Morgunblaðið - 16.01.1985, Side 33

Morgunblaðið - 16.01.1985, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1985 losnað af Goðafossi. Ólafur var í koju, en var vakinn og beðinn að koma og reyna að festa bátinn. Hann gekk vasklega að verki að vanda, en í því að binda átti bát- inn kom alda og tók bátinn og Ólaf með í hafið. Þannig var þessu lýst fyrir okkur. Það hafði ekki verið hægt að senda skeyti eða tilkynna um slysið á neinn hátt fyrr en komið var að landi. Það var mikil sorg á heimilinu. Sigga stóð uppi með þrjú lítil börn og húsið var að miklu leyti í skuld. Að auki var á heimili hennar stúlka sem verið hafði í vist hjá þeim. Hún hafði átt barn nokkrum mánuðum áður og átti nú hvergi höfði sínu að halla og var á heimilinu um tíma. Sigga átti gott fólk að sem hjálp- aði henni yfir erfiðasta hjallann. Kristján bróðir hennar kom þar mjög við sögu. Húsinu hélt hún, en seldi smám saman íbúðirnar og flutti svo 1964 í íbúð sem hún keypti sér við Álfheima. í Álfheimunum bjó Ingibjörg dóttir hennar með Sigríði og tveim börnum Ingibjargar, þeim Sigurmundi og Sigríði. Ingibjörg vann úti en Sigríður leit eftir börnunum. 19. júní 1964 varð Sig- ríður fyrir því áfalli að missa son sinn. Hann féll út af togara og drukknaði. Hann átti unnustu og þriggja mánaða gamlan son. Son- ur hans heitir Ingvi Sævar. Hjá Sigríði ólst upp Olafur Jóelsson, sonur Kristínar dóttur hennar. Ólafur er nú stýrimaður á milli- landaskipi. Að vissu leyti hefur hann bætt Sigríði sonarmissinn því hann hefur verið henni eins og besti sonur alla tíð. Kristín dóttir Sigríðar er sjúkraliði og búsett á Akureyri. Hún var gift Jóni Þor- geirssyni rafvirkja og eiga þau þrjú börn: Jón, Vilborgu og Þor- stein. Kristín hefur ætíð látið sér annt um að allt sé með myndar- brag á hennar heimili, rétt eins og móðir hennar. Ingibjörg er einnig sjúkraliði. Hún býr nú í Súluhól- um 2, Reykjavík, og þangað flutt- ist Sigríður með henni fyrir nokkrum árum. Þegar heilsa hennar tók að bila annaðist Ingi- björg Sigríði af einstakri um- hyggju. Sigríður hafði beðið hana að lofa sér því að hún mætti vera hjá henni alla tíð og við það stóð Ingibjörg, þó það væri henni oft erfitt því oft þurfti hún að sleppa vinnu sökum þessa. Fjórða þessa mánaðar veiktist Sigríður og var flutt á Borgarspítalann og lést þar eftir tvo daga. Sigríður var hér á heimili okkar á ísafirði I nokkrar vikur á hverju sumri í 14 ár og held ég að hún hafi oft haft ánægju af því að koma norður. Hápunktur ferðar- innar var ætíð sá sami, við fórum alltaf saman á æskustöðvarnar á Fossá, þar sem ættfólk okkar býr myndarbúi. Þar var dvalið í nokkra daga og heimsóttir kær- ustu staðirnir: Hörgsnesið, fossinn og gamli bærinn meðan hann stóð uppi. Eftir þessar ferðir var hún endurnærð þó svo að heilsan væri ekki alltaf í lagi. Oft var glatt á hjalla þegar Sigga var I heimsókn hjá okkur. Skemmtilegast þótti henni þegar einhver spilaði á gítar og sungin voru gömlu lögin: Suður um höfin, Kvöldið er fagurt og fleiri uppáhaldslög hennar. Söng- ur og hljóðfæraleikur voru alla tíð hennar yndi. Eftir 1977 gat hún ekki komið oftar til ísafjarðar, heilsa hennar leyfði það ekki. Nú um jólin kom Sigríður dótt- urdóttir hennar til landsins ásamt manni og börnum, en þau búa i Svíþjóð. Mikil ánægja var það gömlu konunni að fá að sjá þau og drengina. Elvar heitir sá eldri og Bjarki litli var skírður á jólunum. Barnabörnin voru henni öll svo kær og litlu börnin þeirra. Sigríður frænka er horfin af sjónarsviðinu en minning hennar lifir í huga þeirra sem