Morgunblaðið - 15.02.1985, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1985
15
Hvar á húsið
að rísa?
Formaður skipulagsnefndar Reykjavíkur hefur orðið
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
formaður skipulagsnefndar
Reykjavíkur var beðinn að segja
nokkur orð um hugsanlega staði
fyrir tónlistarhús og hvaða at-
riði þarf að hafa í huga við stað-
arvalið.
Mjög ítarleg athugun hefur
verið gerð hjá Borgarskipulagi
Reykjavíkur á staðsetningu lóð-
ar undir tónlistarhús. Hafa
margir staðir verið kannaðir
mjög rækilega með það í huga að
nýtt tónlistarhús félli sem best
inn í borgarmyndina.
Á fundi sínum þann 13. nóv. sl.
lýsti borgarráð Reykjavíkur þvi
yfir að það væri reiðubúið til
viðræðna við forsvarsmenn um
byggingu tónlistarhúss um eftir-
talda lóðarmöguleika, sem þó
hefðu ekki verið kannaðir til
þrautar. Lóð í Laugardal vestan
Glæsibæjar, lóð í Vatnsmýri, þ.e.
austan Njarðargötu, norðan þess
svæðis þar sem tívolí var hér áð-
ur fyrr, lóð í öskjuhlíð, þ.e. aust-
an og norðaustan við lóð nýja
keiluspilshússins.
Nú er verið að kanna þessa
þrjá mögugleika nánar. For-
svarsmenn um byggingu tónlist-
arhúss hafa mestan áhuga á lóð
í Öskjuhlíð. Borgaryfirvöld hafa
ekki tekið endanlega ákvörðun
um lóðina, en hennar er að
vænta fljótlega.
Ljóst er að staðarval undir
tónlistarhús í borginni skiptir
miklu máli. Því er ekki óeðlilegt
að ákvörðun taki nokkurn tíma,
enda mörg atriði sem þarf að
taka tillit til, svo sem aðkoma,
umferð, bilastæði, almennings-
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
vagnar og tengsl húss við nán-
asta umhverfi.
Öskjuhlíðin hefur upp á
marga góða kosti að bjóða. Tón-
listarhús í Öskjuhlíð er í góðum
sjónrænum tengslum við mið-
borgina og þar er náttúrufegurð
og glæsilegt útsýni. Hins vegar
er nokkuð erfið aðkoma að svæð-
inu og engin bílastæði fyrir
hendi, en fyrir hús af þessari
stærð, þ.e. rúmlega 5000 fm fyrir
1600 manns, þarf um 500—700
bílastæði.
Laugardalslóðin er mjög
miðsvæðis í vaxandi höfuðborg.
Góð tengsl eru við Laugardals-
svæði en þar á eftir að koma
margvísleg starfsemi í framtíð-
inni. Svæðið er vel staðsett
gagnvart samgöngum og í næsta
nágrenni er nokkur fjöldi bíla-
stæða. Útsýni er þar fagurt og
húsið gæti sett mikinn svip á
Laugardalinn og umhverfi hans.
Helstu kostir lóðar í Vatns-
mýri er nálægð við miðbæinn og
Háskólasvæðið. Hins vegar tel
ég það töluverðan ókost hve
flugbrautin er skammt undan og
ennfremur er umferð erfið á
þessum stað.
Bygging tónlistarhúss er afar
spennandi framkvæmd og
ánægjulegt að myndast hefur
fjölmennur áhugamannahópur
um þetta verkefni. Ég vona að
hönnun og bygging nýs tónlist-
arhúss takist vel og verði að-
standendum þess og höfuðborg-
inni til sóma.
Tónlistarskólar starfa víðs vegar
um landið, þar sem sígild tónlist
er kynnt og iðkuð. Hún er þýð-
ingarmikið framlag til aukins
þroska einstaklinganna, jafn-
framt því að vera einn af horn-
steinum menningar okkar.
En rökin eru fleiri. Þrátt fyrir
tónleikahald, þá er húsnæðið
oftast ófullnægjandi. Sinfóníu-
hljómsveit íslands, kjölfesta ís-
lenzks tónlistarlífs, vantar betri
aðstöðu, það vantar húsnæði fyrir
litla tónleika og svo vantar eins
konar höfuðstöðvar fyrir tónlist-
arlíf í landinu. Ekki má gleyma að
nýtt tónlistarhús eykur möguleika
á að fá hingað alþjóðlega lista-
menn.
