Morgunblaðið - 15.02.1985, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1985
21
sem margir vona og vinna að,
verður það ekki sízt fyrir framtak
hans og það yrði honum óbrot-
gjarn minnisvarði.
Svo að í lokin sé minnzt aðeins á
æviferil próf. Jóns Steffensen, þá
er hann fæddur hér í Reykjavík
15. febrúar 1905. Foreldrar hans
voru Valdemar Steffensen læknir
og Jenny kona hans. — Jón lauk
embættisprófi í læknisfræði frá
Háskóla Islands árið 1930, stund-
aði síðan framhaldsnám erlendis
og starfaði um hríð sem héraðs-
læknir, en árið 1937 var hann
skipaður prófessor í líffærafræði
og lífeðlisfræði við Háskóla fs-
lands og gegndi því embætti þar
til hann sagði því lausu nokkru
fyrir sjötugt. — Háskóli íslands
hefur sæmt hann heiðursdokt-
orsnafnbót fyrir vísindastörf sín.
Kona Jóns var Kristín Björnsdótt-
ir frá Mýrarhúsum á Seltjarnar-
nesi, sem lézt árið 1972.
Við hér í Þjóðminjasafninu höf-
um lengi litið á próf. Jón Steffen-
sen nánast sem einn úr okkar
hópi. Lengi hefur hann starfað í
nánum tengslum við safnið og með
árunum hafa böndin styrkzt eftir
að hann fór að hafa vinnustað
sinn tíma og tíma innan veggja
safnhússins. En þessi bönd milli
hans og safnsins eru áratuga göm-
ul. Hann tók til rannsóknar
mannabein þau, sem fundust við
uppgreftri og greindi þau, og fyrir
kom, að hann rannsakaði sjálfur
fornkuml úti um landið og síðast
en ekki sízt tók hann drjúgan þátt
í rannsóknunum í Skálholti fyrir
um þremur áratugum.
Hann er virtur fræðimaður er-
lendis og á þar góðan kunningja-
hóp meðal þeirra, sem fást við
sams konar rannsóknir. Og ekki
skal því gleymt, að hann var for-
maður Hins íslenzka fornleifafé-
lags um árabil og lagði margar
greinar til árbókar þess.
Ég færi próf. Jóni Steffensen
árnaðaróskir á þessum tímamót-
um og óska þess, að ekki séu enn í
bráð uppi samskipti hans og Þjóð-
minjasafnsins.
Þór Magnússon
Steinullarverksmiðjan fokheld
Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki varð fokheld fyrir nokkrum dögum og er búist við að framleiðsla hefjist í verksmiðjunni innan
fram kom í Mbl. á miðvikudag.
Morgunblaðið/OÞ.
hálfs árs, eins og
Bankaeftirlitið:
Agreiningur vegna vaxta á inn-
heimtuskuldabréfum í athugun
BANKAEFTIRLITIÐ í Seðlabank-
anum hefur nú til athugunar ágrein-
ing á milli Seðlabankans annarsveg-
ar og Landsbankans og fleiri inn-
lánsstofnana hinsvegar um vaxta-
töku af skuldabréfum sem bankarn-
ir hafa til innheimtu fyrir viðskipta-
vini sína. Ágreiningurinn snýst um
það hvort rétt hafi verið hjá bönkun-
um að innheimta hæstu vexti af inn-
heimtuskuldabréfum sem gefin eru
út fyrir 11. ágúst sl. en þá gaf Seðla-
bankinn út fyrirmæli um tvenns-
konar hæstu vexti eftir því hvort
skuldaviðurkenningarnar voru gefn-
ar út fyrir eða eftir þann tíma. Þetta
telja bankarnir að standist ekki og
hafa innheimt hæstu vexti af öllura
þeim skuldabréfum sem þeir eru
með til innheimtu.