þekktu hana. Ég enda þessar línur með erindi sem Sigurmundur faðir hennar orti nokkru áður en hann dó: Deyja vil ég í drottins nafni þá dauðann mér að höndum ber, „með Guð í hjarta og Guð í stafni" gefi það eilíf náðin mér. Ég veit að þannig hefur Sigríður einnig hugsað. lnga straumland Minning: Quðrún Elísabet Olafsdóttir Fædd 2. maí 1915 Dáin 4. janúar 1985 I dag, miðvikudaginn 16. janúar, fer fram frá Fossvogskirkju útför tengdamóður minnar, Guðrúnar Elísabetar Ólafsdóttur. Hún fæddist á Jörfa í Kolbeins- staðahreppi þann 2. maf 1915, dóttir hjónanna Agöthu Stefáns- dóttur og Ólafs Erlendssonar bónda og oddvita á Jörfa. Var hún yngst þrettán systkina, en af þeim eru sex lifandi. Beta, en svo var hún jafnan nefnd, giftist Ingimundi Guð- mundssyni frá Þverholtum, Álfta- neshreppi, Mýrum. Eignuðust þau sjö börn, sem öll eru á lífi. Þau eru: Ólafur, kvæntur Hrefnu Carlsson, ólöf, gift Kára Pálssyni, Guðmundur, kvæntur Bettý Snæfeld, Svala, gift Gesti Sigurgeirssyni, Þuríður, gift Gretti Gunnlaugssyni, Gylfi, kvæntur Þorgerði Tryggvadóttur, Ómar, kvæntur Erlu Ragnarsdótt- ur. Ingimundur lést þann 29. ágúst 1981. Það var sár söknuður fyrir Betu að missa mann sinn, enda hjónaband þeirra byggt á ást og umhyggju sem aðdáunarvert var að fylgjast með. En það var samt mikill léttir fyrir hana að halda heimili með syni sínum, ómari, eftir að Ingi lést. Fyrstu búskaparár sín bjuggu þau hjón í Borgarnesi, en árið 1942 fluttu þau til Reykjavíkur, og bjuggu þar síðan. Fyrst þegar ég kynntist þeim hjónum, fyrir u.þ.b. 30 árum, bjuggu þau í Efstasundi 79, en fluttu seinna þaðan á Mána- götu 17. Að Ingimundi látnum bjó Beta í Kambaseli 40, Reykjavík ásamt yngsta syni sínum ómari, konu hans og börnum þeirra tveimur, en þau veittu henni margar ánægjustundirnar I lífinu. Ég minnist Betu ávallt með hlý- hug og þakklæti. Hún hafði til að bera þann góða eiginleika að öll- um leið vel í návist hennar, ávallt brosandi og ánægð. Þær voru margar ferðirnar, sem við fórum öll saman á sumrin til að njóta útiveru við lækjarnið og fjallavötnin fagurblá. Oft var far- ið að Jörfa á æskuheimili Betu, en þangað leitaði hugur hennar jafn- an. Ekki datt okkur samferðafólki hennar í hug að hún væri að kveðja þennan heim. Hún var aldrei veik að manni virtist, en enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Fyrir u.þ.b. 5 til 6 mánuðum fór hún að kenna sér lasleika, sem endaði með erfiðri sjúkdómslegu á Landakotsspítala síðustu fjóra mánuðina. Við hjónin vorum oft við sjúkra- beð hennar þar, en erfitt var að sætta sig við að hún væri á förum, aldurinn var ekki það hár. Við bjuggumst við mörgum góðum ár- um framundan I návist hennar. En huggun í harmi var æðruleysi hennar og fallega brosið, sem ávallt var fyrir hendi, þrátt fyrir þjáningar, sem hún hlaut að líða. Vil ég að lokum þakka öllu því góða fólki á Landakotsspítala, sem ávallt var tilbúið að gera allt fyrir Betu sem hægt var og létta undir með henni. Ég þakka Betu, tengdamóður minni, fyrir allar stundirnar í ná- vist hennar. Kári l’álsson Að morgni hins 4. janúar sl. lést I Landakotsspítala ömmusystir mín, Guðrún Eliabet Ólafsdóttir, eftir erfiða sjúkómslegu. Hún var fædd á Jörfa í Kol- beinsstaðahreppi, Hnappadals- sýslu 2. maí 1915 og hefði því orðið sjötug á vori komanda. Foreldrar hennar voru hjónin Agatha Stefánsdóttir og Ólafur Erlendsson bóndi á Jörfa og hreppsnefndaroddviti og sýslu- nefndarmaður þeirra Kolhrepp- inga. Var Elísabet, en það nafn notaði hún aðallega, yngst 13 systkina, en af þeim komust 12 til