Fullkomið tónlistarhús lyftir
tónlistarlífinu, eykur á þroska
tónlistarmanna hér, jafnt flytj-
enda sem tónskálda. Öll þjóðin
nýtur svo góðs af.
2 Ég vil sjá listræna byggingu
rísa uppi í Öskjuhlíð og sem væri
veglegur minnisvarði þessarar
listgreinar, sem sumir telja göfug-
asta í heimi hér. Um fyrirkomulag
vísa ég í félagssamþykkt Samtaka
um byggingu tónlistarhúss: „Tón-
listarhús á að fullnægja ýtrustu
kröfum um góðan hljómburð og
afnot hússins eiga að auðga tón-
listarlíf þjóðarinnar. Miða skal
við, að hægt sé að flytja í húsið öll
verk tónbókmenntanna." Mín
skoðun er að við eigum að setja
markmiðið hátt, því verði svo náð
í áföngum eftir þörfum og getu.
Forsagnarhópur samtakanna
hefur kynnt sér tónlistarhús er-
lendis í leit að hugmyndum, sem
hentuöu hér, og sett fram hug-
myndir um stærð, sali og baksvið
hússins. Þar virðist of dýrt að
gera ráð fyrir óperuflutningi
strax, en ég álft að óperan hafi
haslað sér völl hér svo að finna
verði framtíðarlausn á húsnæð-
ismálum hennar. Hún hefur náð
aðdáunarverðum árangri.
Ingi R. Helgason
3 Ég á von á að farnar verði
svipaðar leiðir og þegar félaga-
samtök hafa staðið í framkvæmd-
um. Trúlega verður einkum leitað
til almennings, þannig hafa t.d.
kirkjur verið byggðar á undan-
förnum árum. Fjármögnun húss-
ins leiðir hugann að nýlegum til-
lögum um stofnun samnorræns
menningarsjóðs. Formaður vinnu-
hóps um hann er Lars Smidt, sem
er heimsþekktur fyrir uppsetn-
ingu leiksýninga. Hann flutti er-
indi fyrir Gyllenhammer-nefnd-
ina, sem ég á sæti í og sem vinnur
að eflingu norræns efnahags-
samstarfs. Tillaga hans er að
hvert Norðurlandanna setji lög
um heimild til fyrirtækja um að
draga megi frá skatti framlög til
Menningarsjóðsins. Það hefði
mikla þýðingu ef það sama ætti
við hér um framlög einstaklinga
og fyrirtækja til tónlistarhúss, þó
tekjuafgangur fyrirtækja sé að
vísu minni hér en á hinum Norð-
urlöndunum.
4 Ég er ekki kunnugur hvernig
þessum málum er háttað annars
staðar, en trúlega er hægt að leita
fyrirmynda til útlanda. Góð nýt-
ing er markmiðið, og þá er líklega
vænlegt að hafa þar fundi og
ráðstefnur. í Konserthúsinu í
Stokkhólmi, aðaltónlistarhúsinu
þar, eru haldnar margvíslegar
samkomur, t.d. úthlutun Nóbels-
verðlaunanna.
Hlutafélag gæti verið um rekst-
urinn, eigendur hlutafjár gætu
verið einstaklingar, félög og fyrir-
tæki, auk Reykjavíkurborgar og
ríkis. Stjórn væri kosin þannig að
afnot hússins auðgaði tónlistarlíf
þjóðarinnar.
Ingi R. Helgason
forstjóri:
1 Ég vil sjá tónlistarhúsið rísa
sem fagra byggingu, sem setji svip
á Reykjavík og sé borgarprýði. Ég
ólafur Stephensen
vil góðan arkitektúr og umfram
allt góðan hljómburð. Eg vil hins
vegar ekki prjálhýsi eða höll.
2 Tónlistarhúsið í Reykjavík á
að verða mikil lyftistöng tón-
menntar og tónlistarlífs á Islandi.
Tónlistarhúsið verður fyrst og
fremst heimili Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands, en húsið á jafn-
framt að vera opið öllum, sem telja
sig hafa tónlist að flytja. Mikil
gróska er nú í íslenzku tónlistar-
lífi og húsið á að verða sannkall-
aður vermireitur þeirrar grósku.
