Morgunblaðið - 15.02.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLADID, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1985
33
Þórunn Einars-
dóttir frá Stóru-
Vatnsleysu - Minning
Fædd 1. júlí 1892
Dáin 9. febrúar 1985
Dagurinn í dag er öðruvísi en
aðrir. Hún amma er jörðuð í dag.
Með henni fer kona sem átti lang-
an æviferil að baki, hún andaðist á
93. aldursári. Þórunn fæddist að
Brandshúsum í Gaulverjabæj-
arhreppi í Flóa 1. júlí 1892. Ólst
hún því upp á þeim árum, sem fólk
gerði fyrst og fremst kröfur til
sjálfs sín en ekki til annarra.
Mætti margur nú til dags læra
ýmislegt af því fólki, sem nú er að
kveðja.
Var það hennar siður alla ævi
að láta ekki hafa fyrir sér að
óþörfu.
Þórunn giftist manni sínum,
Þórði Kr. Jónassyni, 21. maí 1921
og eignuðust þau 8 börn. Eru 7
þeirra á lífi, en ein dóttir lést af
slysförum. Þau hjón Þórunn og
Þórður bjuggu lengst af á Stóru-
Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd.
Var oft annasamt á þessu stóra
heimili. Dagsverkin voru löng.
Unnið var hörðum höndum
myrkra á milli eins og allir
þekkja, sem muna þessa tíma.
En þegar litið er til baka og
hugurinn reikar til þeirra ára, er
afi og amma bjuggu á Stóru-
Vatnsleysu, þá er myndin, sem ég
sem barn fékk af ömmu minni,
ekki mynd af örþreyttri konu, sem
stendur á kafi í mjöltum, bakstri,
heyvinnu og matargerð. Nei,
myndin er önnur. Hún er af konu,
sem ann bókmenntum, listum og
öllu því sem fagurt er.
í huganum er mynd af konu,
sem skynjar litadýrð og fegurð
náttúrunnar, allt frá hinni
smæstu jurt til hinna fjarlægu
stjarna. Ekki ber að skilja þetta
svo að hún Þórunn á Vatnsleysu
hafi setið auðum höndum. öðru
nær. Hún var sívinnandi bæði úti
og inni. En ég minnist þess að yfir
eldavélinni, við uppþvottinn, eða
hvenær sem færi gafst, var farið
með kvæði, sagðar sögur og annað
þess háttar. Eftir á að hyggja þá
hafa þetta verið hálfgerðir bók-
menntatímar.
En hún hefði ekki þurft að fara
eingöngu með kveðskap annarra,
því hún sjálf var prýðilega hag-
mælt, en það fór hún mjög dult
með.
Okkur krökkunum fannst gam-
an þegar amma og manna fóru
með okkur á berjamó. Þá var
gjarna farið í svokallaðar Tófur,
sem eru í hrauninu rétt hjá
Vatnsleysu. í þeim ferðum var
gert meira en að tína ber. Það
voru skoðaðar jurtir og lyng.
Okkur var sagt hvað þessi eða hin
tegundin héti og athygli okkar
vakin á einkennum þeirra og feg-
urð. Fjallagrasið og mosinn voru
heillandi rannsóknarefni eða þá
hraunið sjálft og steinarnir, lögun
þeirra og litur.
Þegar amma var orðin fullorðin
varð hún fyrir því óláni að lær-
brotna. Eftir það gekk hún aldrei
heil til skógar. En andlega þrekið
og krafturinn var sá sami. Hún
gafst ekki upp. Það var tekið til
við að sauma. Dagurinn var aldrei
nógu langur. Nú vannst tími til að
sinna þeim hugðarefnum, sem áð-
ur hafði ekki gefist tóm til. Komu
þar vel fram hinir listrænu hæfi-
leikar hennar og hversu næmt
auga hún hafði fyrir litum. Eru
þau ófá listaverkin, sem hún hefur
saumað og prýða nú heimili barna
hennar, barnabarna og jafnvel
barnabarnabarna. Væri það efni í
góða sýningu ef allt væri komið á
einn stað.
Hún var gjafmild með afbrigð-
um. Það var ekki til sá hlutur í
hennar eigu sem hún vildi ekki
gefa, ef hún hélt að einhver gæti
haft af honum not eða gleði.
Amma var greind kona, og hún
var trúuð kona og hugsaði mikið
um trúmál. Hún trúði á Guð, hinn
mikla smið veraldar.
Eftir að hún lærbrotnaði, dvald-
ist hún mörg ár á heimili foreldra
minna að Ásgarði í Vogum. Telj-
um við okkur öll ríkari vegna
þeirrar dvalar og þökkum henni
allar samverustundirnar. Veit ég
að foreldrar mínir lögðu sig fram
um að reynast henni sem best þau
ár, sem hún átti heimili hjá þeim.
En þegar kraftarnir voru að
þrotum komnir naut hún góðrar
hjúkrunar Guðríðar dóttur sinnar
á heimili hennar að Hlíðarenda,
þar til hún fór á Sjúkrahúsið í
Keflavík, þar sem hún lést sl.
laugardag.
Við systurnar allar minnumst
hennar með hlýhug og þökk.
Dúdda
+
Þökkum auösýnda samúö og hlýhug viö fráfall
GESTS JÓNSSONAR,
Vllllngaholti.
Sérstakar þakkir færum viö læknum og öllu starfsfólki i Sjúkrahúsi
Suöurlands.
Systkinabörn
og aörir aöstandendur.
t
Þökkum samúö viö andlát og jaröarför
MÁLFRÍDAR PÁLSDÓTTUR.
Kærar þakkir til starfsfólks hjúkrunardeildar Heilsuverndarstöövar-
innar.
Skúli Guömundsson, Hjördls Hjörleifsdóttir,
Skúli Guömundsson, Sigriöur Jóhannesdóttir.
Vörumarkaðurinnhl.
Opiö til kl. 20 í kvöld
\
I Ármúla 1A ? hæð. Sími 686112. og kl. 10—16 á morgun, laugardag.
Glerskápur kr. 4.381,- Hillur kr. 2.738,-
Skápur kr. 4.442,- Barskápur kr. 6.207,-
Skúffur kr. 4.381,- Videóskápur kr. 4.260,-
Staðgreiösluafsláttur eða afborgunarskilmálar
ÞUCETUR
AUWITAD
MAJLADAFTUR
EN ÞU ÞARFT ÞAÐ EKKI
Ending og styrkur International málningar er slíkur
að ein yfirferð með henni er margfaldur
jafnoki venjulegrar málningar.
í Litahúsinu á Hringbraut 119 færðu International
plastmálningu, gólfmálningu, húsgagnalakkog
skipamálningu. Þar fást einnig ýmis verkfæri, lím og þéttiefni.
Opið: mánudaga-fimmtudaga kl. 9.00-18.00,
föstudagakl. 9.00-19.00 og laugardagakl. 9.00-16.00.
International-nídsterk og ódýr
HRINGBRAUT119, SÍM116550.