Morgunblaðið - 15.02.1985, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1985
ÚTVARP/SJÓNVARP
Anna Júlíana
w
Eg tel ekki vænlegt að fjalla
eingöngu í þessu þáttarkorni
um þau atriði er hæst ber í út-
varps- og sjónvarpsdagskránni
hverju sinni, svo sem þekktar
bíómyndir, vinsæla framhalds-
þætti, umræðuþætti um þjóðmál
og annað í þeim dúr. Lággróður-
inn má ekki gleymast því hann
býr oft yfir meira lífsmagni en
það sem hæst fer á líðandi stund.
Þannig fór ekki mikið fyrir henni
Önnu Júlíönu Sveinsdóttur
óperusöngkonu í Morgunþætti
rásar 2 síðastliðinn miðvikudag.
Hún birtist klukkan 11 og sagði
frá lífi sínu, svo valdi hún nokkur
lög og hvarf síðan af öldum ljós-
vakans. Eftir situr minningin um
frábæra smekkvísi þessarar mik-
ilhæfu konu sem í senn sinnir
heimilisstörfum, kennslu og
syngur Carmen í óperuhúsi. Að
sjálfsögðu var Anna Júlíana beð-
in að velja lög af „léttara taginu"
í þennan þátt rásar 2. Og hvílíkt
val. Raddirnar er fluttu lögin
hennar Önnu Júlíönu streymdu
frá því hljóðfæri er guð einn get-
ur fullkomnað og þannig urðu hin
„léttu" lög er hún valdi í raun
klassík, jafnvel Nina Hagen varð
hér eins og þeir söngfuglar er
syngja á La Scala og Metropolit-
an enda lýsti Anna Júlíana því
yfir að ... hvaða óperusöngvari
sem væri gæti verið fullsæmdur
af sliku raddsviði.
Hógvœrð
Satt að segja kom mér á óvart
hversu hógvær Anna Júlíana var
í þessum þætti, því svo sannar-
lega er hún prímadonna af bestu
gerð.
Suður á Italíu fara slíkar konur
um í glæsivögnum og glitklæðum,
og skammast sín ekki hið
minnsta fyrir að rísa uppúr
múgnum. Þær eru tignaðar eins
og drottningar enda bera þær i
brjósti hinn eina sanna tón. Hér
eltast menn við prímadonnur
vopnaðir „hafnarfjarðarbröndur-
um“. Og þeir sem af einhverjum
ástæðum hafa náð góðu taki á
starfi sínu og leyfa sér því að
horfa svolítið vítt til allra átta,
eru vændir um oflátungsskap eða
í besta falli um heimsku. En það
er víst hlutskipti æði margra i
voru litla samfélagi að dragnast
með slíka hælbíta, er ég vil nefna
hér einu sinni „framsóknar-
maddömur".
Önnur prímadonna
En það eru til allrar hamingju
fleiri prímadonnur hér á landi en
Anna Júlíana Sveinsdóttir. Þann-
ig sópar að honum Kristjáni Jó-
hannssyni óperusöngvara hvort
sem við sjáum hann skálma niður
Bankastræti eða uppá svið. Slíkt
kalla sumir mont, en guð minn
góður, maðurinn er stórsöngvari
og hvernig á hann að komast
uppá stjörnuhimininn ef hann
horfir aldrei til stjarnanna?
Samt er Kristján enn að vissu
marki fangi þess litla samfélags
sem hann sprettur úr, þannig
segir hann hér í blaðinu í opnu-
viðtali frá í gær: Það er nú lítið
eftir af magahnútnum. Það er
helst hér heima sem ég er dálítið
nervös, ekki veit ég hvers vegna."
Við skulum vona að Kristján
losni alfarið við magahnútinn er
hann kemur næst í heimsókn, þá
losnar kannski smápláss fyrir
hann á sviðinu í Gamla bíói. Þar
mega prímadonnurnar helst ekki
víkja úr sessi fyrir framsókn-
armaddömunni.
ólafur M.
Jóhannesson
Jeanne Crain, Ann Southern og Linda Darnell fara með hlutverk eiginkvennanna þriggja.
Þrjár konur fá bréf
— bandarísk gamanmynd
■i Föstudags-
30 mynd sjón-
““ varpsins er
bandarísk gamanmynd í
svart/hvítu frá árinu 1949
og nefnist Þrjár konur fá
bréf (A Letter to Three
Wives).
