Morgunblaðið - 15.02.1985, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1985
Páll Hersteinsson
Páll Hersteins-
son lífeðlis-
fræðingur, ráð-
inn veiðistjóri
Landbúnaðarráðherra hefur veitt
Páli Hersteinssyni liTeðlisfræðingi,
embætti veiðistjóra, frá 1. apríl nk.
Embættið var auglýst fyrr í vetur eft-
ir fráfall Sveins Einarssonar fyrrver-
andi veiðistjóra.
Páll er 33 ára að aldri, fæddur
22. mars 1951. Hann lauk prófi í
lífeðlisfræði við háskólann í
Dundee í Englandi árið 1975 og
framhaldsnámi í taugalífeðlis-
fræði frá Cambridge 1977. Hann
stundaði síðan rannsóknir á lifn-
aðarháttum íslenska refsins og
varði doktorsritgerð um þær við
Oxford-háskóla á síðasta ári.
Páll er kvæntur Ástríði Páls-
dóttur líffræðingi og eiga þau tvo
syni.
1.300 kr. fyrir
tófuskottið
Landbúnaðarráðuneytið hefur
auglýst verðlaun fyrir unna refi og
minka frá 1. janúar 1985. Oddvitar
sjá um greiðslu verðlaunanna.
Fyrir refi unna úr skothúsi eftir
fyrirmælum veiðistjóra eru
greiddar 1.300 kr., fyrir refi
(hlaupadýr) á að greiða 410 kr.,
fyrir fullorðin grendýr 290 kr.,
fyrir yrðlinga 125 kr. og fyrir full-
orðna minka og hvolpa 320 krónur.
James
Dean er
ekki hér
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóhöllin: í fullu fjöri — Reck-
less '/i
Leikstjóri: James Foley. Hand-
rit: ('hris ('olumbus. Kvik-
myndataka: Michael Ballhaus,
A.S.('. Aðalhlutverk: Aidan
Quinn, Daryl Hannah, Kenneth
MacMillan, Cliff De Young.
Frumsýnd í febrúar 1984.
Bandarísk frá MGM/UA. Sýn-
ingartími nálægt V/i klst.
í fullu fjöri er ein af mörgum
myndum um hinn uppreisn-
argjarna, unga, reiða mann,
sem sökum þjóðfélagsstöðu
sinnar er lágt skrifaður í sam-
félaginu þrátt fyrir ýmsa
ágæta burði. Týpa sem James
Dean gerði kannski ódauðlega.
Allar götur síðan hefur ver-
ið leitað með logandi ljósi aðf
einhverjum sem gæti fyllt
hans skarð, en án árangurs.
Því hafa flestar yngri mynd-
anna um hinn unga uppreisn-
armann farið fyrir ofan garð
og neðan í flestum skilningi.
Arftakinn er ekki fundinn enn.
í fullu fjöri er lítið annað en
ómerkileg eftiröpun formúl-
unnar. Aidan Quinn er ekki
ólíkur gömlu stjörnunni í fjar-
lægð og þar endar það sem
þeir eiga sameiginlegt. Sögu-
þráðurinn er gamalkunnur.
Ungi töffarinn í bekknum, sem
ekkert á utan mótorhjólið sitt,
er hornreka skólasystkinanna,
sem flest eru vel á sig komin.
Vinnur þó hjarta aðalglanspí-
unnar með aðstoð hjólsins og
töffheitanna. Eftir formúlunni
er pabbi hans einskis nýtur
drykkjusvoli en pían af aðlin-
um.
Þetta er mynd sem ekkert
skilur eftir sig nema eftirsjá
eftir gamla, góða James Dean,
sem flestir hinna ungu kvik-
myndahúsgesta þekkja ekki
nema af plakötum. Daryl
Hannah er glæsileg og upp-
rennandi leikkona sem örugg-
lega vill gleyma þessu hlut-
verki álíka fljótt og undir-
ritaður myndinni.
Frá vinstri: Tore Melgard aðstoðarframkvæmdastjóri Storebrand-Norden, Ingi R. Helgason forstjóri Bt Líftrygg-
ingar, Jostein Sörvoll tryggingarstærðfræðingur og Stefán Reykjalín formaður stjórnar BI Líftryggingar.
BÍ Líftrygging:
Söfnunarlí ftrygging
sameinar iíftrygging-
arkaup og sparnað
B í LÍFTRYGGING, nýtt félag
sem Brunabótafélag íslands hef-
ur stofnað, mun hefja starfsemi
sína í dag.Ingi R. Helgason for-
stjóri sagði á blaðamannafundi,
þar sem hið nýja félag var
kynnt, að samkvæmt almennum
lögum um vátryggingastarfsemi
og eftirlit með henni (50/1978)
verði líftryggingar ekki reknar
með öðrum vátryggingum í einu
félagi. Þetta hafði það í för með
sér, að Brunabótafélagið gat
ekki innan sinna vébanda með
öðrum vátryggingagreinum ha-
LacSTJÓB: DREW DENBAUM • HMMLBBM0: JAK08 MAGNUSS0N
KVKUYNDATAKA DAVS BfflOGES • EHFVH6LA. SKURJÓN SKiHVATSSON
TÚNJST: PAT UETHEMV, UNC0LN HAY0RGA ■ HUdft BJÖRN EMLSS0N
n« MWMossBm-iik sununiiiosTjNeswouiuiAúaHiuani
■MK PATTT M.TBAUK VUCBG íflAOÓTTW • LBM MMCT HCXBABKT. EDOA SVBWB00TTP
HOU
Frumsýning:
Íslensk-bandaríska
kvikmyndin
Nikkel-
fjalliö
Aöalhlutverk: Patrick Cassidy, Michael
Cole, Heather Langenkamp. Viö myndina
störfuöu m.a. Sigurjón Sighvatsson, Jakob
Magnússon, Ragna Fossberg, Björn Em-
ilsson, Guömundur Kristjánsson, Ólafur
Rögnvaldsson, Edda sverrisdóttir, Vilborg
Aradóttir o.fl. Leikstjóri: Drew Denbaum.