Benedikt Guðbjartsson, lög-
fræðingur hjá Landsbankanum,
sagði i samtali við Mbl. að strax
eftir 11. ágúst hefði bankinn þurft
að taka afstöðu til þess hvaða
vexti ætti að innheimta af þeim
skuldabréfum sem viðskiptamenn
hefðu komið með til innheimtu og
höfðu að geyma ákvæði um hæstu
leyfilegu vexti. Eftir vandlega at-
Símon Steingrímsson, forstjóri
anna, veitti tækjunum formlega
hendi Magnúsar Tryggvasonar,
Lionsklúbbsins Freys.
Nýja æðarannsoKnaiæKio i notKun.
Landspítalanum gefið
æðarannsóknatæki
Lionsklúbburinn Freyr
hefur fært Landspítalanum
að gjöf fullkomið æðarann-
sóknatæki. Tæki þetta er í
raun 8 aðskilin tæki, sam-
tengd í eina heild, og kosta
með tollum og aðflutn-
ingsgjöldum u.þ.b. 3 millj-
ónir króna.
Lionsklúbburinn Freyr aflar
sér aðallega fjár til slíkra
gjafa með sölu jóladagatala.
Nota má hvert tæki sam-
stæðunnar um sig sem sjálf-
stæða einingu og gefur tækja-
búnaðurinn kost á meira en 20
mismunandi sjálfstæðum
rannsóknum á slagæða- og
bláæðakerfi líkamans. Margar
þessara rannsókna eru al-
mennt viðurkenndar sem mjög
nákvæmar og öruggar til
greiningar á ýmsum sjúkdóm-
um í æðakerfinu.
Tveir læknar Landspítalans,
þeir Guðmundur S. Jónsson og
Halldór Jóhannsson, hafa þeg-
ar sótt námskeið í Bandaríkj-
unum um meðferð og notkun
þessa tækjabúnaðar. Tækin
eru staðsett í rannsóknastofu
fyrir hjarta- og æðarannsókn-
ir á 4. hæð nýja spítalans.
Rannsóknaþjónusta með tækj-
unum verður rekin af þremur
deildum Landspítalans sam-
eiginlega, þ.e. eðlisfræði- og
tæknideild, handlækninga-
deild og lyflækningadeild.
Við afhendingu tækjanna þ.
23. janúar sl. flutti Guðmund-
ur S. Jónsson, læknir, erindi
um þennan nýja tækjabúnað.
Síðan veitti Símon Steingríms-
son, forstjóri ríkisspítalanna,
tækjunum formlega viðtöku úr
hendi Magnúsar Tryggvason-
ar, formanns Lionsklúbbsins
Freys, og Páll Gíslason, lækn-
ir, lýsti gagnsemi þeirra rann-
sókna, sem framkvæmdar eru
með slíkum tækjum.
hugun hefðu lögfræðingar Lands-
bankans komist að þeirri niður-
stöðu að Seðlabankanum væri
ekki stætt á því að fyrirskipa
tvennskonar hæstu vexti eftir því
hvenær skuldaviðurkenningarnar
væru gefnar út og væri það álit
stutt af mörgum bankalögfræð-
ingum og lögmönnum, meðal ann-
ars Jóni Steinari Gunnlaugssyni
hrl. en grein hans um þetta efni
birtist í Morgunblaðinu þann 18.
ágúst.
Sagði Benedikt að það væri úti-
lokað að Seðlabankinn gæti gripið
þannig inn í viðskipti fólks á al-
mennum viðskiptamarkaði og
mismunaði því eftir því hvenær
það skrifaði undir skuldaviður-
kenningar sínar, allt án tillits til
þess hvenær samið var um við-
skiptin. Sagði hann að það væri
samdóma álit þessara aðila að
ekki væri hægt að túlka orðtakið
hæstu Iögleyfðu vexti nema á einn
hátt, það er hæstu gildandi vexti í
þjóðfélaginu á hverjum tíma.
Sagði hann að með þessari túlkum
væri þó ekki verið að vefengja rétt
Seðlabankans til að ákvarða
hæstu vexti, bæði innan banka-
kerfisins og utan en þeir yrðu að
láta það sama yfir alla ganga.
