, það að vera háður
fortíðinni. Dæmi um sektarkennd
og áhyggjur, óttann við hið
óþekkta og dæmi um venjubundið
atferlisform. Dæmi um réttlæt-
iskröfuna, um frestunarferli, um
ósjálfstæði og um reiði. Lýst er vel
sálfræðilegum ávinningum þess
að velja framangreindar leiðir, en
í stuttu máli má segja að ávinn-
ingurinn sé: óvirkni, ósjálfstæði
og stöðnun. Síðan er bent á nýjar
leiðir nýtt val, sem tryggja þér
virkt, sjálfstætt og þroskandi líf.
Lítum nánar á innihald þessarar
bókar.
Aö taka ábyrgö
á sjálfum sér
Heilbrigði er eðlilegt ástand og
afleiðing þíns vals. Tilgangur lífs-
ins er að vera þú sjálfur, til þess
þarft þú að bera ábyrgð á hugsun-
um þínum og um leið tilfinning-
, 1
Hannes Hilmarsson
„Góö venja er aö vera
sveigjanlegur. Boð og
bönn hindra eðlilegt og
virkt atferli. I>ú lætur
stjórnast að utan, ef þú
berö ekki ábyrgö á til-
finningum þínum.“
um. Þú ert þinn eigin förunautur
24 tíma á sólarhring. Því ert þú
mikilvægasti maðurinn í þínu lífi.
Elskaðu sjálfan þig, en ekki í eig-
ingjörnum tilgangi, heldur til að
njóta lífsins og elska aðra. Þú
stjórnar hugsunum þínum, hver
annar ætti að gera það? Tilfinn-
ingar eru afurð hugsunar og því
stjórnar þú þeim einnig, hver ann-
ar ætti að gera það? Val á tilfinn-
ingum er ekki lífsástand heldur
persónufrelsi. Hamingja er eðli-
legt ástand og það að vera ham-
ingjusamur er að vera greindur.
Þú þarft að vilja vera hamingju-
samur og það getur tekið tíma og
þarfnast þjálfunar. Því hamingja
er ekki endilega þar sem hennar
er leitað, heldur þar sem hana er
að finna. Rétti tíminn til að vera
hamingjusamur er núna. Þú hefur
val til þroska. Þú stjórnar þeim
kröftum, sem í þér búa til að ná
hámarks þroska. Umhverfið
stjórnar þér ekki, það ert því þú
sem stjórnar eigin tilfinningum,
atferli, hamingju og heilsufari.
Óvirkni og neikvæðar tilfinningar
hindra vöxt þinn. Þjálfun í and-
legri hamingju er erfið og tekur
tíma, en þú hefur val til að stjórna
eða láta stjórnast.
Ástin fyrst
Til að elska aðra verður þú að
geta elskað sjálfan þig. Það er því
eigingirni og sjálfselska að rækta
ekki sjálfan sig. Þú þarft bæði að
hugsa um andlegan og líkamlegan
þroska þinn. Hér er því ekki verið
að hvetja til sjálflægni, (egósentr-
isma).
Ást er skilgreind þannig:
„Hæfni og viljinn til að leyfa
þeim, sem þér eru kærir að vera
það, sem þeir velja sér, án þess að
krefjast þess að þeir þóknist þér.“
Njóttu þess að vera þú sjálfur. Þú
ert líkami þinn og veldu að hann
sé dýrmætur og aðlaðandi í þínum
augum. Ekki láta aðra gera þig
óánægðan með sjálfan þig. Hvers
hagur væri það? Vertu þú sjálfur
á náttúrulegan máta. Þessi bók
boðar að allir geti í raun allt. Allir
geta lært. Veldu sjálfur að vera
gáfaður, ef þú vilt. Það má segja
að ákveðniþjálfun sé að segja um-
hverfisöflunum stríð á hendur. En
segja má að það séu sterkustu öfl-
in til mótunar einstaklingsins, áð-
ur en þú velur að móta þig sjálfur.
I>ú þarft ekki á viður-
kenningu að halda
Ósk eftir viðurkenningu er ekki
þörf heldur löngun, sem gerir þig
óvirkan. Treystu sjálfum þér því
það er virkni að hugsa sjálfur,
frekar en að fallast á það sem aðr-
ir segja. Sterk öfl í þjóðfélaginu
geta mótað einstaklinginn til
ósjálfstæðis, óöryggis og ytri
stjórnunar. Það er hvort eð er ekki
hægt að gera öllum til hæfis. Allt-
af verða einhverjir þér ósammála.