Getur ung stúlka í tygjum viö miöaldra
mann staðist fyrrverandi unnusta sinn, sem
birtist án þess aö gera boð á undan sér?
Tónlist eftir Pat Metheny og
Lincoln Mayorga.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
fið rekstur líftrygginga og þess
vegna hafi það orðið að stofna
sérstakt líftryggingafélag.
Þetta nýja líftryggingafélag er
gagnkvæmt vátryggingafélag eins
og Brunabótafélagið. I stjórn þess
eru Stefán Reykjalín, formaður,
Friðjón Þórðarson, varaformaður
og Guðmundur Oddsson, ritari. í
varastjórn eru Björgvin Bjarnas-
on, Andrés Valdimarsson og Jónas
Hallgrimsson. Forstjóri félagsins
er Ingi R. Helgason og aðstoðarf-
orstjórar Hilmar Pálsson og Þórð-
ur H. Jónsson. Löggiltur endur-
skoðandi er Ólafur Nilsson og
tryggingarstærðfræðingur er
Morten Harbitz og fulltrúi Þór-
anna Gröndal.
B f Líftrygging hefur gert
endurtryggingarsamningur við
Storebrand - Norden Re til 20 ára
með venjulegum uppsagnarákv-
æðum. Storebrand í Noregi hefur
verið aðalendurtryggjandi Brun- •
abótafélagsins allt frá því að það
hóf starfsemi sína árið 1917. Tore
Melgárd hefur, sl. 30 ár, verið að-
alburðarás þessara samskipta.
Hann hefur verið sæmdur riddar-
akrossi hinnar íslensku fálkaorðu.
Tore Melgárd var áður yfirmaður
endurtryggingardeildarinnar, en
er nú aðstoðarframkvæmdastjóri
Storebrand-Norden.
B í Líftrygging býður upp á
margs konar líftryggingu.Verð-
tryggð líftrygging er t.d. fyrir þá
sem hafa í huga fjárhagslega af-
komu fjölskyldunnar til lengri
tíma og ákvarðast iðgjaldið af al-
dri, kyni, tryggingarupphæð og
lengd tryggingartima og fylgir
vísitölu á sama hátt og trygg-
ingarupphæðin. Við lát trygg-
ingartaka greiðist tryggingar-
upphæðin út í einu lagi.
Söfnunarlíftrygging er einnig
verðtryggð líftrygging sem með
söfnun sameingar líftryggingar-
kaup og sparnað. Söfnunarfé
myndast á þann hátt að ákveðnum
hluta iðgjaldsins er safnað f sjóð
til ávöxtunar. Sjóðurinn er verð-
tryggður og kemur hann til út-
borgunar í lok tryggingartímab-
ilsins, sé hinn vátryggði á lífi.
Tímabundin líftrygging er tekin
til árs í senn, en hægt er að fram-
lengja trygginguna í allt að tíu ár
án nýrrar yfirlýsingar um heilsu-
far. Iðgjald ákvarðast af aldri,
kyni og tryggingarupphæð og
greiðist tryggingarupphæðin út í
einu lagi við lát tryggingartaka.
Sameiginleg líftrygging er
hugsuð fyrir hjón, tvo einstakl-
inga eða fleiri sem bera fjárhagsl-
ega ábyrgð sameiginlega. Iðjgjöld
ákvarðast á svipaðan hátt og í
Verðtryggðri/Tímabundinni líftr-
yggingu. Látist annar aðilinn á
tryggingartímabilinu er trygg-
ingarupphæðin greidd út í einu
lagi.
Einnig er boðið upp á Hóp líftr-
yggingu fyrir starfshópa eða félög
einstaklinga (minnst 10). Þessi
trygging veitir grundvallarvernd
og reiknast iðgjaldið út fyrir allan
hópinn og er mun lægra en ein-
staklingstrygging.
Litlar líkur
á frystingu
loðnuhrogna
LITLAR líkur eru nú á því, að takist
að selja Japönum umtalsvert magn
af frystum loðnuhrognum. í Japan
eru nú til brigðir af loðnuhrognum,
sem duga til ársneyzlu og þeir því
tregir til kaupa.
Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson, for-
stjóri SH, sagði í samtali við blm.
Morgunblaðsins, að á síðasta ári
hefðu framleiðendur í Noregi
framleitt mun meira en Japans-
markaðurinn hefði með góðu móti
getað tekið við. AIls hefði fram-
leiðslan í fyrra numið tvöfaldri
ársneyzlu í Japan. Því yrði að
takmarka framleiðslu þessarar
vertíðar verulega og einnig að
lækka verð, ætti að takast að selja
Japönum eitthvert magn. Fram-
leiðslugeta hér og í Noregi væri
margföld á við þörfina í Japan og
auk þess væri verulegur ágrein-
ingur um það meðal Norðmanna
sjálfra, hvernig standa ætti að
þessum málum. Því hefðu engir
sölusamningar enn verið gerðir
enda ekki við því, að búast að Jap-
anir ákvæðu kaup fyrr en íslend-
ingar og Norðmenn kæmu sér
saman um verð og magn.