Myndin gerist í smábæ
einum í Bandaríkjunum.
Addie Ross er fallegasta
stúlkan í bænum, hún
vekur aðdáun meðal karl-
mannanna en öfund með-
al kvennanna. Dag einn fá
þrjár eiginkonur í bæn-
um, Deborah, Rita og
Lora, dularfullt bréf frá
þokkadísinni Addie þar
sem hún segist vera farin
úr bænum fyrir fullt og
allt. Þær stöllur geta þó
ekki glaðst eins mikið og
ella yfir fréttinni því
Addie kveðst hafa tekið
eiginmann einnar þeirra
með sér.
Konurnar þrjár finna
allar við nánari athugun
einhverja brotalöm á
hjónabandinu og verða á
nálum um eiginmenn
sína. Spurningin er hver
eiginmannanna fór með
Addie þó að þær voni allar
að um uppspuna í henni sé
að ræða.
Leikstjóri er Joseph L.
Mankiewicz en með aðal-
hlutverk fara Jeanne
Crain, Ann Southern,
Linda Darnell og Kirk
Douglas.
KASTUÓS
— bjórinn og myndbanda-
leigur í brennidepli
Kastljós er á
Ofl 55 dagskrá sjón-
— varps í kvöld kl.
20.55. Þátturinn er að
þessu sinni um innlend
málefni og er umsjónar-
maður hans Sigrún Stef-
ánsdóttir.
í kvöld verður fjallað
um tvö mál, bjórinn og
myndbandaleigur á ís-
landi. Reifuð verður stað-
an í bjórmálum, þar sem
frumvarpið er statt og
hvernig áfengisverslunin
væri í stakk búin til þess
að selja hér bjór. Rætt
verður við Jón Baldvin
Hannibalsson, formann
Alþýðuflokksins, Helga
Seljan alþingismann og
Gunnar Schram en hann
er með bjórfrumvarpið í
Allsherjarnefnd um þess-
ar mundir.
Þá verður rætt við ólaf
Hauk Árnason hjá Áfeng-
isvarnaráði, Jóhannes
Bergsveinsson og Jón
Kjartansson, forstjóra
Áfengis- og tóbaksversl-
unar ríkisins. Sjón-
varpsmenn brugðu sér til
Akureyrar og könnuðu
þar stöðu mála varðandi
sölu bjórlíkis og fram-
leiðslu á sterkum bjór. Þá
var rætt við ungt fólk um
viðhorf þeirra til bjór-
málsins.
Þá verður fjallað um þá
deilu sem að undanförnu
hefur staðið yfir varðandi
höfundarrétt á mynd-
böndum. Rætt verður við
Ingimund Jónsson, for-
mann Sambands mynd-
bandaleiga, og Friðbert
Pálsson, formann Sam-
taka rétthafa myndbanda.
Þá verður m.a. spjallað
við rannsóknarlögregl-
una.
M.a. verður varpað jjósi á það hvar bjórfrumvarpið er statt
í „kerfinu".
syeitalínunni
■I Þátturinn Á
15 sveitalínunni er
á dagskrá út-
varps í kvöld kl. 23.15.
Hilda Torfadóttir hjá
RÚVAK er umsjónarmað-
ur þáttarins.
Að þessu sinni spjallar
Hilda við Friðbjörn Zoph-
aníasson, fyrrum bónda á
Dalvík. Hann segir frá því
þegar hann ferðaðist með
tvær kýr í eftirdragi yfir
Heljardalsheiði árið 1946.
Voru þetta fyrstu kýrnar
hans sem hann hafði ný-
keypt og kom hann þeim
heim í fjós með þessum
hætti.
Þá verður spjallað við
Sigríði Hafstað, húsfreyju
á Tjörn í Svarfaðardal.
Hún mun segja frá því
þegar hún og bóndi henn-
ar, Hjörtur Þórarinsson,
ferðuðust frá Kolbeinsdal
í Skagafirði upp á jökul.
Lentu þau í þoku og ýms-
um ævintýrum.
Loks ræðir Hilda við
Birgi Þórðarson, bónda og
oddvita á Öngulstöðum í
Eyjafirði. Hann hefur
tekið ríkan þátt í leiklist-
arlífinu þar fyrir norðan
og ætlar hann að rifja upp
endurminningar frá
leikstarfinu. Mun ýmisl-
egt hafa komið upp á, á
sýningum, sem áhorfend-
um var ekki ætlað að taka
eftir.
