Morgunblaðið - 24.02.1985, Qupperneq 1
fllmagttttltfftikife
B
PRENTSMIÐJA MORG UNBLADSINS
SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1985
BLAÐ
Rætt við
Gunnar
Þórðarson,
hljóm-
listarmann
MorgunblaðiA/RAX.
VIÐTAL
SVEINN GUÐJÓNSSON
Fyrir tíu árum, árið
1975, voru fyrsta rokk-
tónlistarmanninum á
íslandi veitt lista-
mannalaun. Sá maður
var Gunnar Þórðar-
son. Tíu árum áður, ár-
ið 1965, kom út fyrsta
bítlaplatan á íslandi,
tveggja laga plata með
Hljómum frá Keflavík.
Höfundur laganna var
gítarleikari hljóm-
sveitarinnar, Gunnar
Þórðarson. Tuttugu
árum áður, í janúar
1945, fæddist svein-
barn norður í Hólma-
vík og sjálfsagt hafa
menn nú þegar getið
sér til um að hér var í
heiminn borinn hinn
sami Gunnar Þórðar-
son. „Já, tíminn líður,“
segir hann annars
hugar þegar við rifjum
upp þessi tímamóta-
atvik í lífi hans.
Gunnar Þórðar-
son hefur hald-
ið sínu striki og
lifir enn og
hrærist i mús-
íkinni. Þegar ég
hitti hann var
hann að ljúka
æfingu með hljómsveit sinni á
Broadway. Þar var verið að fín-
pússa syrpu með gömlum „Brim-
klóarlummum" og ég spyr hann
hvað sé eiginlega á seyði?
„Maður verður að hafa þetta með.
Eftir svona skemmtanir eins og
með Ríó-tríóinu vill fólkið fá
eitthvað, sem það þekkir og getur
sungið með. Þegar fólk er að
skemmta sér og komið á þriðja
glas kemur samkenndin upp og
menn vilja taka þátt í þessu. Við
höfum líka lítið verið með íslensk
lög og „vertinn“ hefur kvartað yfir
því. Sjálfur er ég fyllilega sáttur
við þetta því að þegar við erum að
Sjá bls. 4B.