Því verður þú að þora að bera áb-
yrgð á skoðunum þínum. Það er
enginn mikilvægari en þú.
Að vera óháöur
fortíöinni
Fortíðin er liðin, við getum
skipulagt morgundaginn, en við
lifum í dag. Þessi bók leggur ofur-
áherslu á nútíðina. Á daginn í dag.
Fortíðin er liðin, við breytum víst
litlu þar og framtíðin er ókomin.
Þú getur sigrast á öflum fortíðar-
innar, því þú ert ekki óumbreytan-
legur, þú hefur val.
Gagnslausar tilfinn-
ingar: Sektarkennd
og áhyggjur
Sektarkennd bindur þig við for-
tíðina, en hún er liðin. Áhyggjur
binda þig við framtíðina, en hún
er ókomin. En við lifum í nútíð-
inni, ekki í sektarkennd fortíðar-
innar, né í áhyggjum morgun-
dagsins. Áhyggjur og sektarkennd
breyta ekki nokkrum sköpuðum
hlut. Það eina, sem þessar tilfinn-
ingar gera er að halda þér óvirk-
um, en óvirkni er fánýtt atferli og
sóun á tilfinningaorku. Tíminn til
að vera hamingjusamur er núna.
Aö kanna hið óþekkta
Hið óþekkta er uppspretta vaxt-
ar. Hið óþekkta er ekki hættulegt.
Fordómar og fastheldni hindra
vöxt. Fastheldni er stöðnun. Taktu
áhættu. Öryggi er sama og enginn
vöxtur. Raunverulegt innra öryggi
er að óttast ekki hið óþekkta. Ytra
öryggi er hlutir, innra öryggi er
hamingja. Gerðu eitthvað nýtt.
Mistakist þér, þá reynir þú bara
aftur. Óþarfi er að óttast mistök,
því mistök eru ekki til. Aðeins álit
annarra. Enginn er fullkominn,
hvort eð er. Fullkomleiki er ekki
mannlegur eiginleiki, heldur guð-
legur. Ávinningur af því að forð-
ast hið óþekkta og gera eitthvað
nýtt er að tryggja sig í að forðast
ótta og kvíða. En andstæða vaxtar
og þroska er óumbreytanleiki og
andlegur dauði. Taktu því áhættu
og gerðu eitthvað nýtt.
Að ryðja venjuhindrun-
um úr vegi
Það eru ekki til neinar algildar
reglur, lögmál eða siðvenjur. Þessi
regla er engin undantekning frá
því. Góð venja er að vera sveigjan-
legur. Boð og bönn hindra eðlilegt
og virkt atferli. Þú lætur stjórnast
að utan ef þú berð ekki ábyrgð á
tilfinningum þínum. Þá gerir þú
aðra ábyrga fyrir tilfinningum
þínum. Það eru ekki aðgerðir ann-
arra, sem stjórna þínum tilfinn-
ingum, heldur þitt val. Þú getur
stjórnað þínum tilfinningum eða
valið að láta aðra um það. Ásak-
anir eru skálkaskjól til þess að
losna við að taka ábyrgð. Allar
ásakanir eru tímasóun. Þú verður
að breyta þér. Enginn annar getur
það. Þú ert alveg óbreyttur, þó þú
skellir skuldinni á aðra og það
verður allt óbreytt, nema þú gerir
eitthvað uppbyggilegt í þínum
málum.
Réttlætisgildran
Heimurinn er aldrei og verður
aldrei eins og þú vilt hafa hann.
Heimurinn er eins og hann er. Þú
verður að sætta þig við þetta. Því
fyrr því betra. Þú hefur val, þú
getur sökkt þér í neikvæðar og
óvirkar tilfinningar út af heims-
^^^^í«ré'ðs'ukaSertlanlí°^óUrr"arkað'
// veitingahús,
W//////////ÁW///
OMRON
AFGREIÐSLUKASSAR
Minni fyrirhöfn-meiri yfirsvn
Við höfum að staðaldri yfir IO mismunandi gerðir af Omron
afgreiðslukössum á lager. Allt frá einföldum kössum upp í stórar
kassasamstæður. Omron afgreiðslukassarnir stuðla að aukinni hag-
kvæmni og öryggi í viðskiptum. Þeir búa yfir stækkunarmöguleikum
og sjáifvirkri tölvuútskrift sem skapar meiri yfirsýn og stuðlar að
markvissari og betri rekstri.