ÚTVARP
N
FÖSTUDAGUR
15. fébrúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. A virkum degi. 7.25
Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. páttur Sigurðar G.
Tómassonar frá kvöldinu áð-
ur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir. Morgunorð —
Kristján Þorgeirsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
.Plpuhattur galdramanns-
ins" eftir Tove Jansson.
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir
les þýðingu Steinunnar
Briem (2).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr).
10^*5 .Það er svo margt aö
minnast á". Torfi Jónsson
sér um þáttinn.
11.15 Morguntónleikar
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
1220 Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
14.00 .Blessuð skepnan” eftir
James Herriot. Bryndls Vlg-
lundsdóttir les hýðingu sína
(7).
14.30 A léttu nótunum
Tónlist úr ýmsum áttum.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Siðdegistónleikar
a. Fiðlukonsert nr. 1 I g-moll
op. 26 eftir Max Bruch.
Anne-Sophie Mutter og Fll-
harmonlusveitin I Berlln
leika; Herbert von Karajan
stj.
b. .Konsert I gömlum stll"
op. 122 eftir Max Reger.
Rlkishljómsveitin I Berlln leik-
19.15 A döfinni
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson.
Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
19.25 Krakkarnir I hverfinu
9. Feðgarnir
Kanadlskur myndaflokkur I
prettán þáttum, um atvik I llfi
nokkurra borgarbarna. Þýð-
andi Kristrún Þórðardóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 60 ára afmælismót
Skáksambands Islands
Skákskýringaþáttur.
20.55 Kastljós
ur; Otmar Suitner stj.
17.10 Slðdegisútvarp
Tilkynningar.
1845 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynn-
ingar.
19.50 Daglegt mál. Valdimar
Gunnarsson flytur þáttinn.
20.00Lög unga fólksins. Þóra
Björg Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka
a. 7Frá safnamönnum.
Þáttur um þjóðleg efni.
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður: Sigrún
Stefánsdóttir.
21415 Skonrokk
Umsjónarmenn: Haraldur
Þorsteinsson og Tómas
Bjarnason.
21.55 Njósnahnettir
Bresk heimildamynd sem
sýnir hvernig unnt er að
fylgjast með atburðum og
mannvirkjum á jörðinni frá
gervihnöttum stórveldanna I
himingeimnum.
Þýðandi Bogi Arnar Finn-
bogason.
b. Sagnir af séra Hálfdani
Einarssyni. Björn Dúason
les.
c. I vinnumennsku á Kolvið-
arhóli. Jón R. Hjálmarsson
spjallar við Kristján Guöna-
son á Selfossi. Umsjón:
Helga Agústsdóttir.
21.30 Hljómbotn
Tónlistarþáttur I umsjón Páls
Hannessonar og Vals Páls-
sonar.
22.00 Lestur Passlusálma (11).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
22.30 Þrjár konur fá bréf
(A letter to Three Wives)
Bandarlsk gamanmynd frá
1949. sh.
Leikstjóri Joseph L. Manki-
ewicz.
Aðalhlutverk: Jeanne Crain,
Ann Southern, Linda Darnell
og Kirk Douglas.
Þrjár konur fínna allar viö
nánari athugun einhverja
brotalöm á hjónabandinu og
veröa á nálum um eiginmenn
slna.
Þýöandi Kristrún Þórðar-
dóttir.
00.10 Fréttir I dagskrárlok
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
2235 Úr blöndukútnum —
Sverrir Páll Erlendsson.
(RÚVAK.)
23.15 A sveitallnunni
Umsjón: Hilda Torfadóttir.
(RÚVAK)
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá RAS 2 til kl.
03.00.
FÖSTUDAGUR
15. febrúar
10.00—1200 Morgunþáttur
Stjórnendur: Páll Þorsteins-
son og Siguröur Sverrisson.
14.00—16.00 Pósthólfið
Stjórnandi: Valdls Gunnars-
dóttir.
16.00—18.00 Léttir sprettir.
Stjórnandi: Jón Ölafsson.
Hlé.
23.15—03.00 Næturvaktin.
Stjórnendur: Vignir Sveins-
son og Þorgeir Astvaldsson.
Rásirnar samtengdar aö lok-
inni dagskrá rásar 1.
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
15. febrúar