Tónlistarhúsið býður upp á mjög
mikla möguleika til að tengja það
sem þar fer fram lifandi böndum
við tónlistarkennsluna í landinu
og gildi hússins til eflingar tón-
listarlífi liggur ekki sízt í þeim
möguleikum.
3 Það verður mikið fjárhags-
legt átak að byggja tónlistarhúsið
og fjárhæðirnar hlaupa á hundruð
milljóna króna. Hér þurfa tónlist-
armenn, áhugafólk um tónlist og
opinberir aðilar að sameinast.
Með samtökum um tónlistarhúsið
er mikill fjöldi fólks að koma til
móts við opinbera aðila, bæði borg
og ríki, í því skyni að sinna mjög
þýðingarmiklu menningarhlut-
verki. Þess er ekki að vænta, að
húsið verði reist fyrir samskotafé
eingöngu, en menn skulu samt
ekki vanmeta möguleika Samtak-
anna í þessum efnum, eins og ljóst
er þegar af aðgerðum tónlistar-
fólks innan lands og utan, til að
leggja fram sinn skerf. Þegar svo
lóðarsamningur hefur verið gerð-
ur við Reykjavíkurborg, fá Sam-
tök öfluga viðspyrnu í fjáröflunar-
aðgerðum sínum.
4 Ég verð að játa að hugmynd-
ir mínar um rekstur hússins eru
enn ekki fullmótaðar. Mér er þó
ljóst það grundvallaratriði að
rekstur verður að standa undir
sér, þ.e.a.s. rekstrartekjur undir
gjöldum. Það ætti að vera hægt ef
ekki þarf að taka af því í afborg-
Sigurður Helgason
anir og vexti af byggingarkostn-
aði.
Við í Samtökunum höfum talað
um að stofna sérstakt rekstrarfé-
lag og séð áætlanir fagmanna um
hagnýtingu hússins þar sem fylli-
lega er gert ráð fyrir að hægt sé að
fullnægja þessu grundvallaratriði.
Auðvitað verður í þeim efnum að
sækja út fyrir tónlistina sjálfa til
nýtingar, þann tíma sem músíkin
er ekki við völd.
Ólafur Stephensen
framkvæmdastjóri
1 Tónlistarhús á íslandi á
helzt af öllu að vera eins og heim-
ili stórrar, samrýndrar fjölskyldu.
Það verður tekið á móti gestum
eftir efnum og ástæðum, en alltaf
með reisn. Þar eiga börnin að
mótast af foreldrum sínum, við-
horfum þeirra og gesta þeirra,
elsku og aðhaldi.
2 Það er nokkurn veginn sama
hvernig húsið verður útlits — við-
ur, steinsteypa, stál og gler eru
dauð hugtök þegar rætt er um hús
tónlistarinnar. Húsið verður að
vera lifandi. Það verður að hafa
sál. Sálin í tónlistarhúsum er í
daglegu tali nefnd hljómburður.
Ef hljómburður tónlistarhúss er
gallaður er húsið dautt.
3 Mér er ómögulegt að hugsa
mér tónlistarhús á íslandi öðru-
vísi en í almenningseign. En í
huga mínum er ríkiseign og al-
menningseign tvö mismunandi
hugtök.
Tónlistarhús á að vera sjálf-
stætt hlutafélag — eign allra
þeirra sem láta sér annt um tón-
listarverðmæti okkar og afkom-
enda okkar — nokkurs konar Eim-
skipafélag íslenzks tónlistarlífs.
4 íslenzkt tónlistarhús má
ekki verða tónleikahöll. Vissulega
þarf allur aðbúnaður að uppfylla
helztu kröfur sem gerðar eru til
hvers kyns hljómleika. En í tón-
listarhúsi þarf líka að sinna þeim,
L
Þórður Harðarson
sem vilja fá lánaðar hljóðritanir,
myndbönd, bækur og blöð. Starf-
semi hússins á einnig að gera ráð
fyrir áhugamannahópum,
fræðslufundum, fyrirlestrum,
sýningum, tónlistarfélögum, æf-
ingaherbergjum, útgáfustarfsemi
og erlendum samskiptum.
Sigurður Helgason
forstjóri:
1 Sem ein af hinum fögru list-
um á tónlistin að skipa vegiegan
sess í menningarlífi þjóðarinnar.