Nú er upplagt að slá til og fá sér afgreiðslukassa.
Kynnið ykkur verðin - við veitum allar nánari upplýsingar f söludeildinni.
£ A Á w * V
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Hverfisgótu 33 - Simi 20560
'ZwOF' p“'™'377
málunum, eða verið hamingju-
samur með ástandið eins og það
er. Mikið óréttlæti hefur viðgeng-
ist í heiminum öld eftir öld, fá-
tækt, styrjaldir, drepsóttir, hung-
ur, glæpir, vændi, morð, og eitur-
lyfjaneysla. Það er ekki þar með
sagt, að ekki skuli tekið á málun-
um. Eingöngu að þú hefur val, þú
getur tekið þátt í lífinu á virkan
hátt, með því að vera hamingju-
samur eða á óvirkan hátt með
neikvæðni og uppgjöf.
Gngin frestun framar
Ef frestun á hlutum leiðir til
óvirkni þinnar, þá framkvæmdu
þá í dag. Frestun er listin að elta
gærdaginn og forðast daginn í
dag. Frestun er í raun sjálfsblekk-
ing og flótti, því ekkert gerist af
sjálfu sér, vandamálin haldast
óbreytt og frestun getur breyst í
tregðu sem lífsreglu. Tíminn til
athafna er því núna.
Lýstu yfir sjálf-
stæöi þínu
Uppeldi getur verið í átt til
sjálfstæðis og markmið slíks upp-
eldis er að gera foreldrana óþarfa
með tímanum. Að foreldrar verði
jafningjar barna sinna og vinir er
börnin fullorðnast. ósjálfstæði
stendur í vegi fyrir allri hamingju
og lífsfyllingu. Og lífsfylling og
hamingju öðlast maður við sjálf-
stæði, ekki fyrir samruna við aðra
persónu.
ReiÖin kvödd
Reiði er skilgreind: „Lamandi
viðbrögð, sem menn beita þegar
væntingum þeirra er ekki full-
nægt.“ Afleiðingar reiði eru ým-
iskonar. Líkamlegar: hár blóð-
þrýstingur, magasár, útbrot,
óreglulegur hjartsláttur, svefn-
leysi og þreyta. Sálfræðilegar:
Rofin ástarsambönd, hindruð tjá-
skipti, sektarkennd, þunglyndi, og
allskonar hindranir aðrar. Reiði
er afleiðing hugsana og þú hefur
val, getur hugsað öðruvísi. Reiði
breytir ekki öðrum, heldur við-
heldur sama atferli. Andstæðan
við reiðina er hláturinn og hlátur-
inn gerir lífið ánægjulegra.
í lokakafla bókarinnar er lýst
einstakling, sem stjórnast að inn-
an og segja má að slíkur einstakl-
ingur búi ekki yfir sjálfseyðileggj-
andi atferli. Þessi bók er gagnleg
lesning hafi lesandinn áhuga á að
kíkja á óvirku punktana hjá sjálf-
um sér. Hafir þú áhuga á því þá
lestu bókina „Elskaðu sjálfan þig“
eftir Wayne W. Dyer. Til gamans
má geta þess að lokum að út er
komin önnur bók eftir sama höf-
und er nefnist „Þekktu sjálfan
þig“-
llannes Hilmarsson er íélagsráð-
gjafi og starfar hji deildum Kíkis-
spítalanna.
Sýning á
„Orð í eyra“
Þriðjudagskvöld 15. janúar kl.
20.30 mun Theatr Taliesin halda
sérstaka sýningu á verkinu „Orð í
auga“ (A Word in the Stargazer’s
Eye) til styrktar íslandsdeild
Amnesty International á Kjar-
valsstöðum.
Farymann
Brigs & Stratton
Smádíselvélar
4,5 hö viö 3000 SN.
5.4 hö viö 3000 SN.
8.5 hö viö 3000 SN.
Dísel-rafstöðvar
3.5 KVA og 5,2 KVA
^ l ■
@Q(uiiífla(U]§)(U)ir
di(?)30D©©®IR)
Vesturgötu 16,
sími 14680.