manns. Þau voru: Ingibjörg, Jónas, Erlendur, Þuríður er lést í æsku, Þuríður, Ágústa, Elínborg, Kjartan, Gunn- ar, móðuramma mín Helga Lauf- ey, föðuramma mín Valgerður Sóley og Guðrún Elísabet sem var yngst eins og áður sagði. Ölst Beta, eins og hún var alltaf kölluð, upp í glöðum og einstak- lega samheldnum systkinahópi. Hefur hvoru tveggja glaðværðin og samheldnin haldist alla tíð sfð- an svo einstakt er. Árið 1933 kynntist hún eigin- manni sínum Ingimundi Guð- mundssyni er var fæddur í Þver- holtum á Mýrum 17. maí 1906 og ólst hann upp þar. Ingimundur lést 1 Reykjavík 29. ágúst 1981. Voru hjónin heima á Jörfa 1934 til vors 1935 að þau fluttu til Borg- arness. Til Reykjavíkur, þar sem þau bjuggu síðan, fluttu þau 1942 og var til þess tekið að þau keyptu strax eigið húsnæði. Eins og oft er þegar hjón eru hæfilega ólík þá voru þau mjög samstillt og hjónaband þeirra ein- staklega farsælt. Óskiljanlegt er að okkur lúxusbörnum nútíma als- nægtaþjóðfélags, hvernig hægt er á tímum upp úr kreppu og heims- styrjaldar, að ala upp stóran barnahóp og gera að fyrirmyndar þjóðfélagsþegnum og jafnvel af launum einnar fyrirvinnu eins og þau hjónin gerðu. En með afburða hagsýni, reglu- semi, samheldni og dugnaði hefur kynslóð þeirra Elísabetar og Ing- imundar komið upp til manns þeirri kynslóð sem ber hita og þunga þjóðfélagsins í dag. Þar voru fólk eins og þau hjónin fremst meðal jafninga. Geri aðrir betur. Alls eru afkomendur hjónanna 38, en þau eignuðust 7 börn. Þau eru: ólafur, kvæntur Hrefnu Hag- barðsdóttur Carlson, Ólöf, gift Steingrími Kára Pálssyni, Guð- mundur, kvæntur Bettý Jóhanns- dóttur Snæfeld, Svala gift Gesti Sigurgeirssyni, Þuríður gift Gretti Gunnlaugssyni, Gylfti kvæntur Þorgerði Tryggvadóttur og ómar kvæntur Erlu Ragnarsdóttur. Eru þau eins og Elísabet og hennar systkini samstilltur systkinahóp- ur og hafa smitandi glaðværð og hressileika móðurinnar I ríkum mæli. Eins og áður sagði voru ömmur mínar báðar systur Betu. Og þar sem þær voru á svipuðum aldri þá var enn nánara samband milli þeirra en annars hefði verið, dag- legt í senni tíð. Og þar sem móður- amma mín hefur mest alla mína ævi búið hjá foreldrum mínum, þá man ég eftir Betu frænku eins langt og sjálfum mér. Hef reyndar alltaf litið á hana sem hálfgerða ömmu mína líka. Fáum hef ég kynnst sem hið forna spakmæli Hávamála „Mað- ur er manns gaman" átti betur við en Betu frænku mína enda hafði hún einstaklega gaman af að vera á mannamótum og yfirleitt hrók- ur alls fagnaðar með sinn drífandi og upplifgandi hressileika. Sér- staklega þótti henni gaman að standa í, eða fylgjast með, hvers konar framkvæmdum, og hvetja til dáða, hvort sem var litlar hend- Leiðrétting í minningargrein hér í Mbl. á laugardaginn var birtist erindi úr ljóði, sem hefst með þessum orð- um: Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir ... Ljóð þetta er í greininni sagt vera eftir V.B. Svo er ekki. Höf- undur þess er Einar Benediktsson. Það leiðréttist hér með. ur að byggja kubbahús eða stórar að byggja ibúðarhús. Ekki setti maður sig úr færi ef Beta frænka var í heimsókn. Hún hafði þann ómetanlega hæfileika í ríkum mæli að koma auga á skemmtilegu hliðar hversdagsleikans. Og þar sem hún var mjög greind og hafði alla tíð lifandi áhuga á umhverfi sínu og samferðamönnum þá hafði hún þroskað með sér djúpt innsæi í mannlegt eðli. Það var eins og að sumt sem henni var sagt hefði hún vitað fyrir eða a.m.k. búist við. Og eins og oft er sagt um mikla húm- orista þá var hún í reynd alvar- lega þenkjandi og tók nærri