Morgunblaðið - 15.02.1985, Blaðsíða 4
4
MORGUNftLAÐIB, FÖSTIJDAGUR 15. FEBRtJAR 1985
Bjórsamlag Ámunnar
fær ekki að auglýsa
RÍKISÍJTVARPIÐ stöðvaði _ í g*r
auglýsingu frá Bjórsamlagi Ámunn-
ar eftir að heilbrigðisráðuneytið
hafði vakið athygli á áfengislögun-
um og að auglýsingin brjóti í bága
við þau, að mati ráðuneytisins.
Ingimar Sigurðsson deildarstjóri
í ráðuneytinu sagði í samtali við
Morgunblaðið að í þessari auglýs-
ingu væri verið að vekja athygli á
Flugleiðir
kaupa þriðju
DC-8-þotuna
ÚTLIT er fyrir það að um helgina
verði undirritaður samningur um
kaup Flugleiða á DC-8-63-þotu frá
hollenska flugfélaginu KLM. Þotan
tekur 249 farþegar og er nákvæm-
lega sömu gerðar og tvær aðrar
DC-8-þotur Flugleiða sem keyptar
voru af KLM í fyrra.
DC-8 þotan verður aðallega notuð
til flugs á milli íslands og annarra
Evrópulanda í sumar en síðan verð-
ur væntanlega settur á hana
hljóðdeyfibúnaður þannig að hægt
verði að nota hana í Ameríkuflugið.
Kaupverðið er á annað hundrað
milljónir ísl. króna. Búist er við að
þotu af gerðinni DC-8-55, sem
Flugleiðir hafa verið með á leigu í
tvö ár, verði skilað þegar nýja þot-
an kemst í gagnið.
áfengi í auglýsingu og væri það
bannað samkvæmt áfengislögun-
um. „Það er nóg að orðið bjór komi
fram í auglýsingunni að okkar
mati. Við verðum að gæta okkar
ákaflega vel að hleypa þessum mál-
um ekki of langt, því það er nóg
reynt að fara í kringum þetta samt
og erfitt að henda reiður á,“ sagði
Ingimar.
Guttormur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Bjórsamlags
Ámunnar hefur sent bréf til út-
varpsstjóra þar sem hann mótmæl-
ir því að auglýsingin brjóti í bága
við lög um auglýsingar á áfengi.
Hann segir að í þessari auglýsingu
sé aðeins verið að boða félagsmenn
í löglega stofnað þjónustu-samlag.
Það sé út í hött að halda því fram,
að nafn á félagsskap, sem hefur
formlega verið tekið til birtingar í
Lögbirtingablaðinu og til lögskrán-
ingar, sé á nokkurn hátt áfengis-
auglýsing.
Loðnufryst-
ing hafin
LOÐNUFRYSTING hófst í
Hraðfrystihúsi Vestmannaeyja I
gærkvöldi og var áætlað að vinna
við frystinguna í alla nótt. Það var
úr farmi Heimaeyjar, sem fryst
var, en hrognafyllingin í loðnunni
er nú rúmlega 12%.
Endurgreiðsla af afnotagjöldum:
Utvarpseigandi neitar
að hún verði dregin
af afnotagjaldi 1985
LEIFUR Sveinsson, lögfræóingur,
hefur ritað innheimtustjóra Ríkisút-
varpsins bréf fyrir hönd eins skjól-
stæðings síns, sem ekki sættir sig við
þá aðferð útvarps að draga 330 krón-
ur frá iðgjöldum ársins 1985 vegna
„skróps og verkfalls starfsfólks" í
október 1984.
f bréfi Leifs, sem skrifað er 11.
febrúar sl., segir um uppgjör
skjólstæðings hans í afnotagjaldi
útvarpsins fyrir árið 1984:
Iðfdald fyrri hiuta árs 1984 kr. 1.805,00
Idgjald seinni hluta árs 1984 kr. 2.005,00
Endurgreitt vegna skróps
og verkfalls starfsfólks + 380,00
Nettó kr. 3.480,ÖÖ
Skjólstæðingur minn getur eigi
sætt sig við þá aðferð, sem tilkynnt
var í sl. viku, að kr. 330,00 verði
dregnar frá iðgjöldum ársins 1985.