Það verður ekki gert án þess að
fyrir hendi sé gott tónlistarhús.
2 Húsið á að vera hæfilega
stórt til þess að hægt sé að hafa
þar um hönd þá tónlistarstarf-
semi, sem nú er á hrakhólum, þar
sem ekkert slíkt hús er fyrir
hendi. Hæfilegt er að vísu nokkuð
teygjanlegt, en þar tel ég að fara
eigi bil beggja, að hafa það hvorki
of stórt né of lítið.
3 Æskilegt væri að hægt væri
að fjármagna húsið að mestu leyti
með einkaframlögum.
Hins vegar er það svo að í okkar
þjóðfélagi taka ríkið og bæjarfélög
svo stóran hlut af þjóðartekjum
að sennilega verður óhjákvæmi-
legt að einhver framlög komi þar
til frá þessum aðilum.
4 Hagkvæmnissjónarmið
verða að ráða við byggingu húss-
ins þannig að þar sé hægt að hafa
sem mest af þeirri tónlistarstarf-
semi sem nú er vítt og breitt um
bæinn. Það er höfuðnauðsyn að
húsið geti staðið undir sér fjár-
hagslega.
Þórður Harðarson
yfirlæknir:
1 Bygging myndarlegs tónlist-
arhúss yrði tónlistarunnendum að
sjálfsögðu mikið gleðiefni, þó að
ég sé ekki tilbúinn að segja, hvar
það eigi heima í forgangsröð
opinberra framkvæmda. Ékki þarf
að fjölyrða um annmarka núver-
andi húsnæðis til meiri háttar
tónleikahalds.
2 Til að nýtast sem bezt, þyrfti
tónleikahús að rýma alls konar
tónlistarflutning, stofutónlist og
hljómsveitarverk, óperur og popp.
Ljóslega verður þðrf á tveimur
misstórum sölum, en nauðsynlegt
er að vera vakandi fyrir öðrum
nýtingarmöguleikum, t.d. meiri
háttar ráðstefnuhaldi, einkum að
sumarlagi, en þá þyrfti fleiri sali.
E.t.v. væru aðilar í ferðastarfsemi
reiðubúnir til samstarfs um slíkt.
Aðalatriðið er að byggja
skrumlaust hús, sem styðst við
trygg fordæmi erlendis, en ekki
eins og aldrei hafi verið byggt
tónlistarhús fyrr. Ekki skyldi
sækja fyrirmyndir vestur á Mela í
hornskökk marmarahús eða rauð-
ar kornhlöður í Síberíustíl. Loks
má ekki gleyma að góður hljóm-
burður fegrar góða spilamennsku
en afhjúpar vonda.
3 Æskilegt væri að einkaaðilar
legðu sem mest fram til byggingar
tónlistarhúss. Auk hefðbundinnar
fjáröflunar þyrfti að virkja ís-
lenzka auðmenn til verksins. Sú
stétt manna hefur á sér mikið
slyðruorð í samanburði við stétt-
arbræður þeirra í ýmsum ná-
grannalöndum.
Hugsa mætti sér að slík framlög
yrðu skattfrjáls, enda óvíst, hvort
slíkt leiddi til tekjutaps fyrir rík-
issjóð.
Þó er hætt við að einkafjáröflun
nægði ekki til svo mikils verkefnis
og líklegt, að ríkissjóður og sveit-
arfélög á Reykjavíkursvæði þyrftu
að leggja til umtalsvert fjármagn.
Batnandi hagur borgarsjóðs
Reykjavíkur vekur góðar vonir
4 í höfuðatriðum ættu þeir að
greiða fyrir listina, sem vilja njóta
hennar. Ljóst er þó, að sókn í tón-
listarviðburði myndi stórminnka,
ef aðgangur væri seldur á kostn-
aðarverði. Hér er því einnig nauð-
syn á rekstrarframlagi úr opin-
berum sjóðum. E.t.v. væru helm-
ingaskipti ekki fjarri lagi. Einnig
þarf að hafa augun opin fyrir
hugsanlegum fjáröflunarleiðum,
eins og áður er drepið á, þ.e. leigu
hússins á heppilegum tímum til
óskyidrar starfsemi, t.d. sýninga
og ráðstefna.