Morgunblaðið - 15.02.1985, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1985
51
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL 11—12
FRÁ MANUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
’h iiLrwaiwi/nuo
Þessir hringdu . . .
Brot á sjálfs-
ákvöröunarrétti
Ökumaöur hringdi:
Fyrir mitt leyti finnst mér það
gróft brot á mínum sjálfsákvörð-
unarrétti ef að skikka á mig til
þess að nota bílbelti. Ég vil fá að
ráða því sjálf hvort ég bind mig
við bílinn eða ekki. Fyrst for-
sjónin er orðin svona hjá ríkis-
valdinu þá finnst mér eins að
sekta ætti þá sem eyðileggja
heilsu sína með reykingum,
drykkju og öðru.
Barnaefni
frá 5 til 6
Móöir hringdi:
Væri ekki hægt að hafa eitt-
hvert efni sem börn hafa gaman
af í sjónvarpinu á sunnudögum
frá kl. 5-6?
Krakkar horfa á Húsið á slétt-
unni, en kl. 5 eru oftast sýndar
einhverjar fræðslumyndir með
textum sem krakkar skilja ekki.
Því þurfa þau að bíða til 6 eftir
Stundinni okkar? Væri ekki
hægt að sýna einhverjar myndir
þarna inn á milli, svo að krakkar
geti líka horft á sjónvarpið?
Lágmarks- og
hámarkshiti
R.S. hringdi:
Ég hef vakið máls á þessu áð-
ur í dálkum Velvakanda en þá
bárust engin svör. Því spyr ég
aftur: Hvers vegna er ekki gef-
inn upp lágmarks- og hámarks-
hiti um landið í veðurfréttum
sjónvarps í stað þess að gefa
bara hitastigið kl. 18?
Alls staðar annars staðar
tíðkast það að lágmarks- og há-
markshiti sé gefinn upp og því er
ekki gert slíkt hið sama hér?
Búseti tekur
í taumana
Fyrrverandi íbúi í verkó skrifar:
Hámenntaðir og tekjuháir
Búsetamenn fara nú hamförum
til að ræna því fé, sem ætlað er
til byggingar íbúða fyrir tekju-
lága meðlimi verkalýðsfélaga.
Oft er verkamannabústaður
eina vonin fyrir fátækar fjöl-
skyldur. Margir af forystu-
mönnum verkalýðsfélaganna eru
aldir upp í verkamannabú-
stöðum og þekkja vel þá gífur-
legu breytingu, sem verður á
högum og lífsviðhorfi fólks við
að eignast eigin íbúð. Þessir
forystumenn eru víða í úthlutun-
arnefndum verkamannabústaða
og er vel treystandi til að út-
hluta þessum alltof fáu íbúðum.
Nú ætlar Búseti að fækka
þessum íbúðum um helming.
Framsóknarflokkurinn er linur í
þessu máli. Ég skora á verka-
lýðsforystuna og Sjálfstæðis-
flokkinn að taka höndum saman
og stöðva þessa svívirðu í fæð-
ingu.
Vinnustaðirnir verði
gerðir reyklausir
Heill og sæll Velvakandi góð-
ur!
Mig langaði aðeins til að
senda opinberum starfsmönnum
kveðjur og óska þeim og við-
skiptavinum þeirra hjartanlega
til hamingju með reykingabann-
iö.
Þessi nýju lög um tóbaksvarn-
ir eru stórum merkilegri en
margan grunar. Já, ég leyfi mér
að segja að þau séu eitt besta
framlag þingmanna okkar til
heilbrigðismála í mörg ár. Eiga
allir þeir sem að þeim stóðu
heiður skilinn.
Miðaldra Reykvíkingar muna
eftir reykskýinu sem huldi bæ-
inn á kyrrum dögum hér áður
fyrr. Nú er sú mengun horfin og
er andrúmsloftið í höfuðborg-
inni frábærlega gott, eins og all-
ir vita. Þetta rifjast upp þegar
hugsað er um þá byltingu sem
nýju lögin munu valda ef vel
tekst til. Því að vonandi verður
ekki látið staðar numið, lögin
þurfa að sjálfsögðu að ná miklu
viðar.