Benedikt sagði að lögfræðingar
Landsbankans hefðu strax rætt
við Seðlabankamenn um þessa
túlkun sína og oft síðan með
vaxtatilkynningum sínum án þess
að Seðlabankinn hefði séð ástæðu
til að gera athugasemdir. Hafi
Landsbankinn áréttað þessa túlk-
un sina með tilkynningu í Lögbirt-
ingarblaðinu dags. 5. nóvember.
Þetta mál hefði nú komið upp á
borðið vegna þess að maður sem
taldi sig krafinn um of háa vexti,
sem hann reyndar var búinn að fá
endurgreidda hjá skuldareiganda,
skrifaði Seðlabankanum bréf til
að vekja athygli á málinu þar sem
það kynni að varða ótiltekinn
fjölda aðila um stórar upphæðir,
auk þess sem hann taldi ástæðu til
að athuga framkvæmdina hjá öðr-
um bönkum.
Málið er nú til athugunar hjá
bankaeftirlitinu og er niðurstöðu
að vænta innan tíðar. Lagði Bene-
dikt á það áherslu að bankaeftir-
litið felldi engan dóm í þessu máli,
heldur væri það dómstóla að skera
úr um það hvort bankarnir hefðu
innheimt of háa vexti fyrir við-
skiptamenn sína. Sagði hann að
málið væri ekki fyrir dómstólum
og engar kærur verið lagðar fram
vegna þessarar vaxtatöku.
Ekki taldi Benedikt fært að
áætla hvað vaxtamunurinn væri
mikill, sagði aðeins að um veru-
legar fjárhæðir gæti verið að
tefla. í aðalbanka Landsbankans
einum væru nú um 8.000 inn-
heimtuskuldabréf, og áætlaði
hann að 60—70% þeirra væru með
ákvæðum um hæstu lögleyfðu
vexti. Slík bréf skipta því mörgum
tugum þúsunda i bankakerfinu
öllu þvi sami háttur hefði verið
viðhafður við vaxtatöku í öllum
útibúum Landsbankans og í flest-
um öðrum innlánsstofnunum. Að-
spurður um hver bæri tjónið ef
það kæmi í ljós að bankarnir
hefðu ofkrafið vexti af innheimtu-
skuldabréfum, sagði Benedikt, að
ef dómstólar úrskurðuðu það yrðu
bankarnir að endurgreiða vaxta-
muninn, en ættu væntanlega síðan
endurkröfurétt á eigendur bréf-
anna, því bankarnir væru aðeins
innheimtuaðilar fyrir þá.
Eftir vaxtabreytinguna í ágúst
munaði 2 prósentustigum á vaxta-
töku af verðtryggðum skulda-
bréfum með ákvæðum um hæstu
lögleyfðu vexti, bankarnir inn-
heimtu 7% vexti auk verðtrygg-
ingar en Seðlabankinn fyrirskip-
aði 5%. Á óverðtryggðum skulda-
bréfum munaði 5 prósentustigum,
bankarnir innheimtu 28% í stað
23%. Þessi vaxtamunur var mis-
munandi eftir vaxtatímabilum og
með síðustu vaxtaákvörðun, sem
tók gildi þann 1. febrúar sl., var I
tilkynningu Seðlabankans ekki
gerður greinarmunur á skulda-
bréfum í eigu bankanna eftir því
hvenær þau eru gefin út.
Ríkisskattstjóri:
Sammála
vaxtaúrskurði
ríkisskatta-
nefndar
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá ríkis-
skattstjóra:
„í tilefni af grein sem birtist í
blaði yðar þann 13. þ.m. varðandi
vaxtafrádrátt hjá íbúðaseljendum
vill ríkisskattstjóri taka fram, að
hann er sammála úrskurði ríkis-
skattanefndar nr. 799/1983, enda
er niðurstaða úrskurðarins í sam-
ræmi við kröfugerð ríkisskatt-
stjóra í máli þessu.
Ástæða er til að benda á, sbr.
orðalag í upphafi greinarinnar, að
umræddur úrskurður ríkisskatta-
nefndar tekur aðeins til þeirra
vaxta og verðbóta sem fallið hafa
á lán til söludags og kaupandi yf-
irtekur."