Hér er um tvö óskyld mál að
ræða. Annars vegar uppgjör ársins
1984. Hins vegar fyrirframgreiðslu
upp í iðgjöld ársins 1985.
Skjólstæðingur minn telur full-
víst, að fyrst verði iðgjald fyrri
hluta ársins 1985 ákveðið kr. 330,00
hærra en ella hefði orðið og síðan
gefinn kr. 330,00 afsláttur af ið-
gjaldi. Þetta vill hann ekki láta
bjóða sér.“
í eftirskrift getur Leifur þess, að
hann telji sanngjarnt að vextir og
kostnaður af iðgjaldi skjólstæðings
hans verði látnir mæta innheimtu-
launum Leifs af krónum 21 milljón.
Þar vísar Leifur til þess, að bréf
hans til innheimtustjóra útvarps-
ins dagsett 21. desember sl. hafi
orðið til þess, að hver útvarpseig-
andi fengi 330 króna endur-
greiðslu, sem samtals geri 21 millj-
ón króna.
Lítið lát á loðnuveiðinni:
5 skip sigla til Fær-
eyja og 1 til Skotlands
LÍTID lát er enn á loðnuveiðinni
þrátt fyrir löndunarbið viða eða langa
siglingu á löndunarstaði. Á miðviku-
dag varð aflinn 7.760 lestir og siðdeg-
is í gær var hann orðinn 17.140 lestir
af 23 skipum. Loðnunni er nú landað
á svæðinu frá Raufarhöfn suður um
til Akraness og auk þess í Færeyjum
og Skotlandi. 5 skip eru á leið til
Færeyja og eitt til Skotlands, en til
þessa hefur verið landað um 15.000
lestum erlendis frá áramótum.
Auk þeirra skipa, sem getið hef-
ur verið um í Morgunblaðinu, til-
kynntu tvö skip um afla á miðviku-
dag. Það voru Jón Kjartansson SU
með 1.100 lestir og Jöfur KE með
450 lestir. Síðdegis í gær höfðu eft-
irtalin skip tilkynnt um afla: Þórð-
ur Jónasson EA, 490, Sæberg SU,
610, Svanur RE, 690, Rauðsey AK,
540, Kap II VE, 700, örn KE, 500,
ísleifur VE, 730, Pétur Jónsson RE,
790, Albert GK, 600, Hilmir II SU,
530, Helga II RE, 530, Hilmir SU,
1.350, Beitir NK, 1.320, Bjarni
Ólafsson AK, 1.100, Guðmundur
RE, 930, Skarðsvík SH, 600, Hákon
ÞH, 750, Heimaey VE, 300, Gísli
Árni RE, 620, Gígja RE, 750, Hug-
inn VE, 570, Sjávarborg GK, 770 og
Víkingur AK 1.300 lestir
Skipin, sem héldu til Færeyja
með afla sinn, eru Kap II, örn, fs-
leifur, Pétur Jónsson og Albert.
Hákon sigldi til Skotlands og verð-
ur fyrsta íslenzka skipið, sem land-
ar loðnu þar.
Morgunblaðið/Bjarni
Áhorfendur hafa fylgst af áhuga með skákskýringum, sem þeir Ingvar Ásmundsson og Sævar Bjarnason hafa
innt af hendi.