Ég er nú tekin að gamlast sem
á grönum má sjá. Á flestum eða
öllum vinnustöðum þar sem ég
hef starfað um ævina, hafa verið
fleiri eða færri tóbaksþrælar
sem sumir reyktu mjög mikið.
Aldrei var ég spurð að því hvort
reykmökkurinn væri mér til
óþæginda.
Nýju lögin um tóbaksvarnir eru að
mati bréfritara eitt besta framlag
þingmanna okkar til heilbrigöismála
í mörg ár.
Þar sem ég starfa núna hefur
vinnuveitandinn varið tugum
þúsunda til smiði og endurbóta
á loftræstikerfi hússins. Trúlega
var það vegna óska starfsfólks-
ins að kerfinu var komið upp á
sínum tíma, enda hefur það haft
óhemjugóð áhrif á andrúmsloft-
ið í vinnusölunum.
En Adam var ekki lengi í
Paradís. Reykingamennirnir í
hópi starfsfólksins menga loftið
eins og hverjum þóknast og það
hreint ekki svo lítið! Satt að
segja erum við hin, sem ekki
notum tóbak og sum hver þolum
reykinn mjög illa, gersamlega
varnarlaus í þessu máli. Þvi að
tóbaksmenn vita sem er, að þeir
eru í fullum rétti, eru eins konar
heilagar kýr, samkvæmt margra
ára hefð. Enda ætlast þeir til að
hinn þögli meirihluti verði
áfram þögull og beri harm sinn í
hljóði.
Segja má, eldri kynslóðinni til
afsökunar, að hún hafi ekki ver-
ið ýkja fróð um skaðsemi tób-
aksins hér áður fyrr. En síðustu
árin hafa samhljóða skýrslur
lækna og ýmissa annarra, sem
um mál þessi fjalla, verið birtar
með stuttu millibili og getur því
enginn afsakað sig lengur með
því að hann viti ekki hvað er á
seyði.
Sannleikurinn er sá, að hér er
um augljósa eiturlyfjaneyslu að
ræða, samfara því óheyrilega
ofbeldi að tóbaksþrælarnir
þvinga fólkið, sem þeir umgang-
ast, til að anda að sér eitrinu —
með afleiðingum sem öllum eru
kunnar.
Verkalýðsfélögin hafa unnið
mörg stórvirki til hagsbóta fyrir
almenning. En þau gera nær
eingöngu kröfur til atvinnurek-
enda. Nú ættu þau að beina
kröftum sínum inn á við, ef svo
mætti segja, og hvetja sitt fólk
til dáða og stefna markvisst að
því að gera vinnustaöina reykl-
ausa!
Það væri verðugt verkefni.
Með reyklausum kveðjum,
Imba
Er þröngt
á þingi?
Hvít-eða
svartlökkuð, :U \L'/ /
lún
90 sm breið m/svampdýnu
105 sm breið m/svampdýnu
120 sm breið m/svampdýnu
kr. 10.185,- stgr.
kr. 11.183,- stgr.
kr. 12.182,- stgr.
Mahogny m/svampdýnu 105 sml
Mahogny m/svampdýnu 120 sm breið
HvíMakkað m/svampdýnu 105 sm breið
Hvítiakkað m/svampdýnu 120 sm breið
kr.15.248,- stgr,
kr.13441,-stgr.
kr. 14442,- stgr.
Fururúm m/svampdýnu 105 sm breið 1: kr. mi48,- stgr.
Fururum m/svampdýnu 120 sm breið ® kr. 10858,- stgr.
Springdýnurúm 90 sm breið
Springdýnurúm 105 sm breiö
Springdýnurúm 120 sm breið
kr. 8829.- stgr.
kr. 9.789,- stgr.
kr. 10.797,- stgr.
Opið til kl. 2000 í kvöld
og kl. 10—16 á morgun, laugardag
Armúla 1A, 2. haeö. Sími 686112