Morgunblaðið - 15.02.1985, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1985
Hér gefur að líu óperuhúsið í Sidney. Það er teiknað af dönskum arkitekt. Byggingin var alveg að sliga þarlenda. Þeim tókst þó að Ijúka henni og þurfa ekki
að iðrast þess því hún hefur vakið heimsathygli og komið borginni á landakort tónlistarfólks. Hvað viu menn um Ástralíu annað en að þar eru kengúrur og
glæsilegt óperuhús?
kennileita borgarinnar, þegar það
rís í Öskjuhlíð.
4 Það er ljóst að húsið mun að
stórum hluta nýtast til tónleika-
halds og æfinga, auk þess sem þar
þyrfti að vera kennsluaðstaða. Það
mætti hugsa sér að leigja húsið til
óperuflutnings eða söngleikjasýn-
inga. Listahátíð gæti komið inn í
myndina.
Til að létta undir við reksturinn
væri hægt að koma upp kerfi
fastra styrktaraðila, einstaklinga
og fyrirtækja, sem greiddu árlega
myndarlega fjárupphæð.
Bragi Jónsson
framkvæmdastjóri:
1 Það er einfalt mál. Hér verð-
ur að vera til gott hús svo
Sinfóníuhljómsveitin okkar og
önnur tónlistarstarfsemi dafni.
Það er heldur ekki vansalaust að
þurfa að bjóða góðum gestum, eins
og t.d. hljómsveitinni Fílharmóníu
upp á Laugardalshöll, sem hefur
þann eina kost að hún er stór.
2 Ég ímynda mér að í svona
húsi þurfi að vera tveir salir, ann-
ar stór með sætum fyrir allt að
1800 manns, hinn fyrir um 250
manns. Mér finnst mjög mikil-
vægt að svona hús sé opið allan
daginn og iðandi af lífi. Slíkt yrði
Hvað segja áhugamenn
um byggingu tónlistarhúss?
Grieghallen f Bergen. Glerveggir gefa húsinu svip, rétt eins og fleiri
nýjum tónlistarhúsum. Húsið er því opið og öndvert og á að gefa gestum
og gangandi þá tilfinningu að þeir séu hjartanlega velkomnir. Aðalsalur-
inn tekur 1500 manns í sæti.
Hljómburður
í tónleikasal
Fyrsta hugsun varðandi tón-
leikahús er góður hljómburður.
Án hans skiptir allt annað harla
litlu máli.
Hljómburðarfræði er sérstök
fræðigrein. Núorðið er salurinn
teiknaður inn á tölvu. Hún látin
líkja eftir hljómbyigjum tónlist-
ar og athugað hvernig þær dreif-
ast um salinn. Þannig á að vera
hægt að laga til þá agnúa sem k
unna að vera á salnum áður en
hann er byggður og innréttaður.
Góðir hljómburðarfræðingar
segja það vandalaust að segja
fyrir um hljóm í sal eftir að hafa
séð teikningu og unnið úr henni.
Það er býsna margt sem hefur
áhrif á umferð hljóðsins um
tónleikasal. Lögun hans, t.d.
svalir, loft og annað efni sem eru
í honum, hversu margir eru í
honum, þ.e. að finna réttan
sætafjölda miðað við stærð, og
svo hefur áhrif hvort hann er
fullur eða tómur. Einhvern tíma
átti að flytja verk Hándels. Hon-
um var sagt að fáir væru mættir.
Gott, sagði hann. Þá hljómar
músíkin vel. Núorðið er farið að
klæða sætin þannig að þau taki í
sig álíka mikið hljóð hvort sem
þau eru auð eða setin.
En hljóðið þarf ekki aðeins að
berast vel um salinn, heldur
þurfa tónlistarmennirnir að
heyra vel hver í öðrum og hafa
það á tilfinningunni að hljóðið
berist greiðlega frá þeim án
átaka
Það eru til ýmsir góðir salir í
heiminum og ekki allir teiknaðir
með hjálp tölvu. Concertge-
bouw-salurinn í Amsterdam og
Musikverein-salurinn í Vín frá
síðustu öld þykja einstakir og
eru gjarnan hafðir að fyrirmynd.