Enn er Larsen konungur
meðal danskra skákmanna
BENT Larsen vann landa sinn Curt Hansen í 3. umferð afmælismóts
Skáksambands íslands í gærkvöldi — vann danska krónprinsinn og
sannaði að enn er hann konungur meðal danskra skákmanna, þó menn
hafi freistast til að afskrifa hann eftir tvö slæm ár við skákborðið. Meira
að segja Boris Spassky spáði Larsen slæmu gengi á afmælismótinu, en
hann hefur þegar hrakið allar hrakspár. í gærdag samdi hann jafntefli við
Helga Ólafsson eftir að hafa lengst af átt í vök að verjast og á miklar
vinningslíkur í biðskák sinni við Margeir Pétursson. Því bendir allt til að
Larsen hafi 2Vt vinning þegar hann hefur lokið við biðskák sína við
Margeir Pétursson og hafi þar með tekið forustu á mótinu.
Eftir sigurinn gegn Hansen I
gærkvöldi biðu dönsk blöð á lín-
unni eftir þessum „nestor“
danskra skákmanna. Danska
fjölmiðla þyrsti greinilega i
fréttir af viðureign konungsins
við krónprinsinn. Blaðamaður
Mbl. náði tali af honum milli
símtala frá Danmörku og minnti
hann á spádóm Spasskys. Larsen
bandaði frá sér, brosti kankvís-
lega og sagði aðeins: „Ég er mjög
þreyttur — mjög þreyttur. Ég
hef þurft að tefla tvær mjög erf-
iðar skákir, sem fóru I bið. Fyrst
gegn Helga Ólafssyni og síðan
Margeiri Péturssyni. Ég lenti I
miklum erfiðleikum gegn Helga
— hafði tapaða stöðu þegar
skákin fór í bið, og líklega þegar
hún fór í bið öðru sinni. Við
sömdum svo jafntefli um miðjan
dag í dag þegar Helgi hafði bisk-
up og hrók gegn hróki mínum,“
svaraði Larsen.
Friðrik Ólafsson vann einu
sinni fræga skák af tékkneska
stórmeistaranum Pilnik með
biskup og hrók gegn hrók. „Já,
en ég hef áður lent í endatöflum
með biskup og hrók gegn hrók.
Fræðilega er það jafntefli og
Helgi sagði mér raunar, að hann
hefði lent í endatafli gegn Bou-
aziz frá Túnis á ólympíuskák-
mótinu og þurfti að sætta sig við
jafntefli og sjálfur lenti ég I
slíku gegn Tal í Niksic í Júgó-
slavíu 1983. Það er jafntefli og
Helgi sættist á slíkt eftir 20
leikja þóf,“ svaraði Larsen.
— Hvað um möguleika þína
gegn Margeiri Péturssyni?
Margir segja skákina unna og
með sigri takir þú forustu á mót-
inu?
„Það er fjarstæða að hún sé
unnin. Ég lá yfir skákinni í
marga tíma í nótt. Kóngur minn
er berskjaldaður og það gefur
Margeiri möguleika — hún er
ekki unnin.“
— Nú beindust augu manna
að viðureign þinni við Curt Han-
sen, arftaka þínum í Danmörku
að margra áliti — ekki síst í
Kaupmannahöfn, ef marka má
áhuga danskra blaðamanna?
Ertu ánægður með sigurinn
gegn „krónprinsinum"?
Aftur bandaði Larsen frá sér
hendinni og gekk snúðugt á
brott. „Þannig hugsa ég ekki,“
sagði hann en snéri sér við og
brosti: „Ég er ánægður með
vinninginn."
Úrslit f 3. umferð afmælis-
mótsins urðu:
Marneir Pétursson—Karl Þorateina 1 —0
Boria Spassky—Guím. Sigurjóns. (4-14
Bent Larsen— Curt Hansen 1—0
Helgi ólafsson—Jóhann Hjartarson 4- 'h
Van der Wiel—Vlastimil Hort V4-'/4
Arthur Jusupov—Jón L. Árnaaon V4-V4
Staðan í mótinu eru nú:
I. —2. Boris Spassky, Van der
Wiel 2.