sér hvers konar mannlega ógæfu. Ekki get ég ímyndað mér að Beta frænka mín hafi nokkurn tíma lagt stein i nokkurs manns götu. Var líka sú manngerðin sem öllum ___________________________33_ vill gott gera og ekki má vamm sitt vita, enda vammlaus. Nú þegar hún er komin á annað tilverustig, getum við sem kveðj- um um sinn, þakkað samvistirnar hérna megin við móðuna miklu. Og örugglega munu áhrifin af við- kynningunni, og minningarnar vara, og ylja, ókoma tíð. Aðstandendum votta ég innileg- ustu samúð. Viggó Jörgensson. Lífið er leiðin til dauðans. Hvort sem leiðin er löng eða stutt er dauðinn það sem allir eiga víst. Að lifa góðu lífi er gæfa. Gæfa sem Guð gefur okkur, við njótum og verum þakklát fyrir. Hennar gæfa var að vera eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma, langamma. Getum við hugsað okkur meiri gæfu en hana sem við kveðjum í dag með sárum trega, en þó hjart- ans þakklæti fyrir að hafa verið svo lánsöm að eiga. Fengið að njóta og kynnast góða skapinu, glettninni, gjafmildinni. Gæfa barnanna að kynnast og eiga ömmur er ómetanlegt nesti, sem því miður allir fá ekki notið. Stuttu en erfiðu sjúkdómsstríði er lokið. Við kveðjum hana með söknuði, en söknuðurinn er bland- aður gleði, gleði yfir að hafa átt hana. Dýrlega þig dreymi og drottinn blessi þig. I>orgerður Tryggvadóttir Minning: Ida Jensson Fædd 15. mars 1908. Dáin 31. desember 1984. tda Jensson var óvenjuleg kona. Hún var fáguð í framkomu, hlý og glöð í viðmóti og hafði jákvætt viðhorf til manna og málefna. Hún var líka óvenjuleg fyrir það hvernig hún tók andstreymi. Hennar vandamál urðu ekki vandamál annarra. Reyndar var ekkert í fari hennar sem gaf til kynna að hún hefði yfirleitt kom- ist í snertingu við andstreymi. Þó missti hún föður sinn barnung, eiginmann sinn eftir örfá ár í hjónabandi og dóttur sína og einkabarn í blóma lífsins úr kvala- fullum og erfiðum sjúkdómi. Mér hefur alltaf þótt sem þessi frænka mín og systir hennar, Em- ilía, væru eðalbornar, hvor með sínum hætti. Annarsvegar vegna ytri reisnar og hinsvegar vegna kurteisi sem kom að innan og eðl- islægrar hæversku. Þær hreyktu sér ekki eða trönuðu sér fram, en nærvera þeirra setti jafnan svip á umhverfið. Mér þykir svipminna eftir að þessi kona er fallin frá, sem á svo margan hátt fór sínar eigin leiðir. Hún var lengi með atvinnurekstur ásamt öðrum, var félagslynd og naut sín í samkvæmislífi, leit út eins og dekurbarn tilverunnar, en bjó alltaf ein og stóð vörð um sjálfstæði sitt og einkalíf. Ida var 76 ára gömul þegar hún lést síðdegis á gamlársdag. Hún bar aldurinn eins og mótlætið, — eins og hann væri eitthvað sem væri henni óviðkomandi. Ég sakna þess að hitta ekki oftar þessa hlýju og elskulegu konu sem opnaði augu manns fyrir svo mörgu sem er mikilvægt, án þess að vita það sjálf. Á kveðjustund eru færðar þakk- ir fyrir ljúfar stundir liðinna ára. Ég bið ídu Jensson guðs bless- unar. Jónína Michaclsdóttir. t Þakka innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför bróöur mins, MARKÚSAR JÓNSSONAR. Jónína Jónsdóttir, Steinum. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför, STEFÁNS SIGURÐSSONAR frá Ártúni, Hjaltastaóaþinghó. Malen Guttormsdóttir, Sigurlaug Stefánsdóttir, Kristmann Jónsson, Siguröur Stefánsson, Sigurlaug Sigurbjörnsdóttir, Ingibjörg Stefénsdóttir, Bergljót Stefánsdóttir, Stefán Geirsson, Saeunn Stefánsdóttir, Sveinn Guðmundsson, Guölaug Stefánsdóttir, Þorleifur Pálsson, Margrét Stefánsdóttir Beck, Eirfkur Beck, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.