Vonandi verða væntanlegir tón-
leikasalir hér eitthvað í átt við
þá víðrómuðu sali.
SD
Kftirfarandi spurningar voru lagðar fyrir nokkra áhuga-
menn um tónlist:
1) Hvers vegna finnst þér að eigi aö byggja tónlistarhús í
Reykjavík?
2) Hvernig hús viltu sjá reist?
3) Hvaða hugmyndir hefur þú um fjármögnun hússins?
4) Hvaða hugmyndir hefur þú um nýtingu og rekstur
svona húss?
Svör þeirra fara hér á eftir.
Auður Eydal
kennari:
1 f hverri viku eru haldnir
margvíslegir tónleikar víðsvegar
um borgina, í kirkjum, leikhúsum,
kvikmyndahúsum og jafnvel í
íþróttahöll, þegar sérlega góðir
gestir koma til landsins. Þessi
ólíku hús eiga aðeins eitt sameig-
inlegt: Þau eru ekki byggð sér-
staklega með tónleikahald í huga.
Hljómburður er því þegar bezt
lætur sæmilegur. Við svo búið
verður ekki unað lengur og því
reisum við tónlistarhús.
2 Ég sé fyrir mér „fjölhæfn-
ishús", þar sem aðstaða er til fjöl-
breytts tónleikahalds, a.m.k. tveir
salir, stór og annar minni.
Slíkt hús, þar sem aðstaða er öll
hin fullkomnasta, hlýtur að verða
lyftistöng fyrir tónlistarlíf hér,
sem nú þegar er aflmikið og vax-
andi.
3 Til þess að fjármagna þessa
byggingu þarf fyrst og fremst al-
mennt átak. Ein leiðin er fjársöfn-
un, þar sem einstaklingar, fyrir-
tæki og stofnanir leggja fram
fjárupphæðir. Reynt yrði að fá
framlög frádráttarbær til skatts.
Tónlistarhappdrætti og tónleiká-
hald, þar sem listamenn gæfu
framlag sitt, eru einnig möguleik-
ar. Þar má láta sér detta í hug
50—100 kr. aukagjald á aðgöngu-
miða að tónleikum og sem rynni
til byggingarinnar.
Ekki efast ég um að Alþingi taki
bygginguna inn á fjárlög, svo
sjálfsagt sem það er hverri þjóð að
hlúa vel að tónlistarlífi sínu.
Einnig má ætla að borgaryfirvöld
styrki bygginguna, sem fyrir utan
menningarlegt gildi verður eitt
lyftistöng fyrir húsið. Þess vegna
væri sjálfsagt að hafa stórt and-
dyri, sem væri tilvalið fyrir veit-
ingarekstur og aðra starfemi. Hér
er ég með í huga líflegt hús eins og
Barbican Center og Royal Festival
Hall í London og einnig Lincoln
Center í New York.
3 Það er sjálfsagt að einkaað-
ilar fjármagni bygginguna, a.m.k.
til að byrja með. Eftir stórhug
hljómsveitarinnar Fílharmoníu
getum við ekki látið okkar eftir
liggja. Hið opinbera þarf vafa-
laust síðar meir að hlaupa undir
bagga. Starfsemi SÁÁ og Krabba-
meinsfélagsins og framkvæmdir
þeirra eru gott dæmi um hvað
hægt er að gera þar sem skipulag
er gott og áhuginn brennandi.
4 Svona hús verður ekki gróða-
fyrirtæki. En það nýtist fyrir
fleira en sígilda tónlist, svo húsið
getur haft tekjur af því að leigja
salinn út, þegar húsið er á annað
borð risið.
Erlendur Einarsson
forstjóri:
1 Sérstakt tónlistarhús er
tímamótamál fyrir tónlistarlíf all-
rar þjóðarinnar. Gróska í tónlist-
arlífi hér, þ.e. sígildri tónlist,
rennir sterkum stoðum undir sér-
stakt tónlistarhús í höfuðborginni.
Audur Eydal
Bragi Jónsson
Erlendur Einarsson