3. Bent Larsen 1 Vfe og biðskák.
4. -6. Margeir Pétursson,
Helgi Ólafsson og Jóhann Hjart-
arson 1 V4.
7. Arthur Jusupov 1 og bið-
skák.
8. -9. Vlastimil Hort, Jón L.
Árnason 1 og frestuð skák.
10. Karl Þorsteins 1.
II. Guðmundur Sigurjónsson
'k og biðskák.
12. Curt Hansen 'k.
H.H.
Skák
Bragi Krlstjánsson
3. umferð:
Hvítt: Margeir Pétursson Svart:
Karl Þorsteins
Móttekið drottningarbragð
1. d4 — d5, 2. Rf3 — Rf6, 3. c4 —
dxc4
Móttekna drottningarbragðið
er ekki eins algengt og 3. — e6, 4.
Rc3 — Be7 o.s.frv.
4. Rc3 —
Önnur leið er 4. e3 — e6, 5.
Bxc4 — c5 o.s.frv.
4. — a6, 5. e4 — b5, 6. e5 — Rd5,
7. a4 — Rb4, 8. Be2 —
Ekki gengur 8. axb5 vegna 8.
— Bf5 með hótuninni 9. — Rc2+.
8. — Bf5, 9. 0-0 — Rc2, 10. Ha2 —
Rb4, 11. Ha3 — Rc2, 12. Ha2 —
Rb4, 13. Ha3 - Rc2
Skýringin á þrátefli keppenda
í sfðustu leikjum er sú, að þessi
flókna byrjun hefur kostað mik-
inn tíma og því er gott að eiga
færri leiki eftir í framhaldinu til
að ná 40 leikjunum. Staðan, sem
nú er komin upp, er mjög óvenj-
uleg. Hvítur hefur komið flest-
um mönnum sínum út á borðið,
en svartur einungis tveim. Fyrir
þetta forskot í liðskipan hefur
hvítur fórnað peði, og vilji hann
komast hjá þrátefli, verður hann
að fara út í miklar flækjur.
14. Rh4I? — Bd3!
Ekki gengur 14. — Rxa3, 15.
Rxf5 og svarti riddarinn á a3 er
dauðans matur.
15. Bxd3 — cxd3, 16. e6! —
Hótunin er 17. Df3, þannig að
svartur verður að drepa þetta
peð.
16. — fxe6, 17. DH5+ — g6, 18.
Rxg6 — hxg6, 19. Dxh8 — b4, 20.
Bh6 — Kd7, 21. Bxf8 — bxa3
Sennilega betra en 21. —
Rxa3, 22. Re4 o.s.frv.
22. d5! —
Margeir reynir að opna leið að
kóngi andstæðingsins.
22. — Kc8?
Eftir þennan leik verður staða
Karls mjög erfið. Betra var 22.
- exd5, 23. Dh3+ - e6, 24. Bc5
— Rc6, með mjög flókinni stöðu,
sem líklega er hagstæð hvítum.
23. Dg7 — exd5, 24. Bxe7 — De8,
25. bxa3 —
Svartur á nú tapað tafl, þVf
kóngurinn er berskjaldaður og
riddarinn á b8 og hrókurinn á a8
eru ekki komnir í spilið, og að
auki eru peðin mjög veik.
25. — d4, 26. Rd5 — Rd7
Hvítur hótaði m.a. 27. Bd6.
27. Bg5 — De6
Afleikur í tapaðri stöðu. Mjög
erfitt er að benda á leik til að
halda skákinni áfram, t.d. 27. —
De5, 28. Re7+ - Kb7, 29. Hbl+ -
Ka7, 30. Rc6 mát.
28. Dh8+ — Kb7, 29. Dxa8+
og svartur gafst upp, því hann
tapar hrók eftir 29. — Kxa8, 30.
Rxc7 4- ásamt 31. Rxe6.